Þjóðviljinn - 22.06.1991, Qupperneq 16
'ILJINN
77/ vinstrí
■em hjartað slær
EES er aðeins einn
valkostur af mörgum
Svo virðist sem Islendingar hafi fallið frá mörgum grundvaliar-
fyrirvijrum sem gerðir hafa verið í sambandi við hugsanlega
aðild Islands að Evrópska efnahagssvæðinu. Nægir þar að
benda á fyrirvara um takmörkun á flutningi fólks til landsins,
rétt útlendinga til að kaupa land, jarðir og önnur hlunnindi, en siðast
en ekki síst virðist sem erlend fyrirtæki og ríkisborgarar verði frjálst
að stofna fyrirtæki og kaupa hlutabréf á íslenskum hlutabréfamark-
aði. Það gæti opnað leið fyrir útlendinga inní íslensk fiskvinnslu- og
útgerðarfyrirtæki.
Þetta kemur meðal annars fram
í ályktun þingflokks Alþýðubanda7
lagsins sem kynnt var í gær. I
ályktuninni áréttar þingflokkurinn
að samningurinn um Evrópskt
efnahagssvæði snýst um fjölmarga
grundvallarþætti í sjálfstæðismál-
um og efnanagslífi Islendinga, en
ekki aðeins um fisk.
Á fundi utanríki§málanefndar
Alþingis í gær lagði Ólafiir Ragnar
Gnmsson það til að áður en gengið
verður frá lokasamningnum um
EES fialli nefndin ítarlega um öll
atriði hans svo möguleiki gefist til
breytinga á samnmgsdrögunum.
Ólafur Ragnar sagði að áður en
gengið verður frá samningnum sé
hugsanlegt að það þurfi að kalla
Alþingi saman í lok na^sta mánaðar
til að íjalla um hann. Ólafur Ragn-
ar sagði að rúmum sólarhring eftir
að ríkisstjómin hefði lýst þvi yfir
að „stórsigur“ hefði unnist 1 sjávar-
útvegsmálum á fundinum í Lux-
emborg hefðu borist fféttir um hið
gagnstæða frá embættismönnum
EB í Brussel. Af þeim sökum hefði
hann farið fVam á að fá það á hrejnt
í sérstakri skýrslu frá sendiráði Is-
lands í Bmssel hvað hefði í raun
og vem verið talað um varðandi
tollfrelsi með íslenskar sjávaraf-
urðir á mörkuðum EB.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
að ríkisstjómin hefði farið inn á al-
veg nýjar brautir í samskiptum sín-
um við EB þegar utanríkisráðherra
bauð bandalagmu upp á veiðiheim-
ildir innan íslenskrar fiskveiðilög-
sögu í skiptum við sambærilegar
heimildir Islands frá EB. Stein-
grímur J. sagði að þessi vinnu-
brögð væm afar ámælisverð og þá
sérstaklega þar sem þetta hefði
verið gert án nokkurs samráðs við
utanríkismálanefnd og ekki síður
vegna þess að hér væri um grund-
vallaratriði að ræða sem íslensk
stjómvöld hefðu til þessa aldrei
ljáð máls, á. Auk þess sé ekkert vit-
að hvað íslendingar mimi fá í stað-
inn.
Steingrímur J. lagði þunga
áherslu áþað að i það væm fleiri
valkostir fyrir hendi en Evrópska
efnahagssvæðið með tilliti til þn>
unar ísTenskra utanríkisviðskipta. I
því sambandi nefndi hann að ef
samningar hefðu náðst í GATT-
viðræðunum í vetur, hefðu ávinn-
ingar Islands með fiskafúrðir orðin
mun meiri en í sjálfu Evrópska
efnahagssvæðinu. Fyrir vestan haf
væri dollarinn að styrkjast, auk
þess sem samningar hefðu tekist
fyrir nokkm um fríverslun á milli
Bandaríkjanna og Kanada og í
burðarliðnum væri samskonar
samningur við Mexico. Þá mætti
ekki gleyma Asíu sem væri sú
heimsálfa sem sérfræðingar telja
að verði þungamiðja hagvaxtar á
komandi amm, svo ekki sé minnst
á ríkin og lýðveldin í A-Evrópu.
