Þjóðviljinn - 27.06.1991, Síða 4

Þjóðviljinn - 27.06.1991, Síða 4
Eklendajr Risinn liggjandi í Winterthur r IWinterthur í Ziirichkantónu í Sviss hafa menn gert sér þennan risavaxna verið í borginni til að koma i veg fyrir bílaumferð um nokkum hluta henn- trémann og lagt hann þvert á götu, í þeim tilgangi að ekki verði lengra ar, gangandi fólki til þægindaauka og einnig með það í huga að draga úr komist á bíluiri þá leiðina. Þetta er ein af ráðstöfunum, sem gerðar hafa loftmengun. Hommar og lesbíur gerð afturreka PLO óhlýðnast Líbanons' stíóm Ofriðlega horfir enn á ný í Líbanon, eftir að Frelsis- samtök Palestínu (PLO) og flokkar líbanskra bókstafstrú- arsinna hafa brugðist miður vel við fyrirætlunum stjómar Líban- ons um að senda her til suður- hluta landsins. Af hálfu stjórnarinnar, sem nýtur stuðnings Sýrlands og er á bandi þess, er hér um ræða fram- hald á ráðstöfunum til að tryggja sér yfirráð í landinu öllu. Talsmaður PLO í Líbanon sagði í gær að samtökin myndu etíci láta líðast að Líbanonsher tæki á vald sitt svæðið umhverfis palestínskar flóttamannabúðrr austur af Sidon, nema því aðeins að gengið yrði að vissum kröfúm PLO. Palestínumenn i Suður-Líb- anon hafa i mörg ár stjómað sér að mestu sjálfir og óttast nú að líkindum að með lokum borgara- striðsins og sameiningu landsins verði búið með það. Hizbollah, flokkur heittrúar- sjíta sem öflugur er í Suður-Líb- anon, hefur og gefið í skyn að flokkurinn muni ekki bjóða Líb- anonsher velkominn suður nema Eví aðeins að Hizbollah leyfist að alda áffarn árásum á ísraela, sem halda spildu syðst í Líbanon her- setinni, og Suðurlíþanska herinn svokallaða, sem er Israela megin. Hið sama segir flokkur bókstafs- trúaðra súnna á þeim slóðum. Hér er úr vöndu að ráða fyrir Líbanonsstjórn, því að Israelar segjast ekki sleppa spildunni fyrr en tryggt sé að árásum á land þeirra fra Libanon verði hætt. Líbanonsstjóm kveðst ætla að senda herinn suður hvað sem PLO og bókstafstrúarsinnar segi. Bæjaryfirvöld í mexíkanska bænum Guadalajara gerðu al- þjóðlega ráðstefnu homma og lesbía sem boðuð hafði verið í bæn- um afturreka eftir að fjöldi foreldra hafði krafist þess af ótta við að mik- ill mannsöfnuður samkynhneigðra í ffiðsælu bæjarfélaginu gæti afvega- leitt böm bæjarbúa í siðferðislegum efnum. Fregnir herma nú að bæjaryfir- völd í baðstrandarbænum Acapulco hafi boðist til þess að skjóta skjóls- húsi yfir ráðstefnuna, enda eru menn í þeim stað flestu vanir. Þar hefur um árabil verið einn af vin- Maðurinn minn, faöir okkar og tengdafaðir Gunnar Sigurmundsson prentari Stórholti 20 Reykjavík verður jarðsunginn í dag 27. júní frá Fossvogskirkju kl. 15.00. Vilborg Sigurðardóttir Gylfi Gunnarsson Debra Gunnarsson Gerður Gunnarsdóttir Grétar Br. Kristjánsson Gauti Gunnarsson Sigrún Arthúrsdóttir Sigurður Ó. Gunnarsson Judie Gunnarsson og barnabörn. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Innilegar þakkir sendum við öilum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa Jóns Guðmundssonar frá Þrasastöðum Nesgötu 43 Neskaupstað Hólmfríður Jónsdóttir Katrín Jónsdóttir Jóhanna Jónsdóttir Hulda Jónsdóttir Sólrún Jónsdóttir Hreinn Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. SigurðurJónsson Magnús Ásmundsson Stefán Antonsson Hilmir Jóhannesson Páll Þorgilsson sælli baðstrandarstöðum þeirra allt ömmu sína á því sviði sem lýtur Bandaríkjamanna sem kalla ekki að siðgæðismálum. -Reuter/rk Irakar sagðir skjóta undan útbúnaði úr kjamorkuveri Bandaríkjastjórn hélt því fram í gær að íraksstjorn héldi áfram á laun tilraun- um tii að framleiða kjarnavopn. Kom þessi ásökun fram eftir að írakar höfðu dögum saman bannað eftirlitsmönnum frá Alþjóðlegu kjarnorkumála- stofnuninni (IAEA) í Vín aðgang að kjarnorkuveri skammt fra Bagdað. lAEA-mennirnir segjast hafa séð álengdar að vinna hefði staðið yfir í verinu með krönum og öðrum lyftitækjum, líkt og verið væri að undirbúa brottflutning á einhveiju. Þeim var eftir allmikið þóf hleypt inn í verið, en telja að þá hafi venð búið að flytja ýmislegt þaðan á brott. írakar báru því við að trúarhátíð hefði staðið yfír og hefði því ekki verið viðeigandi að hleypa eftirlits- mönnunum inn í verið. Kúrdneskur embættismaður í íraska Kúrdistan hélt því í gær fram við fréttamenn að Irakar héldu áfram framleiðslu á eiturgasi og feldu bað í olíugeymum skammt fra Mosúl. I lok Persafióastríðs skuldbundu írakar sig til að eyða öllum gereyð- ingarvopnum sínum eða að láta þau af hendi, og gildir það sama um all- an útbúnað til að framleiða slík vopn. Samkvæmt samþykkt Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna fær írak ekki að heíja olíuutflutning að nýju Saddam Iraksforseti - sagður fela eit- urgas í olíugeymum. fyrr en það hefur staðið við þær skuldbiningar. Frá New York fréttist aþ Örygg- isráðið fyrirhugi að ákæra írak fyrir að hindra eftirlit S.þ. með áður- neíhdu kjamorkuveri. Dómar mildaðir Sheikh Saad al-Abdullah al-Sabah, krónprins í Kúvæt, sagði John Maj- or, forsætisráðherra Breta í gær að enginn þeirra 29 manna, sem dæmdir hafa verið til dauða í Kú- væt eftir að hafa verið fundnir sekir um þjónkun við íraka, yrði tekinn af lífi. Krónprinsinn er í opinberri heimsókn í Lundúnum. Breska stjómin hafði látið í ljós óánægju með dauðadóma þessa. Fuglar deyja í olíu- tjörnum Fuglar og önnur dýr verða nú þús- undum saman dauðanum að bráð í olíutjömum þeim við olíumannvirki í Kúvæj, sem urðu til við skemmd- arverk Iraka á mannvirkjum og ol- íulindum. Vaðfúglar halda að vatn sé í tjömum þessum og vaða út í ær. Fuglaverndarfélög hvetja til ess að fast sé lagt að Kúvætsstjóm að láta þurrka upp olíutjamimar og segja að ekki sé hörgull á útbúnaði til þess. ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. júní 1991 Síða 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.