Þjóðviljinn - 17.07.1991, Síða 13
Mengunin í umhverfisráðuneytinu
SMÁFRÉTTIR
Hreinsunarferð
í Engey
Náttúrvemdarfélag Suður-
nesja verður með hreinsunarferð
í Engey á fimmtudagskvöld.
Þetta er önnur ferð félagsins út í
Engey núna í júlí til að hreinsa
strendur eyjarinnar. [ fyrri ferð-
inni var allt plast hreinsað og far-
ið með það í land. Nú er ætlunin
að hreinsa við af fjörum og koma
honum upp á eyjuna, þar sem
gróður mun síðan vinna á rekan-
um. Eftir hreinsunina verður farið
í skoðunarferð um eyna. Lagt
verður af stað frá Grófarbryggju
kl. 20.30, við ferjulægi Akraborg-
ar. Ferðin kostar ekkert.
Þroskaheftir
á ólympíuleika
18 manna hópur þroska-
heftra einstaklinga ásamt farar-
stjórum og þjálfurum heldur í
dag á Ólympíuleika þroska-
heftra, sem haldnir verða í Minn-
eapolis í Minnesota í Bandaríkj-
unum. Þetta eru stærstu leikar
þroskaheftra í heiminum og
verða þátttakendur 6000 frá 90
þjóðum og er sjónvarpað beint
frá leikunum víða um heim.
Keppt er í sundi, fótbolta og
frjálsum íþróttum. (slensku þátt-
takendumir koma frá Sólheimum
f Grímsnesi, Selfossi, Mosfells-
bæ, Hafnarfirði, Kópavogi,
Reykjavík, Garðabæ, Seyðis-
firði, Siglufirði og Akureyri.
Evrópumót
æskunnar
27 manna hópur keppenda
og flokksstjóra fer í dag til
Brussel til að taka þátt f Evrópu-
móti æskunnar, sem haldið
verður þar dagana 17. til 21. júlf.
Þetta er í fyrsta skipti sem (sland
tekur þátt í þessu móti. Kepp-
endur eru á aldrinum 14 til 17
ára og taka þeir þátt (frjálsum
íþróttum, sundi, tennis og borð-
tennis. Allar þjóðir Evrópu senda
þátttakendur á mótið, sem haldið
er í tengslum við 60 ára afmæli
Baldvins Belgíukonungs 21. júlí.
Fararstórar verða Ágúst Ásgeirs-
son og Kolbeinn Pálsson, stjóm-
armenn í ólympíunefnd íslands.
íslenskar
kvikmyndir
Sveinn Einarsson dagskrár-
stjóri mun tala um íslenskar kvik-
myndir í Opnu húsi í Norræna
húsinu annað kvöld, fimmtudag,
kl. 19.30. Hann rekur íslenska
kvikmyndasögu og segir frá
sjónvarpsmyndagerð. Sveinn
talar á sænsku og tekur fyririest-
urinn um 45 mínútur. Eftir kaffi-
hlé verður sýnd kvikmynd Guð-
nýjar Halldórsdóttur, Kristnihald
undir jökli, á myndbandi. Opna
húsið er á hverjum fimmtudegi
og er einkum ætlað norrænum
ferðamönnum en öllum er heim-
ill aðgangur, sem er ókeypis.
Langa ferðin á Kjöl
Hið íslenska náttúrufræðifé-
lag fer í löngu ferðina á Kjöl dag-
ana 25. til 28. júlí. Lagt verður af
stað frá Umferðarmiðstöðinni
um kl. 9 á fimmtudag og komið
aftur um kl. 22 á sunnudag, ef
áætlun stenst. Gist verður á
Hveravöllum í þrjár nætur. Gist-
ing í skála kostar 600 kr. á mann
og nótt en tjaldstæði 300 kr.
Böm 12 ára og yngri fá ókeypis
gistingu. Ferðin sjálf kostar 5100
kr. og 2500 fyrir börn. Skála skal
panta tímanlega. Tekið á móti
ferðapöntunum á skrifstofu HÍN
við Hlemm (sama hús og Nátt-
úrufræðistofnun) 5. hæð, fyrir
hádegi þriðjudaga og fimmtu-
daga, eða f síma 91-624757.
