Þjóðviljinn - 21.06.1991, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 21.06.1991, Blaðsíða 2
Mannát í kaffiskoti Á laugardag birtist í Þjóð- viljanum lítil frétt um sérkenni- legan flutning myndlistarverka í Menntamálaráðuneytinu. Þá var hringt í ráðuneytið, sem sagði að myndimar hefðu verið fluttar vegna þess að þær hefðu verið á mörkum þess að geta staðist og hefðu blasað við öllum þar sem þær héngu. I gær fórum við svo á stúfana til þess að athuga þetta mál nánar. Að vísu náðist ekki, í þetta skiptið, í neinn sem hefxir beinlínis með málið að gera en eftir að hafa gengið leitandi um ganga komum við upp á efstu hæð. Þar hittum við elskulega konu sem sagði okkur að því miður gæti hún lítið um málið sagt vegna þess hve nýbyijuð hún væri í starfi sínu en sýndi okkur þijár myndir sem miðað við sýningarskrá eru sennilega samstæðar og hluti úr mynda- sögu sem heitir Nafnlaus, er eftir Þórarinn Leifsson og birtist í Pressunni. Myndin hér að neðan er sú eina þessara þriggja sem hugsan- lega gæti fengið flnni frúr til að þrífa ilmsöltin upp úr töskunni og henni hefúr verið komið fyrir í kafliskoti starfsmanna. -kj Myndir: Kristinn Skákmót á Lækjartorgi Hið árlega Útiskákmót á Lækjartorgi verður haldið á vegum Skáksambands Islands í dag. Þetta er í tíunda sinn sem skákmót er haldið undir berum himni á torginu. Búist er við að um fjörtíu fýrirtæki taki þátt í mótinu og munu margir hörðustu skákjaxlar landsins tefla fyri þeirra hönd. Mótið hefst kl. 15. HVEGLÖÐERVOR VINNANDI ÆSKA Spá ekki í pólitík i grjótinu í Tjörninni Þeir eru vænir hnullungamir sem eiga fara í tjamargarðinn milli nýja ráðhússins og Iðnó. Þar vinna þeir í sumar félagamir Ami Þór Jónsson, 17 ára og Ingvi Már Pálsson, 19 ára við hin ýms- ustu verkamannastörf. Þegar þetta birtist hlýtur bros þeirra að ná út að eyrum í öllu þessu enda- lausa sólskini. Nýtt Helgarblað ræddi við þá félaga fyrir tveimur vikum og þá vom þeir ánægðir með að vera í útivinnu - samt var sólskinshrinan þá rétt byijuð. Þeim líkar vinnan bara fínt, einsog þeir orða það. Þetta er svona allskonar dútlvinna, sagði Ámi Þór. Verst fannst þeim að skríða í skurðunum og undirbúa holræsalagninguna í Vonarstræt- inu - en því er líklega lokið núna. Ámi Þór og Ingvi Már vinna tíu tíma á dag og segja kaupið viðunandi af því að vinnutíminn er langur. Þeir byija að vinna klukkan hálfátta á morgnana og hópurinn saman- stendur af tíu manns sem er skipt í smærri vinnuhópa. Þeir ætla að vera þama í norðurenda tjamar- innar í alit sumar og horfa á ráð- húsið í pásum. Þetta er misjafnlega erfitt, segja þeir, stundum erfitt og stundum ekki. Hvorugur hefúr verið í svona vinnu áður. Ami var áður í unglingavinnu, bæjar- vinnu og síðast í kirkjugörðun- um. Þetta er nú miklu meiri vinna, það er nú varla hægt að kalla þetta vinnu þama í kirkju- görðunum, sagði Ámi Þór. Við spáum ekkert í pólitík, sögðu þeir aðspurðir, en kannski hugsum við meira um umhverfis- mál en annað, bættu þeir við. Þeir em heldur ekki frá því að yngra fólk hugsi meira um um- hverfismál en þeir sem eldri em. Annars vom þeir hressir og tilbúnir að setjast á hnullungana svo Kristinn ljósmyndari gæti smellt af þeim mynd. Gijótið sem sést