Þjóðviljinn - 15.08.1991, Qupperneq 7
FiRifcmiR
95 prósent foreldra vilja
lengra fæðingarorlof
Um 95% foreldra ungra
barna vilja að fæðingar-
orlof verði lengt veru-
lega. Um 56% af þeim sem vilja
Iengingu segja eins árs orlof
hæfilegt og um 25% telja níu
mánuði hæfilega langt. Um 2%
vildu 18-24 mánaða orlof. Fæð-
ingarorlof er nú sex mánuðir.
Þetta eru niðurstöður skoðana-
könnunar sem Foreldrasamtökin
hafa látið gera. Reynt var að ná til
allra foreldra i Reykjavík sem
eignuðust sín fyrstu böm á síðasta
ári sem og til foreldra sem eign-
uðust böm í fyrra og eiga íyrir
böm á grunnskólaaldri. Þessi hóp-
ur er 1127 pör en aðeins náðist í
um helming eða 533. Sif Einars-
dóttir, sem samdi könnunina, telur
ástæður þessa mikla brottfalls þær
að foreldrar sem em að eiga sín
fyrstu böm búa margir í leiguhús-
næði og flytja því mjög ört og því
erfitt að hafa upp á þeim í síma.
Sagt er frá könnuninni í tíma-
riti Foreldrasamtakanna, Uppeldi.
Framkvæmdastjóri þess, Hörður
Svavarsson, segir að samtökin og
tímaritið muni beita öllum tiltæk-
um ráðum til að þrýsta á um leng-
ingu fæðingarorlofs. „Við túlkum
kosningaloforð stjómarflokkanna
þannig að þeir séu fylgjandi leng-
ingu á fæðingaorlofmu. I kosning-
apésa Sjálfstæðisflokksins er t.d.
talað um „ótvírætt gildi heilbrigðs
fjölskyldulífs" og teljum það m.a.
benda til þess að orlofið lengist á
næstu árum,“ segir Hörður. „I nýj-
um lögum um leikskóla segir að
leikskólar eigi að vera fyrir böm
frá því að fæðingarolofi lýkur.
Það er mjög dýr lausn að setja upp
leikskóla fyrir böm frá sex mán-
aða aidri og ekki sú manneskju-
legasta. Þannig hljótum við að
reikna með að lögin séu hvati á að
orlofið sé lengt.“
Niðurstöður könnunarinnar
verða sendar ASÍ, BSRB, Neyt-
endasamtökunum og þingmönn-
um. Úrvinnslu allrar könnunarinn-
ar er ekki að fullu lokið en einnig
var spurt um viðhorf til heima-
greiðslna og til dagvistunar. Allar
niðurstöður verða birtar í sérstakri
skýrslu frá Foreldrasamtökunum í
lok næsta mánaðar. 1 samtökunum
era 2500 manns og áskrifendur
tímaritsins Uppeldis era um 8000
talsins.
-vd.
Aldurinn skiptir ekki máli
Islandsmót í atskák
Undanrásir ísiandsmótsins
í atskák verða dagana 17-
18. ágúst nk. Úrslita-
keppnin verður í ársbyrjun
1992. Stefnt er að því að halda
ísiandsmótið með sama hætti og
síðast en tilhögun verður sem
hér segir:
í Reykjavík, á Akureyri og Isa-
firði verða tefldar 9 umferðir eftir
Monrad-kerfi. Mótið hefst kl.
14.00 laugardaginn 17. ágúst.
Tefldar verða fimm umferðir á
laugardag og fjórar á sunnudag. í
Reykjavík verður teflt í Faxafeni
12. ,
íslandsmótið í atskák er öllum
opið. Þátttökugjald er kr. 1500.-
fyrir fullorðna en 800,- fyrir 15 ára
og yngri.
Fyrstu verðlaun í Reykjavik
era 18.000,- kr. en þar eru alls sjö
verðlaunasæti. Tvenn verðlaun
verða veitt á Akureyri og ísafirði
en þar era fyrstu verðlaun 10.000,-
kr. Þetta eru lágmarksverðlaun sem
umsjónaraðilar ábyrgjast en þeim
er heimilt að hafa þau hærri.
Atta skákmenn vinna sér rétt til
þátttöku í úrslitakeppninni. Þar af
eru sex úr mótinu í Reykjavík en
varamenn úr 7. 8. og 9. sæti, en
einn úr hvoru hinna og varamenn
úr öðra sæti. Séu tveir eða íleiri
jafnir að vinningum skulu stig
ráða. Verði ekki unnt að fylla laus
sæti með varamönnum mun stjóm
S.í. velja keppendur til viðbólar.
Sextán keppendur tefla í úrslit-
um. Auk átta keppcnda úr undan-
rásum á atskákmeistari Islands rétt
á þátttöku og auk þess sjö stiga-
hæstu skákmenn landsins.
-kj
Keppt í gerð
klæoistjalda og
mvndverka í
ráohúsið
Ekki er krafist flókins
myndmáls, heldur fremur að
skreytingarnar falli vel að
umhverfí og arkitektúr húss-
ins, sagði Ólafur Jónsson
trúnaðarmaður dómnefndar
um listskreytingu í ráðhúsið.
