Þjóðviljinn - 07.06.1991, Qupperneq 7
Uffe Ellemann-Jensen, utanrfkisráðherra Dana (t.v.) - (sland eitt stóð með honum.
Dræmur stuðningur
Nató við Eystrasaltslönd
Tillaga dönsku stjórnarinnar
um eindregnari stuðning
Nató við Eystrasaitslönd í sjálf-
stæðisbaráttu þeirra fékk dauf-
legar undirtektir á utanríkis-
ráðherrafundi bandaiagsins í
Kaupmannahöfn í gær. Tók ís-
iand eitt í sama streng og Dan-
mörk.
Danska stjómin lagði til að
Natóriki gæfu sovésku stjóminni
til kynna, að þau ætluðust til að á
móti efnahagsaðstoð að vestan
tæki hún upp undanbragðalausar
viðræður við stjómir Eistlands,
Lettlands og Litháens um sjálf-
stæðismál þeirra. Einnig skyldi
sovéska stjómin afdráttarlaust
vömð við að beita valdi í lýðveld-
unum þremur.
En tillögu þessari var hafnað,
og var haft eftir utanríkisráðherr-
um annarra Natóríkja að þeir
teldu að samþykkt hennar myndi
styrkja stöðu sovéskra ihalds-
manna, sem gera myndu mikið úr
því að hér væri um að ræða íhlut-
un um sovésk innanríkismál, og
veikja að sama skapi stöðu Gor-
batsjovs.
Tisch dæmdur
Harry Tisch, fyrrum formaður
austurþýska alþýðusam-
bandsins og fúlltrúi í stjómmála-
ráði austurþýska kommúnista-
flokksins, var í gær í Berlín
dæmdur til 18 mánaða fangelsis-
vistar, eftir að hafa verið fundinn
sekur um að hafa notað fé úr sjóð-
um verkalýðssamtakanna upp í
kostnað íýrir sig, fjölskyldu sína
og vini, er þau fóm í frí. Tisch,
sem er 64 ára, var látinn laus þeg-
ar er dómur hafði verið upp kveð-
inn, þar eð hann var búinn að vera
ár í varðhaldi og sex mánuði á að
gefa honum eftir vegna góðrar
hegðunar.
Tisch er sá fyrsti af ráða-
mönnum austurþýska ríkisins,
sem hlýtur dóm að því gengnu.
Vopnahléi í
Kambódíu lokið
Foringjar Rauðra kmera,
nokkuð þekktra samtaka í
Kambódíu, fyrirskipuðu í gær
skæruliðum sínum að hefja
bardaga á ný. Er þar með lokið
um mánaðar vopnahléi í 12 ára
borgarastríði Kambódíu, því
fyrsta sem ailir stríðsaðilar
stóðu að.
Þeirri síðustu af mörgum ráð-
stefnum deiluaðila, sem fram fór í
Indónesiu, lauk á þriðjudag án
þess að nokkur árangur næðist.
Klögumálin hafa gengið á víxl
milli stríðsaðila um vopnahlés-
brot.
Rauðir kmerar -
til vígaferla enn á ný.
Tisch - sagður hafa verið eyðslu-
samur á fé verkalýðssamtakanna
I frfum.
Gorbatsjov - Vesturlönd vilja styðja við bakið á honum.
Sjöríkjaklúbbur
býður Gorbatsjov
Afréttum í gær var svo að
skilja að ieiðtogar sjö mestu
iðnaðarríkja heims hefðu
ákveðið að bjóða Gorbatsjov
Sovétríkjaforseta til Lundúna í
júlí, er leiðtogaráðstefna ríkj-
anna verður haidin þar. Virðist
á bak við þetta boð liggja vilji
ráðamanna ríkja þessara til að
styðja við bakið á Gorbatsjov í
vandræðum hans miklum
heimafyrir.
Varla þarf að taka frarn að
aldrei fyrr hefúr sovéskum leið-
toga eða leiðtoga nokkurs annars
ríkis undir stjóm kommúnista
verið gefið færi á að komast ná-
lægt þessum „klúbbi“. í honum
eru Bandaríkin, Kanada, Japan,
Bretland, Frakkland, Þýskaland
og Italía.
Ekki er gert ráð fyrir að Gor-
batsjov sitji fúndi ráðstefnunnar
sem slíkrar, heldur mun fýrirhug-
að að leiðtogar sjöríkjahópsins
ræði við hann á milíi fúnda eða að
ráðstefnu lokinni.
Föstudagur 7. júní 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 7
FOSTURBORNIN
U mhver fisverkefni
U ngmennafélaganna
Þriggja ára verkefni 45000
félagsmanna í 250
ungmennafélögum um allt land
Mætum öll á vettvang 8.-9. júníl
r
Ungmennafélag Islands
......................... -