Þjóðviljinn - 22.06.1991, Qupperneq 4
A Umsión: G. Pétur Matthíasson
ElRT.ENTD.AiR
Jóhannes Páll páfi berst um þessar mundir gegn þeim ógnum sem honum
finnst steðja að mannslífum I heiminum, m.a. fóstureyðingar og líknarmorð.
Mynd: Jim Smart.
Blindrafélagið TIIE ICELANDIC ASSOCIATION Of THE IJUNL) 0 llamrnhlíð |7 Keykjav.k hcland lcl (354-1 )• 6K7333
HAPPDRÆTTI
BLINDRAFÉL AGSIN S
1991
DREGIÐ 19. JÚNÍ
Páfi hvetur til baráttu
gegn fóstureyðingum
Jóhannes Páll páfi skipaði í
gær biskupum sínum um
heim allan að Ieggjast ein-
dregið gegn fóstureyðingum
þar til lög sem þær leyfa
verða felld úr gildi.
I bréfi sem hann ritaði til um
íjögur þúsund rómversk-kaþólskra
biskupa í hátt í þijú þúsund bisk-
upsdæmum hvatti hann biskupana
til að standa i vegi fyrir lögum sem
leyfa glæpi. Páfinn mun aldrei fyrr
hafa verið jafnskeleggur í orðum
um þetta mál og í áðumefndu
bréfi. Sagði hann að þegar löggjaf-
arstofnanir settu lög sem heimiliðu
dauðadóm yfir sakleysingjum, og
ríki opnuðu opinberar stofnanir
sínar og sjúkrahús fyrir slíkum
giæp hefði það slæm áhrif á sam-
visku manna og gæti ieitt þá í
villu.
Kenna verður orð hinnar heil-
ögu ritningar, ritaði páfi, til að
binda endi á þennan vítahring.
Páfi skrifaði bréfið eftir fund
sinn með kardinálum þar sem þeir
ræddu ógnir gegn mannslífúm. Á
fúndi þeirra kom ffam að um 40
miljón fóstureyðingar em ffam-
kvæmdar í heiminum á ári hveiju.
Frá Vatíkaninu hafa borist þær
fféttir að páfi hyggist jafhvel skrifa
umburðarbréf um flest það sem
honum finnst ógna mannslífúm í
heiminu, en umburðarbréf mun
vera virðulegasta form páfabréfs.
Páfi hvatti biskupa sína til að
nota hvert tækifæri til að leggja
orð í belg á opinberum vettvangi
og undirstrika andstöðu sína gegn
fóstureyðingum og öðmm ógnum
gegn lífinu, eins og líknardrápi.
Jóhannes Páll sagði að menn
yrðu að taka höndum saman og
berjast gegn dauðahugafarinu sem
nú sé allt of ríkjandi í heiminum.
Fóstureyðingar, em sem kunn-
ugt er, mjög umdeilt mál í flestum
löndum. I Bandaríkjunum hefur af-
staða ffambjóðenda til fóstureyð-
inga ráðið hvað mestu um fylgi
þeirra í kosningum, og í Þýska-
landi hefúr deila um málið blossað
upp að nýju eftir sameiningu ríkj-
anna vegna þess að miklar hömlur
vom á fóstureyðingum í Vestur-
Þýskalandi en í Austur-Þýskalandi
vom þær leyfðar án takmarkana.
Nú er um það bitist hvor löggjöfin
verði ofan á.
Fóstureyðingar vom aðalum-
ræðuefni páfans í nýafstaðinni
heimsókn hans til heimalands síns
Póllands. Þar hvatti hann landa
sína til að ógilda lög þau, sem sett
vom á valdatíma kommúnista og
leyfa fóstureyðingar.
Albanir taka til
í bakgarðinum hjá sér
Þúsundir Albana söfnuðust saman í miðborg höfuðborgarinnar
Tírana í gær og fognuðu lengi og innilega þegar heljar lík-
neski af Lenín var tekið af stalli. Hreingerningin fór fram að-
eins nokkrum klukkustundum áður en James Baker, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, kom í opinbera heimsókn til landsins.
Reuter hefúr eftir talsmönnum
albönsku stjómarandstöðunnar að
þrjú þúsund manns hafi hlýtt kalli
Lýðræðisflokksins, helsta stjómar-
andstöðuaflsins í Albaníu, um að
mæta í miðbæinn til að steypa
Lenín af stalli. Nokkrir snarráðir
þátttakendur reyndu árangurslaust
að fella styttuna, en allt kom fyrir
ekki, þar til stjómvöld sáu þann
kost vænstan að senda kranabíl,
talíur og önnur tól á staðinn til að
létta mönnum verkið, í stað þess
að stugga við mannfjöldanum.
Lenín er ekki sá fyrsti sem
felldur er af stalli í Albaníu. í des-
ember sl. var stytta af Jósep karlin-
um Stalín tekin niður í Tírana.
Tveimur mánuðum seinna tók hóp-
ur lýðræðissinna sig til og reif nið-
ur minnismerki úr bronsi af fyrrum
leiðtoga Kommúnistaflokks lands-
ins og þjóðarleiðtoga, Enver Hoxa.
