Þjóðviljinn - 26.07.1991, Síða 18

Þjóðviljinn - 26.07.1991, Síða 18
Yfirburðasigur Jusupovs í Hamborg Artur Jusupov er þekktur fyrir gífurlega þrautseigju í erfiðum stöðum og svo trausta taflmentisku að hann hefur verið fastamaður í sovéska olympíuliðinu síðan 1982. Er Sovétmenn unnu Olympíuniótið í Dubai 1986 var Jusupov sérstak- lega heiðraður fyrir framlag sitt á lokasprettinum. Hann hlaut 10 vinninga úr 12 skákum, tefldi níu sinnum með svörtu og var sárlasinn seinni hluta mótsins. A síðasta ári var ráðist á Jusupov á heimili hans í Moskvu, nokkrir innbrotsþjófar stálu öllu fémætu úr íbúðinni og þó Jusupov hafi farið að öllu eins og menn eiga gera undir slíkum kring- umstæðum þá var hleypt á hann úr skammbyssu og lá hann eftir illa særður. Meðan á einvígi hans við Sergei Dolmatov stóð í Wijk aan Zee í vetur var hann greinilega ekki búinn að ná sér eftir þessar hremm- ingar. Hann átti afar erfitt með gang enda stóð hann ekki upp frá skák- um sínum eina einustu mínútu. En öll él birtir upp um síðir og Jusupov hefur svo sannarlega náð sér á strik, nú síðast með frábærum árangri á allsterku móti í Hamborg í Þýskalandi. Hann hefur gengið til liðs við skákklúbb Bayem Múnchen og hélt innreið sína í skáklíf Þjóðverja með næstum því ótrúlegum yfirburðasigri. Þó meðal keppenda væru níu stórmeistarar af 14 hlaut hann 11 1/2 vinning og varð 1 1/2 vinningi á undan heima- manninum Wahls. I 3. sæti kom Daninn Curt Hansen þá Þjóðverj- inn Lobron og síðan í 5. - 8. sæti Hollendingurinn Piket, stigahæsti keppandinn Khalifman sem nú tefl- ir fyrir Þjóðverja, Pia Cramling og lítt þekktur Þjóðverji Muller að nafhi öll með 7 vinninga. Jusupov hafði ótrúlega lítið fyr- ir vinningunum og var kominn með 9 1/2 vinning úr fyrstu tíu skákun- um. Með hliðsjón af því hversu harður í hom að taka hann er í ein- vígjum hlýtur þessi sigur að gefa honum byr undir báða vængi fyrir átökin við Vasilij Ivantsjúk sem hefjast í Brússel í næsta mánuði. Jusupov hefúr haft mikið dálæti á fremur fáséðum byrjunum eins og hollenskri vöm sem hann teflir öll- um mönnum betur, franskri vöm, opna afbrigði spænska leiksins. Lítum á dæmigerða sigurskák hans frá mótinu í Hamborg: Eric Lobron - Artur Jusupov Hollensk vörn 1. d4 f5 2,g3 Rf6 3. Bg2 (Jusupov er þekktur fyrir að tefla „grjótgarðs - afbirgði" hol- lensku vamarinnar sem hefst með 3. .. e6 og síðan d5 og - c6. Þetta er Leningradafbrigðið sem nýtur mik- illa vinsælda um þessar mundir.) 4. b3 Bg7 5. Bb2 0-0 6. Rf3 d6 7.0-0 De8 8. d5 c6 9. c4 Ra6 10. Rc3 Bd7 ll.Hcl Hd8 12. Ba3 Rc5 13. Rd2 a5 14. b4 axb4 15. Bxb4 e5 16. Rb3 Rxb3 17. axb3 c5 18. Ba3 e4 19. Bb2 Rg4! (Hemaðaráætlun svarts hefúr gengið fúllkomlega þökk sé fremur slökum leikjum hvíts, 13. Rd2 og 14. b4. Hann á góða sóknarmögu- leika kóngsmegin og hefur haldið öllum mótspilsáformum hvíts niðri.) 20. h3 Re5 21. Dd2 De7 22. Hal h5 23. Ha7 Bc8 24. f4 25. exf3 exf3 (Nái hvítur að leika 26. f4 hefur hann leyst öll sín vandamál. Jusu- pov kemur í veg fyrir það þegar í stað.) 25... f4! 26. gxf4 Bh6 27. Re2 Dh4 (Svartur beinir skeytum sínum að kóngsstöðu hvíts.) 28. Bxe5 dxe5 29. De3 Hxf4! (Svartreita biskupinn skiptir höfuðmáli og þess vegna hikar Jusupov ekki við að láta þennan hrók af hendi.) 30. Dxc5?! (Lobron hefúr varist vel en missir af besta leiknum, 30. Dxe5 t.d. 30. .. Hf5 31. De4. Á c5 er drottningin fjarri aðalátakasvæð- inu.) 30.. . Hd4! 31. Db6 (En ekki 31. Rxd4 Be3+ 32. Kh2 Bxh3! 