Þjóðviljinn - 18.07.1991, Side 9

Þjóðviljinn - 18.07.1991, Side 9
NEflENDAMÁLIIIIIII A Umsión: Kristrún M. Heiðberg Slys í nudd- pottum fyrirbyggð Nuddpottar hafa gert mikla lukku hér á landi og scljast með afbrigð- um vel. En það sem ekki allir gera sér grein fyrir er að þessum pottum fylgir mikil slysahætta þegar ungbörn eru annars vegar. Bömin eiga það til að skríða upp í pottana og getur slíkt haft í for með sér hörmuleg slys. Hér á landi er fyrirtæki sem nefnist Norm-X sem framleiðir þessa nuddpotta. Til að fyrirbyggja slys af þessu tagi hafa þeir sérhæfl sig í ákveðinni gerð loka fyrir pott- ana. „Við höfðum heyrt um svo mörg slys úti í heimi og einnig hér- lendis af þessu tagi og ákváðum því að gera eitthvað í málinu,“ sagði Sævar Svavarsson, forstjóri fyrir- tækisins. Fyrirtækið steypir lok íyr- ir alla potta sem em framleiddir og veitir 30% afslátt af lokunum séu þau keypt strax með pottunum. Sævar sagði að í Bandaríkjun- um væri skylt að hafa alla potta með einhveijum öryggisbúnaði, en engar reglur giltu um þetta á Is- landi. Sem öryggisbúnað er einnig hægt að kaupa einskonar sírenur sem látnar em fljóta á vatninu í pottinum. Þær fara síðan í gang þegar mikil hreyfing verður skyndi- lega á vatninu, eins og t.d. þegar bam dettur í pottinn. Einnig em til yfirbreiðslur fyrir pottana, en það er ekki talinn hent- ugur búnaður þar sem yfirbreiðslan heldur ekki bami. Hinsvegar em lokin það sterk að þau halda fullorðnum manni auðveldlega. „Við hvetjum fólk eindregið til að kaupa þessi lok, því eitt slys er einu slysi of mikið,“ sagði Sævar. Mestur verðmunur á varahlut f heyvinnsluvél var 132 prósent. Verðkönnun á aðföngum til landbúnaðarframleiðslu Frá því að kjarasamningar voru gerðir í febrúar 1990 hefur Verðlagsstofnun annast eftirlit með verði á aðföngum til landbún- aðar. Stofnunin hefur meðal annars fylgst með og birt verð á allmörgum fóður- og byggingavörum ásamt vara- hlutum í heyvinnsluvélar og vömm til heyvinnslu. Nú í júní var gerð samskonar könnun og hún borin saman við könnunina sem gerð var á s.l. ári. Könnunin sem náði til 24 sölu- staða víðs vegar á landinu leiddi með- al annars í ljós að meðalverðið á tveimur vömtegundum lækkaði á fyrrgreindu tímabili. Verð á PZ CM 120 hnífum í sláttuþyrlu lækkaði að meðaltali um 5.8 prósent og Claas tindar í heytætlur lækkuðu að meðal- tali um 1 prósent. Mestur verðmunur á varahlut i heyvinnsluvél var 132 prósent en þess ber að geta að dýrasti varahluturinn var frá framleiðanda vélarinnar en þeir ódýrari frá öðmm framleiðend- um. _ A öðmm vömm til heyvinnslu var munur á hæsta og lægsta verði á bilinu 18-43 prósent. Mcsti verð- munurinn 43 prósent var á hvítu rúllubindigami. Hér sjáum við nuddpott með loki. Lokið er mjög hentugt og kemur I veg fyrir hörmuleg slys. Mynd: Jim Smart. „Pottamir virka mjög hættulausir, en svo er ekki í raun. Þó svo að ekki sé nema 30 cm djúpt vatn í pottinum þá getur það verið hættu- legt fyrir ungabam." Verðin á pottunum eru frá 48.000- 74.000. Lok fyrir 48.000 króna pott kostar 8.000. Hollustubæklingar frá Hagkaupum Undanfama mánuði hefur verið unnið að undirbúningi á Neytenda- þjónustu Hagkaups. Neytendaþjónust- unni er fýrst og fremst ætlað það hlut- vcrk að vinna að ýmsum hagsmuna- málum neytenda, varðandi upplýs- inga- og fræðsluþátt um neysluvenjur. Nú er að hefja göngu sína röð bæklinga á vegum Neytendaþjónustu Hagkaups undir samheitinu Heilsa og Hollusta. Hér er á ferðinni röð bæk- linga með fróðleik og upplýsingum um flest það er varðar heilsu og holl- ustu neytenda. Tveir fyrstu bæklingamir eru: „Hreysti og Heilbrigði" og „Fita.“ Heiti bæklinga númer 3 og 4 eru: „Prótein" og „Vítamín og Steineíhi." Hagkaup hefur gefið út fjóra bæklinga þar sem ýmsan fróðleik er að finna um heilsu og hollustu. Látið fituna renna af matnum á eld- húspappír áður en borðað er. - Veljið físk, fuglaköt (húðflétt- ið fuglinn) eða magurt köt. Varist mat eins og pylsur, tertur og kökur, sem oftast innihalda mikla fitu. - Notið fremur mjúkt smjörlíki meó háu hlutfalli íjölómettaðrar fitu, en hart smjörlíki eða smjör. - Aukið smám saman hlut und- anrennu og léttmjólkur á kostnað nýmjólkur. Þetta er notadrjúg að- ferð við að minnka fituneysluna. Athugið að þótt nýmjólkin líti sak- leysislega út í fitutöflum, þá eru um 40 grömm af fitu í hverjum lítra. - Notið rjóma aðeins við sér- stök hátíðartækifæri en reynið þess í stað að nota oflar jógúrt, súrmjólk og skyr. - Veljið magra osta svo sem kotasælu og suma smurosta, eða miðlungsfeita osta eins og t.d. 17 prósent Gouda.Um leið og við minnkum fituna, þurfum við að hafa í huga að neyta meira af kol- vetnaauðugri fæðu. Hér má nefna gróft brauð, kartöflur, heilt kom og baunir af ýmsum tegundum. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir böm- in sem þurfa mikla orku til vaxtar- ins. (Tekið skal fram að textinn, um ofangreind ráð, er fenginn úr bæk- ling gefnum út af Hagkaup og hér með birtur með leyfi þeirra). Til þess að halda sér í fínu formi verður að draga úr of mik- illi neyslu á fitu. Hér á eftir eru gefin n o k k u r ráð til þess að draga úr fituneyslu en of mikil fituneysla á stóran þátt í ýms- um hjartasjúk- dómum og vanlíð- an fólks. - Grillið, gufu- sjóðið eða bakið matinn. Flest græn- meti og jurtafæði er í eðli sínu magurt en mismunandi matreiðsluaðferðir geta haft sín áhrif. 1 soðnum kartöfl- um er nær engin fita, en í frönskum kartöflum er fitan a.m.k. 11 prósent. - Ef maturinn er steiktur notið þá olíu með háu hlutfalli fjöl- ómettaðrar fitu og notið eins lítið og unnt er að kom- ast af með. Hvemig á að draga úr fituneyslu? Síða 9 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.