Þjóðviljinn - 17.07.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.07.1991, Blaðsíða 5
EKLEMDAR jgf FRETHR A Umsión: Dagur Þorleifsson Bush hyggst steypa Saddam með því að þreyta hann og Iraka George Bush tókst ekki að steypa Saddam Hussein með því harða og snarpa höggi sem Eyðimerkurstormur var. Nú hefur hann hafist handa við að mylja íraska einræðisherr- ann smámsaman niður með blendingi af leynilegum að- gerðum, loftárásum og efnahagslegum refsiaðgerðum. „Við ætlum að angra Saddam án afláts með öllu mögulegu móti þangað til eiijhver nálægt honum, eða fólkið í Irak, kemst að þeirri niðurstöðu að nú gangi þetta ekki lengur,“ segir einn af þeim er mót- arþessa stefnu stjómarinnar... Að sumu leyti getur Bush sjálf- um sér um kennt, að hann verður að fara svo hægt og bítandi í aðfor- inni að Saddam. En að nokkru leyti stafar þetta af skorðum sem þingið setur Bandaríkjaforseta, sem og her hans og erlendir banda- menn, sem styðja hann gegn því að Bandarikin haldi aftur af sér... Forsetinn komst að þeirri nið- urstöðu um mánaðamotin apríl- maí að Saddam væri hættulegri og traustari í sessi en hann hafði talið mögulegt eftir sigurinn sem vannst með Eyðimerkurstormi. A fundi þjóðaröryggisráðs vom Bush sýnd sönnunargögn fyrir því að Saddam var að endurskipuleggja hart leik- inn her sinn með árásahemað fyrir augum og fela efni til ffamleiðslu á kjamavopnum og eldflaugar. Heimildarmenn, erlendir og bandarískir, kunnugir heimi leyni- þjónustustofnana og njósna, em nelst á því að þá hafi forsetinn veitt CIA heimild til að hefja leyniaðgerðir í þeim tilgangi að steypa Saddam. Sú heimild útilokar að Banda- ríkin megi vera með í tilraun til að myrða Saddam, þar eð það hefur þingið bannað. Leyniaðgerðimar verða fyrst og ffemst að safna upp- lýsingum, koma áróðri á framfæri og ef til vill að vopna og fjár- magna andstæðinga Saddams. CIA virðist hafa verið sein að koma sér í gang við þetta og tilþrif stofhun- arinnar í því fálmkennd. Bandaríkjastjórn hótar opin- skátt loftárásum, ef þurfa þyki til vemdar Kúrdum og til að eyði- leggja það, sem Saddam á eftir af tækni og efnum til að framleiða kjamavopn. En ekki þýða hótanir þessar að fastákveðið nafi verið að grípa til ráðstafana sem dugi til að losna við Saddam nú þegar. Bush og hershöfðingjar hans em ekki reiðubúnir til að ákveða að senda séraðgerðasveitir eða annan land- her til að fylgja loftárásum eftir ef þær í annað sinn duga ekki til að gera að engu fýrirætlanir Saddams um að koma sér upp kjamavopn- uin. Nú er það komið í ljós, sem njósnaþjónustu Bandaríkjanna tok?t ekki lengi vel að uppgötva, að Irak hafði tvær aðgreindar áætl- anir um ffamleiðslu kjamavopna. Önnur var hálfleynileg og tækni henni viðkomandi varð fýrir árás- um í stríðinu. Hin var fúllkomlega leynileg og tækni henni tengd slapp skaðlaus frá óffiðnum. Hvíta húsið gerir ráð fyrir að Saddam haldi áfram að gefa upp eins mikið af þessum leyndarmál- um og hann haldi að dugi til að forða honum frá annarri banda- rískri loftsókn, en ekkert þar ffam- yfir. Meðan hann heldur áfram að flytja kjamorkuútbúnað úr einum stað á annan og grafa hann til að fela hann fyrir eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna, hefur hann ekki næði til að ffamleiða kjama- sprengju. Þeim undanslætti hættir Sadd- am þó að líkindum fremur en gefa upp svo mikið af leyndarmálum sinum að hann geti ekki ffamleitt a.m.k. eina kjamasprengju. Þegar að því kemur og þegar búið er að koma því til leiðar sem hægt er með alþjóðlegu eftirliti, munu Bandaríkin senda flugherinn gegn þvi, sem þá, verður eflir af kjam- orkubúnaði íraks. Saddam hefúr verið látinn vita bæði leynilega (með milligöngu Hússeins Jórdaníukonungs) og op- inberlega að endumýjuðum árásum á Kúrda í Norður-írak verði svarað með bandarískum loftárásum. Um leið og bandarísku hershöfðingj- amir kveðja lið sitt til Tyrklands, segja þeir íraska hemum að hafa ekki flugvélar (einnig þyrlur) á lofti fyrir norðan 36. breiddarbaug eða senda herlið inn á öryggis- svæðið sem Bandaríkjahersveitir stofnuðu og nær yfir þriðjung íraska Kúrdistans. r PRESS UR HEIMSPRESSUNNI Saddam - (feluleik við Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar með kjarnorku- tækni sina. Þetta svæði hefúr í raun verið lýst herlaust og tekið undan ríkis- valdi Iraks með bandarísku vald- boði. Harðnandi afstaða Bandaríkj- anna gegn Saddam, sem banda- ríska utanríkisráðuneytið hefur Bush - hluti íraska Kúrdistans tekinn undan ríkisvaldi íraks með banda- rísku valdboði. upplýst Kúrda um umbúðalaust, hefur hvatt leiðtoga Kúrda til að draga, á langinn prúttið við Sadd- am. Ólíklegt er að þeir gangi að kostum hans. Uppgötvun Iijyni- legrar kjamavopnaáætlunar Iraks Sýnishorn af tveimur eldflaugagerð- um Iraka. Önnur er kennd viö Sadd- am Hussein sjálfan, en hin við Abb- as, meintan forföður kalífaættarinnar Abbasída, sem sat í Bagdað. i grein- inni er þvi haldið fram að Irak eigi enn um 700 Scudflaugar. og ljósmyndir teknar úr bandarísjc- um gervihnöttum sem sýna að Ir- akar ciga enn um 700 Scud-eld- flaugar T felum leiða í ljós að Sadd- am hugsar sér ekki að hverfa úr sögunm þegjandi og hljóðalaust. Hann hefur yfirhöruð alls ekki hugsað sér að hverfa úr sögunni. Eða að láta af hendi það sem gefur honum möguleika á að heyja stríð og stjóma með ógnum. Þetta er sá harði veruleiki sem stendur gegn stefnu er felst í því að reyna að steypa Saddam með smáhnnding- um ur ýmsum áttum. (Úr grein eftir Jim Hoagland í bandaríska blaðinu Washing- ton Post. Fyrirsögn og mynda- textar eru Þjóðviljans.) Olíumengun úr Blucher? Norðmenn hafa nú alvarleg- ar áhyggjur af þýska beitiskip- inu Blucher, sem liggur á botni Oslóarfjarðar þar sem hann er þrengstur, skammt frá Dröbak um 30 km suður af Osló. Hermenn í virki við fjörðinn skutu Blúcher í kaf í byijun inn- rásar Þjóðveija í Noreg 1940 og fórust með skipinu um 1000 manns. Í geymum í því em um 1200 smálestir af olíu, að talið er, og nú er flakið allmjög tekið að ryðga. Óttast menn að þama sé yfirvofandi geigvænleg hætta fyr- ir lífríkið í firðinum og strendum- ar báðumegin. S.l. ár var talið að 50 lítrar af olíu lækju á dag úr geymum Blúchers og er talið lík- legt að lekinn hafi aukist síðan. Verið er nú að gera ráðstafanir til að koma í veg fýrir að olíubrák frá skipinu geti dreifst út um fjörðinn. EB - eftirlitsmenn til Króatíu - bardagar halda þar áfram Evrópubandalagið gaf til kynna i gær að eftiriitsmenn þess með vopnahléi í Júgóslavíu myndu fara til Króatíu og fylgj- ast með því að sveitir sambands- hers þar færu til herbúða sinna. Víkur EB þar með frá því er sagt var af þess hálfu á mánudag, að eftirlitsmenn þess myndu aðeins starfa í Slóveníu, en forðast Króatíu, þar sem ástandið er nú miklu verra. Króatíustjóm ámælti EB lýrir að láta eftirlitsmenn sína snið- Vopnaðir Serbar við Knin í Dalmatiu, sem er hluti af Króatíu. Króatar saka serbneska þjóöernissinna um að reyna að hernema Króatlu smám- saman með aöstoö sambandshers- ins. ganga Króatíu, þar sem þeirra væri mest þörf. Marco Hennis, hollenskur stjómarerindreki í Zagreb, höfúð- borg Króatíu, sagði að EB- eftir- litsmenn þeir, sem til Króatíu fæm, myndu forðast helstu átakasvæðin þar, enda væm þeir vopnlausir. Ekki er ljóst hvemig eflirlits- mennimir ætla að fylgjast með því að sambandsherinn fari til búða sinna ef þeir fara ekki á átaka- svæðin. Hans van den Broek, utanríkis- ráðherra Hollands, sagði í gær í Lundúnum að EB- eftirlitsmenn- imir myndu yfirgefa Júgóslavíu, ef þeir nytu ekki fullrar samvinnu af hálfu allra deiluaðila. Holland fer nú með forsæti í EB og hefur því forgöngu um ráðstafanir banda- lagsins til að lægja öldumar í Júgó- slavíu. Er þetta í fyrsta sinn sem EB gerir friðargæslulið út af örk- inni. I því era 50 menn. Króatískir lögreglumenn og þjóðvarðliðar og serbneskir þjóð- emissinnar skutust á þriðja daginn í röð á nokkram stöðum í Króatíu í gær. Sambandsherinn hefur komið þar við sögu og segja talsmenn hans hann reyna að stilla til friðar, en Króatar segja hann aðstoða Serba. Halda króatískir talsmenn því fram að sambandsherinn og serbneskir þjóðemissinnar séu að reyna að hemema Króatíu smám- saman. Fjórir Króatar hafa fallið og 24 særst í bardögunum undan- fama þrjá daga. Síða 5 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.