Þjóðviljinn - 26.07.1991, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 26.07.1991, Blaðsíða 6
írak sinnti ekki úrslita- kostum Talsmaður Hvíta hússins sagði í gær að stjórn íraks heföi enn ekki gefið fullnægjandi upp- lýsingar um kjarnorkuieyndar- mál sín. Bandaríkin, Sovétríkin, Bretland, Frakkland og Kína, sem fastaaðild eiga að Oryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna, hðfðu sett írak úrslitakosti þess efnis, að það gæfi upp öll slík leyndar- mál fyrir 25. þ.m. Sá frestur er nú útrunninn en bandaríski talsmaðurinn sagði að það þýddi ekki að hemaðaraðgerð- ir gegn írak hæfúst þegar í stað. Talsverð spenna hefúr undanfarið verið í mörgum út af því, hvemig Bandaríkin brygðust við ef Irak sinnti ekki úrslitakostunum. Alþjóðlega kjamorkumála- stofnunin (IAEA) telur einnig að Irak leyni enn einhveiju um kjam- orku sína. EB-EFTA: Enn ekkert sam- komulag Litlar líkur eru nú á að takist að berja saman samning Evrópu- bandalags og EFTA um samein- ingu þessara bandalaga í fyrirhug- að Evrópskt efnahagssvæði (EEA) fyrir mánaðamót, eins og gert hafði verið ráð fyrir. Talsmenn beggja bandalaga í Brussel sögðu i gær helstu deilumálin, þau um fisk- veiðiréttindi, vömbílaumferð yfir AlpafjöII og fjárframlög EFTA- ríkja til EB, væru óleyst. Kúvæt flytur út hráolíu á ný Stjórn Kúvæts tilkynnti í gær að emírsdæmið myndi að nýju hefja útflutning á hráolíu um helgina, hér um bil ári eftir að sá útflutningur stöðvaðist af völd- um innrásar íraka. Enn er yfir helmingur olíulinda Kúvæts, scm eru yfir 600 talsins, í báli frá því að írakar kveiktu í þeim að skilnaði. Fyrir innrásina fram- leiddi Kúvæt yfir tvær miljónir tunna af hráolíu á dag, en nú er framlciðslan um 140.000 tunnur á dag. Suður-Kórea tekur við í Panmunjom Samkomulag í meginatriðum hefur náðst með stjórnum Bandaríkjanna og Suður-Kóreu um að síðarnefnda ríkið taki við umsjón með hlutlausa svæðinu í Panmunjom og nágrenni af því fyrrnefnda. Panmunjom er þorp á landamærum kóreönsku ríkj- anna og þar tókst eftir langa mæðu að stöðva Kóreustríðið með vopnahléssamningi 1953. Var þá 1,6 km löng spilda, sem liggur í gegnum þorpið, lýst hlut- laust svæði, og hafa Bandaríkjaher- menn síðan hafi gæslu þar sunnan- megin. Þar er enn eini staðurinn, þar sem hægt er að fara yfir landa- mæri þessi með löglegu móti. Gert er ráð fyrir að Suður- Kóreumenn byiji að taka við efiirliti þar af Bandaríkjamönnum í október. Gorbatsjov sósíalisma Miðstjórn Kommúnistaflokks Sovétríkjanna fjallaði í gær um tillögu að nýrri stefnuskrá fyrir flokkinn, sem Gorbatsjov forseti hefur Iagt fram. Er til- lagan í stórum dráttum á þá leið að stefna flokksins verði í lík- ingu við það sem er hjá vest- rænum sósíalista- og jafnaðar- mannaflokkum. Efni tillögunnar birtist að miklu leyti í sovésku blaði fyrr í vikunni. í ræðu á fúndi miðstjómar í gær vísaði Gorbatsjov á bug ásök- unum einhverra miðstjómar- manna um að með tillögunni væri verið að afneita sósíalismanum. „Slíkar ákærur em lagðar ffam af mönnum, sem ég vil kalla fúlltrúa kommúnískrar bókstafstrúar, mönnum sem ekki megna að boðar flokk og lýðræðis