Þjóðviljinn - 18.07.1991, Blaðsíða 13
SMÁFRÉTTIR
Bless á
Tveimur vinum
Rokksveitin Bless verður
með tónleika á skemmtistaðn-
um Tveir vinir og annar í frii í
kvöld . Tveir mánuðir eru nú
liðnir síðan Bless spilaði síð-
ast, en það var líka á Tveimur
vinum og voru móttökumar
stórkostlegar þá. Eíhisskráin i
kvöld byggir að mestu á efni
sem samið hefúr verið á þessu
ári, m.a. má nefna lagið
„Heimavistin Helviti“, sem ný-
lega kom út á safnplötu Skíf-
unnar „Ur ýmsum áttum“.
Önnur ný lög munu verða á
nýrri breiðskífu Bless, sem
stefht er að að komi út á þessu
ári. Bless mun einnig leika lög
af plötunni „Gums“ sem nú er
fáanleg i plötubúðum eftir
langt hlé. Upphitunarhljóm-
sveit kvöldsins nefnist „Caz-
bol“ og er sveit ungmenna úr
úthverfunum. Þeir leika pönk
og ekkert nema pönk. Tónleik-
amir hefjast upp úr kl. 22.00
og er miðaverði stillt i hóf.
Styrkir úr
Menningarsjóði
vestfirskrar æsku
Styrkir verða veittir úr
Menningarsjóði vestfirskrar
æsku til íramhaldsnáms sem
vestfirsk ungmenni geta ekki
stundað í heimabyggð sinni.
Eftirtaldir njóta forgangs um
styrk úr sjóðnum: í fyrsta lagi
ungmenni sem misst hafa fyrir-
vinnu, föður eða móður og ein-
stæðar mæður. I öðm lagi kon-
ur, meðan fullt launajafnrétti er
ekki í raun. í þriðja lagi, ef
engar umsóknir berast frá Vest-
fjörðum, þá koma umsóknir
Vestfírðinga búsettra annar-
staðar til greina. Félagssvæði
Vestfirðingafélagsins er ísa-
fjarðarsýslur, Ísaíjörður,
Stranda- og Barðastrandarsýsl-
ur. Umsóknir skal senda fyrir
lok júlí til Menningarsjóðs
vestfirskrar æsku c/o Sigriður
Valdemarsdóttir, Njálsgötu 20
(jarðhæð), 101 Reykjavík og
skulu meðmæli fylgja frá
skólastjóra eða öðrum sem
þekkja viðkomandi nemanda,
efni hans og aðstæður. Síðasta
ár vom veittar kr. 240 þúsund
til 5 ungmenna sem öll em bú-
sett á Vestfjörðum.
Sýning á Akranesi
Hrönn Eggertsdóttir mynd-
listakona og Philippe Ricart
veflistamaður hafa opnað sýn-
ingu á verkum sínum i upplýs-
ingamiðstöð ferðamála á Akra-
nesi. Sýningin stendur til 15.
ágúst. I upplýsingamiðstöðinni
að Skólabraut 31 er listahom,
þar sem listamönnum bæjarins
er boðið að kynna verk sin
mánuð í senn. Um 600 bæjar-
búar og ferðamenn hafa lagt
leið sína í upplýsingamiðstöð-
ina frá því hún var opnuð 15.
maí sl.
Prelúdíur, fúga
og sónata
á Skálholtshátíð
Skálholtshátíð verður hald-
in nk. sunudag, 21. júlí og
hefst með messu kl. 14.00.
Séra Tómas Guðmundsson
predikar. Sjálf samkoman hefst
siðan kl. 16.30. Hilmar Öm
Agnarsson leikur á orgel Pre-
lúdíu og fúgu í C-dúr eftir Ge-
org Böhm. Sr. Sigurður Sig-
urðarson heldur hátíðarræðu
dagsins. Guðrún Óskarsdóttir
leikur á sembal Prelúdíu í a-
moll eftir Louis Couperin og
síðan ásamt Kolbeini Bjama-
syni sónötu i e-moll fyrir
flautu og sembal eftir
G.F.Handel. Séra Axel Áma-
son annast ritningalestur og
bæn. Kaffisala verður í Skál-
holtsskóla eftir messu.
