Þjóðviljinn - 07.06.1991, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 07.06.1991, Blaðsíða 17
Vagg- tíðindi Eftir viku kemur út sjö laga plata frá NÝ DÖNSK. Platan hefur að geyma tvö ný lög og fimm gömul sem tekin voru upp á tónleikum á Púls- inum í vetur. Platan heitir Kirsuber... Hið árlega RikkRokk verð- ur haldið laugardaginn 10. ág- úst hjá Fellahelli. Hægt er að skrá hljómsveitir frá og með deginum í dag í Fellahelli. Sím- inn er 73550... Steinar og P.S. Músik eru að leggja heiminn að fótum sér...eða allavega Norðurlönd. Nýlega var hér staddur samn- ingsaðili ffá Sonet-hljómplötu- fyrirtækinu sem er með þeim stærstu á Norðurlöndum. Á þessu ári verða gefriar út þijár plötur, plötur Sálarinnar (sem kalla sig Beaten Bishops á al- þjóðamarkaði), Todmobile og Point Blanc. Icebreakers nefh- ist svo safnplata sem á að nota til kynningar ytra. Á þessari plötu (sem reyndar er aðeins diskur og snælda) koma allir helstu listamenn Steina fram og syngja eigin lög með enskum textum. Hjólin eru farin að snúast hjá Vinum Dóra. Platan „Blue Ice“ sem blúskombóið tók upp ásamt Chicago Bo og Jimmy Dawkins kemur út í Bandaríkj- unum 14. júní. Halldór, Guð- mundur og Andrea eru á leið út til að fylgja plötunni eftir á hinni árlegu blús-hátíð sem verður haldin í Chicago um miðjan júní. Þar koma þau ffam og ræða áffamhaldandi sam- starf við Chicago-blúsara. „Blue Ice“ kemur svo út hér- lendis um mánaðamótin júní/júlí. Vinir Dóra koma fram á Púlsinum um helgina til að hita sig upp fyrir Chicago-for- ina. Ágúst Már söngvari kemur ffam með sveitinni. Ágúst er aðeins 19 ára gamall og þykir ótrúlega efnilegur... Aðrar uppákomur: Eftir blús Vina Dóra á föstudags- og laugardagskvöld tekur Trega- sveitin við á sunnudagskvöldið. Púlsinn býður svo upp á nýtt band sem Hjörtur Howser hljómsborðsleikari hefur sett saman „Óttablandin virðing" á þriðjudagskvöldið. Sniglaband- ið rokkar á Tveim vinum um helgina og hljómsveitin Teppz leikur hipparokkslagara á sunnudagskvöldið. Annað líf Stjórnarinnar Stjórnin og P.S. Músik, út- gáfufyrirtæki Péturs Kristjáns- sonar, héidu útgáfuparti á Ömmu Lú í síðustu viku. Ný plata Stjórn- arinnar „Tvö líf“ hljómaði á með- an gestir sötruðu freyðivín og átu sniglakruður. „Tvö h'P‘ er eins og við var að búast full af grípandi léttpoppi, heppilegu fyrir sveita- böllin sem hljómsveitin þræðir í allt sumar og langt fram á haust. Platan hefur að geyma tíu lög og aðeins tvö þeirra eru eftir meðlimi sveitarinnar. Grétar semur „Láttu þér líða vel“, poppaðan reagge- smell og Jón Elvar Hafsteinsson gít- arleikari á „Einhver annar“. Hinir og þessir eiga lög og texta á plöt- unni; Stefán og Eyfi, Valgeir, Karl Örvarsson, Þorvaldur og Andrea, Eirikur Hauksson og Friðrik Karls- son hafa öll lagt Stjóminni lið og þrjú lög eru samin af höfundum á Norðurlöndum, titillagið „Allt sem ég þrái“ og „Þessi augu“ sem er þegar farið að bylja á útvarpshlust- endum. Stjóminni vom boðin þessi lög af samstarfsaðilum í Svíþjóð. Lögin höfðu ekki áður komið út nema „Þessi augu“ sem hafði verið vikum saman í efstu sætum vin- sældalista í Svíþjóð í flutningi Alix Zandra. Sigga samdi textann í „Tvö líf‘ og kemur á óvart með finum popptexta. Nokkrum dögum eftir útgáfupartíið hringdi Helgarvaggið í Siggu. Það var mánudagskvöld og Sigga nýkomin af sveitaballarúnti. - Eruð þið ánœgð með nýju plötuna? ,Já, alveg rosalega. Hún er miklu betri en „Eitt lag enn“, miklu meira í hana lagt. Óskar Páll Sveins- son og Jon Kjell Seljeseth upptöku- menn stóðu sig frábærlega." - Hvar á að spila um Verslunar- mannahelgina? „Það er nú ekki komið á hreint ennþá, en flestar aðrar helgar em bókaðar. Það verður ekki mikið um sumarfn." — Eru einhverjar erlendar út- gáfur komnar á hreint? „Nei, ekki ennþá en það em við- ræður í gangi. Við höfum verið að taka upp lög á ensku.