bijótast út úr vítahring kennisetn- inga,“ sagði Gorbatsjov, sem er aðalritari flokksins. Hann lagði til að flokkurinn legði af formlega hlutverk sitt sem flokks iðnverkamanna sér- staklega til að leggja áherslu á að hann væri flokkur alþjóðar. Upp- kastið að nýju stefnuskránni, sagði Gorbatsjov, felur í sér allt það besta í sósíalisma Sovétríkj- anna og heimsins og lýðræðis- legri hugsun í stað óheflaðs marx- lenínisma liðins tíma. Margir urðu til þess að and- mæla Gorbatsjov, en ekki kom þó til harðra deilna eins og margir höfðu búist við. Sumir miðstjóm- armanna sögðust eftir fúndinn telja að miðstjómin myndi sam- þykkja uppkast aðalritarans í stór- um dráttum. Evrópudómstóll: EB-löp ofar breskum um f iskveið iráttindi Evrópudómstóllinn í Lúxem- borg vísaði í gær á bug breskum lögum, sem sett voru 1988 til að koma í veg fyrir að fiskiskip frá öðrum Evrópu- bandalagsríkjum, sérstaklega Spáni, væru skráð í Bretlandi og gætu þannig veitt hluta af veiðikvótum Breta og landað þeim fiski í höfnum raunveru- legra heimalanda. Samkvæmt lögum þessum breskum verða fiskiskip skráð í Bretlandi að vera í breskri eigu að þremur fjórðu hlutum og þrír af hverjum fjórum sjómönnum á hverju skipi verða að vera búsett- ir í Bretlandi. Evrópudómstóllinn úrskurð- aði að þessi lög væru ólögleg samkvæmt þeim lögum EB, sem heimila borgurum aðildarríkja að koma upp fyrirtækjum í öðrum ríkjum þess. Þessi úrskurður hefur vakið mikla reiði í Bretlandi og þykir hann dæmi um það að yflrþjóð- legar stofnanir EB taki völdin af þingum aðildarríkja þess. Tals- menn breskra útgerðar- og fiski- manna sögðu í gær að úrskurður- inn gæti haft mjög slæmar afleið- ingar fyrir fiskveiðar Breta. Vildu sumir flokksbræðra Moros ekki bjarga honum? Itölsk blöð héldu því fram í gær að stjórnmálamenn á Sik- iley hafi beðið Mafíuna þar að hjálpa til við að ná Aldo Moro, einum af helstu leiðtogum kristilegra demókrata og fyrr- verandi forsætisráðherra, úr höndum Rauðu stórfylkjanna svokölluðu sem námu hann á brott 16. mars 1978. Rauðu stórfylkin, samtök vinstrisinn- aðra hryðjuverkamanna, myrtu Moro 55 dögum síðar. Stjómmálamenn þeir, sem til Mafíunnar lcituðu, voru fiokks- bræður Moros. Mafíuforingjamir ncituðu og að sögn blaðanna bar einn þeirra því við að sumir valdamestu manna í flokki kristi- legra demókrata vildu ekki að Moro yrði bjargað úr höndum hry ðj uverkamannanna. Þegar Moro var rænt, hafði hann um hríð beitt sér fyrir sam- vinnu flokks síns og ítalska kommúnistaflokksins, tveggja stærstu flokka landsins, og orðið nokkuð ágengt í því. Söguleg málamiðlun var það kallað. Blöðin hafa þetta eftir Franc- esco Marino Mannoia, fyrrver- andi mafíuforingja sem gerst hef- ur vitni yfirvalda gegn fyrrver- andi félögum sínum. Moro (höndum mannræningj- anna - sagt að sikileyska mafían hafi verið beðin hjálpar. F.W. de Klerk, Suður-Afrlkuforseti - slegið hefur I bakseglin fyrir stjóm hans vegna uppljóstrana undan- farna daga. Suður-Afríkustjórn játar á sig f járstuðning við andstæðinga SWAP0 Pik Botha, utanríkisráðherra Suður-Afríku, sagði fréttamönn- um í gær að Suður-Afríka hefði veitt andstæðingum namibísku sjálfstæðishreyfingarinnar SWA- PO fjárhagsaðstoð upp á 35 milj- ónir dollara í kosningabaráttu þeirra 1989. Hélt Botha þvi jafn- framt fram að SWAPO hefði fengið miklu meiri fjárhagsað- stoð utan frá til kosningabarátt- unnar. Mikil ólga er nú í Suður-Afríku út af uppljóstrunum um fjárstuðn- ing suðurafrísku lögreglunnar við súlúska flokkinn Inkatha. Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðar- ráðsins (ANC), öflugustu samtaka suðurafrískra blökkumanna, krafð- ist þess í gær að ríkisstjómin færi frá og bráðabirgðastjóm með þjóð- areiningu fyrir augum tæki við. Isaac Bashevis Singer látinn Isaac Bashevis Singer, banda- rískur nóbelshöfundur af pólskum gyðingaættum, lést á miðvikudaginn á hjúkrunar- heimili í Miami, 87 ára að aldri. Singer fæddist í Radzymin, bæ skammt frá Varsjá, árið 1904 er sá hluti Póllands heyrði enn undir Rússakeisara. Að honum stóðu ættir rabbína, skólamanna sérmenntaðra í fræðum gyðinga- trúar og dultrúarmenn. Hann fluttist til Bandaríkjanna 1935 og sagðist síðar hafa yfirgefið Pól- land eftir að hann hefði gert sér grein fyrir lægri hvötum manns- ins og séð fyrir þann hrylling, sem í vændum var fyrir Evrópu og gyðinga þar sérstaklega. Singer bjó síðan lengst af í New York, var þar um skeið blaðamaður við Daily Forward, blað sem gefið var út á jiddísku, hinu þýska máli Austur-Evrópu- gyðinga, en reyndi þó að aðlaga lesendur sína siðum og samfélagi Bandaríkjanna. Hann gerðist fljótt rithöfundur og vom gefnar út efiir hann yfir 30 bækur. Einna þekktastar af skáldsögum hans eru Töframaðurinn frá Lublin (1960, á ísl. 1979), Þrællinn (1962, áísl. 1987), Óvinir-ástar- saga (1972, á isl. 1980) og Sjosja (1978, á ísl. 1984). Singerskrifaði einnig endurminningabækur og smásögur. Bókmenntaverðlaun Nóbels, sem virðulegust þykja allra slíka verðlauna, fékk hann 1978. Skáldverk Singers fjalla um heim, sem útrýmingarvél nasista tortímdi að mestu í heimsstyrjöld- inni síðari, menningarheim Aust- ur- Evrópugyðinga sem þróast hafði fram síðan í lok miðalda á því svæði sem áður var litháísk- pólska ríkið. Sögur hans eru raun: sæjar en þó þjóðsagnakenndar. I þeim koma ffarn dulrænir spek- ingar hassídismans, vafasamir andar, falskir messíasar, einlægir guðsmenn og lengur mætti svo telja. Margir þeir sem gagnrýndu Singer sögðu að svo væri að sjá að hann tryði á Guð en ekki á manninn. Um persónur í sögum hans er sagt að þær blekki og svíki og séu á móti blekktar og sviknar. Þær verða sýknt og heil- agt að bráð illum öndum, sem hafa öfugsnúna ánægju af því að hæða og eyðileggja. Singer skrifaði á jiddísku, sagðist gera það vegna þess að það mál hefði fjörefrii sem ensk- una vantaði. „Mér finnst gaman að skrifa draugasögur og ekkert fer draug- um betur en deyjandi tungumál," sagði hann eitt sinn. Hann kvæntist 1940 og á son, Israel að nafni sem býr í ísrael og hefur breytt sínu jiddíska ættar- nefni í hebreskt, Zamir. Hann leggur stund á þýðingar. Singer - sagður trúa á Guð en ekki á manninn. 6 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. júlf 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.