Steingrímur J. sagði að framtíð ís-
lenskra utanríkisviðskipta þyrfti að
skoða í víðu samhengi og því ekki
nauðsynlegt að einskorða sig við
eitt ákveðið svæði.
-grh
Sjá ályktum
sji _
Alþýðubandalagsins á blaðsíðu 11
þingflokks
blaðsíði
Teflt í
splskini
Utiskákmót Skáksam-
bands Islands var hald-
ið í gær klukkan þrjú.
Fjörutíu fyrirtæki tóku
þátt í keppninni sem fór fram í
einmuna blíðu eins og venjulega.
Smíðajárn Guðmundar Arason-
ar sigraði á þessu móti með 61/2
vinning af sjö mögulegum. Fyrir
hönd þess fyrirtækis keppti
Hannes Hlífar Stefánsson. 1 öðru
sæti varð Hótel Loftleiðir með 6
vinninga, keppandi Sigurður
Daði Sigfússon., í 3.-4. sæti urðu
Eimslqpafélag íslands, keppandi
Helgi Ass Grétarsson, og Visa-Is-
land, keppandi Þröstur Þórhalls-
son.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
var eina konan á þessu skákmóti.
Hún keppti fyrir Reiknistofu bank-
anna. Mótið fór í alla staði vel
ffam. Það er orðið árlegur viðburð-
ur og er til sóma, bæði fyrir Skák-
sambandið og þau fyrirtæki sem
taka þátt í því .-kj
Stelpan er að verða hættuleg! Guðfríður Lilja og Dan Hansson að tafli. Hún keppti fyrir Reikni-
stofu bankanna, en hann fyrir Landsbankann. Mynd: Kristinn.
Ósmekklegt brot á fánalögum
Þetta er mjög ósmekklegt og ef haft hefði verið sambandi við
okkur áður en þessi auglýsing átti að birtast þá hefðum við
bannað þetta, segir Guðmundur Benediktsson formaður fána-
nefndar um auglýsingu frá Verðbréfamarkaði Islandsbanka
sem birtist I Morgunblaðinu 16. júní sl.
í auglýsingunni er íslenski fán-
inn notaður til að tákna „1“ í
skammstöfuninni VÍB. í 6. grein
fánalaga segir: „Óheimilt er að
nota fánann i firmamerki, vöru-
merki eða á söluvaming, umbúðir
vamings eða í auglýsingum á vör-
u
um.
Guðmundur segir þessa aug-
lýsingu alls ekki sæmandi og stríða
mjög á móti þeirri virðingu sem
ætlast er til að borin sé fyrir ís-
lenska fánanum. „Eftir að bókin
um fánalögin kom út fyrir stuttu
hefúr aukist mjög að leitað sé álits
hjá okkur áður en stofnað er til
svona og það er mjög virðingar-
vert,“ segir hann. „Við höfum bent
mönnum á, að ef þeir vilja sýna
þjóðrækni á annað borð, þá ættu
peir ffemur að nota borða í fánalit-
unum. Við höfúm ekki verið harðir
á að beita viðurlögum við brotum
sem þessum en áminnum menn um
að leita álits um hvað er leyfilegt
og hvað ekki.“ -vd.
GLT.DILIT.A I>J()1)HATIÐ
Formaður fánanefndar segir þessa auglýsingu
arein fánalaga sem bannar að íslenski faninn sé
lysingaskyni fyrir vörur eða fyrirtæki.
vera brot á 6.
sé notaður í aug-
Willy Brandt
til Islands
Rirrum kanslari V- Þýska-
ands,WiIIy Brandt, dvelst á
slandi dagana 2,7. til 30.
júní í boði Germaníu. Á meðan á
dvöl hans stendur mun hann
halda fyrirlestur í Háskólabíói á
ensku, sem hann nefnir „Eur-
opean Challenges". í fyrirlestr-
inum fjallar hann m.a. um sam-
einingu Þýskalands, breyting-
arnar í Evrópu frá 1989 og
framtíð Evrópu í hinu alþjóðlega
samfélagi.