Sumartilboð
leigubílstjóra
Leigubílstjórar á Reykjavík-
ursvæðinu og á Aðalstöðinni í
Keflavík bjóða nú sérstakt sum-
artilboð á ferðum á milli Reykja-
víkursvæðisins og Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar. Tilboðið gildir
til 30. september. Eins til fjögurra
farþega bíll kostar 3.500 kr. en
fimm til sjö farþega bíll 4.200.
Sama verð gildir allan sólar-
hringinn.
Embættisfærslur ráðherranna í
ríkisstjóm fjármagnsins em margar
hverjar vægast sagt afar sérkenni-
legar, einkum og sér í lagi þó ráð-
herra Alþýðuflokksins, sem virðast
leggja ofurkapp á að rústa velferð-
arkerfið. Þannig virðist heilbrigðis-
ráðherra telja það höfuðhlutverk sitt
að leggja skatta á sjúka og aldraða,
enda fékk hann ráðherraþjálfun sína
í fjármálaráðuneytinu. Utanríkisráð-
herrann ráfar um með EES-blik í
augum, staðráðinn í að framselja ís-
lenskt fullveldi afkomendum
Hansakaupmanna, hvort sem þjóðin
vill það eður ei. Iðnaðarráðherrann
endurtekur stöðugt sömu setning-
una: ég á mér draum um að samn-
ingar um nýtt álver verði undirritað-
ir á næstunni, en virðist ekki vita að
eitthvað er til sem heitir íslenskur
iðnaður.
Og þá er það umhverfisráðherr-
ann sem er til umfjöllunar í þessum
pistli. Hlutverk Eiðs hjá krötum
hefur lengi verið hálf eyðilegt. Ný-
græðingar hafa verið dubbaðir upp í
ráðherrastóla en Eiður gamli hefur
ætíð setið eftir sem óbreyttur þing-
maður. Til að leysa þetta vandamál
Lárétt: 1 heiðarieg 4 ramma 6 þjóta 7
niðrun 9 málmur 12 örk 14 fljót 15 dauði
16 níska 19 dugleg 20 náttúra 21 slíti
Lóðrétt: 2 sefa 3 merki 4 hviða 5 fitla 7
hefur 8 batnir 10 mælti 11 smáir 13 sáld
17 álpaðist 18 virði
ákváðu kratar að mynda ríkisstjóm
með Davíð, þar sem ljóst var að
þeir fengju þá fleiri ráðherrastóla.
Þrátt fyrir það voru horfumar á því
að Eiður fengi ráðherrastól ekki
góðar. Verkalýðsforinginn á Suður-
nesjum taldi sig alveg eins vel að
stólnum kominn og hafði formaður-
inn handsalað honum stólnum. Þá
var Eiði nóg boðið og handsalið
varð jafhmikils virði og heiðurs-
mannasamkomulag í Viðey og
Brussel.
Eiði var svo komið fyrir í um-
hverfismálaráðuneytinu, enda talið
að minnst myndi mæða á honum
þar því hlutverk ráðuneytisins var
jafnóljóst og hlutverk Eiðs í stjóm-
málunum. Öllum að óvömm er Eið-
ur hinsvegar allt í einu í aðalhlut-
verki. Fyrst lenti hann í rimmu við
landbúnaðarráðherrann um skóg-
ræktina. Þeirri rimmu er enn ólokið
og telja menn að málið verði saltað
þannig að óbreytt fyrirkomulag
verði í skógræktarmálum á þessu
kjörtímabili.
