Þjóðviljinn - 26.07.1991, Page 14
Siðareglur
Það liggja margar ástæður
fyrir því að golf er sérstök íþrótt.
Góð útivera og nálægð við nátt-
úruna mætti nefna en það sem
skilur golf frá mörgum íþróttum
er hversu mjög leikurinn stjórn-
ast af settum reglum. Flestir þeir
sem leika golf hafa kynnt sér
helstu reglur sem fylgja þarf og
margir hafa fest kaup á reglu-
bókinni góðu og hafa hana ávallt
með sér þegar þeir leika. Reglu-
bókin ætti að teljast til nauðsyn-
legra áhalda til golfleiks þar sem
góður skilningur og kunnátta í
beitingu hennar getur oft bjarg-
að höggum.
Þeir sem leikið hafa golf að
einhveiju marki vita, að kylfingar
þurfa að fylgja fleiri reglum en
bara þeim sem eru í reglubókinni,
nefnilega siðareglum. Siðareglur
eru lögmál sem gilda um tillits-
semi við aðra kylfinga. Golf er ein-
taklingsíþrótt sem krefst mikillar
einbeitingar og margs sinnis hefur
verið sagt að golf fari ffam 95% á
15 cm svæði, þ.e. á milli eyma
leikmanna, og 5% á vellinum sjálf-
um. Við leggjum engan dóm á rétt-
mæti þessarar fullyrðingar en full-
víst er að leikurinn byggist mikið á
einbeitingu og flestar siðareglur
eru settar til að koma í veg fyrir að
kylfingar trufli einbeitingu hvers
annars. Mjög algengt er að fólk,
sérlega þó fólk sem lítið þekkir til
golfsins, vanmeti þörf leikmanns
fyrir frið, ró og hljóð þegar hann
einbeitir sér að leik sínum.
Eitt það fyrsta sem fólk lærir
þegar það kemur á golfvöll er að
hafa algjört hljóð. Minnsta hljóð
sem kemur kylfingi á óvart er
mjög líklegt til að raska einbeit-
ingu hans og þar með hafa áhrif á
leik hans. Einnig er varasamt að
vera mikið á hreyfingu þegar á leik
stendur og verði leikmaður var við
hreyfingu í nánd við sig, jafnvel þó
hljóðlaus sé, veldurþað truflun, Til
að varast þetta er skynsamlegt að
halda sig í hæfilegri fjarlægð frá
þeim sem er að leika og helst að
vera á stað þar sem hann veit að
hann verður ekki truflaður. Sum-
um kylfingum finnst óþægilegt að
hafa fóik fyrir aftan sig og því er
öruggast að vera fyrir framan leik-
mann, en þó í góðri fjarlægð. Hér
er átt við til móts við leikmanninn
en ekki höggstefnu.
Þegar á flötina er komið hafa
kyifingar meiri þörf fyrir að vera
Golfari vikunnar
Þessar tvær hressu stelpur,
Erla Þorsteinsdóttir og Rut
Þorsteinsdóttir, eru golfarar
vikunnar í þetta sinn.
Þær eru félagsmenn í Golf-
klúbbi Suðumesja, Erla byrjaði
núna í sumar en Rut hefur verið
félagsmaður í þrjú ár. Þær sögðu
að pabbi þeirra spilaði golf og
þess vegna höfðu þær leiðst inn í
þetta og voru báðar sammála að
golf væri það skemmtilegasta
sem þær gerðu á sumrin. Þær
kvörtuðu þó sáran um að það
vantaði fleiri stelpur í íþróttina,
og hvetja allar þær sem hefðu
áhuga að koma og vera með, því í
golfi er svo gaman.
Munið að ganga vel um völlinn. Setjið torfurnar í torfuförin. Rakið
sandgryfjumar. Lagið boltaför á flötum. Verið tillitssamir við
meðleikendur ykkar. Látið ekki slæmt gengi bitna á öðrum. Hreint land
- fagurt land.
án tmflunar en annars staðar.
