Þjóðviljinn - 07.06.1991, Page 8
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f. Afgreiösla:» 68 13 33
ridiiiAVAmiudbijun. ndiiui ruii juiiöWH Ritstjórar; Árni Bergmann, Heigi Guðmundsson. Umsjönarmaður Helgarblaðs: Bergdís Bl PrótfactiÁrJ* <slni irrti ir Á PHAhiAfcc-rtn Auglysingadeild. tt 68 13 10 ♦** 68 13 Símfax: 681935 Verð: 150 krónur [ iausasölu ertsdöttir Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjófl Í|:|||:|||1|||||||||;Í|: víljans hi
Auglýsingastjóri: Steínar Harðarson Aðsetur: Síðumúla 37,108 Reykjavík
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Árslaun 6000 láglaunamanna
Vaxtaskrúfan er farin af stað. Verðbólgan
erfarin af stað. Nú erspáð verulegri aukningu
verðbólgu frá því sem var um kosningarnar
þegar verðbólguhraðinn taldist vera 5%. Vext-
irnir voru settir af stað með hækkun vaxta á
ríkisvíxlum. Þar var Einbjörn mættur á svæð-
ið. Þá kom Tvíbjörn og togaði í Einbjörn og
spariskírteini ríkissjóðs voru hækkuð í verði.
Þá kom Þríbjörn og togaði í Tvíbjörn: Bank-
arnir hækkuð sína vexti. Og svo kom Einbjörn
aftur og vextirnir á ríkisvíxlum hækkuðu enn.
Svo kom Davíð Oddsson. Hann sagði að
vextir á spariskírteinum ríkissjóðs myndu
lækka á ný með haustinu - svo og bankavext-
ir. Munum þau orð. Langlíklegast er - ef hann
er sjálfum sér samkvæmur - að hann haldi
áfram vaxtahækkunum og þannig koll af kolli.
Með vaxtahækkuninni gerist tvennt. Kaup-
greiðslugeta atvinnuveganna minnkar. Fjár-
magnseigendur verða ríkari. Og afleiðingin er
hallarekstur atvinnuveganna og verri afkoma
heimilanna.
Þetta sést glöggt af tölum sem meðal ann-
ars komu fram á lokadögum þingsins í ræðu
Steingríms J. Sigfússonar, varaformanns Al-
þýðubandalagsins.
Lán bankanna til einstaklinga námu 40,5
miljörðum króna í lok apríl. Við það bætast
húsnæöislán til einstaklinga um 13 miljarðar
króna. Heildarlán til einstaklinga nema því um
53,5 miljörðum króna í lok apríl. Bankarnir
hafa hækkað vexti á þessum lánum um 3%.
Þar með hefur kaup þeirra sem skulda bönk-
unum lækkað um 1,5 miljarða króna. Þaðjafn-
gildir verulegri skattlagningu eða segjum frek-
ar til samanburðar árslaunum 2000 láglauna-
manna. Það tekur 2000 láglaunamenn eitt ár
að vinna fyrir þessari vaxtahækkun bank-
anna!
En ekki er öll sagan sögð. Davíðsskattarn-
ir eru víðar: Talið var að fyrirtæki skulduðu í
lok aprílmánaðar 115 miljarða króna. Heildar-
hækkun vaxta af þessum lánum nemur því
um 3,4 miljörðum króna á ári.
Heildarskattahækkunin til bankanna er um
5 miljarðar króna. Til samanburðar voru nefnd
laun láglaunamanna hér á undan. En það má
líka nefna skatta til ríkissjóðs til samanburöar.
Allir eignaskattar nema samkvæmt fjárlögum
þessa árs 3,3 miljörðum króna. Vaxtahækkun-
in jafngildir því 130% hækkun á eignasköttum.
Það má líka taka tekjuskattinn til samanburð-
ar. Allir tekjuskattar einstaklinga nema í ár
tæplega 13 miljörðum króna. 1,5 miljarða
vaxtahækkun einstaklinga samsvarar því um
Vaxtahækkunin samtals í bönkunum ein-
um er því um 4,9 miljarðar króna. Með öðrum
orðum og sama samanburði: Það tekur 6000
láglaunamenn heilt ár að vinna fyrir vaxta-
hækkunum bankakerfisins. Davíðsskattarnir
eru þannig þyngsta byrðin sem launamenn í
landinu bera í dag.
Þegar ríkisstjórnin tók við lýsti hún því yfir
að skattar yrðu ekki hækkaðir. Það er rangt:
Skattar hafa verið lagðir á - 5 þúsund miljónir
handa þeim sem eiga fjármagn í bönkunum.
Þá eru ekki taldir þeir sem eiga fjármagn í
skuldabréfum og verðmætum utan bankakerf-
isins.
12% skattahækkun á einstaklinga. En fyrir-
tækin [aau borga alls í alla tekjuskatta aðeins
3,7 miljarða króna. Vaxtahækkun Davíðs
Oddssonar tvöfaldar í raun byrðar fyrirtækj-
anna.
Þannig eru skattar Davíðs Oddssonar og
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra ámóta
og allir skattar ríkissjóös af öllum eignum í
landinu - og jafngilda um leið stórfelldri hækk-
un tekjuskattanna.
S.
Vaxtahækkun 4,9 miljarðar
- allir eignaskattar 3,3 miljarðar
/
Má ég þá fara í frí núna?
8 SfÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júní 1991
• •f- 4, *#-> í-