Þjóðviljinn - 17.07.1991, Qupperneq 11
Mmmng
Guðmundur Halldórsson
rithöfundur, ffá Bergsstöðum
,,Hver af öðrum til hvíldar rótt
halla sér nú og gleyma
vöku dagsins um vœra nótt
vinimir gömlu heima.
Þótt leið þín sem áður þar
liggi hjá,
er lyngið um hálsa brumar,
mörg höndin, sem kœrast þig
kvaddi þá,
hún k\>eður þig ekki i sumar. “
Þorsteinn Valdimarsson
Að kvöldi hins 16. apríl s.l.
hringdi síminn. Ég þekkti óðara
rödd vinar míns, Guðmundar Hall-
dórssonar, rithöfundar frá Bergs-
stöðum. Ég spurði hann fyrst al-
mæltra tíðinda að heiman og vék
síðan að því, hvemig honum liði.
Þar átti ég ekki við líkamlega líðan
því ég vissi ekki betur en hann
væri við þolanlega heilsu. „Ekki
sem best,“ var svarið. Það undrað-
ist ég ekki. Guðmundur. fylgdist
flestum mönnum betur með öllum
meiriháttar atburðum, utanlands
sem innan og maður, með jafn ríka
réttlætiskennd og hann, hlaut að
taka ýmsa þeirra nærri sér. En hér
var fleira í efni. „Ég hef verið hálf
slappur í vetur,“ sagði hann, „bölv-
aður í baki og hef nú verið hér
syðra til þess að láta lækna líta á
mig“. „Skýstu ekki til mín áður en
þú ferð heim?“ „Ekki hefði ég á
móti því, en eins og sakir standa er
best að Iofa engu.“ Og Guðmundur
kom ekki. Og hann kemur ekki
ffamar. Læknar komust að þeirri
niðurstöðu, að hann væri haldinn
sjúkdómi, sem ekki yrði unninn
bugur á. Mátti jafnvel búast við að
skammt yrði að bíða endalokanna.
Með þann úrskurð hélt Guðmund-
ur heim. Örfáum vikum síðar var
hann allur.
Guðmundur var fæddur að
Skottastöðum í Svartárdal, Austur-
Húnavatnssýslu þann 24. febrúar
1926. Voru foreldrar hans Halldór
Jóhannsson og Guðrún Guð-
mundsdóttir, sem þar bjuggu um
skeið, en lengst af á því foma
prestsetri og kirkjustað Bergsstöð-
um í Svartárdal og kenndi Guð-
mundur sig jafnan við þann bæ,
sem honum var einkar kær og i
rauninni átti hann aldrei annars
staðar heima. Framan af ámm
dvaldi Guðmundur á Bergsstöðum
utan einn vetur, er hann var við
nám í Héraðsskólanum á Reykjum
í Hrútafirði. Vann hann að búi for-
eldra sinna uns þau fluttust til
Blönduóss á efri ámm. Eftir það
stundaði hann ýmis störf, vann
m.a. með stórvirkum vinnuvélum,
sem þá vom komnar til sögunnar,
uns hann fluttist til Sauðárkróks
með konu sinni, Þórönnu Krist-
jánsdóttur, þar sem var heimili
hans upp frá því. Þau hjón eignuð-
ust eina dóttur, Sigrúnu, sem jafn-
an hefúr búið hjá foreldrum sínum.