Spamaður og ábyrgð sem talandi er um
Eins og allir vita eru stjómmál
öðrum þræði listin að tala þannig
að enginn skilji það sem maður á
við. Þessu fýlgir auðvitað að eng-
inn þori að segja frá því, að hann
skilji ekki baun. Ráðherrar og
þingmenn sem ná þeim árangri að
vera oft í fjölmiðlum og hafa þar í
frammi gáfulegt tal en illskiljan-
legt, eiga áreiðanlega vísan lang-
tímaframa í stjómmálum.
Til viðbótar þessu almenna
snilldarbragði, að komast hjá að
svara því sem spurt er um, er
nauðsynlegt að koma alltaf ein-
hveiju á framfæri sem varðar
bókhald ríkisins og helst af öllu
lítilsháttar viðauka sem hefur
hagfræðilegt yfirbragð. Þeir em
nú ekki margir sem hafa allt þetta
á valdi sínu, en landbúnaðarráð-
herra er í hópi hinna útvöldu.
Hann sagði í viðtali við DV í
fyrradag:
„Ég hef ekki enn sett það nið-
ur fyrir mér hvemig ég ætla að ná
fram hátt í 2 milljarða niður-
skurði. Hugmyndin er að breyta
uppsetningu fjárlagafrumvaijis-
ins, því í landbúnaðarráðuneytið á
til dæmis að færa niðurgreiðslur á
búvömm, og eiin hef ég ekki séð
forsendur fjármálaráðherra í þeim
efhum.“
Enda þótt ekki standi á grein-
argóðum svömm landbúnaðarráð-
herra, nú fremur en fyrri daginn,
þá verður Þrándur nattúrlega að
gera þá játningu að hann er ekki
alveg viss um hvað ráðherrann er
að fara.
Eftir því sem næst verður
komist ætlar landbúnaðarráðherra
að skera niður útgjöld um 2 millj-
arða. Til að ná þeim árangri hefur
mönnum meðal annars dottið í
hug það snjallræði að breyta upp-
setnmgu fjárlaganna. Eins og
hver maður getur séð er þetta hið
mesta snilldarbragð og má ná
skjótum árangri í lækkun útgjalda
með þessum hætti, að ekki sé nú
talað um ef „forsendur fjármála-
ráðherra í þeim efnum“ em réttar.
Hinsvegar skortir nokkuð á skiln-
ing Þrándar þegar kemur að því
að „færa niðurgreiðslur á búvör-
um í landbúnaðarráðuneytið“.
Hér kemur greinilega í ljós að
Þrándur er undir sterkum áhrifum
frá Alþýðuflokksmönnum, því
hann heftir fram að þessu haldið
að niðurgreiðslumar væm færðar
bændum, þó sumir vilji nú raunar
halda því fram að þær séu færðar
neytendum og enn aðrir haldi
fram að millihðimir hirði nú sitt.
Það er því ástæða til að ætla að
hér sé á ferðinni enn eitt meistara-
stykkið í stjómsýslunni. Með því
að færa niðurgreiðslurnar frá
neytendum, bændum, eða milli-
liðum í landbúnaðarráðuneytið
hljóta að sparast mjög miklir pen-
ingar. Samkvæmt þessu mun nag-
ur landbúnaðarráðuneytisins væn-
kast vemlega á næstunni um leið
og spamaðurinn í ríkisbúskapnum
eykst stórlega.
Rétt er að benda stjómarherr-
unum á að þessa tilhögun má taka
upp miklu víðar. Til dæmis mætti
hugsa sér að færa öll útgjöld til
heilbrigðis- og tryggingamála inn
í heiibrigðis- og tryggingamála-
ráöuneytiö og spara þanmg grið-
arleg útgjöld. Þá væri að sjálf-
sögðu hætt við að færa spítölun-
um þessi gjöld eða læknunum eða
gangastúlkunum, eða fotluðum og
öldmðum. Hagur þeirra myndi að
sönnu versna eitthvað, en hagur
ríkissjóðs og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins bama
stórlega, og það er jú það sem
skiptir máli, ekki satt?
Og það em fleiri möguleikar í
stöðunni, eins og sjá má af orðum
landbúnaðarráðherra: „Ríkis-
stjómin hefúr samþykkt auknar
mðurgreiðslur á raforku til að
lækka þessi daglegu útgiöld fjöl-
skyldunnar. Það hefur ekki verið
rætt um það að þessar niður-
greiðslur verði á kostnað niður-
greiðslna á landbúnaðarvömm.
