Þjóðviljinn - 22.06.1991, Blaðsíða 15
Löghlýðin
eiginkona
Á æsihraða út á flugvöll
hélt blaðamaður nokkur
ásamt Ijósmyndara. Leigu-
blllinn hafði tafist og því var
blaðamannsfrúin drifin með
á einkabílnum. Eiginmaður
sat að sjálfsögðu undir stýri
því að nú mátti engu skeika
og þörf fyrir styrka hönd og
vanan mann. Þegar karlinn
var kominn á gott skrið
brunaði hann yfir á rauðu
og steig enn fastar á bens-
íngjöfina. Heyrðist þá sír-
enuvæl lögreglunnar nálg-
ast. Kappanum var beint út
í kant. Nú var illt í efni, en
datt gæjanum þá í hug að
veifa pressupassa sínum
og segja, eins og var, að
hann væri að missa að flugi
norður. Við það var honum
sleppt. Þegar út á völl var
komið var fuglinn hins veg-
arfloginn. Eiginkonunni
þótti þetta ansi vel sloppið,
blaðamenn ættu að hlýta
landslögunum eins og aðrir
borgarar. Hringdi hún því I
lögreglustjóra og kvartaði
undan slæglegri löggæslu.
Lögreglustjóri spurði hvort
hún vildi kæra og svaraði
ektakvinnan því til að það
gæti hún gert ef hann gæti
lofað henni lögregluvemd á
heimilinu í staðinn.
Það er hins vegar af
blaðamanni og myndasmið
að segja að þegar þeir
greindu ijóðir í vöngum frá
ævintýrum dagsins á skrif-
stofu fréttastjóra gall í Ijós-
myndaranum: Ég hefði sko
áreiðanlega hrist lögguna
af mér og náð fluginu.
ÍBAG
22. júní
er laugardagur.
173. dagurársins.
Sólarupprás í Reykjavík kl.
2.54 - sólarlag kl. 24.05.
Viðburðir
Þýski herinn ræðst inn í
Sovétríkin 1941.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Þjóðviljinn bannaður.
fyrir 25 árum
Biskup ávítar stjómarvöldin
fyrir nízku. Ú Þant til Is-
lands. Norræn syngjandi
lögregla á mannfagnaði í
Reykjavík. Mikil ölvun og
slagsmál á Akureyri í gær
og fyrrinótt. Síldarafli
79.952 tonn á laugardag.
Sá spaki
Við sýnumst næstum ham-
ingjusöm í sólskininu á
meðan okkur blæðir til ólífis
úr sári sem við vitum ekki
af.
(Tomas Tranströmer)
Hverertu?
Bjami Ingvi Amason. Sér um veit-
ingahúsið Perluna.
/ hvaða stjömumerki ertu?
Tvíburanum.
Hvað eru að gera nuna?
Opna veitingahúsið Perluna.
Hvað hatarðu mest?
Eg eyði ekki tíma í að hata.
Hvað elskarðu mest?
Að vera upp til fjalla.
Hvað er fólk flest?
Fólk er mismunandi.
Hvað er verst ífari karla?
Karlremba.
Hvað er best ifari karla?
Heiðarleiki.
Hvað er verst ífari kvenna?
Hégómi.
Hvað er best í fari kvenna?
Raunsæi og vinafesti. Það er allt of
lítið um að maður fmni slíkt.
Ottastu um ástkœra ylhýra málið?
Nei, ekki lengur.
Ertu myrkfælinn?
Nei.
Hefurðu séð draug?
Já, oft.
Vœrirðu ekki þú, hver vildirðu
vera?
Lykla-Pétur.
Hefurðu hugleitt að breyta lifi þínu
algerlega?
Oft.
Hvað er það versta sem gœti kom-
iðfyrirþig?
Því get ég ekki svarað.
Hvað er áhrifamesta leikrit sem þú
hefur séð?
Nýársnóttin eftir Indriða Einars-
son.
Leiðinlegasta bók sem þú hefur
lesið?
Einhver skólabók.
Skemmtilegasta kvikmynd sem þú
hefur séð?
Hættuleg kynni (Fatal Attraction).
Attu bam eða gæludýr?
Ég á böm og gæludýr.
Ertu með einhverja dellu?
Já, alhliða útivistar- náttúm- og
veiðidellu.
Ertu með einhverja komplexa?
Það vona ég ekki.
Kanntu að reka nagla í vegg?
J á.
Hvað er kynæsandi?
Fallegar konur.
Áttu þér uppáhaldsflik?
Já, gamlar buxur sem em í miklu
uppáhaldi hjá mér.
Ertu dagdreyminn?
Já, ég er afar dagdreyminn.
Ertufeiminn?
Ég á það til.
Skipta peningar máli í lifi þinu?
Peningar skipta máli í lífi allra.
Hvað er það sem mestu skiptir i
lifi þínu?
Fjölskyldan, vinir og umhverfi.
oc
§ s
Q ULM
co zz
i i i
o
o i B
OQ O r /
<3 O \ i i
Ég vil ekki borða
þetta græna jukk.
OJBJAKK! '
Gott, Kalli minn. Þetta er
nefnilega efnaúrgangur.
Þú myndir stökkbreytast
ef þú borðaðir hann.
, til að borðay-
Ahhh, ég'
fmn að það^
verkar.
Það HLYTUR að vera til
betri leið til að fá hann
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. júní 1991