Efíir að til Sauðárkróks kom
sinnti Guðmundur til að byrja með
almennri verkamannavinnu. Við,
sem þekktum Guðmund, vissum
að erfiðisvinna hentaði honum
ekki. Hann virti þá menn, er slík
störf unnu, jafnvel öðmm mönnum
fremur, en sjálfúr var hann naum-
ast búinn þeirri hcilsu né gæddur
því líkamsþreki, er þau störf oft og
einatt útheimta. Vinir Guðmundar
á Sauðárkróki tóku því að velta
fyrir sér möguleikum á nýjum
starfsvettvangi, er hentaði Guð-
mundi betur. Formaður stjómar
sjúkrahússins á Sauðárkróki, Jó-
hann Salberg Guðmundsson,
sýslumaður og bæjarfógeti og Sæ-
mundur Á. Hermannsson, ráðs-
maður sjúkrahússins, höfðu áhuga
á að koma upp bókasafni við húsið
og ráða til þess sérstakan bóka-
vörð. Þeir vissu, að við Guðmund-
ur höfðum verið góðvinir til
margra ára og spurðu hvemig mér
litist á að hann yrði ráðinn til
starfsins. Ég varð sannast sagna
himinlifandi. Tæpast gat nokkurt
starf hentað Guðmundi betur en
þetta, manni, sem hvergi undi hag
sínum betur en innan um bækur. Er
skemmst af því að segja að þessu
starfi gegndi Guðmundur af ár-
vekni, ósérplægni og samvisku-
semi svo lengi sem heilsan leyfði.
Munu þeir, sem nutu þessarar góðu
þjónustu og enn em lífs nú sakna
vinar í stað.
Snemma beygist krókurinn.
Löngunin til ritstarfa gerði
snemma vart við sig hjá Guð-
mundi. Bam að aldri byrjaði hann
að setja saman sögur. „En þær
gistu allar glatkistuna,“ sagði
hann. „Þetta voru bara æfingar og
gildi þeirra i því einu fólgið.“
Sóknarprestur hans og kær vinur,
séra Gunnar Amason á Æsustöð-
um, komst á snoðir um þessar „æf-
ingar“ og hvatti Guðmund til að
halda þeim áfram. Guðmundur
þekkti óbrigðulan bókmennta-
smekk séra Gunnars og vissi, að
ráðleggingum hans mátti treysta í
þessum efnum sem öðrum. Og það
sagði Guðmundur mér síðar að
hvatningarorð séra Gunnars hefði
þama riðið baggamuninn.
Fyrsta bók Guðmundar, smá-
sagnasafnið „Hugsað heim um
nótt“, kom svo út árið 1966. Fékk
bókin hinar ágætustu viðtökur og
fór ekki á milli mála, að þar hefði
nýr höfundur kvatt sér hljóðs, með
eftirtektarverðum hætti. Næst kom
skáldsagan „Undir ljásins egg“, en
alls vom bækur Guðmundar orðn-
ar sjö, er hann féll frá. Em það
bæði smásagnasöfn og lengri
skáldsögur. Kom sú síðasta út,
skáldsagan „I afskekktinni", s.l.
haust. Og að því er ég best veit
hafði hann gengið ffá smásagna-
safni er hann lést. Er þess að
vænta, að það komi út á þessu ári.
Þannig var svo sannarlega staðið á
teignum meðan stætt var.
Styrkur Guðmundar sem rit-
höfúndar lá öðmm þræði í því,
hversu gott vald hann hafði á ís-
lensku máli og að hinu leytinu
hætti hann sér aldrei út á önnur
mið en þau, sem hann gjörþekkti.
Hann var umfram allt skáld ís-
lenskra sveita og sveitalífs, ís-
lenskra dalabyggða. Hann var
óvenjunæmur á margvísleg lit-
brigði hins daglega lífs, átti auð-
velt með að gæða hina hversdags-
legu viðburði listrænum þokka.
Honum sást aldrei yfir smáatriðin.
Guðmundur hafði frá unga
aldri brennandi áhuga á mannfé-
lagsmálum og tók virkan þátt í
margvíslegri menningar- og félags-
málastarfsemi ffaman af árum og
raunar með ýmsum hætti alla
stund. Hann var ávallt reiðubúinn
til liðsinnis þegar verja þurfti
„hinn lægri garð“. Vildi ávallt
leggja ffam hjálpandi hönd „þar
sem lítið lautarblóm langar til að
gróa“. Hann var vinmargur en
jafnframt vinavandur. Hann gaf
ekki annan kyrtilinn, heldur báða.
