Þjóðviljinn - 14.08.1991, Qupperneq 6
V
Líf og fjör
í Viðey
Sérstakur hópur frá
Vinnuskóla Reykjavíkur
hefur starfað útl Viðey (
sumar við að hreinsa
og snyrta eyjuna.
Stundum gefst tími til að fíflast soldið og bregða á leik. Mynd: Jón Fjörnir.
<9
Eiga íslendingar
samleið með
hinum Norður-
löndunum?
Hörður M. Harðarson
meðferðarfulltrúi:
Nei, því við erum í tölu-
verðri sérstöðu.
Snædís Sigurjónsdóttir
vinnur á barnaheimili:
Já, við eigum mikla sam-
leið með þeim.
Ari Sigurðsson
sölumaður:
Já, en samt erum við í
sérstöðu og þau líka.
Sjöfn Tryggvadóttir
gjaldkeri í banka:
Eg hef bara ekki fylgst
með þessu máli.
Gunnbjörn Ólafsson
í ýmsu braski:
Já, en við erum náttúru-
lega í töluverðri sérstöðu
í því máli.
^sumar hafa krakkar frá
I Vinnuskóla Reykjavíkur ver-
I ið önnutn kafnir við vinnu í
JL Viðey þar sem þeir hafa verið
að siá grasið og hreinsa eyjuna
ásamt ýmsu öðru.
Það hefur verið nóg að gera í
allt sumar og því ákvað vinnuskól-
inn, sem yfirleitt starfar aðeins tvo
mánuði á sumrin, að halda þessu
starfi áfram út sumarið.
Ekki var hægt að leyfa öllum
að vinna áfram og var því valinn
ákveðin hópur af krökkum sem
sköruðu fram úr sökum dugnaöar.
Hópurinn samanstendur af 10
krökkum, fimm strákum og fimm
stelpum, sem öll eru 14 ára.
Blaðamaður skellti sér útí Við-
ey og kíkti á hópinn sem var auð-
vitað önnum kafinn við vinnuna.
„Þaö er meiriháttar aö vera hér I Viö-
ey og mórallinn hefur veriö góöur,"
sagöi Elísabet Ásmundsdóttir, 14
ára.
Mikil rigning var þennan dag,
en krakkamir létu það samt ekki á
sig fá. Þeir rökuðu heyið af mikl-
um dugnaði og sögðu hver öðmm
sögur og brandara til að gleyma
leiðinlega veðrinu.
Bryndís Jónsdóttir, verkstjóri
flokksins, sagði að samstarfið við
krakkana, sem endar í lok vikunn-
ar, hefði verið mjög skemmtilegt
og þeir hefðu fengið tækifæri til að
kynnast hver öðmm mjög vel.
Hún sagði að starfið í Viðey
fælist fyrst og fremst í því að raka
túnin, hreinsa fjömmar og kveikja
í mslinu sem þau finna.
„Draslið í fjömnum er mikið
og það er heilmikil vinna að
hreinsa það allt. Hinir ótrúlegustu
hlutir finnast í ijörunni, og t.d. höf-
um við fundið eymapinna, dömu-
Stelpurnar segja stundum aö viö
strákarnir séum svo barnalegir, en
þær eru sjálfar stundum með stæla,”
sagöi Ragnar.
bindi, bjór- og kókdósir svo eitt-
hvað sé nefnt.“
Þetta er annað sumarið sem
vinnuskólinn starfar útí Viðey og
áætlað er að starfið haldi áffam
næstu sumur.
Blaðamaður tók eftir því að
allir strákamir unnu saman á ein-
um stað og stelpumar á öðmm, í
stað þess að vera öll saman. „Það
vill nú bara til að þau vinna svona
í dag,“ sagði Bryndís. „Annars er
þetta mjög samstilltur hópur og
góður mórall sem ríkir hjá okkur.“
Hún sagði að þegar tími gæfist til
þá fæm þau öll saman í leiki og
fífluðust og skemmtu sér.
„Það er alveg meiriháttar að
vera hér,“ sagði Elísabet Ásmunds-
dóttir, 14 ára, en hún hefúr starfað
með hópnum i einn mánuð. „Við
þurfúm samt að vera mætt svo
snemma á morgnana til að ná bátn-
um, en það er eiginlega allt í lagi.
Mórallinn er mjög góður og þessi
vinna er ágætis tilbreyting.“ Elísa-
bet sagði að þau hefðu verið mjög
heppin með veðrið i sumar þó svo
að rigningin hefði látið sjá sig
stöku sinnum. Við því væri samt
ekkert annað að gera en klæða sig í
pollagallann og stígvélin.
Einhver galsi var í strákunum
og þeir vom spenntir að sjá ljós-
myndara búa sig undir að taka
myndir af þeim. „Ekki taka myndir
af mér þegar ég brosi því þá sést í
spangimar,“ sagði einn þeirra
skælbrosandi. Aðspurðir um sam-
starfið við stelpumar sögðu þeir að
þær þættust alltaf vera svo fúll-
orðnar. „Þær em alltaf að segja
hvað við séum bamalegir,“ sagði
Ragnar Bragason, en hann hefúr
starfað með hópnum í um tvær
vikur. „Við fómm svo oft í bíó öll
saman, en nú er þetta eitthvað að
leysast upp. Þær em nú sjálfar
stundum með stæla og bamaskap,“
sagði Ragnar og skildi ekkert í
þessum breytingum.
í tilefhi af því að síðasti vinnu-
dagur hópsins er á föstudaginn,
ætlar Bryndís verkstjóri að halda
partý fyrir hópinn heima hjá sér.
Þar ætlar hún að bjóða uppá vöffl-
ur og annað góðgæti. Krakkamir
eiga eflaust eftir að rifja þar upp
margt skemmtilegt sem á daga
þeirra hefúr drifið í sumar á þess-
ari fallegu eyju sem Viðey er.
-KMH
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. ágúst 1991
fiyi' 13.1 •)j X ijyv.i.n.o’.f/ðtV Wr...i*VtX)L 4