Komi niðurgreiðslumar til mín
mun ég bera pólitíska ábyrgð á
þeim og gera mínar tillögur um
þær. Það er alveg augljóst að það
sem heyrir undir landbúnaðar-
ráðuneytið er á mína ábyrgð.“
Hér er líklega rétt að hætta í
bili, því nú er skilningurinn kom-
inn út og suður. Eiga niður-
reiðslur á raforku að fara til ráð-
errans persónulega eða þá niður-
greiðslur á búvömm. þá ber hann
ábyrgð á....bíðum nú við ábyrgð
á...já, líklega niðurgreiðslum á
búvörum...eða á raforku....eða
hvert á að færa niðurgreiðslum-
ar...jú, ætli það sé ekki svoleiðis?
- Þrándur
Breytileg átt, gola eða kaldi. Skýjað verður og víöa lítilsháttar rigning um
norðan- og austanvert landiö, en bjartara og þurrt að mestu sunnan lands og
vestan. Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig. - Á höfuðborgarsvæðinu má búast við
breytilegri átt, golu eða kalda. Skýjað verður að mestu og búast má viö
einhverri vætu í kvöld og nótt en skýjað með köflum og þurrt á morgun. - Hiti 9
til 16 stig.
KROSSGÁTAN
Lárétt: 1 stoð 4 ójafna 6 hæfur 7 skák 9
spil 12 friðsöm 14 svefn 15 kyn 16 lykt-
ar 19 sögn 20 seöill 21 flaga
Lóðrétt: 2 súld 3 veiði 4 þrjóska 5 eyöa
7 álitinn 8 slóðar 10 bandiö 11 úldni 13
hás 17 uppistööuvatn 19 leiöi
Lausn á siöustu krossgátu
Lárétt: 1 stef 4 sófl 7 mási 9 æska 12
trekk 14 tla 15 roð 16 undra 19 særi 20
öfug 21 stóri
Lóðrétt: 2 tjá 3 fáir 4 stæk 5 fák 7 mót-
ast 8 staurs 10 skrafi 11 auöugt 13 eld
17 nit 18 rör
Reykjavík: Helgar- og kvöldvarsla
lyfjabúöa vikuna 12. til 18. júli er I Apoteki
Austurbæjar og Breiðholts Apóteki. -
Fyrrnefnda apótekiö er opið um helgar og
annast næturvörslu alla daga kl. 22 til 9 (til
10 á frídögum). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka daga og á
laugardögumkl. 9-22 samhliða hinu
fyrmefnda.
LÖGGAN
Reykjavík...................« 1 11 66
Neyðam.í Reykjavík..........» 000
Kópavogur...................» 4 12 00
Seltjamarnes................« 1 84 55
Hafnarfjöröur...............« 5 11 66
Garðabær....................« 5 11 66
Akureyri....................» 2 32 22
Slökkviliö og sjúkrabílar
Reykjavik...................«1 11 00
Neyðarn.....................» 000
Kópavogur...................» 1 11 00
Seltjamarnes................» 1 11 00
HafnarQörður................»511 00
Garðabær....................« 5 11 00
Akureyri....................» 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-arnes
og Kópavog er I Heilsuverndar-stöð
Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan
sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir í
* 21230. Upplýsingar um lækna- og
lyfjaþjónustu eru gefnar I simsvara 18888.
Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl. 8 til
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni
eöa ná ekki til hans. Landspítalinn:
Göngudeildin er opin frá kl. 20 til 21.
Slysadeild Borgarsplt-alans er opin allan
sólarhringinn,
» 696600.
Neyðarvak Tannlæknafélags Islands er
starfrækt um helgar og stórhátlðir.
Sfmsvari 681041.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæsl-an, «
53722. Næturvakt lækna,
» 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
» 656066, upplýsingar um vaktlækni
»51100.
Akureyri: Dagvakt frá kl 8 til 17 á
Læknamiðstöðinni, » 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, » 22445. Nætur- og
helgidagavakt læknis frá kl 17 til 8 985-
23221 (farsími).
Keflavík: Dagvakt, upplýsingar I
» 14000.
Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna,
» 11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspitalinn: Alla daga
kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-spitalinn:
Virka daga kl. 18:30 til 19:30, um helgar kl.
15 til 18 og eftir samkomulagi.
