Þjóðviljinn - 21.06.1991, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 21.06.1991, Blaðsíða 18
Fljótir fætur og rólegar hendur Mikil uppsveifla hefur ver- ið í tennisíþróttinni hérlendis að undanförnu, enda hefur öll aðstaða til iðkunar tennis stór- batnað með fleiri völlum. Er nú svo komið að hægt er að spila tennis við marga skóla höfuðborgarinnar, auk þess sem gert er ráð fyrir tennis í nýjustu iþróttahúsum lands- ins. Fyrir utan Reykjavík eru útivellir í Hafnarflrði, Sel- fossi, einkavöllur á Suður- Iandi, Akureyri, Stöðvarfirði og þá er von á velli í Keflavik. Hinsvegar eru engir útivellir á Vestfjörðum né á Vesturlandi. Hérlendis var fyrst farið að spila tennis á stríðsárunum um og eftir 1940 og þá á Melavell- inum. Nokkru eftir það lagðist ástundun íþróttarinnar að mestu niður vegna aðstöðuleysis. En frá byrjun síðasta áratugar hefur tennisíþróttin verið á uppleið og fyrir fimm árum var Tennissam- bandið stofnað. Formaður þess fyrstu þrjú árin var Guðný Ei- ríksdóttir sem veitir Tennisskóla knattspymufélagsins Þróttar forstöðu. Þar er veitt kennsla í undir- stöðuatriðum iþróttarinnar, enda aðstaðan mjög góð á sérstökum afgirtum sandgervigrasvelli. Guðný segir að enn sem komið er séu íslendingar mjög aftarlega í íþróttinni miðað við nágrannaþjóðimar. Aftur á móti séu við æfingar mjög efnilegir unglingar og munu tveir þeirra taka þátt í Olympíuleikum barna Fyrir utan spaða, bolta og net eru góðir skór algjört grunda- vallaratriöi I tennis sem og ( mörgum öðrum fþróttum. sem fram fara í Brussel i Belgíu, þau Hrafnhildur Hannesdóttir og Gunnar Einarsson. Þau hafa að vísu bæði æft erlendis, hún í Svíþjóð og hann í Bandaríkjun- um. í tennis gefur annar aðilinn upp alla lotuna, en ein lota em fimm stig. Ef það verður jafnt verður að vinna lotuna með tveimur stigum. Til að vinna eitt sett verður að vinna sex lotur og til að vinna leik verður að sigra í minnsta kosti tveimur settum. A alþjóðamótum erlendis em spil- uð alls fimm sett, en aðeins tvö hér heima, enn sem komið er. Þeir sem hafa fylgst með tennis- mótum í sjónvarpi eða séð leiki erlendis vita að leikur í tennis er ekki tapaður eða unninn fyrr en með síðasta boltanum. Sá sem er undir getur nefnilega breytt um stíl og komið andstæðingnum úr jafnvægi þó svo að staða hans sé ekki vænleg í upphafi leiksins. Guðný Eiríksdóttir segir að galdurinn við að vera góður tennisleikari sé að hafa fljóta fætur og rólegar og yfirvegaðar hendur til að geta gert góð högg. Þá er hægt að spila tennis á öll- um aldri, byrjað hvenær sem er, og í spaðaíþróttum spila karlar og konur saman í tvenndarkeppi, auk þess að spila í karla- og [ tennisskóla Þróttar og vlðar er lagður grunnurinn að tenn- isspilurum framtföarinnar. Þar æfa þau yngstu af fuilum krafti undir leiðsögn Gyðnýjar Ei- rfksdóttir sem segir að efnivið- urinn lofi góðu um framhaldið. Myndir: Kristinn. kvennaflokkum. í þessum íþrótt- um ríkir því jafnrétti kynjanna, sem er meira en hægt er að segja um margar aðrar íþróttir. Á íslandsmótinu í tennis fer fram keppni í unglingaflokkum helgina fyrir verslunarmanna- helgi og í fullorðinsflokkum helgina þar á eftir. Enn sem komið eiga Islendingar enga tennisspilara á alþjóðiegan mælikvarða, en þó tóku íslenskir tennisspilarar þátt í Smáþjóða- leikunum í Andorra á dögunum og stóðu sig ágætlega. -grh Tennisfþróttin nýtur æ meiri vinsælda meðal þeirra yngri sem eldri, enda getur fólk byrjað f tennis á öllum aldri og hvenær sem er. Það er eins gott að vanda sig vel viö að slá tennisboltann, þvf það getur verið dýrkeypt að gera byrjendamistök þegar f keppni er komið. 18 SfÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 21. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.