Þjóðviljinn - 27.06.1991, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 27.06.1991, Qupperneq 5
Eklendar frettir A Umsjón: Dagur Þorleifsson Fangar I einum af fangabúöum Þjóðverja ( heimsstyrjöldinni siöari (Póllandi - bömum var slegið við vegg. „Slíkur maður ætti ekki að fá að deyja í friðiu Hann drap án þess að honum væri skípað að gera það og sjálf- um sér til ánægju. Slíkur maður ætti ekki að fá að deyja i friði," sagði Simon Wiesenthal, heimsfrægur fyrir að hafa upp á nasískum stríðsglæpamönnum, í gær við upphaf réttarhalda í Stuttgart yfir Austurríkismanninum Josef Schwammberger, er á árum heimsstyrjaldarinnar síðari var yfirmaður í þrælkunarbúðum nasista í Póllandi. Schwammberger er ákærður um morð á fjölmörgum gyðingum og fyrir að hafa átt hlut að morðum á um 3000 öðrum. Saksóknarar segja að hann hafi skotið fanga eftir geð- þótta, látið blóðhund sinn ólmast á þeim og hengt þá síðan upp og horft á þá, meðan þeim biæddi út. Menn sem voru fangar í þrælkunarbúðum við Przemysl og Mielec í Póllandi, þar sem Schwammberger var yfir- maður, skýra svo frá að hann hafi drepið smáböm með því að slá þeim við vegg og varpað fólki lifandi á bál. Schwammberger, sem var lautin- ant í Waffen-SS, sérstökum her nas- ista, er nú 79 ára og hrörlegur að sjá. Hann segist saklaus af öllum ákær- um og ekki hafa drepið í heimsstyij- öldinni nema einn mann „undir sér- stökum kringumstæðum." Nýnasistar nokkrir voru við- staddir opnun réttarhaldanna og vom fyrst í stað með háreysti, sögðu að á bakvið réttarhöldin væri ekkert ann- að en samsæri með það fyrir augum að auka Þjóðveijum sektarkennd. Dómari sagðist senda þá beint í Stammheimfangelsi ef þeir héldu sér ekki saman. Með meira móti hefur borið á nýnasistum í Þýskalandi und- anfarið, einkum í Dresden. Af réttarhöldum yflr gömlum na- sískum glæpamönnum em þessi talin vera þau mikilvægustu frá réttar- höldunum yfir Klaus Barbie, sem kallaður var „slátrarinn frá Lyon“, 1987. Olíklegt er að mikið verði um slík réttarhöld hér eftir, þar eð flestir glæpamanna þeirra er hér um ræðir em nú dauðir eða á grafarbakkanum. Oðum fækkar og héma megin grafar þeim, er vom vitni að illvirkjum þeirra. Frakkar tóku Schwammberger fastan í striðslok og var hann þá að sögn Wiesenthals með poka fulla af skartgripum og gulli, þar á meðal gulltönnum sem rifnar höfðu verið úr fongum í þrælkunarbúðunum. Honum tókst að strjúka frá Frökkum 1947, komst til Argentínu og starfaði þar til elli sem sölumaður. Argent- ínumenn framseldu hann Þjóðveijum s.l. ár. Þýska stjómin borgaði manni, sem hjálpaði til við að hafa upp á Schwammberger, 500.000 mörk. Einn af samstarfsmönnum Wie- senthals segir að nú standi yfir í Stuttgart réttarhöld yfir holdtekju hins illa. Þriðja dómsmála- hneykslið afhjúpað Maguire-sjömenningarn- ir“ svokölluöu, sem dæmdir voru til fangels- isvistar 1976 eftir að dómstóll hafði fundið þá seka um að hafa framleitt sprengjur fyrir írska lýðveldisherinn (IRA), hafa verið hreinsaðir af öllum ákærum. Er hér um að ræða hjón, tvo syni þeirra, bróður eiginkonunnar og tvo kunningja þeirra. Þau hlutu á sinum tíma fangels- isdóma upp á fjögur til 14 ár og var hið síðasta þeirra látið laust 1990. Annar kunningja Maguirehjónanna lést í fangelsinu. Hafa bresk dóms- málayfirvöld nú komist að þeirri nið- urstöðu að þau hafi verið dæmd á hæpnum forsendum og fríað þau af alfri sök. Sjálf hófu þau baráttu fyrir því að hrinda dómunum, jafhharðan og þau voru látin laus. Þetta er óþægilegt mál fyrir bresk yfirvöld og þriðja dómsmála- hneykslið í röð í sambandi við viður- eignina við IRA sem afhjúpað hefur verið á skömmum tíma. í mars voru „sexmenningamir frá Birmingham“, sem dæmdir voru sekir um sprengju- tilræði IRA þar í borg 1974, látnir lausir eftir að Ijóst þótti að játningar þeirra fyrir rétti hefðu verið falsaðar og í okt. 1989 voru „Guildford- fjór- Sovéskir hermenn í Svarthúfu- sveitunum