Þjóðviljinn - 26.07.1991, Qupperneq 3
Vanfær
á Vanity
Fair
Bandaríska kvikmyndaleikkonan
Demi Moore hefur nú gert allt vitlaust
í heimalandi sínu. Hún er sem kunnugt
er gift leikaranum Bruce Willis og
gengur nú með annað bam þeirra und-
ir belti. Á forsíðu ágústheftis tímarits-
ins Vanity Fair hefur Demi Moore
hinsvegar ekkert belti og því síður ein-
hver önnur klæði. Hún er sumsé nakin
og kasólétt einsog það heitir á góðri ís-
lensku. Mörgum finnst leikkonan
aldrei hafa verið fallegri en einmitt á
þessari mynd, en fordómafullir Kanar
voru á öðru máli og vildu tímaritið
burt úr verslunum. Tina Brown, rit-
stjóri Vanity Fair, vísar allri gagnrýni á
bug og segir flesta mjög sátta við
myndina og blaðið muni örugglega
seljast upp...
Draugagangur
á Tasmaníu
Hjúkrunarfólk á geðsjúkrahúsi á
Tasmaniu, eyju sem heyrir Ástralíu til,
segist eiga þar erfitt um vik vegna
draugagangs. Er nefnt til dæmis að
draugur, sem þar kvað vera á kreiki,
hafi hrundið hjúkrunarmanni einum á
vegg.
Talsmaður stjómvalda á Tasmaníu
hefúr eftir starfsfólki sjúkrahússins að
það hafi séð drauginn nokkmm sinn-
um að nóttu til. Ekki hafi þó komið
fram hvort hann sé karl- eða kvenkyns
eða hvers eðlis hann yfirhöfúð sé.
Hjúkrunarfólkið segist ennfremur
hafa heyrt kynlega tónlist, auk þess
sem barið hafi verið að dymm og
gluggar opnaðir án þess að nokkur sæ-
ist gera þetta.
Miðaldir, endur-
reisn og barrokk
Svava Bemharðsdóttir og Peter Zimpel
Á næstu þriðjudagstónleikum
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
þann 30. júlí kl. 20.30 munu
Svava Bemharðsdóttir, Peter
Zimpell og Ruth Claire Pottinger
flytja tónlist frá miðöldum, end-
urreisnar- og barokktíma á upp-
mnaleg hljóðfæri meðal annars
eftir Lorenzo da Firenze, Tobias
Hume, Corelli og J.S. Bach.
Svava Bernharðsdóttir út-
skrifaðist úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1982 á fiðlu og lágf-
iðlu. Næsta vetur var hún við
lágfiðlunám í Hollandi undir leið-
sögn Nobuko Imai. Árið 1983
innritaðist Svava í Juilliard skól-
ann í New York, lærði hjá Willi-
am Lincer og Karen Tuttle og
lauk þaðan „DMA“ (Doctor of
Musical Arts) gráðu 1989.
Haustið 1988 hóf Svava nám
við Schola Basiliensis í Basel. Þar
hefur hún lært á barokk- og klass-
íska fiðlu hjá Jaap Schröder, víóla
da gamba og barokk, selló hjá
Hannenlore Mueller og Imke
David og tekið þátt í samspili á
miðaldafiðlu undir leiðsögn Ran-
dall Cook. Þann 20. júni síðastlið-
inn hélt Svava lokatónleika við þá
stoíhun.
Haustið 1990 veitti Kópa-
vogsbær Svövu 6 mánaða „Starfs-
laun bæjarlistamanns Kópavogs"
og er það ekki síst því að þakka að
af þessum tónleikum gat orðið.
Peter Zimpel semballeikari er
fæddur í Frankfurt am Main. Sjö
ára gamall hóf hann nám í Augs-
burg og lærði síðan á orgel í átta
ár hjá Karl Maureen í Leopold
Mozart tónlistarskólanum þar.
Haustið 1986 hóf Peter nám í org-
el- og semballeik við Schola Can-
tomm Basiliensis hjá Jean Claude
Zehnder og útskrifaðist þaðan
með einleikarapróf haustið 1990.
Nú stundar hann söngnám við
sömu stofnun hjá Kurt Widmir.
Ruth Claire Pottinger er frá
Toronto í Kanada. Hún útskrifað-
ist á selló frá háskólanum i Tor-
onto árið 1986 og sótti síðan fjöl-
mörg námskeið í gamalli tónlist.
Hún er einnig útlærður tónlistar-
kennari, hefúr kennt víða á fiðlu,
lágfiðlu og selló og stjómað
hljómsveitum. Árið 1990 hóf
Ruth nám við Schola Cantomm
Basiliensis. Kennarar hennar þar
em Paulo Pandolfo og Jordi Sa-
vall á viola da gamba og Christ-
oph Coin á barokk selló.
Hótel Lind, Rauðarárstíg 18:
Helga Magnúsdóttir sýnir mál-
verk frá kl. 11.00-23.00 alla
daga vikunnar.
Kjarvalsstaðir: Sýning á jap-
anskri nútímalist sem kemur frá
Seibu safninu í Tokyo. Sýningin
verður í öllu húsinu og stendurtil
25. ágúst. Kjarvalsstaðir eru
opnir daglega frá kl. 11.00-
18.00.
Listasafn Einars Jónssonar:
Opið alla daga nema mánudaga
kl.13.30-16.00, Höggmynda-
garðurinn opinn alla daga 11.00-
16.00.
Listasafn fslands: Sumarsýn-
ing á verkum úr eigu safnsins.
Opið frá kl. 12.00-18.00 alla
daga nema mánudaga.