Avallt skal varast að stíga ekki í
púttlínu leikmanns því það getur
haft slæm áhrif á rúll boltans á flöt-
inni. Einnig ber að merkja bolta
sinn á flötinni þegar annar leik-
maður er að pútta, sérstaklega þó
ef hann fer fram á það. Oft biðja
leikmenn um að haldið sé við
stöngina sem er ofan í holunni.
Þetta er gert vegna þess að þeir sjá
ekki hvar holan er án stangarinnar
i, og eins og flestir vita, þá fær
leikmaður vítishögg fyrir að pútta í
stöngina ef hann er á flötinni. Þeg-
ar haldið er við stöngina er skyn-
samlegt að athuga vel hvort hún er
ekki vel laus í holunni þannig að
auðvelt sé að ná henni úr þegar
boltinn kemur.
Siðareglur golfsins eru fjöl-
margar og engin leið að nefna þær
allar í stuttri grein sem þessari.
Nokkrar helstu voru hins vegar
nefndar en mælum við með að þið
kynnið ykkur siðareglumar vel.
Sumar siðareglur tengjast golffegl-
unum sjálfum og mikilvægi þess
að eiga reglubókina og kunna að
nota hana verður seint ofmetið.
Á flöt má leikandi ekki standa í púttlínunni aftan við boltann þegar hann
púttar. Leikmenn skulu yfirgefa flötina undir eins að leik loknum. Blða
skal með að skrá skor leikmanna þar til komið er á næsta teig. Þetta
flýtir leik og er auk þess sjálfsögð kurteisi við þá sem á eftir koma.
Regluþáttur
Bolti leikmanns liggur í
skurði utan brautar. Meðfram
honum beggja vegna eru gular
stikur. Hvað þýða þessar gulu
stikur?
A: Að skurðurinn sé utan vallar.
B: Að skurðurinn sé vatnsstor-
færa.
C: Að skurðurinn sé hliðarvatns-
torfæra.
UBjn JD UI3S igæAS BþjJDUI
jn>[i)s jb)iah jnjayjoiujEAjEQim
JljX) JBQnBJ U3 ‘jnjæjJO)SU)BA
j|jXj jbqb)ou jn>[i)s jB[n3 rua
B(j jrnæjJO) ByJEUlJE QE [I) JBQB
-)ou njs jnyps jbqbji i uios je<j
:puiD
SB§nt[)V
a :jbas
Á FLÖTINNI
Umsjón
Jóhanna Waagfjörð og
Gunnar Sn. Sigurðsson
Kennara-
hornið
Phillip
Hunter
Þegar staða
er tekin þá ættu kylflngar að mKBb}
hafa tvennt í huga: Hreyfan-
leika og stöðugleika. Hreyfan-
leika til að geta framkæmt allar
þær hreyfingar sem þarf í
sveiflunni, svo sem snúning á
mjöðmum og öxlum. Stöðug-
leika þarf hins vegar að hafa
einnig til að halda jafnvægi þeg-
ar sveiflan er tekin. Góð aðferð
við uppstillingu er að byrja með
fæturna saman og boltann I
beinni línu milli fótanna. Vinstri
fótur er síðan færður um 10 cm
til vinstri og sá hægri síðan til
hægri, nógu mikið til að u.þ.b.
axlarbreidd sé á milli fótanna
(sjá mynd 1).
Mjög mikilvægt er að kylfing-
um líði vel í uppstillingunni og
hún sé sem eðlilegust fyrir þá.
Staðan er upprétt með bakið eilít-
ið bogið frá mjöðm, fætumir eru
afslappaðir og lítið eitt bognir, en
ekki of mikið, því of bognir fætur
geta haft sömu áhrif og of stífir
fætur. Hökunni ætti að vera haldið
frá líkamanum og höfúðið haft í
línu við miðja stöðuna. Góð hug-
mynd er að vinstra augað geti
horft aftan á boltann (fyrir rétt-
hentan spilara) en það gerir snún-
ing axla auðveldari. Síðan er stað-
ið með jafnan þunga á báðum fót-
um og allt er tilbúið til að slá
höggið.
Mitt ráð í þessari viku er að
gæta vel að því að hafa uppstill-
inguna afslappaða, þannig að ykk-
ur líði vel yfir högginu.
Gangi ykkur vel.
14 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. júlí 1991