illræmdu (einnig þekkt- um undir skammstöfuninni OMON) réðust í gær inn f aðalsímstöðina i Vilnu, höfuðborg Litháens, rufu samband borgarinnar við umheiminn og héldu stöðinni í tvo tima. Síðan fóru þeir. Hermennimir voru 30 saman og þrælvopnaðir. Ráku þeir menningamir“ látnir lausir eflir 15 ára fangelsisvist. Fjórmenningar þessir, þrír karlmenn og kona, vom dæmd fyrir sprengjutilræði við krár á Suður- Englandi, en ljóst þykir nú að ekki hafi verið allt með felldu með þau réttarhöld. starfsmenn stöðvarinnar út og sögð- ust vera að leita þar að vopnum að skipan Gorbatsjovs Sovétríkjaforseta sjálfs. Mikið hefur verið um þesskonar ógnunar- og ögrunaraðgerðir af hálfú sovéska hersins i Eystrasalts- löndum undanfarið. Svarthúfulið tekur símstöð Vilnu Myrkur um miðjan dag í Kúvætborg egar íbúar Kúvætborgar litu út um gluggana í morguns- árið í gærmorgun var skyggnið líkt og kvölsett værí orðið. Þykkur reykjarmökkur frá logandi olíulindum huldi borg- ina og megnan oliufnyk lagði fyrir vit þeirra sem hættu sér út úr húsi í reykjarkófið. Frá því að írakska hemum var stökkt á flótta frá Kúvæt hefiir aðeins tekist að slökkva elda í litlum hluta þeirra olíulinda og borhola sem her- námslið þeirra kveikti í á flóttanum. Að sögn kúvætskra yfirvalda hafa eld- ar verið slökktir í aðeins 175 af þeim tæplega 700 olíulindum sem írakar kyntu bál undir. Talið er að það muni taka að minnsta kosti ár til viðbótar að kæfa eldana í þeim öllum. Ibúar Kúvætborgar hafa ffarn und- ir þetta verið svo lánsamir að vindátt hefúr verið hagstæð og reykjarmökk- urinn úr olíulindunum, sem flestar em í aðeins um 30 kílómetra fjarlægð, hefúr sjaldnast legið yfir byggðinni. En undanfama daga hefúr vindátt breyst og því leggur eimyrjuna yfir Kúvætborg með þeim afleiðingum að þar er sem myrkur um miðjan dag. Maigir borgarbúar hafa gripið á það ráð að bregða sér út fyrir land- steinana með fjölskyldur sínar til að þurfa ekki að anda að sér brælunni. I kjölfar þess að reykjarslæðan hefúr legið dögum saman eins og teppi yfir botginni hafa æ fleiri kvartað yfir slæmsku í öndunarfærum og ýmsum bijóskvillum. Að sögn sjúkrahúsyfir- valda í Kúvæt er viðbúið að fjöldi þeiira sem leiti læknishjálpar af þess- um sökum fari stöðugt vaxandi eftir því sem reykjarmökkinn leggur lengur yfir borgina. -Reuter/rk Serbneskur þjóðemissinni af svæsnara taginu - hætta er talin á blóðugum átökum milli öfgamanna af ýmsum þjóðemum. Júgóslavíuher í viðbragðsstöðu Sveitum Júgóslavíuhers i Slóven- íu var skipað í viðbragðsstöðu i gær, eftir að þing lýðveldisins hafði lýst yíir sjálfstæði þess. í fyrri- nótt voru þrír menn drepnir í Glina í Króatíu, er til skotbardaga kom þar milli Serba þar búsettra og kró- atískrar lögreglu. Lið í her sam- bandsstjórnarínnar hefur verið sent þangað. Herinn lét mikið á sér bera í Sló- veníu í gær, vopnaðar þyrlur voru á ferli og striðsþotur geystust yfir landið í lítilli hasð. Júgóslavneska stjómin kom saman á neyðarfúnd í Belgrad í gær og fordæmdi sjálfstæðisyfirlýsing- ar Króata og Slóvena sem ólöglegar. Stjómarerindrekar þar í borg segja að stjómin kunni að hafa í hyggju að lýsa yfir neyðarástandi. Stjómir Bandaríkj- anna og margra Evrúpuríkja hafa gefið f skyn að þeim sé á móti skapi að Króatía og Slóvenía gangi úr júgóslav- neska sambandslýðveldinu og þurfa lýðveldi þessi vart að búast við viður- kenningum af þeirra hálfú. Segir einn fréttamaður Reuters spaklega að flest ríki heims muni óttast að með þvi að viðurkenna lýðveldin tvö sem sjálf- stæð ríki muni þau opna pandómöskju baimafúlla af kröfúm um landamæra- breytingar í Austur- Evrópu og annars- staðar. TRYGGINGASTOFNUN t±7RÍKISINS Lyfjaskírteinishafar Öll lyfjaskírteini sem eru í gildi 1. júlí gilda til áramóta, án tillits til áritunar um annan gildistíma. Tryggingastofnun ríkisins Sföa 5 ÞJÓÐVIUINN Fimmtudagur 27. júnf 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.