Þjóðviljinn - 27.06.1991, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 27.06.1991, Qupperneq 9
IjMTWIRTRFiIB A Vilborg Davíðsdóttir Fuglsungar þurfa margt að varast, mengun t sjó jafnt sem varga f lofti. Þessir makindalegu ungar sem búa I Húsdýra- garöinum kipptu sér ekkert upp við tilfæringar myndasmiðs Þjóðviljans í blíðviðrinu I gær, en þeir myndskreyta hér frétt um æðarfugla sem eru undir verndarvæng æðaitiænda í Þernuvík f Isafjarðardjúpi. Mynd: Kristinn. einhver geggjunu „Þetta er eir Konráð Eggertsson hrefnuveiðimaður og og Guðmundur Jakobsson sjómaður frá Bolungar- vík sinna nú æðarfuglaeldi í Þernuvík í ísafjarðardjúpi þriðja sumarið í röð. „Þetta er einhver geggjun, mér er næst að halda það. En við höf- um gaman af þessu,“ sagði Guð- mundur þegar Þjóðviljinn sló á þráðinn vestur. „Við tökum unga þegar þeir koma úr eggjunum og ölum þá í húsi og gefum þeim andafóður," sagði hann. „Við byijuðum með 80 unga árið 1989 og það er ein kolla af þeim búin að verpa. Okkur var sagt að engin myndi ekki verpa fyrr en þriggja ára, þannig að við erum alveg himinlifandi. Við ólum um 200 unga í fyrra og erum með 220 núna. Margt af þessum fuglum eru héma við. Við vomm hér i fyrra ffá miðj- um júní ffam í ágúst en verðum lengur núna. Við leigðum hluta af þessari jörð af Ögurhreppi og byggðum hér tvo sumarbústaði. Það era miklar nytjar af æðar- fugli og það er gaman að þessu. Það eru sumir sem gera bara grín að manni, en það lagast kannski þegar fer að sjást árangur af þessu.“ Guðmundur er mikill áhuga- maður um æðarfugl og er einn margra íbúa í Bolungarvík sem hefur reynt að bjarga þar fugli sem hefur lent í grút eða veslast upp af öðram ástæðum. „Manni fínnst leiðinlegt að horfa upp á þetta vera að drepast fyrir augunum á manni og vill reyna að gera eitthvað. Það er ekki alltaf litið vel á það af öðram sem ekki koma nálægt þessu. En það verður að hafa það.“ Eiturefni merkt á íslensku Bannað verður eftir 1. júlí að selja vanmerkt eiturefni hérlendis. Allar skaðlcgar efnavörur, sem seldar eru hér á Iandi, eiga frá næstu mánaðamótum að vera merktar á fslensku samkvæmt reglugerð sem gekk í gildi í febrúar í fyrra. Gefinn var frestur til að full- nægja kröfunum, en hann er nú að renna út. Hollustuvemd og Vinnueftirlit- ið hafa látið gera myndband um það mikilvægasta sem snýr að al- menningi og verkafólki í þessu sambandi og verður það sýnt í sjónvarpi 27. júní nk. og m.a. not- að í iðnnámi og starfsfræðslu. Nýja reglugerðin kemur í stað gamalla reglna og felur í sér aðlög- un að kerfi sem notað er innan Evrópubandalagsins. Akveðin vamaðarmerki á að nota á umbúðir varasamrar efhavöru sem lýsa því hvemig hún er flokkuð. Hluti af tilskilinni merkingu era svonefndar hættusendingar sem Iýsa þeim hættum sem kann að stafa af efn- inu og hver meðferð þess skuli vera. Auk þess er skylt að geta um hvaða eiturefni era í vöranni. Abyrgð á merkingu efnavara hvílir á framleiðendum og innflytj- endum og er söluaðilum óheimilt að selja vanmerkta vöra. Vissir þú þetta? -Um 25% mannkyns býr í iðnvædda hluta heimsins. Sami hópur nýtir 75% af orkufram- leiðslu hans. -Á síðustu 5000 áram höfum við eytt 60% af skógum heims- ins. Á síðustu 40 áram var 23% af skógum Affíku eytt og 38% af skógum i Mið-Ameríku. -Orkan sem sparast við end- umýtingu einnar glerflösku jafn- gildir þeirri orku sem þarf til að halda 100 watta ljósapera log- andi í fjóra tíma. Snyrtivöruverslunin Body Shop sem opnaði í Kringlunni fyrir skömmu fær Græna hrósið í þetta sinn. Þegar viðskiptavinur hefur notað vöra frá versluninni getur hann komið með plastflöskuna ut- an af henni og fengið áfyllingu aft- ur. Varan er þá 20% ódýrari. Þeir sem ekki vilja áfýllingu geta skilað umbúðunum sem er safnað saman og sent til Body Shop í Bretlandi sem kemur þeim í endurvinnslu. Allar umbúðir, bæði plastpokar og bréfþokar sem viðskiptavinir fá, era framleidd úr endurunnu hráefhi og era þær keyptar frá Body Shop í Bretlandi. Auk þess safnar starfs- fólk verslunarinnar saman öllum pappírs- og plastúrgangi sem til fellur, flokkar hann og sendir til Sorpu sem sendir reyndar aðeins pappír utan til endurvinnslu. Verslunin er ein af 600 með þessu sama nafni, en stofnandi keðjunnar hefur barist gegn til- raunum á dýram við framleiðslu á snyrtivöram. 