Þá var röðin komin að því að
gera iðnaðarráðherra smágreiða fyr-
ir stuðning hans við að koma Eiði í
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 máta 4 bákn 6 sía 7 riss 9
smán 12 kafla 14 fár 15 gæf 16 askur
19 laut 20 nasi 21 tóman
Lóðrétt: 2 áli 3 assa 4 basl 5 krá 7 ræf-
III 8 skraut 10 margran 11 nefnir 13 fák
17 stó 18 una
ráðherrastól. Eitt lítið starfsleyfi
fyrir álver var gefið út. Við þá at-
höfn kom í ljós hvert hlutskipti Eið-
ur hafði kosið sér í ráðherrastóln-
um. Hann var ekki sestur í þann stól
til þess að standa vörð um umhverf-
ið fyrst og fremst; miklu ffekar var
hann að gæta hagsmuna iðnaðarráð-
herra. Farið var með drög að starfs-
leyfinu sem rikisleyndarmál og fékk
enginn að líta á þau nema þeir sem
voru beinir hagsmunaaðilar að ál-
verinu. Sjálffi umhverfismálanefnd
alþingis var meinaður aðgangur að
þessum drögum.
Varla hafði öldur lægt vegna
starfsleyfisins þegar aðrar öldur
skoluðu grút á land á Ströndum og
umhverfisráðherranum aftur í sviðs-
ljósið. Nú beið þjóðin spennt eftir
að sjá hvemig ráðherrann tæki á
þessu alvarlega umhverfisslysi sem
grandaði æðarfugli svo tugþúsund-
um skipti. Jú, ráðherrann brá skjótt
við, sendi einn mann norður á
Strandir að ná í grút til að efna-
greina í Reykjavík. Síðar kom í ljós
að maðurinn hafði náð i alltof lítið
af grút. Flugvél Landhelgisgæsl-
unnar var send á vettvang en sá
APÓTEK
Reykjavfk: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúða vikuna 12. til 18. júli er í Apoteki
Austurbæjar og Breiðholts Apóteki. -
Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar og
annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til
10 á frídögum). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu
fyrrnefnda.
LÖGGAN
Reykjavik..................« 1 11 66
Neyðam.....................» 000
Kópavogur..................« 4 12 00
Seitjamarnes...............n 1 84 55
Hafnarfjörður..............« 5 11 66
Garðabær...................» 5 11 66
Akureyri...................» 2 32 22
Slökkvilið og sjúkrabílar
Reykjavik..................»1 11 00
Neyðarn....................« 000
Kópavogur..................» 1 11 00
Seltjamarnes...............«1 11 00
Hafnarfjörður..............« 5 11 00
Garðabær...................« 5 11 00
Akureyri...................» 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-ames
og Kópavog er í Heilsuverndar-stöð
Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan
sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir í
rr 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar i simsvara 18888.
Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eða ná ekki til hans. Landspitalinn:
Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21.
Slysadeild Borgarspít-alans er opin allan
sólarhringinn,
« 696600.
Neyöarvak Tannlæknafélags Islands er
starfrækt um helgar og stórhátíðir.
Símsvari 681041.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-an, tt
53722. Næturvakt lækna,
» 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
t> 656066, upplýsingar um vaktlækni
"51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstöðinni, » 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, " 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsimi).
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar í
" 14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
tt 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar: Landspítalinn: Alla daga
kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-spitalinn:
Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl.
15 til 18 og eftir samkomulagi.
Fæöingardeild Land-spítalans: Alla daga
kl. 15 til 16, feðra-timi kl. 19:30 til 20:30.
Fæöingar-heimili Reykjavíkur v/Eiriksgötu:
Al-mennur tími kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatimi kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspital-ans,
Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild Borgarspitala:
Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til
19:30. Heilsu-verndarstöðin við
Barónsstíg: Heimsóknartími frjáls.
Landakotsspítali: Alla daga kl. 15 til 16 og
18:30 til 19. Barnadeild: Heim-sóknir
annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga.
St. Jósefs-spitali Hafnar-firði: Alla daga kl.
15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspítalinn:
Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19.
Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15
til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
ekkert vegna svartaþoku og áfram
hélt fuglinn að engjast og drepast í
grútnum á Ströndum. Aðstoðarmað-
ur ráðherra lýsti því daglega yfir að
mengunin væri í rénun en heima-
menn vissu betur og síðast í gær
bárust ffegnir af því að mengunin
ykist. Heimamenn fóru að kvarta
yfir aðgerðaleysi ráðherrans.
