Þjóðviljinn - 18.07.1991, Side 6

Þjóðviljinn - 18.07.1991, Side 6
 m Ertu hrædd(ur) við skordýr? Kjartan Om Sigurbjörns- son sóknarprestur: Nei, ég er alls ekki hrædd- ur við skordýr. Gylfi Gunnarsson framkvæmdastjóri: Nei. En mér er helst illa við köngulær. Friöbjörg Guömunds- dóttir vinnur á Borgarspítala: Nei, ekki aldeilis. Mér er ekkert verr við eina teg- und skordýra frekar en aðra. Sveinbjörg Siguröar- dóttir afgreiðslukona: Já sum. Ég er ekki hrædd við nein skordýr á íslandi en það eru mörg ógeösleg kvikindi erlendis. Steinar Sigurðsson vinnur á Hard Rock: Já, þegar ég er einn. Gfsli Halldórs- son f kvik- myndinni Börn náttúrunnar eftir Friðrik Þór Frið- riksson sem frumsýnd verður á næstunni. Verður söguþjóðin kvikmyndaþjóð? Nú virðist vöxturinn í ís- lenskri kvikmyndagerð umtalsvcrður. Níu íslcnsk- ar kvikmyndir eru í vinnslu, þar af ein stuttmynd og ein teiknimynd. Meðal þeirra mynda sem næst birtast á tjaldinu verða Böm náttúr- unnar eftir Friðrik Þór Friðriksson og Ingaló á grænum sjó, sem Asdís Thoroddsen leikstýrir. Mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hvíti víkingurinn, verður sýnd einhvemtíma í haust. Vinna er hafin við kvikmyndina Svo á jörðu sem á himni, sem Kristín Jó- hannesdóttir leikstýrir. Sú kvikmynd er hluti af samnorrænu verkefni. Sód- óma, Reykjavík heitir mynd sem Ósk- ar Jónasson leikstýrir. Helgi og fol- aldið er trílógia með þremur leikstjór- um. Kvikmyndagerðin Þumall stend- ur að því verki. Eitt af því sem athygli vekur í sambandi við grósku i kvikmynda- gerð er það hve mikið erlent fjármagn streymir þar til íslenskrar menningar. Kvikmyndagerðarmenn virðast hættir því í bili að veðsetja húsin sín og sinna nánustu. Norræni sjónvarps- og kvikmyndasjóðurinn hefur til dæmis veitt hlutfallslega mest til íslenskra verkefna undanfarið. Þorsteinn Jónsson, fúlltrúi íslands í Kvikmyndasjóði Evrópu, sagði gróskuna í kvikmyndagerð mjög ánægjulega og benti á að öll þessi verkefhi sem styrkt eru með erlendu fjármagni eru gerð að íslensku ffurn- kvæði. íslensku verkefhin hafa ein- faldlega þótt það fýsileg að erlendir aðilar hafa fengist til að setja peninga i þessar myndir, sagði Þorsteinn. Fjár- festingar íslenska rikisins í íslenskum kvikmyndum virðast einfaldlega skila svona miklum arði. Styrkimir sem við fáum eru í beinu hlutfalli við kostnað- aráætlun myndanna. Því meira sem við látum i þetta þeim mun meira fá- um við. Ef stjómvöld bregðast okkur ekki núna, sagði Þorsteinn, þá er ekkert ví til fýrirstöðu að kvikmyndimar eri hróður okkur jafn viða og sög- umar gerðu áður. Þvi má bæta við að lokum, sagði Þorsteinn, að þessi þróun sem er í gangi hefur það í for með sér að ís- lenskir kvikmyndatökumenn, tækni- menn og leikarar, lenda í vinnu með útlendingum sem eiga nóga peninga og við verðum að gæta þess að ekki verði „keypt“ af okkur besta fólkið. Framundan gæti verið útstreymi hæfí- leikafólks. Það mun standa ffammi fýrir þeirri ffeistingu að ráða sig er- lendis með styttri vinnutíma og hærra kaup. Nýr skóli að Skógum undir Eyjafjöllum Með nýju sniði á Skógaskófa undir Eyjafjöllum gefst ungu fólki í Rangárvaila- sýslu og Vestur- Skaftafcllssýslu tækifæri til að stunda framhalds- nám í sinni heimabyggð. I haust verður gerð tilraun til að reka skól- ann í náinni samvinnu við Fjöl- brautarskóla Suðurlands Selfossi. Ekið verður með nemendur heim til sin á föstudagskvöldum og aftur í skólann á mánudagsmorgnum en þeir búa á heimavist vikudagana. Mistakist tilraunin verður enginn framhaldsskóli rekinn í þessum tveimur sýslum. Nú geta menn sótt nám á Selfossi til dæmis en það þýðir ailt að þriggja stunda akstur á dag fyr- ir nemenduma, sagði varaformaður skólanefndar Skógaskóla sr. Halldór Gunnarsson, Holti. í fýrstu verður boðið upp á nám á 1. ári framhalds- skólastigs auk námi í 10. bekk grunn- skóla. Halldór sagði að um 25 manns hefðu sótt um 1. bekkinn og að von væri á fleirum. Allt er þetta fólk úr sýslunum en hingað til hefur verið starffæktur Héraðsskóli að Skógum með 10. bekk, og 1. og 2. stigi firam- haidsskóla. Það nám hafa þó sótt nemendur annarsstaðar af landinu. Halldór sagði að það hefði mikla þýðingu fýrir fólk í þessum sýslum að geta sent böm sín í ffamhaldsskóla á svæðinu. Skógaskóli kemur til með að bjóða uppá ókeypis heimavist með lágum matarkostnaði. Reiknað er með 700 krónum á dag með morgunverði, hádegis- og kvöldmat auk tveggja kaffitíma. Það var i tíð fyrrverandi rikis- stjómar að menntamálaráðuneytið samþykkti að reka Skógaskóla með þessu sniði en stefht er að því að bjóða uppá 2. árs framhaldsskólastig. við skólann. Skólinn kallast þá Fjöl- brautarskóli Suðurlands, Skógum og hlutverk hans verður það sem upphaf- lega var ráðgert þegar skólinn var stofnaður 1949, það er hann verður framhaldsskóli Rangæinga og Vestur- Skaftfellinga. Enda saeði Halldór að til lítils væri að reka skóla í Skógum fyrir Reykvíkinga. Halldór sagði að aðstæður allar væm góðar í skólanum en á sumrin hefúr Hótel Edda rekið hótel í heima- vistinni. Leigutekjumar hafa verið notaðar til að halda skólanum við í gegnum árin. Sundlaug er á staðnum, útsýni frábært og því ætti ekki að væsa um neinn. -gpm Skógar undir Eyjafjöllum. Skógafoss dregur til sln marga feröamenn enda tign- arlegur foss. ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. júlí1991 Síða 6

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.