Þjóðviljinn - 27.06.1991, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 27.06.1991, Blaðsíða 1
Sama fljótaskrift á EES-sam- komulagi og stjómarsáttmálanum Það er ekkert borðliggjandi um það að ásættanlegir samningar tak- ist milli EFTA-rikjanna og Evrópubandalagsrikjanna. Ég get ekki séð annað en að rikisstjómin sé komin í öngstræti með þetta mál. Sá stórsigur íslendinga sem forsætisráðherra talaði um eftir iund- inn í Lúxemborg á dögunum er ekki annað en hálfgerður Viðeyjarsigur, sagði Svavar Gestsson, þingmaður Alþýðubandalagsins er hann var innt- ur eftir viðhorfi sínu til þeirrar stöðu sem upp er komin í samningavið- ræðum EFTA og EB um sameiginlegt efnahagssvæði Evrópu. -Úti í Lúxemborg hefur verið hlutunum og við stjómarmyndum viðhöfð sama fljótaskriftin á þeirra Davíðs Oddsonar og Jóns Baldvins, sagði Svavar og benti á að samkvæmt ummælum Þor- steins Pálssonar, sjávarútvegsráð- herra, um að ekki yrði um frekari eftirgjafir af hálfu íslendinga að ræða varðandi veiðiheimildir, þá væri sýnt að ríkisstjómin væri komin á enda í samningunum við Evrópubandalagið. - Miðað við stöðu mála í samningaviðræðun- um í dag er alls ekki víst að það takist neinir þeir samningar sem em ásættanlegir fyrir íslendinga, sagði Svavar. Kristín Einarsdóttir, þingliði Kvennalistans, sagði í samtali við Þjóðviljann í gær, að sér væri fyrir löngu hætt að lítast á þá stefnu sem samningaviðræðumar hefðu tekið. — Það er að koma æ betur í ljós að við áttum aldrei að leggja 't£ Á— Vegna sumarlokanna dagheimilanna hefur auglýsingum eftir barnapíum I júlí og ágúst fjölgað til mikilla muna undanfarið. Mynd: Þorfinnur. Dagvistunargjöld hækka í Reykjavík Borgarráð hefur nú sam- þykkt tillögu Dagvistun- ar barna um að hækka gjaldskrá dagheimila í Reykjvaík um 9 prósent. Hækk- unin kemur til með að taka gildi 1. september nk. Tillaga Dagvistunar bama feí- ur í sér að dagheimilisgjöld verða eftir hækkunina 14.400 krónur. Fólk í forgangshópum, einstæðir foreldrar og námsmenn, borga minna fyrir böm sín og koma til með að greiða 8.600 krónur eftir hækkunina. Gjaldskráin hjá þeim sem em með böm sín á leikskóla fjórar stundir á dag verður, 5.800 krónur á mánuði, fyrir fimm stundir greiðast 7.300 krónur, en 6.400 krónur fyrir forgangshópana. Fyrir pössun i sex stundir koma foreldr- ar til með að greiða 8.800 krónur en forgangshópurinn 7.100 krón- ur. Maturinn hækkar til jalns við dagvistunargjöldin og verður há- degismatur fyrir bömin eftir hækkunina 2.600 krónur á mán- uði, en svokölluð hressing kemur til með að kosta 900 krónur yfir mánuðinn. Nú fer og að koma að lokun dagheimilinna sem orðin er hefð- bundinn yfir sumartímann. Sam- kvæmt hefð er nú búið að loka einstökum dagheimilum vegna sumarfría starfsfólks. Ingveldur Bjömsdóttir, hjá Dagvistun bama, sagði að þessar lokanir hefðu við- gengist lengi og ekki væri mikið um kvartanir vegna þeirra. — Flestar lokanimar koma til með að verða frá 15. júlí til 13. ágúst. Dagheimilin gæta þess að láta vita af þeim með góðum fyrir- vara, svo fólk lendi síður í vand- ræðum með böm sín meðan þær standa yfir. Nokkur heimili hafa tekið upp þá nýbreytni að skipta sumarleyfum starfsfólksins yfir tveggja mánaða tímabil og geta foreldrar þá valið hvom mánuðinn þau hafa böm sín á heimilinu. Þetta hefur mælst mjög vel fýrir og allt útlit fyrir að fleiri dagheim- ili taki þetta form upp, sagði Ing- veldur. -sþ upp í þessar viðræður. Okkar grundvallarhagsmunum er ekki borgið samkvæmt þeim hug- myndum sem þama em á ferð- inni. Þetta er ekki bara spuming um fisk. Allt hitt sem fylgir með skiptir ekki síður máli, s.s. eign- arréttur á landi, réttur útlendinga til fjárfestinga í íslensku atvinnu- lífi og allir þeir laga- og reglu- gerðarbálkar Evrópubandalagsins sem við verðum að kyngja, sagði Kristín Einarsdóttir. Halldór Ásgrímsson, þing- maður Framsóknarflokksins, sagði að það væri langt í frá að samningaviðræðumar væm komnar á lokastig eins og forsæt- isráðherra og utanríkisráðherra létu í veðri vaka. — Það er ekki ástæða til að tala um sigur í þessu máli eins og Davíð Oddsson hefur gert, heldur er spumingin sú hvort viðunandi niðurstaða fáist í málinu, sagði Halldór. Hann sagði að fengjum við tollftjálsan aðgang að markaði Evrópubandlagsins með okkar fiskafurðir, án þess að láta á móti veiðiheimildir, væri hægt að tala um sigur, annars ekki. Þá sagðist hann vera fullur efasemda um þær gagnkvæmu veiðiheimildir sem rætt hefði verið um, þ.e. að íslendingar fengju 30.000 tonna loðnukvóta innan grænlenskrar landhelgi í skiptum fýrir 1500 tonna þorsk- ígildiskvóta innan íslenskrar landhelgi. — Hafa verður í huga að þessi 30.000 tonn af loðnu hafa ekki verið veidd af Evrópubandalag- slöndunum upp á síðkastið. Það stafar einfaldlega af því að loðn- an hefur ekki gefið sig á Græn- landsmiðum. Þá er rætt um að langhali verði 70 prósent af þeim kvóta sem við rlátum Evrópubandalag- inu í té. Ég tel að áður en við lát- um þennan hlut eftir verðum við að tilraunaveiða langhala áður, til að finna út hversu mikið af öðr- um tegundum kemur með í aflan- um, sagði Halldór. Svavar Gestsson, sagði að ástæða væri til að taka ffarn að samningaviðræðumar við Evr- ópubandalagið snérust ekki bara um fisk, eins og skilja mætti af sumum. — Þama er um að ræða fjölmörg atriði sem varða sjálfs- forræði þjóðarinnar í bráð og lengd, sagði Svavar. —rk

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.