Listasafn Sigurjóns Ólafsson-
ar: Yfirlitssýning á andlitsmynd-
um Sigurjóns frá árunum 1927-
1980. Opið um helgar 14.00-
18.00 og á kvöldin kl. 20.00-
22.00, virka daga, nema föstu-
daga.
Listasalurinn Nýhöfn, Hafnar-
stræti 18: Börkur Arnarson opn-
ar Ijósmyndasýningu í dag kl.
17. Opið virka daga 10.00-18.00
og um helgar kl. 14.00-18.00.
Listaskáli Edens, Hverageröi:
Þórunn Guömundsdóttir sýnir
vatnslitamyndir og grafík, 15.-
29. júlí.
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 3
Sjóminjasafn Isiands, Vestur-
götu 8 Hafnarfirði, er opið alla
daga nema mánudaga kl. 14.00-
18.00. Þar stendur yfir sýningin:
„Skipstjórnarfræðsla á íslandi,
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
100 ára“.
Stofnun Árna Magnússonar:
Handritasýning i Árnagarði við
Suðurgötu alla virka daga í sum-
ar fram til 1. september, kl.
14.00- 6.00.
Torfan, Amtmannsstíg 1:
Gigja Baldursdóttir sýnir myndir.
Myndirnar eru til sölu.
Veitingahúsiö í Munaðarnesi:
Þorlákur Kristinsson, Tolli, sýnir
myndverk í allt sumar frá kl.
18.00 á fimmtud., föstud., laug-
ard., og sunnud.
Þjóðminjasafnið: Þar stendur
yfir sýningin Stóra-Borg, Forn-
leifarannsókn 1978-1990. Sýn-
ingin verður opin fram í nóvem-
ber.
Menntamálaráðuneytið: Sýn-
ing á myndasögum 30.5-30.7.,
opið á virkum dögum kl. 8.00-
16.00.
TÓNLIST
Skálholtskirkja: Sumartónleik-
ar. Tvennir tónleikar helgaðir
200 ára ártíð Mozarts. Laugar-
dag kl. 15 og sunnudag kl. 15
Mozartónleikar. Laugardagur kl.
17 tónleikar helgaðir Bach. Flytj-
endur Bach- sveitin í Skálholti,
einsöngvarar og kór. Stjórnandi
Hilmar Órn Agnarsson. Konsert-
meistari Ann Wallström.
HITT OG ÞETTA
Bílaklúbbur Skagafjarðar:
Rallý í Skagafjarðar- og Húna-
vatnssýslum laugardaginn 27.
júlí.
Útivlst:
Hólmsárlón - Strútslaug - Bryta-
lækir. Gist í húsi. Básar á Goða-
landi. Fimmvörðuháls Básar.
Ferðafélag íslands:
Fjölbreyttar námsferðir. Mið-
sumarferð í Þórsmörk. Land-
mannalaugar-Eldgjá. Hvítárnes-
Kerlingarfjöll- Hveravellir. Þver-
brekknamúli-Hrútafell. Emstrur-
Þórsmörk.
Hana nú:
Vikuleg laugardagsganga. Lagt
af stað frá Fannborg kl. 10.00.
Félag eldri borgara:
Göngu- Hrólfar! brottför kl. 10.00
laugardag frá Risinu, Hverfis-
götu 105.
SYNINGAR:
Árbæjarsafn: 28. júlí heyskapur
að fornum hætti. Harmonikutón-
list.
Ásmundarsafn við Sigtún:
Sýningin „Bókmenntirnar í list
Ásmundar Sveinssonar". Ný við-
bygging hefur verið opnuð. Opið
10-16 alla daga.
Café Milanó, Faxafeni 12: Alda
Ármanna Sveinsdóttir sýnir
vatnslitamyndir. Opið virka daga
9.00-19.00 og sunnudaga
13.00- 18.00.
FÍM-salurinn: Inga Rósa Lofts-
dóttir opnar sýningu laugardag-
inn 27. júlí kl. 15 til 17. Opið dag-
lega frá kl. 14 til 18 til 11. ágúst.
Gallerí einn einn: Helgi Örn
Helgason sýnir. Sýningin verður
opin alla daga vikunnar þangað
til 4. ágúst.
Gallerí Hulduhólar: Sumarsýn-
ing 13. júlí til 1. september. Opið
daglega kl. 14.00-18.00
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna: Myndlistarsýning Guð-
jóns Bjarnasonar. Þar veröur op-
ið daglega frá 11.30-17.45.
Minjasafnið á Akureyri, Aðal-
stræti 58: Opið daglega kl.
11.00-17.00. Sýning á manna-
myndum Hallgríms Einarssonar,
Ijósmyndara. Laxdalshús, Hafn-
arstræti 11, er opið daglega kl.
11.00-17.00. Þar stendur yfir
sýningin: „Öefjord handelssted,
brot úr sögu verslunar á Akur-
eyri". Sunnudagskaffi við lifandi
tónlist. Elma Dröfn Jónasdóttir
og Rut Ingólfsdóttir leika á gítar
og fiðlu á sunnudag kl. 15.
Norræna húsið:
Sumarsýning Norræna hússins.
Málverk eftir Þorvald Skúlason.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11 Hafnarfirði: Op-
ið á sunnud. og þriðjud. 15-18.
Safn Ásgríms Jónssonar:
Sýning á Þjóðsagnamyndum og
myndum frá Þingvöllum. Opið
frá kl. 13.00- 16.00 alla daga
nema mánudaga.
Hafnarborg, Hafnarfirði: Þýski
listamaðurinn Andreas Green
sýnir í Sverrissal. G. R. Lúðvíks-
son sýnir í kaffistofu og Sólveig
Eggerz Pétursdóttir sýnir vatns-
litamyndir í aðalsal. -