Þjóðviljinn - 21.06.1991, Page 24
V__________
Peáeuid’Mande
ptmr *1U&\ ^'V^y^Anl tr^ riti'ry á Ut yttvft nwt **** <U
<■úvfi-fMuf Uu*#t <ut UaJuit.
\ * '*».** r . » o m
Hana-nú
Þegar sumaríð gengur í garð
breytist starfsemi Frístundahóps-
ins Hana-nú á þá lund að nánast
allir atburðir felast i útiveru og
i gðnguferðum.
Þó eru þar á undantekningar.
Laugardaginn 22. júní munu félag-
ar í Bókmenntaklúbbi heimsækja
bemskuslóðir Jóhannesar úr Kötl-
um og flytja í því tilefni samfellda
dagskrá í tali og tónum úr verkum
t skáldsins í Gmnnskólanum i Búð-
' ardal á laugardagskvöldið. Ragnar
\ Þorsteinsson, Hana-nú félagi og
fyrrverandi kennari er kynnir. Dag-
skránni lýkur með því að Svein-
| bjöm Beinteinsson kveður rimur
eftir Jóhannes úr Kötlum. Soffla
Jakobsdóttir leikari undirbjó og
æfði dagskrána. Á eftir verður sam-
vemstund yfir ijúkandi kaffi og ný-
! steiktum kleinum firá Ömmubakstri
i í Kópavogi.
Laugardaginn 29. júní verður
haldið Pútt-mót (mini-golf) á pútt-
, velli Hana-nú Rútstúninu kl. 14.00
og em allir velkomnir með kúlur
sínar og kylfur. Karl Helgason,
Hana-nú félagi og fýrrverandi
í kennari, stjómar mótinu og leið-
beinir nýliðum.
Mánudagskvöldið 8. júlí kl.
20.00 býður Guðni Stefánsson,
Eskfirðingur og forseti bæjarstjóm-
ar Kópavogs, Hana-nú félögum og
öllum gestum þeirra í sumarbústað
: sinn í Lækjarbotnum. Þar verða
grillaðar pylsur og ýmislegt annað
fínerí, sungið af hjartans lyst, farið í
leiki og harmónikkur þandar.
Kvöldganga verður í Lambafellsgjá
mánudagskvöldið 29. júlí og fólk
verður að hafa með sér í farteskinu
kaffibrúsann góða og svosem eins
og eina brauðsneið.
Farið verður í síðdegisferð í
Sólheima í Grímsnesi þann 17. ág-
úst með pompi og pragt og staður-
inn skoðaður undir Ieiðsögn heima-
manna.
Síðast en ekki síst ber að segja
ffá því að félagar í Gönguklúbbi
Hana-nú ganga alla laugardags-
morgna allan ársins hring, hvemig
svo sem veður og vindar blása, eitt-
hvað út í bláinn. Þar er kjörorðið;
samvera, súrefni, hreyfing og þar
vita menn gjörla að „það er aldrei of
seint að byija“.
Það er alltaf lif og fjör í Frí-
stundahópnum Hana-nú því þeir
sem þar una sér velkjast ekki í vafa
eins og Grasa-Gudda forðum „hvar
þetta hana-nú er á manneskjunni".
Allir Kópavogsbúar sem em
svo lúsheppnir að vera orðnir
fimmtugir geta skráð sig í Frí-
stundahópinn Hana-nú og um leið
em allir þeirra vinir og vandamenn,
böm og bamaböm velkomnir í hóp-
inn.
Það er bara að taka upp símtólið
og hringja í síma 45700.
Edduþýðing
verðlaunuð
Félag franskra þýðenda hefur
veitt Francois-Xavier Dillmann
árleg verðlaun sín fyrir þýðingu
hans á goðafræðihlutum Snorra-
Eddu sem út kom í vetur.