1 bæklingi frá Body Shop kemur fram að fyrirtækið hefur skuldbundið sig til að berjast fýrir umhverfisvemd og starfaði m.a. með Greenpeace í tvö ár i her- ferð samtakanna til að bjarga hvalnum. Viðamikil rannsókn á mengun í sjó Fyrstu niðurstöður úr viða- mikilli rannsókn á mengun í sjó munu liggja fyrir í byrj- un ágústmánaðar. Rannsóknirn- ar eru unnar í samstarfi á milli Geislavarna ríkisins, Siglinga- málastofnunar og Hafrann- sóknastofnunar. Rannsóknirnar fara þannig ffarn að mæld era mengunarefhi í botnseti, sjó og sjávarlífveram. Tekin era sýni úr nokkram fiskteg- undum, svo sem þorski, síld, loðnu og kola, sem safnað er umhverfis landið. Þá era tekin sýni úr kræk- lingi sem safnað er á fjórum stöð- um á landinu og úr þara sem safn- að er á fimm stöðum. Ákvörðun um þetta verkefni var tekin af ríkisstjóminni á miðju ári 1989 og þá vora fýrstu sýnin tekin. Greiningarvinna byrjaði að marki seinni hluta síðasta árs og í byijun þessa árs. „Ástæðan fýrir því er sú að við leggjum mikla áherslu á að rann- sóknaraðilamir sem framkvæma greiningamar séu búnir að sanna sig fýrir erlendum aðilum, þ.e. að þeir séu hæfir, þannig að enginn dragi niðurstöðumar í efa,“ segir Magnús Jóhannesson siglinga- málastjóri. Þetta er þriggja ára áætlun, þ.e.a.s. sýnatökunni á að ljúka á ár- ínu 1992, en endanlegar niðurstöð- ur úr henni verða ekki komnar fýrr en 1993. Hluti af þessum upplýs- ingum fara beint inn í erlendan samanburð og þær þurfum við að leggja ffarn nú í águstmánuði. Við vonumst til að geta á sama tíma lagt ffam áfangaskýrslu á sama tíma fýrir ráðherra til kynningar.“ -vd. Kiwanis gegn óbeinum reykingum Kiwanishreyfingin á íslandi hefur ákveðið að félags- menn hennar verði mál- svarar barna frá fæðingu tii fimm ára og ætlar á næstunni að vekja sérstaka athygli á áhrifum reykinga á börn í móðurkviði og skaðsemi óbeinna reykinga fyrir börn. Hermann Þórðarsson, umdæm- isstjóri Kiwanishreyfingarinnar á íslandi og í Færeyjum, segist vilja hvetja verðandi foreldra í hópi reykingafólks til að hætta að reykja og að forða bömum sínum frá óbeinum reykingum. „Óbeinar reykingar geta valdið ungbömum miklum skaða. Sígar- ettureykur inniheldur næstum því 4000 efni, m.a. ammoníak, bensín, formaldehýð og blásýra, auk kol- sýrings. Böm sem era óvarin fýrir óbeinum reykingum anda þessum efhum að sér og rannsóknir sýna að þeim er hættara við kvefi, eymabólgu, kverkabólgu og háls- eitlabólgu,“ segir Hermann. „Þvi fýrr sem verðandi móðir hættir að reykja því betra. Ef hún hættir þegar hún er komin fjóra mánuði á leið era líkumar á fýrir- bura eða léttu bami þær sömu og hjá konum sem reykja ekki.“ |P|j Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur Hjá Borgarskipulagi eru nú til kynningar teikningar að íbúðum aldraðra í Suður Mjódd, dags. júní '91, sem lagðar hafa verið íyrir skipulagsneftid og byggingameíhd. í tillögunum er gert ráð fyrir tveimur 13 hæða háum húsurn með alls 102 ibúðum ásamt 600 ím þjónustumiðstöð, (í beinum tengslum við fyrirhugað hjúkrunarheimili) nyrst á svæðinu. Uppdrættir og líkan verða til sýnis á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, kl. 9.00-13.00 alla virka daga ífá miðvikudeginum 26. júm' til 24. júlí 1991. Síða 9 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.