Þá sá ráðherrann sig knúinn tii
að halda blaðamannafund, sem
snerist fyrst og ffemst um það að
verja ráðuneytið, en minna um
mengunarslysið. Það er ekkert hægt
að gera vegna þess að Strandir eru
svo langt í burtu, sagði ráðherrann,
og heimamenn geta sjálfum sér um
kennt, að hafa sýnt það andvara-
leysi að tilkynna ekki um grútinn
fyiT en þeir urðu varir við hann.
Þegar heimamönnum bárust
þessi skilaboð ráðherrans hugguðu
þeir sig við það að mengunin á
Ströndum væri þó illskárri en
mengunin í ráðuneytinu. En svo
bárust heimamönnum enn uggvæn-
legri tíðindi. Ráðherra er væntan-
legur norður á Strandir seinna í vik-
unni. Varð þá einum að orði: Einsog
mengunin hér sé ekki næg fyrir.
Sjúkrahúsið Húsavík: Alla daga kl. 15 til 16
og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsiö: Neyöarathvarf fýrir
unglinga, Tjarnargötu 35,
" 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsima félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudags-kvöldum kl. 21
til 23. Símsvari á öðrum tímum. "91-
28539.
Sálfræðistöðin: Ráðgjöf í sálfræöi-legum
efnum, " 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema,
er veitt I sima 91-11012 milli kl. 19:30 og
22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá
kl. 8 til 17, « 91-688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúk-linga og
aðstandendur þeirra i Skóg-arhlfð 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann sem vilja styðja smitaða
og sjúka og aöstandendur þeirra « 91-
28586 og þar er svaraö virka daga. Upp-
lýsingar um eyðni og mótefnamælingar
vegna alnæmis: " 91-622280, beint sam-
band við lækni/hjúkrunarfræðing á mið-
vikudögum kl. 18 til 19, annars símsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-21205,
húsaskjól og aðstoö við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til
22, « 91-21500, sfmsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum: « 91-21500, símsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
« 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stígamót, miðstöð fyrir konur og börn sem
orðiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu
3, » 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt f
» 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
« 652936.
GENGIÐ
16. júli 1991 Kaup Sala Tollg
Bandaríkjad... 62,400 62,560 63,050
Sterl.pund...102,913 103,177 102,516
Kanadadollar.. 54,467 54,607 55,198
Dönsk króna... .8,998 9,021 9,026
Norsk króna... .8,924 8,947 8, 938
Sænsk króna... .9,617 9, 641 9, 651
Finnskt mark.. 14,472 14,510 14,715
Fran. franki.. 10,252 10,278 10,291
Belg. franki.. .1,690 1,694 1, 693
Sviss.franki.. 40,141 40,244 40,475
Holl. gyllini. 30,890 30,969 30,956
t>ýskt mark.... 34,792 34,881 34,868
ítölsk líra... .0,046 0,046 0, 047
Austurr. sch.. .4,942 4,955 4, 955
Portúg. escudo.0,405 0,406 0,399
Sp. peseti.... .0,554 0,556 0,556
Japanskt jen. . .0,456 0,457 0,456
írskt pund.... 93,073 93,311 93,330
LÁNSKJARAVÍSITALA
Júni 1979 = 100
1986 1987 1988 1989 1990 1991
jan 1364 1565 1913 2279 2771 2969
feb 1396 1594 1958 2317 2806 3003
mar 1428 1614 1968 2346 2844 3009
apr 1425 1643 1989 2394 2859 3035
mal 1432 1662 2020 2433 2873 3070
jún 1448 1687 2020 2475 2887 3093
júl 1463 1721 2051 2540 2905 3121
Agú 1472 1743 2217 2557 2925
sep 1486 1778 2254 2584 '2932
okt 1509 1797 2264 2640 2934
nóv 1517 1841 2272 2693 2938
des 1542 1886 2274 2722 2952
Síða 13
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. júlí 1991
I dag verður norðaustan- og austan gola eða kaldi með smá þokusúld norðan-
og austanlands, en hægviðri og skýjaö en að mestu þurrt í öðrum landshlutum.
Hiti verður 7-12 stig norðan- og austanlands en allt að 17 stigum sunnantil á
landinu.
KROSSGÁTAN