Þótt Guðmundur byggi á Sauð-
árkróki mörg hin síðari ár, þar sem
kona hans og dóttir bjuggu honum
hugþekkt heimili, sem einkenndist
af hlýju, gestrisni og glaðværð, þá
leitaði hann ávallt á æskustöðvam-
ar hvenær sem því varð komið við.
Og nú er hann endanlega kominn
heim í dalinn sinn.
Magnús H. Gíslason
/
Olafur Þorsteinsson
fæddur 9.4. 1945 - dáinn 6.7. 1991
I mars síðastliðnum hitti ég
Óla og Villu, þau voru á leið til
Þýskalands í viðskiptaerindum
hress og kát eins og alltaf þegar
maður hitti þau. Þá var rætt um að
drífa í þvi að hittast fljótlega, það
hafði farist fyrir alltof lengi vegna
anna. Ekkert varð úr því, Öli lagð-
ist helsjúkur á spítala skömmu síð-
ar. Ég hef verið á ferðalögum, og
þegar ég kom heim frétti ég að
þessi góði vinur minn væri farinn.
Við ÓIi kynntumst í Gagn-
lfæðaskóla Austurbæjar og lágu
leiðir okkur mikið saman eftir það,
við vomm samferða i gegnum Iðn-
skólann, unnum saman hjá ISAL,
störfúðum saman i Rafiðnaðarsam-
bandinu, reistum okkur hesthús
saman, fyrst í Kardimommubæ og
síðan í Viðidal, við vomm ná-
grannar í Fossvogsdalnum í mörg
ár og áttum margt sameiginlegra
vina og kunningja.
Fljótt bar á félagslegum áhuga
Óla og góðum skipulagshæfileik-
um hans. Hann var mikill félags-
hyggjumaður, átti mjög gott með
að færa rök fyrir sínu máli, flutti
það af festu og á skipulegan hátt
og átti auðvelt með að fá menn til
liðs við skoðanir sínar. Óli átti ekki
langt að sækja félagslegan áhuga
sinn. Foreldrar hans, Guðmunda
Lilja Ólafsdóttir og Þorsteinn Pjet-
ursson, tóku mikinn þátt í störfiim
verkalýðshreyfmgarinnar. Þor-
steinn var starfsmaður Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í mörg ár, þar
hitti Óli kjamann í verkalýðshreyf-
ingunni og gekk á beinan og
óbeinan hátt í gegnum fyrsta
flokks félagsmálaskóla.
í Gaggó Aust myndaðist sterk-
ur vinahópur kraftmikilla stráka;
var margt brallað og víða komið
við. Þessi hópur stóð að stofnun og
rekstri á mjög virkum unglinga-
klúbbi, Mánaklúbbnum. Oli var
formaður þar. Hann var virkur fé-
lagi hjá ungum jafnaðarmönnum.
Óli hóf nám i útvarpsvirkjun hjá
Eggert Benónýssyni. Hann vann
ekki mikið við fagið, en sá um inn-
flutning og rekstur verslunar Egg-
erts sem var mjög umfangsmikil á
þessum árum. Á námstíma sínum
var Óli i forystusveit rafiðnaðar-
nema og fúlltrúi þeirra í stjóm Iðn-
nemasambandsins.
Að námi loknu 1968, hóf hann
störf hjá Álfélaginu. Hann dreif
upp Félag útvarpsvirkja og varð
formaður þar. Rafiðnaðarsamband
lslands er stofnað 1970, þar er Óli
í forystusveit, er í miðstjóm á
stofnfundi og er kosinn ritari RSI á
framhaldsstofnfundi. Hann var
kosinn varaformaður RSÍ 1972 og
er það til 1974, þá dregur hann sig
út úr, verkalýðsmálum. Þann tíma
sem ÓIi starfaði hjá ÍSAL var hann
trúnaðarmaður rafiðnaðarmanna á
svæðinu og tók mikinn þátt í
samningagerð. Á þessum arum
komu fram í samningum ÍSAL
margar nýjungar í kjara- og ekki
síður félagslegum réttindamálum
launþega, sem síðar vom teknar
upp í kjarasamningum annarra.
