Þjóðviljinn - 21.06.1991, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 21.06.1991, Blaðsíða 10
Hresst fólk á besta aldri I sundleikfimi i Höllinni. Þeir sem rækta llkama og sál þurfa ekki aö óttast elliárin. Sú æskudýrkun sem gegnsýrt hefur þjóö- félög Vesturlanda og neikvæðni gagnvart ellinni virðist verá á undanhaldi. Mynd: Kristinn. Ellismellir Þú ungi fagri elliher Þjálfun hugans er ekki slður mikil- væg en þjálfun llkamans. Fæstir eiga lengur ömmu eins og þær tíðkuðust og maður las um í gömlum barnabókum. Ömmur með síðar gráar fléttur sem sátu ævinlega með prjóna og garn I kjöltunni þegar þær voru heimsóttar í rjómapönsukaffi á sunnudögum. Ömmur eru á há- hæluðum skóm með permanent og lit í gráu hárinu. Þær eru ung- legri og hraustari en ömmurnar voru í gamla daga. Afar og ömm- ur fara á sólarstrandir og búa í stórum einbýlishúsum. Með batnandi Iífsskilyrðum á tuttugustu öld: aukinni læknis- þjónustu og nýjungum í lækna- vísindum, betra fæði, minni þræl- dómi og fleiru, hefur meðalaldur Vesturlandabúa hækkað til muna. Um miðja 19. öld var farið að halla undan fæti á fertugsaldri, nú á dögum er allt fimmtugum fært. Sálffæðingar halda því fram að fúllþroska fólk eigi eftir að fá uppreisn æru á næstu árum. Að mati margra þeirra munu ellilíf- eyrisþegar í æ rikara mæli verða sjáanlegir í samfélaginu. Þessi hópur fer alls staðar stækkandi, meira að segja markaðsspesjalist- amir eru smám saman að upp- götva þennan nýja hóp fómar- lamba. „Woopies“ (Well off older people) er nýtt tískuorð vestan- hafs, sem útleggst rosknir í góð- um efnum, samanber Uppar fyrir nokkrum árum. Þeir sem komnir eru yfir fimmtugt era yfirleitt þeir efnamestu í þjóðfélaginu. Roskið fólk hefúr skuldimar að baki, á sparifé í banka og nægan tíma, því að bömin era uppkomin og flogin úr hreiðrinu. Fólk sem starfar við ferðaþjónustu hefur vafalaust tekið eftir mikilli fjölg- un eldri ferðamanna hingað til lands. Þeir sem era komnir á eldri ár hafa tíma, peninga og frelsi sem þeir yngri hafa ekki. Margir vildu þó glaðir skipta á því og góðri heilsu og hrakkuleysi æsku- áranna. Læknavísindin einblína um þessar mundir mikið á öldrunar- ferlið og leita skýringa á því. Þrátt fyrir að það eigi fyrir okkur öllum að liggja að eldast og grána í vöngum er ellin enn sem komið er „tabú“ einmitt meðal þeirra þjóða sem lifa hvað lengst. Vi6 munum öll, viö munum öll... Aldurlagi sinu kviði engi maður segir í Hugsvinnsmálum. Öldran og dauði er óumflýjanleg- ur hluti lifsins, þótt við reynum að forðast að horfast í augu við þá staðreynd. ÖIl þekkjum við mýtur og sagnir af æskubranni, sem menn böðuðu sig í og urðu ungir Margir láta bugast í stríðinu við Elli kerlingu og láta skera burt augnpoka og strekkja húðina. (æskubundnum þjóðfélögum Vesturlanda er ellin „tabú“. 10 SfÐA —ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 21. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.