“ - Hvað tekur við hjá Stjóminni í haust? „Við fömm í ffí í haust og ég veit ekki hvað tekur við. Það hefur alltaf verið sólóplata í bígerð hjá mér. Vonandi verður af því á næsta ári.“ -Aað fara aftur í Euróvision? „Ja, það er þrælgaman að taka þátt í henni og maður myndi fara ef það kæmi upp reglulega gott og týp- ískt júró-lag. Maður nennir ekki að fara út upp á það að lenda í sextánda sæti.“ - Ég sá að þú hefur sidpt um út- lit, ert orðin meira ,,sexý<",er verið að höfða til eldra fólks núna? „Já, ég fékk Dóm Einars til að pæla í útlitinu með mér. Það má kannski segja að við séum að reyna að höfða til eldri unglinga. En á sveitaböllunum nenni ég ekki að dressa mig upp. Það er svo mikil fyrirhöfn." Fyrsta plata Stjómarinnar seld- ist í um níu þúsund eintökum og er enn að seljast. „Tvö líf‘ er þegar komin langt í gullið og á ömgglega eftir að ná þeirri fyrstu í sölu. Hún er vönduð, grípandi og akkúrat mátu- leg í bílinn þegar glímt verður við þjóðveginn í sumar. Nýju skór Kristján Hreinsson og hljómsveitin hans - Skáld á nýjum skóm. Geim- steinn 1991. Kristján Hreinsson er skáld götunnar. Eft- ir fimmtán ára dútl með pennann og gítarinn dregur hann upp þrettán lög úr skrifborðs- skúffum árarma, tekur upp ásamt ffíðu föm- neyti og gefur út. „Skáld á nýjum skóm“ heit- ir gripurinn og kom út fyrir skömmu. Það er ekki hægt að segja að hér sé um heilsteypt ígmndað verk að ræða heldur er hér miklu frekar gott yfirlit yfir skáldferil Kristjáns. Ef maður ætlar að reyna að lýsa tónlist Kristjáns er auðveldast að segja að hann sé einhvers staðar á milli Megasar og Bjartmars. Þetta er þó frekar ódýr lýsing því Kristján hefur upp á margt frumlegt að bjóða. Kristján semur lög og texta plötunnar, syngur og ljær mörgum lögum skemmtilega munnhörpu-áferð. Til aðstoðar hefur hann Pétur Hjaltested sem sér um hljómborðsleik og forritun, Tryggva Hubner á gítar og Pálma Gunnarsson á bassa. Allt em þetta sjóaðir spil- arar sem stuðla að vandaðri plötu. Hljómurinn er að vísu dálítið niðursoðinn. Eg er þess ftill- Kristján Hreinsson á yngri árum. viss að lifandi trommuleikur og minna hljóð- skáldsins gerflavæl myndi gera neistann í tónlist Krist- jáns að báii. En þetta er smáatriði sem skáldið segist ætla að hafa bakvið eyrað á næstu plötu. Það em textamir sem rifa þessa plötu langt upp fyrir miðjumoðið. Einum fárra poppara tekst Kristjáni að búa til birtingar- hæfa rímtexta. Stundum tryllist Kristján al- gjörlega í riminu, eins og í tveim ffábæmm „bull-lögum“ plötunnar, „Glasaböm" og „Spriklandi á Grikklandi“ þar sem þessi hringavitleysa kemur upp: „Já, ég var sprikl- andi á Grikklandi, mcð vindverki hjá grind- verki, ælandi á Snælandi, í námunda við Amunda, þá kom Ágúst með strákúst.