Heimsóknar Bakers var beðið
með eftirvæntingu, jafnt af stjóm-
völdum sem em þess fysandi að
taka upp stjómmálaleg og efna-
hagsleg samskipti við Bandaríkin
og af almenningi. Þúsundir manna
vom á sveimi um miðborg Tírana í
gær sem hélt á bandarískum fána-
veifum í heiðursskyni við hinn
tigna gest.
Á undanfomum mánuðum hef-
ur einangrun Albaníu á alþjóða-
vettvangi verið rofin og albönsk
stjómvöld tekið upp stjómmála-
samskipti við fjöldann allan af ríkj-
um sem óhugsandi var fyrir þá lýð-
ræðisvakningu sem varð í landinu
á síðasta ári. Meðal annars hafa
verið tekin upp vinsamleg sam-
skipti við Bandaríkin, og á mið-
vikudag gerðist Albanía formlegur
aðili að RÖSE - Ráðstefnunni um
öryggi og samvinnu í Evrópu.
-Reuter
Vinningsnúmer eru:
14463, 12761, 13399, 20016, 821,
7708, 11559, 19149, 20883, 4930,
10982, 18453, 20666, 23473, 6996,
8007, 10148, 19254, 7532, 9844,
15281, 20909, 3769, 14619.
BLINDRAFÉLAGIÐ, samtök blindra og
sjónskertra, Hamrahlíð 17
Símsvarinn er 38181.
Hjúkrunarheimili Grindavík
Innrétting 1. áfangi
Tilboð óskast í fullnaðarfrágang á báðum hæðum í
þjónustuálmu og efri hæð hjúkrunarheimilis í
Grindavík samtals um 1590 m2.
Verktími ertil 1. mars 1992.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgar-
túni 7 Reykjavík til og með fimmtudegi 11. júlí gegn
10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R. Borgartúni 7,
þriðjudaginn 16. júlí 1992 kl. 11.00.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RIKISIIMS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Versnandi staða kvenna
Sú jákvæða þróun sem átt
hefur sér stað í átt til meira
jafnréttis kynjanna síðan
1970 gæti snúist við vegna efna-
hagssamdráttar á þessum ára-
tug, segir í skýrslu Sameinuðu
þjóðanna sem birt var í gær.
Skýrslan, Konur í heiminum
1970- 1990, er allítarleg. Segir þar
að samdráttur í efnhagslífi landa
og það atvinnuleysi sem vanalega
fylgir í kjölfarið bitni fyrst á kon-
um.
Þrátt fyrir það að nokkur skref
hafi verið stigin fram á við í þróun
Kurt Waldheim forseti
Austurríkis tilkynnti í
gær að hann myndi ekki
gefa kost á sér aftur þeg-
ar kjörtímabili hans lýkur.
Waldheim hefur gegnt embætti
forseta í fimm ár og hefur staðið
mikill styr um hann vegna ásakana
um að hann hafði framið stríðs-
glæpi í búningi nasista í seinni
heimsstyrjöldinni. Waldheim neit-
aði öllum ásökunum, en seta hans
skaðaði ásýnd Austurríkis, að
til jafnréttis á undanfömum tuttugu
ámm eiga konur enn langt í land.
Þær eiga, samkvæmt skýrslunni,
ekki jafngreiðan aðgang og karl-
menn að völdum, peningum og
tækifæmm.
Skýrslan er fyrsta tilraun til að
bera saman stöðu kvenna alls stað-
ar i heiminum. Niðurstaða þeirra
sérffæðinga sem að henni unnu er
sú að konum sé alls staðar mis-
munað á vinnustöðum, hvort sem
um er að ræða völd, laun eða
ábyrgð, hvar svo sem þær búi í
veröldinni, þrátt fyrir það að þær
séu rúmlega 40 prósent vinnuafls-
minnsta kosti um tíma, þegar and-
stæðingar hans höfðu sem hæst.
Þegar Waldheim tilkynnti
ákvörðun sína í austurríska sjón-
varpinu í gær sagði hann hana
gmndvallaða á því sem hann teldi
best fyrir þjóð sína, reynslu hans
síðastliðin fimm ár og persónuleg-
um ástæðum.
Forsetinn, sem orðinn er 72
ára, var aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna áður en hann var kosinn for-
seti Austurrikis.
ins. Laun kvenna em að meðaltali
30 til 40 prósent Iægri en karla, og
á því virðist engin breyting vera i
nánd.
Misréttið er alls staðar að
finna, og konur em hvarvetna í
lægstlaunuðu og virðingarminnstu
störfunum.
Sameinuðu þjóðimar em sjálf-
ar engu skárri, þar er konum ekki
síður mismunað en annars staðar í
stómm stofnunum og fyrirtækjum í
heiminum.
Konur skipa aðeins um þrjú
prósent háttsettra starfa stofnunar-
innar.
Hinn umdeildi forseti Austurrlkis, Kurt
Waldheim.
Waldheim
vikur
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. júní 1991
Síða 4