Þjóðviljinn - 26.07.1991, Síða 2
Myndefnið
ósátt við
áhorfendur
Karlmaður sker ljósmynd sína með
hníf, málar yfir hana, kveikir í henni og
grýtir hana og brýtur glerið. Myndefni
ljósmyndarans Barkar Amarsonar er
alls ekki sátt við þá ímynd sem við,
áhorfendumir, gefum okkur þegar við
gónum á mynd hans.
Síðdegis í dag opnar Börkur for-
vitnilega ljósmyndasýningu í Gallerí
Nýhöfn við Hafnarstræti.
A sýningunni era ljósmyndir á tré,
silki, kopar, gleri og fleiri efnum. Sum-
ar myndimar em í sterklegum málm-
römmum með gleri á milli festu með
stómm boltum, aðrar kyrrlátari og graf-
ískari, þá em á sýningunni einnig
tölvumyndir. Börkur segir myndimar
Börkur Arnarson með eitt
hinna sjö myndefna útskrift-
arverka sinna.
Mynd: Jim Smart.
alls engar tilraunir, en afrakstur til-
rauna.
Myndasmiður Nýs Helgarblaðs og
hinn ungi ljósmyndari ræða fjálglega
um hin ýmsu tækniatriði að baki mynd-
unum sem blaðamanni em hulin. Börk-
ur er að ljúka námi frá London College
of Printing og myndimar sem fyrst
vom nefndar til sögunnar em útskrift-
arverkefni hans. Sjö mismunandi
myndir, sjö mismunandi aðstæður og
sjö mismunandi aðgerðir. Börkur segist
með þessari seríu hafa leitast við að
gera myndir sem era meira en bara
myndir, verknaðinum er ekki lokið:
myndefnið er í miðju kafi við að eyði-
leggja myndina.
Við skiljum Börk eftir til að klára
pissuna og upphengelsið. Sýning hans
stendur yfir í Nýhöfninni næstu tvær
vikumar.
BE
Eyöing og
uppbygging í
Menningar-
miðstöð
Bandaríkjanna
Guðjón Bjamason sýnir enn um
sinn 36 gripi unna með blandaðri
tækni í Menningarmiðstöð Bandaríkj-
anna að Laugavegi 26. Eyðing og upp-
bygging er titill inngangsorða Aðal-
steins Ingólfssonar, listfræðings að
sýningarskrá listamannsins og arki-
tektsins. Segir þar að eyðingin sé cin af
forsendum tilvistar verka Guðjóns. Nú
er bara að fara og kanna hvort það er
rétt, en sýningin er opin daglega frá
því skömmu fyrir hádegi þar til rétt
fyrir sex síðdcgis.
Fimmta
helvíti Dantes
Infemo 5 nefnist hópur listamanna sem
hafa í hyggju að flytja tónlist sína á Púlsin-
um við Vitastíg í kvöld og annað kvöld.
Infemo 5 er fjöllistafyrirtæki er framset-
ur afurðir sínar í ýmsum myndum, ef marka
má fréttatilkynningu. Listmiðlun Fimmta
helvítisins hefur vakið athygli og hneykslun
manna undanfarin ár. Fyrst fyrirgeminga og
svokallaðar margmiðla athafnir, en síðasta
ár einkum fyrir hljómleika. Hljómsveitin,
eða fjöllistafyrirtækið, er nefnt til heiðurs
fimmta helvíti í heimsmynd Dantes, þar ku
vera geymdir efasemdannenn og trúvilling-
ar, eða frjálst hugarflug og óheft ímyndunar-
afl. Tónlist Infemo 5 á sér ekki neinar betn-
ar líkingar en hægt er að tala um iðn-dans-
tónlist með fmmstæðum ryþma.
Helvitis tónleikamir hefjast einni stundu
fyrir miðnætti bæði kvöldin og verður 500
króna aðgangseyris krafist af þeim sem
mæta.
Kettir
komast
loks
ífrí
Á morgun opn-
ar fyrsti áfangi
Kattholts að
Stangarhyl 2.
Gefst þá lang-
þreyttum köttum
Iandsins kostur á
að panta sér þægi-
legt gistirými og
komast í rólegt frí
meðan eigendur
þeirra flandrast út
og suður. Það er að
sjálfsögðu Katta-
vinafélag Islands
sem rekur hótelið.
Inga Rósa
við olíuverk
sitt „The Giri
Without a
Lovef', sem
er vel að
merkja ekki
sjálfsmynd.
Mynd: Þor-
finnur.
Stúlka án elskhuga
Á morgun opnar myndlista-
konan Inga Rósa Loftsdóttir
sína fyrstu einkasýningu í FIM-
salnum við Garðastræti. Þrett-
án olíumálverk verða á efri
hæð sýningarhússins, auk
fjölda verka á neðri hæð.
Inga Rósa segir ekkert ákveð-
ið þema einkenna sýninguna og
því heitir hún ekki neitt. Verkin á
sýningunni em unnin á síðustu
þremur ámm, en Inga Rósa er ný-
komin heim frá myndlistanámi í
Hollandi. Sum þessara verka
vom t.a.m. á samsýningu Islend-
inga þar í landi, en einnig em
þama nýrri verk.
Aðspurð kvaðst Inga Rósa
ætla að halda áfram að vinna í ol-
íu á næstunni, en annars hafi hún
áhuga á að prófa sem mest í
myndlistinni. Hana vanti hins-
vegar aðstöðu til að vinna í grafik
líkt og hún hafði í Hollandi. Á
þessari sýningu er einmitt talsvert
af grafikverkum, teikningum og
vatnslitamyndum.
Sýning Ingu Rósu Lofisdóttur
verður opin daglega til 11. ágúst
kl. 14-18.
-þóm
2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. júlí 1991