Brandt hefúr áður komið til Is-
lands. Hann var formaður þýska
Jafnaðarmannaflokksins 1964 til
1987 og kanslari V-Þýskalands
1969 til 1974. Hann var borgar-
s,tjóri V- Berlínar 1957 til 1966.
Árið 1971 hlaut hann Friðarverð-
laun Nobels.
Eiginkona Brandts verður með
í foripni. Þau munu sitja boð For-
seta Islands, forsætisraðherra, ut-
anríkisráðherra og þau verða gestir
Germaniu í hátíðarkvöldverði í
Viðey. Fyrirlesturinn verður fostu-
daginn 28. júní kl. 19.00 og er öll-
um opinn á meðan húsrúm leyfir.
Aðgangur ókeypis. -Sáf
Þjóðin vill
eiga fislci-
miom
úmlega 95 prósent þjóðar-
innar er þeirrar skoðunar
að fiskimiðin við landið
skuli vera sameign þjóðarinnar.
Þetta kemur fram í skoðana-
könnun Félagsvísindastofnunar,
sem Morgunblaðið birti í gær.
Þá kemur fram í könnuninni að
66,8 prósent vilja að útgerðarmenn
greiði gjald fynr veiðiheimildir og
að 82,3 prósent eru hlynnt byggða-
kvóta. Állar þessar tölur eru mið-
aðar, við þá sem tóku afstöðu.
I skoðanakönnuninni var einn-
ig spurt hvort til greina kæmi að
semja við Evrópuþjóðir um tak-
jnarkaðar veiðiheimildir þeirra á
Islandsmiðum gegn bættum við-
skiptafríðindum hjá EB í staðinn.
70,6 prósent sögðu nei við því. En
þegar spurt var hvort til greina
kæmi að leyfa Evrópuþjóðum að
veiða vannytta stofna gegn sömu
fríðindum sögðu einungis 40,8
prósent nei.
Þá voru 68,8 prósent sammála
því að stjómvöld eigi að stuðla að
aukinni hagkvæmni í sjávarútvegi
jafnvel þott það kosti nokkra
byggðaröskun og 68,6 prósent
voru hlynntir því að sjómenn njóti
sérstaks frádráttar frá tekjuskatti
umffam aðrar stéttir. -Sáf
R!
Hæstaréttardómur fallinn í máli Þýsk-íslenska
VEftOfíBF FAMftftKADUR ISLAttDSBAHK A HF.
Auf’ute is M tpM&» tj M
Samkvæmt úrskurði sem
Hæstiréttur kvað upp í
gær í máli Þýsk- Islenska
er Ómar Kristjánsson,
forstjóri og aðaleigandi fyrir-
tækisins dæmdur tiT 12 mánaða
fangelsis, þar af níu mánuði skil-
orðsbundið og 20 miljóna króna
sektargreiðslu, og Guðmundur
Þórðarson, fjármálastjóri fyrir-
tækisins er dæmdur til þriggja
mánaða skilorðsbundins fangels-
is og einnar miljónar króna sekt-
ar fyrir að bera ábyrgð á van-
goldnum skattgreiðslum fyrir-
tækisins.
Þá er fyrirtækið sjálft dæmt til
að greiða 33 miljónir króna ásamt
dráttarvöxtum frá því í febrúar
1988 vegna vangoldinna skatta
fyrirtækisins.
Dómur Hæstaréttar er talsvert
mildari en úrskurður Sakadóms og
á það jafnt við um sektargreiðplur
fyrirtækisins og þá dóma sem Om-
ar og Guðmundur hlutu.