Dillmann, sem dvaldist við nám
og rannsóknir í Reykjavík um
nokkurt skeið og varði doktorsrit-
gerð um galdur I norrænum bók-
menntum, keimir nú norræn ffæði
við háskólastofhun I París. Eddu-
þýðing hans hefur að geyma Gylf-
aginningu i heild og goðaffæðikafla
Skáldskaparmála ásamt inngangi
og itarlegum skýringum. Kom hún
út í bókaflokki, sem nýlega hefur
hafið göngu sína hjá einum þekkt-
asta útgefanda Frakklands, Galli-
mard, og nefnist .Jvlorgunn þjóð-
anna“. Hefur þýðing á finnska
ljóðabálkinum Kalevala einnig
birst í þessum sama bókaflokki.
Helmrblað
ur21. júní 1991.
Svo virðist sem áhugi Frans-
manna á íslenskum bókmenntum sé
stöðugt að aukast, og má einnig
hafa það til marks að nú á útmánuð-
um kom út þýðing Régis Boyer á
skáldsögu Thors Vilhjálmssonar
„Grámosinn glóir“ og vakti tals-
verða athygli. Helgaði dagblaðið
,JLibération“ henni eina blaðsfðu
við útkomuna, og sagði gagnrýn-
andi þess þar m.a.: „Skáldsaga Vil-
hjálmssonar hlýtur að koma ffönsk-
um lesanda á óvart vegna þess hve
ffamandi hún er. En aldrei er farið
með landslagið eins og skraut: Það
er aðalpersóna verksins allt ffá
voldugustu jöklum og niður í
smæstu jurtir, flfu og þennan mosa
sem er ýmist grár eða rauður og
gefur skáldsögunni nafn“. Hafa lof-
samlegir ritdómar um skáldsögu
Thors birst í öðrum ffönskum blöð-
um, m.a. „Le Monde“.
e.m.j.
HBHBHHHHGS
-1 • ,*
, 4
“ '4-
Á ÖSKJUHLÍÐ,
EFNIR HITA-
VEITAN TIL
FJÖLSKYLDU-
SKEMMTUNAR
UTAN HUSS OG
INNAN NÚ UM
HELGÍNA. ÞETTA
ER KJÖRIÐ
TÆKIFÆRI TIL AÐ
KYNNAST ÚTI-
VISTARMÖGU-
LEIKUM ÖSKJU-
: HLÍÐARUM LEIÐ
| OG PERLAN ER
| SKOÐUÐ í FYRSTA
5 SINN.
Með hlýrri kveðju
FJOLSKYLDUHATIÐ
í ÖSKJUHLÍÐ
VEGNA OPNUNAR PERLUNNAR
LAUGARDAGINN 22. JÚNÍ OG SUNNUDAGINN 23. JÚNÍ.
Dagskrá frá ld. 14 til 17
Laugardagur 22. júní
Úti Inni
14.00 Lúðrasveit Reykjavíkur 14.10 Píanóleikur
14.30 Brúðubfllinn 14.30 Karlakórinn Fóstbræður
14.50 Grænjaxlar, söngleikur
15.00 Gönguferðir um Öskjuhlíðina undir leiðsögn félaga úr Skógræktarfélagi Reykjavíkur 15.00 Píanóleikur
15.10 Götuleikhús ogTóti trúður 15.30 Atriði ifá IJstaliátíð æskunnar
16.00 Eyfi og Stebbi
16.30 Götuleikhús ogTótí trúður
Sunnudagur 23. júní
Úti Inni
14.00 Lúðrasveit Reykjavíkur 14.00 Píanóleikui-
14.25 Leikhús í tösku
14.45 Brúðubfllinn 14.30 Bamakór Bústaðakirkju
15.10 Gönguferðir um Öskjuhlíðina undir leiðsögn félaga úr 15.00 Píanóleikur
Skógræktaríélagi Reylqavikur 15.30 Atriði Jfá Listahátíð æskunnar
15.30 Götuleikhús ogTóti trúður 16.00 Hljómskálakvintettinn
Bamaleiktæki verða úli frá kl. 14.00 tíl 17.00 báða dagana.
Fjölbreyttar veitíngar á kynningarverði.
, Hitaveita
Reykjavíkur
VELKOMIN í PERLUNA - NÚ OG UM ALLA FRAMTÍÐ.
í TILEFNl AF
OPNUN
PERLUNN AR,
LJTSÝNISHUSS
REYKJ AVÍKUR
IIITAVEITU