Fæðingardeild Land-spitalans: Alla daga
kl. 15 til 16, feðra-timi kl. 19:30 til 20:30.
Fæðingar-heimili Reykjavíkur v/Eirlksgötu:
Al-mennur tími kl. 15-16 alla daga, feðra-
og systkinatími kl. 20-21 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspltal-ans,
Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til 20 og eftir
samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala:
Virka daga kl. 16 til 19, um helgar kl. 14 til
19:30. Heilsu-verndarstöðin við
Barónsstig: Heimsóknartlmi frjáls.
Landakotsspltali: Alla daga kl. 15 til 16 og
18:30 til 19. Barnadeild: Heim-sóknir
annarra en foreldra kl. 16 til 17 alla daga.
St. Jósefs-spltali Hafnar-firði: Alla daga kl.
15 til 16 og 19 til 19:30. Kleppsspltalinn:
Alla daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19.
Sjúkrahús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15
til 16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsiö Húsavik: Alla daga kl. 15 til 16
og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Rauða kross húsið: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjarnargötu 35,
» 91-622266, opið allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er I upplýsinga- og
ráögjafarsíma félags lesbia og homma á
mánudags- og fimmtudags-kvöldum kl. 21
til 23. Símsvari á öðrum tfmum. » 91-
28539.
Sálfræðistööin: Ráðgjöf í sálfræði-legum
efnum,« 91-687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema,
er veitt I sima 91-11012 milli kl. 19:30 og
22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga frá
kl. 8 til 17, »91-688620.
„Opið hús’ fyrir krabbameinssjúk-linga og
aðstandendur þeirra I Skóg-arhlið 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann sem vilja styðja smitaöa
og sjúka og aðstandendur þeirra » 91-
28586 og þar er svarað virka daga. Upp-
lýsingar um eyðni og mótefnamælingar
vegna alnæmis: « 91-622280, beint sam-
band við lækni/hjúkrunarfræöing á mið-
vikudögum kl. 18 til 19, annars sfmsvari.
Samtök um kvennaathvarf: « 91-21205,
húsaskjól og aöstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Kvennaráögjöfin Hlaðvarpanum, Vestur-
götu 3: Opið þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til
22,« 91-21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum: « 91-21500, sfmsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
» 91-21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamót, miðstöð fyrir konur og böm sem
orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu
3, » 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
« 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt I
» 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
» 652936.
GENGIÐ
17. juli 1991 Kaup Sala Tollg
Bandaríkjad... 62, 500 62, 660 63,050
Sterl.pund...102, 766 103, 029 102,516
Kanadadollar.. 54, 478 54, 618 55,198
Dönsk króna... .9, 002 9, 025 9,026
Norsk króna... .8, 927 8, 950 8,938
Sænsk króna... .9, 617 9, 642 9, 651
Finnskt mark.. 14, 496 14, 533 14,715
Fran. franki.. .10, 252 10, ,278 10,291
Belg. franki.. .1» 690 1, ,694 1,693
Sviss.franki.. 40, 011 40, 114 40,475
Holl. gyllini. ,30, 887 30, 966 30,956
Þýskt mark.... ,34, .790 34, , 879 34,868
ítölsk lira... - 0, ,046 o, , 046 0,047
Austurr. sch.. , .4, ,946 4, ,959 4,955
Portúg. escudo.0, ,406 o, ,407 0,399
Sp. peseti.... . .0, ,554 o, ,556 0,556
Japanskt jen.. . .0, ,455 0, ,456 0,456
írskt pund..., .93, , 128 93, ,367 93,330
LÁNSKJARAVÍSITALA
Júni 1979 « 100
1986 1987 1988 1989 1990 1991
jan 1364 1565 1913 2279 2771 2969
feb 1396 1594 1958 2317 2806 3003
mar 1428 1614 1968 2346 2844 3009
apr 1425 1643 1989 2394 2859 3035
mai 1432 1662 2020 2433 2873 3070
jún 1448 1687 2020 2475 2887 3093
júl 1463 1721 2051 2540 2905 3121
Agú 1472 1743 2217 2557 2925
sep 1486 1778 2254 2584 2932
okt 1509 1797 2264 2640 2934
nóv 1517 1841 2272 2693 2938
dea 1542 1886 2274 2722 2952
Síða 13 ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 18. júlí 1991
V r aLrU'; I 55» t:L| -«.»> I lií. : . ■ .JL-