33. Bxh3 Bf4 + 34. Kgl Dg3+ 35. Bg2 Be3+ 36. Khl Dh4+ og mát í næsta leik.) 31.. . Be3t 32. Kh2 Kh8 (Lævís leikur. Ef 33. dxg6 þá 33. .. Hg8! ásamt fóm á g2.) 33. Rxd4? (Mun betra var 33. Ha8.) 33.. . Bxh3! 34. Bxh3 (Biskupsfómin byggir á sömu hugmynd og getið var um í aths. eftir 31. leik hvíts. En nú er eins og Lobron kveiki ekki á hugmyndinni. Hann varð að reyna 34. Dxd8 Dxd8 35. Rxd4 þó staðan sé trúlega töpuð eftir 35. .. Bf4+ 36. Kg2 exd4.) 34.. . Bf4t 35. Kgl Dg3t 36. Bg2 Be3t - og Lobron gafst upp því hann verður mát eftir 37. Khl Dh4t. ■ Áskorenda- einvígin hefjast að nýju Þann 11. ágúst hefst á SAS - hótelinu í Brússel áframhald áskor- endakeppninnar í skák. Öll fjögur einvígin fara ffam samhliða. Þar eigast við Anatolij Karpov og Wi- svanathan Anand, Boris Gelfand og Nigel Short, Vasilij Ivantsjúk og Artur Jusupov og Viktor Kortsnoj og Jan Timman. Þeir Karpov og Iv- anstjúk þykja langsigurstrangleg- astir í keppninni að þessu sinni þó ekkert sé gefið í þeim efnum. Ivant- sjúk varð að sætta sig við 3. sætið á móti á Spáni nýlega og Karpov gerði jafntefli við Simen Agde- stein, 2:2, í einvígi sem ffam fór í Osló á dögunum. Agdestein vann fyrstu skákina, Karpov jafnaði og síðan fylgdu tvö jafntefli. Karpov er vitaskuld mun sigurstranglegri en Anand en þó má geta þess að á mótinu í Linares á dögunum tókst Indverjanum að leggja Karpov með svörtu. Hina hraða taflmennska Indveijans virtist slá Karpov út af laginu. Einvígi Ivantsjúk og Jusu- povs er kannski hið ffóðlegasta þessara fjögurra og getur allt gerst. Kortsnoj hefúr gengið afleitlega upp á síðkastið og tapaði t.d. fyrir Chile-búanum Morovic í sex skáka einvígi nýlega en mikið jafnræði virðist vera með Gelfand og Short. Spá mín um sigurvegara: Karpov, Ivanstjúk, Timman og Short. eftir bridgespilurum Nýútkomin meistarastigaskrá BSI er furðulegt plagg, svo ekki sé mcira sagt. Til að byrja mcð virð- ast yfir 1 þúsund spilarar hafa „dottið“ út úr kerfinu. I skránni frá 1. janúar 1990 er að finna nöfn 3552 spilara. Hins vegar í þcssari skrá, unnin stig frá janúar 1991 lil maí sama árs, er cinungis að linna nöfn 2413 spilara. Þar inni í þeim tölun; má einnig finna nöfn nokk- urra látinna fclaga, þannig að gróft rciknað hcfur bridgespilurum fækkað (cr það hægt?) úr 3552 spilurun; 1990 í 2400 spilara 1991. Er þetta hægt? Fclagatölur cinstakra fclaga eru cinnig dularfullar, vægast sagt. Stærstu fclögin núna cru (tölur frá 1990 cru innan sviga): Bridgefélag Reykjavíkur 151 (173) Bridgefélag Akureyrar 133 (210) Bridgcfélag Brciðfirðinga Rcykja- vík 118(169) Bridgefclag Kópavogs 99 (14?) Brigcfclag kvcnna 89 (111) Bridgefélag Breiðholts 88 (149) Bridgedeild Skagfirðinga 73 (146) Svona má halda áfram unt land allt. Skil á bronsstigum virð- ast einnig vera í niiklum ólcstri, því ein 10 félög eru ckki skráð með bronsstig frá janúar '91. Skipting stiga á þessum 2400 spilurun; er: Stórmcistarar (500 stig eða mcir) 27. Mcð 150-499 stig eru 110 spilarar. Með 15-149 stig eru 706 spilarar. Mcð 2-14 stig eru 1191 spilari og 1 stig cru skráðir 379 spilarar. Samtals 2413 spilar- ar, en nokkrir látnir þar inn í, eins og áður hcfur komið fram. Til að ná félagatölu frá 1990 (skráðir spilarar 3552) virðast því yfir 1150 spilarar (ef við geruni ráð fyrir engri aukningu milli ára) vera án „sliga“. Þcssi færsla er því gersamlcga'út í hötl, cða á hvern hátt gcta til að mynda Skagfirð- ingar í Rcykjavík „dottið" úr 146 skráðum félögun; 1990 í 73 félaga 1991? Er einhvcr aðili innan stjómar BSÍ á félagaveiðum? Er ckki stuðst við cldri plögg í