Þjóðviljinn - 26.07.1991, Side 8
Útgefandl: Útgáfufélagíð BjatKi h.f. Auglýslngadeild: * 68 13 10 - 6813 31
Framkvaemdastjóri: Hallur Páll Jénsson Sfmfax: 68 19 35
Ritstjórar: Ami Bergmann, Helgi Guðmundsson, Verð: 150 krónur f lauaasðlu
Umsjónarmaður Helgarblaðs: Bergdla Ellertsdóttlr Setnlng og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Fréttastjóri: Sigurður Á. Friðþjófeson Prentun: Oddl hf,
Auglýslngastjóri: Stelnar Harðarson Aðsetur: Slðumúla 37,108 Reykjavík
Afgreiðsta: «■ 68 13 33
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Fortíðarhyggja - nútíðarklúður
- framtíðarvandi
Ríkisstjórnin er að koma sér upp nefnd
sem á að rýna í það sem kallað er fortíðar-
vandi. Ef að líkum lætur mun nefnd þessi í fyll-
ingu tímans skila af sér tillögum um það
hvernig leysa á þann vanda sem fortíðin hefur
að mati ríkisstjórnarinnar lagt á framtíðina.
Skipun nefndarinnar er iiður í því mikla
áróðursstríði sem ríkisstjórnin heldur úti í því
skyni að sannfæra þjóðina um að lítt vitrir
stjórnmálamenn fortíðarinnar hafa lagt á herð-
ar hennar slíkar byrðar að ekki dugi neitt
minna en að endurskoða sjálft hlutverk ríkis-
valdsins í samfélaginu: „Á næstu vikum verð-
ur það verkefni ríkisstjórnarinnar að deila
byrðunum af þeim róttæku breytingum, sem
grípa þarf til, milli velferðarkerfisins, fram-
kvæmda ríkisins, framlaga til atvinnulífsins og
starfsemi ríkisins sjálfs," segir Friðrik Sóphus-
son fjármálaráðherra um þetta í grein í Morg-
unblaðinu nýlega.
Fortíðarnefndin er þó fyrst og fremst til
marks um það nútíðarklúður sem ríkisstjórnin
er að koma sér í. Stefna hennar er byggð á
„hugsjónum" markaðshyggjunnar og í sam-
ræmi við það verður að skera niður sem allra
mest af útgjöldum ríkisins, fela einkaaðilum
margvísleg verkefni sem hingað til hefur verið
r r
0-ALIT
talið sjálfsagt að hið opinbera sæi um og síð-
ast en ekki síst að hygla þeim sem betur
mega sín með því að gera engar raunveruleg-
ar breytingar á innheimtu skatta. Stefna af
þessu tagi hefur í för með sér endalaust klúð-
urog aukna mismunun á öllum sviðum. Klúðr-
ið felst í því að ráðherrarnir eru að hrinda i
framkvæmd stefnu sem hefur þveröfug áhrif
úti í þjóðfélaginu, við það sem til er ætlast. Því
er m.a. haldið fram að allt þetta sé gert til
hagsbóta fyrir atvinnulífið, en öflugt atvinnulíf
sé síðan udirstaða hagsældar í landinu. Hið
síðast nefnda er að sjálfsögðu rétt, traust at-
vinnulíf er undirstaða þjóðlífsins. Hlutverk rík-
isvaldsins, ekki síst á erfiðleikatímum, ætti því
að felast í að bæta skilyrðin til að atvinnulífið
geti svarað kröfum tímans, meðal annars
staðið undir bærilegum launum til verkafólks.
Ríkisstjórnin vinnur ekki í þessum anda. (stað
þess að létta verkalýðshreyfingunni róðurinn
að því marki að ná viðunandi kjarasamningum
meðal annars með aðgerðum í skattamálum
og tryggingum fyrir því að samfélagsþjónusta
verði ekki skert, fer stjórnin þveröfuga leið.
Hún ætlar sér að létta útgjöldum af ríkissjóði
og láta almenning greiða þau beint með þeim
augljósu afleiðingum að verkalýðshreyfingin
kemst ekki hjá að sækja meiri launahækkanir
til atvinnulífsins til að mæta þessum kostnað-
arauka.
Fyrirfram er vitað hverjar tillögur fortíðar-
nefndarinnar verða, enda hafa ráðherrar ekki
sparað að kynna landslýðnum hvað þeir
hyggjast fyrir. Verkefni nefndarinnar verður
því ekkert annað en að klæða stefnu ríkis-
stjórnarinnar ( nýjan búning, sem væntanlega
verður skreyttur með rökum markaðshyggj-
unnar undir hagfræðilegu yfirskini.
Hið alvarlega í málinu er svo það að stefna
stjórnarinnar mun leiða yfir þjóðina framtíðar-
vanda sem felst í því, að á öllum sviðum verð-
ur mismunun aukin. Hinir betur settu geta
borgað dýr lyf ef þeir verða veikir, þeir geta
greitt skólagjöld, þeir geta borgað fyrir sig á
sjúkrahúsum og þeir þurfa ekki á Bygginga-
sjóði verkamanna að halda svo aðeins fáein
dæmi séu nefnd. ( samræmi við markaðs-
hyggjudrauminn mun hagur þeirra batna, en
lífskjör hinna sem ekkert hafa nema lág laun
eða tryggingabætur til að lifa af fara versn-
andi, og síðast en ekki síst: klúður nútímans
verður vandamál framtíðarinnar.
hágé.
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. júlí 1991