í óreiðu á myndinni er hinsvegar núna orðið slétt og fellt og líklegt að þeir Ámi Þór og Ingvi Már séu orðnir þreknari fyrir vikið. -gpm r Leikritið vinsæla, Sigrún Ástrós, er nú á leiðinni út á land í annað sinn. Leikritið er eftir einn af vinsælustu leikritahöfúndum Breta, þýtt og staðfært af Þrándi Thoroddsen. Vinsældir Sigrúnar Ástrósar em með ólíkindum ef litið er til þess hve ódýr og lítil sýning er á ferðinni. Það verður ekki hjá því komist að álykta sem svo að það sem uppá vantar í glæsilegum og dýrum umbúðum utan um Sig- rúnu hafl verið bætt upp með innihaldi og heldur betur. Því ofl- ar sem þessi leiksýning hefúr komið á fjalimar, þeim mun meiri hefur ásókn leikhúsgesta orðið. Það er sá eini leikdómur sem gildir þegar upp er staðið. Dómur áhorfenda. I fyrra var farið með leikritið á tólf staði á landsbyggðinni. Það er Margrét Helga Jóhannsdóttir sem leikur Sigrúnu. Hanna Maria Karlsdóttir er leikstjóri og Magn- ús Guðmundsson sér um tækni- leg atriði. Aðspurð sagði Sigrún að áhorfendur á landsbyggðinni væm ekkert öðm vísi en áhorf- endur í Reykjavík. En áhorfendur em náttúmlega mismunandi, bætti hún við eins og til öryggis. Margrét Helga tók það einn- ig fram að ísskápurinn sem sést hér á myndinni léki vemlega vel, enda er það ekki á hveijum degi sem ísskápur fær hlutverk í leik- riti. Þegar hún var spurð að því hvers vegna Sigrún Ástrós væri svona vinsæl þá sagði hún að það væri vegna þess hve skemmtilegt leikritið væri. Sömu spumingu svaraði leikstjórinn, Hanna María Karlsdóttir á þann veg að Sigrún Ástrós væri yndisleg manneskja og snerti hjartað í öllum sem sæju til hennar. Sigrún Ástrós fór til Vestmannaeyja í gær, verður sýnd á Akranesi á sunnudaginn og heidur þaðan á Hellissand. -kj EINHVERSTADAR VERÐA VONDIR AÐ VERA Fjandinn laus í kirkjunni. (PressanJ ÞETTA ER MORGUNLJÓST Hætt er við að kurteisisreglur kynlífsins hafi á sér neikvæðan blæ því eins og önnur kynlífsum- ræða er það sem er talið ,jnark- vert“ i eðli sínu frekar neikvætt samanber frasann „engar firéttir - góðar fréttir“. (KyntífspistiH Pressunnar) HIN HLIÐIN Á MÁLINU Afar vont fýrir íslenskt gott (Tímlnn) ÞEIRRA ER MÁTTURINN... Útvarpsmenn hafa sannarlega mikið vald. Þeir geta jafhvel sent borgarana óvarða beint í kalda norðangjólu og það í yndislegri þjóðhátíðarsól. (Fjölmlólapistin MorgunblaösinsJ L AN DBÚNADAR- VANDINN Mjög er bóndans mæða þung en mest af dilkum vænum. Helst ei mega hafa pung hrútamir á bænum. (BófaxiJ BLEKKINGIN ER ALGJÖR Donna segir að það sé orðið nokkuð algengt að kvikmyndaver noti ekki líkama leikaranna, sem leika í viðkomandi myndum, held- ur fái lánaða aðra líkama og því vita áhorfendur aldrei á hvem þeir eru að horfa. (TíminnJ ÞAÐ ER MARGT AÐVARAST Það fer því ekki á milli mála að það er leikur að eldi að stunda kyn- mök án verja við ókunna sjarmöra eða skvísur í sumarleyfinu. (Nýtt líf) RÁÐUNDIR RIFI HVERJU En hvað er þá til ráða fýrir manneskju sem, í mesta sakleysi lendir í ástarævintýri á sólarströnd eða sundlaugarbarmi í sumar? Nú, hún kaupir auðvitað vænan skammt af smokkum og notar þá jafn samviskusamlega og sólarol- íuna. (Sama grein í Nýju lífíj 2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.