skráningu? Eg lcgg til að þetta mál verði skoðað, svo og færslur til ein- stakra spilara. Eg hef grun um að ansi margar villur séu á færslum. Eins og fram hcfur komið, hcfur verið drcgið í 2. umlerð Bik- arkeppni BSl. Þar leiða saman hesta sína 16 sveitir, í 8 leikjum. Vitað er um spiladag hjá 10 sveit- urn (5 Ieikjum). Þeir eru: Fast- eignaþjónusta Suðumcsja - Sig- mundur Stefánsson Reykjavík, mætast á miðvikudag, sem og sveitir Myndbandalagsins Reykja- vík gegn Guðlaugi Sveinssyni Reykjavík. Á laugardag (á morg- un) mætast svcitir Sigurðar Skúla- sonar Homafj- - Ásgríms Sigur- bjömsonar Siglufj. Síðustu helg- ina spila svo sveitir Samtex gegn Eiríki Hjaltasyni og Ómars Jóns- sonar gegn Roche. Hinir lcikimir eru: Ævar Jón- asson Tálknafirði gegn Landsbréf- um Reykjavík. Doddi Bé Akranesi gegn Tryggingamiðstöðinni Reykjavík og Lúsifcr Reykjavík gegn Bcmódusi Kristinssyni Reykjavík. Landsliðsparið í yngri fiokki, Steingrímur G. Péturson og Svcinn R. Eiríksson náðu þokka- lcgum árangri á Evrópumóti yngri spilara í tvímcnning, scm spilað var í Sviss fyrir skemmstu. Þeir höfnuðu í 24. sæti af ylir 100 pör- um. Sigurvcgarar voru par frá Austurríki, sen; áttu sæti í Opna landsliðinu á írlandi, í Evrópumóli landsliða. Sumarið í sumar liefur verið óvenju dauft. Engin opin mót, eða uppákomur, fyrir almennan spilara innan BSÍ. Er það hið versta mál, því í kjölfarið á fræknum árangri landsliðs okkar á EM, hefði verið (er) lag að nýta sér uppsveifiuna, í þágu bridge. Allir kannast við slíka uppsveiflu í kjölfarið á sér- taklega góðurn árangri í einhverri íþróttagrcin. Er miður, að bridge- hreyfingin og forráðamenn hennar skuli ekki vera með augun opin í þessu sambandi. Það er jú stund- aður bridge víðar en í Reykjavík. Og lífið er ekki landslið. Hættan á vissri stöðnun er alltaf fyrir hendi. Og vissulega hefur verið stöðnun upp á síðkastið. Sú stöðnun birtist í ýmsum myndum og virðist fylgj seinagangi í ákvarðanatöku 0] ákveðnu tregðulögmáli. Þessa hugleiðingar eru í raun tímabæra og efni í myndarlega grein í þætt inum. Orðið er fijálst. Eitt frumatriðið í bridgeleikn um er að treysta félaga þínum bet ur en andstæðingunum. Þú heldu á: Vestur: ♦ D93 ¥ KG953 ♦ ÁD52 4* 4 Og sagnir hafa gengið: Norður pass, Austur 1 lauf (Standard) og Suður 4 spaðar, sem þú leyfir þér að dobla, á spil Vest- urs. Þú spilar væntanlega út laufa- Ijarka og blindur birtist með: Norður: ♦ 8 ¥ D1084 ♦ G764 4* G632 Félagi ykkar tekur á ásinn í laufi og spilar til baka laufatíu. Kóngur hjá sagnhafa. Þið væntan- lega trompið, og hvað nú? Tígulás og meiri tígull? Eða hjarta frá kóng, horfandi á borðið? En laufatían? Hvað er það? Af- hverju tían? Er það ekki beiðni um hjarta? (Há spil fyrir hærri liti og lág spil fyrir lægri liti.) Þú spilar því hjarta í 3. slag. Allt snilið var svona: 4 8 ¥ 1)1084 ♦ G764 + G632 4 D93 4 G10 ¥ KG953 ¥ — ♦ÁD52 ♦ K10983 ♦ 4 ♦ ÁD10985 4 ÁK76542 ¥ Á762 ♦ — + K7 Með hjartaútkomunni í 3. slag tryggið þið samninginn 2 niður, þegar félagi ykkar trompar og skilar laufi öðru sinni. Við þurfum ekki að kemba hærumar í þessu spili, ef við spilum tígli í 3. slag. Einfalt? Kannski, en það þarf að gera það, ekki satt? Hvemig spilar þú vömina á móti félaga þínum? Notið þið hliðarköll, frávísanir, hvetjandi köll, öfug köll og markeringar, eða eðlileg köll og markeringar? Og að auki hin tuttugu atriðin, ónefndu. BRIDGE Olafur Lárusson 18 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 26. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.