“ Oftast hefur Kristján þó hemil á sér. Margir textar plötunnar fjalla um utangarðslíf og sukk. „Steingrímur bóndi“ er ljúfsár lýsing á ævi drykkjuhjúa og „Portið“ dregur upp myndir af fátækt og lífssýn þeirra sem fæddir em í stræt- inu. „En utan við portið er röðullinn stóri og rauði, hann reynir að sýna að líftð er taktfast- ur dauði, og heimurinn sekkur í húmið. Nýju skór skáldsins em vandaðir og engir götóttir gúmmískór. Vonandi fær hann sér þó aðra skó bráðlega, og þá kannski rokkskó því mér segir svo hugur um að skáldið myndi taka sig best út í þannig skófatnaði. 16. júní rokkhátíðin Quireboys Hljómsveitin kemur ffá Englandi og er skipuð sömu sex-menningum og þegar hljóm- sveitin spilaði hér með Whitesnake í september. Spike syngur, Guy Bailey og Guy GrifTin spila á gítara, Nigel Mogg á bassa, Rudi Richman á trommur og Chris Johnstone á hljómborð. Fyrsta plata hljómsveitarinnar „A bit of what you fancy“ var unnin af Sharon Osboume eig- inkonu Ozzy og kom út í janúar í fyrra. Platan seldist í bílförmum og hljómsveitin var mjög ,)ieit“ þegar hún spilaði hér. Síðan þá hafa þeir gefið út tónleikaplötuna „Around the world“, ferðast um og spilað og slappað af í Los Angel- es síðastliðna mánuði. Ekki er von á nýrri plötu ffá hljómsveitinni fyrr en á næsta ári. Fyrir þá sem sáu hljómsveitina hér í fyrra er óþarft að rausa meir. Rokkið talar. Bulletboys ,Jlokk og ról er ekki fúllkomið og við fór- um ekki í rokk og ról bréfaskóla til að læra að gera p!ötur,“ segir Marq Torien, söngvari Byssukúludrengjanna. Ásamt honum eru í sveitinni Mick Sweda gitarleikari, Lonnie Ven- cent bassisti og trommarinn Jimmy D'Anda. Hljómsveitin hefúr starfað saman síðan 1988 og geftð út tvær plötur, „Bulletboys“ 1988 og „Freakshow" sem kom út í fyrra. I sveitinni fá drengimir útrás fyrir sameiginlegan draum; að koma hlustandanum í arrnan heim. Drengimir byggja á ffæðum Led Zeppelin, Lynard Skyny- ard, ZZ Top og Van Halen og er sama um alla velgengni. „Við emm ekki að gera út á peningana," segir Torien, „við emm að spila fyr- ir okkur sjálfa og aðdáendur okkar. Það er ágætt ef við fljúgum inn á útvarpsstöðv- amar, ef ekki þá vitum við að við höfúm verið trúir okkur sjálfum." Marq Torien er einn af fáum þungarokkurum sem em undir soul- áhrifum í gegnum Motown-fyrirtækið. Þar gaf hann út plötu sem söngvari hjá hljómsveitinni Cagney and the dirty rats og vann með ekki minni mönnum en Stevie Wonder, Smokie Ro- binson og The Temptations. Þessi reynsla varð til þess að nú spilar hann þungt rokk með soul- áhrifúm í Bulletboys. Aðrir meðlimir sveitar- innar koma úr ýmsum áttum, Mick Sweda seg- ist vera eins og svampur sem drekkur í sig áhrif. Hann segir að öll hljóð sem hann heyri hafi áhrif á það hvemig hann spilar á gítar, jafnt bíl- HELGARVAGG slys sem flugeldasýningar. Lonnie Vencent hætti í skóla 16 ára gamall til að elta uppi rokk- drauminn og hefúr í gegnum tíðina unnið með ýmsum, þ.á m. cc Deville úr Poison. Þessi kunningsskapur nægði til að hljómsveitin fékk inni á Kapla- krikarokkinu. Yngsti meðlimurinn er trommar- inn sem snemma barði sig uppúr fátækrahverf- um L.A. Hann hefúr mjög fjölbreyttan tónlist- arsmekk sem heyrist vel á því hvemig hann ber settið með Bulletboys. I næstu viku: Poison og Artch. Umsjón: Gunnar L. Hjólmarsson Föstudagur 7. júní 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 17 Mynd: Kristinn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.