Það var eftirtektarvert hve mikið
ÓIi lagði upp úr félagslegum rétt-
indum, hann hafði mjög næmt
auga fyrir stöðunni í kjarasamn-
ingum og kom ofi fram með hug-
myndir um aukin félagsleg réttindi
á hárréttum augnablikum og lagði
jafnvel meira upp úr þeim en bein-
um kauphækkunum. Við rafiðnað-
armenn vomm óhressir þegar Óli
ákvað að hætta störfum sem út-
varpsvirki og snúa sér alfarið að
versjunarstörfum, fyrst hjá Gunn-
ari Ásgeirssyni og þá Landvélum.
Hann var vinsæll leiðtogi, réttsýnn
og með mikla yfirsýn. Þegar hann
hættir hjá Landvélum, stofnar hann
sitt eigið fyrirtæki, Barka, ásamt
félaga sínum. 1988 dregur hann
sig út úr því fyrirtæki og stofnar
Gassa sem hann rak ásamt konu
sinni til dauðadags.
Óli kvæntist Vilhelmínu Þor-
steinsdóttur 1974, þau eignuðust
fjögur böm. Þau urðu fyrir þeirri
hörmulegu lífsreynslu að missa
elsta drenginn sinn 7 ára gamlan í
bílslysi. Þá sýndu þau Óli og Villa
aðdáunarverðan styrk. Óli var allt-
af mikill fjölskyldumaður, hann
var vakinn og sofinn yfir velferð
heimilisins. Þau hjónin reistu sér
fallegt heimili í Fossvogsdalnum,
þar var alltaf gott að koma. Ég
lenti í persónulegum hrakningum
fyrir nokkmm ámm og kom þá oft
til þeirra og sótti þangað alltaf
hjartahlýju og styrk. Ef ég kom
ekki, þá hringdi Óli reglulega og
fylgdist með því hvemig mér leið.
Hjá honum fann ég hversu mikið
ríkidæmj það er að eiga góða vini
og um Óla vil ég nota orð Henry
Ford: „Besti vinur þinn er sá sem
kallar það besta fram í sjálfum
þér“.
Óli hafði alltaf mikinn áhuga á
hestum og tók mikinn þátt í félags-
störfúm hestamanna. Þegar bömin
náðu þeim aldri að geta farið á
bak, tók hann fjölskylduna sífellt
meir með sér í hestamennskuna.
Þau hjónin reistu sér glæsilegt hús
fyrir hesta fjölskyldunnar í Víði-
dal. Undanfarin sumur hafa þau
unnið mikið við að koma sér upp
unaðsreit austur í Grímsnesi, þar
sem þau vom öllum stundum yfir
sumarið í nágrenni við hestana
sína.
Maður lendir stundum í þeirri
stöðu að skilja ekki tilgang lífsins.
Óli og ViIIa hafa unnið hörðum
höndum við að koma sér fyrir og
skapa sér aðstöðu til þess að geta
notið lífsins með bömunum í starfi
og leik með hestunum sínum út í
náttúmnni. Þegar markið blasti
við, þá hiynur veröldin og maður
veltir fyrir sér til hvers var maður
að þessu og lífið verður eitthvað
svo tilgangslaust. En illviðri geng-
ur niður og sólin kemur upp, ég
vona að góður guð gefi þér Villa
og bömunum styrk til þess að
komast í gegnum þá miíclu sorg
sem að ykkur steðjar.
Guðmundur Gunnarsson
Vantar ykkur launað morguntrimm?
Okkur vantar blaðbera í: ~
—........... ^
'v -
‘<;eZ.................................
Reykjavík
Miðbæ
Hlíðar
Laugarásveg
Smáíbúðarhverfi
Fossvog
Grafarvog
Kópavog
Garðabæ
Hafnarfjörð
Þióðviltinn
Síðumúla 37 sími 681333
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. júll 1991