Nýlega var auglýst eftir
umsóknum í lokaða sam-
keppni um gerð myndverks og
klæðistjalda í hið nýja ráðhús í
Tjöminni. Tæplega sjötíu lista-
menn sendu inn upplýsingar
um verk sín og feril. Dóm-
nefnd skipuð þeim Markúsi
Emi Antonssyni borgarstjóra,
Þorvaldi Þorvaldssyni for-
stöðumanni Borgarskipulags,
Jóni G. Tómassyni borgarrit-
ara og myndlistamönnunum
Brynhildi Þorgeirsdóttur og
Önnu Þóra Karlsdóttur frá
SIM völdu tólf listamenn til að
gera tillögur að verkunum.
Þeir sem munu keppa sín á
milli um bestu tillöguna að
myndverki á vegg fyrir framan
borgarstjórnarsal era þeir
Daníel Þorkell Magnússon,
Kristinn E. Hrafnsson, Krist-
ján Guðmundsson, Níels Haf-
stein, Sigurður Örlygsson og
Þorvaldur Þorsteinsson. Til
gerðar tillagna að klæðistjöld-
um sem sett yrðu upp milli
Tjamarsalar og almennra
gönguleiða valdi dómnefndin
þær Erlu Þórarinsdóttur, Guð-
rúnu Erlu Geirsdóttur, Guð-
rúnu Gunnarsdóttur, Ingi-
björgu Styrgerði Haraldsdóttur
og Sigurlaugu Jóhannesdóttur,
auk Kristjáns Guðmundssonar.
Allir þátttakendur sem skila
inn tillögum sem fullnægja
kröfum í keppnislýsingu fá
greiddar 300 þúsund krónur,
sömu upphæð verður veitt í
verðlaun fyrir bestu tillögum-
ar. BE
Orka, höfn
og land
á silfurfati
Kvennalistinn hefur sent
frá sér ályktun þar sem
þeirri ákvörðun iðnaðarráð-
herra að ganga til samninga
um byggingu álvers á Keilis-
nesi er harðlega mótmælt.
í ályktuninni segir: „Miðað
við heimsmarkaðsverð á áli nú
yrði orkuverð til hins nýja ál-
vers um 10 mill, sem er aðeins
helmingur þess sem kostar að
framleiða orkuna. Þar fyrir ut-
an færa íslensk stjómvöld er-
lendum eigendum hins nýja ál-
vers land undir verksmiðjuna
og eitt stykki höfn á silfurfati.
Kvennalistinn hefúr ávallt
mótmælt byggingu álvers
vegna umhverfisspjalla sem
því fyigja en nú tekur steininn
úr þegar þar á ofan er verið að
binda komandi kynslóðum enn
einn skuldabaggann." -vd.
Vaxtahækkunarstefnan er rangt hagstjómartæki
Yfirdráttur ríkissjóðs hjá Seðlabankanum var í júlimánuði um 9,3
miljarðar króna. Hann hefur ekki náðst niður þrátt fyrir yaxta-
hækkanir rikisstjórnarinnar á fyrstu starfsvikum sínum. Ólafur
Ragnar Grímsson, segir þetta vera dóm á að vaxtahækkunarstefna
Sjálfstæðisflokksins hafi endanlega beðið skipbrot.
Eins og Þjóðviljinn greindi frá í
gær hefúr yfirdráttur ríkissjóðs farið
hækkandi, þrátt fyrir góða sölu á rík-
isvíxlum sem varð í kjölfar vaxta-
hækkana ríkisstjómarinnar í vor. Yf-
irdrátturinn var í lok aprílmánaðar
um 8,9 miljarðar króna og var fyrri
ríkisstjóm harðlega gagnrýnd vegna
stöðu ríkisfjármála á þeim tíma.
Þegar litið er á yfirdrátt ríkissjóðs
yfir allan júlímánuð var hann um 9,3
miljarðar, það er því ljóst að áform
ríkisstjómarinnar um að lækka yfir-
dráttinn hefúr ekki tekist.
Samkvæmt upplýsingum frá
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa hef-
ur sala á rikisvíxlum aukist að und-
anfömu sem nemur 2-3 miljörðum
króna. Útistandandi skuld ríkissjóðs
innanlands hefur því ekki aðeins
aukist um þennan eina miljarð hjá
Seðlabankanum, heldur er aukning
nær 3-4 miljörðum þegar allir þættir
eru skoðaðir.
Formaður Alþýðubandalagsins,
Ólafur Ragnar Grímsson, segir að
enginn hafi deilt um það í vor að það
þyrfli að ná tímabundnum yfirdrætti
í Seðlabankanum niður. „Deilan
snerist um aðferðimar til þess að ná
honum niður. Þessi ríkisstjóm gerði
það að sínu fyrsta verki að segja að
aðferðin væri vaxtahækkun. Það
þarf ekki annað en að fietta upp á yf-
irlýsingum fjármálaráðherra, forsæt-
isráðherra og utanríkisráðherra til að
finna staðfestingar þeirra orða. Þeir
hækkuðu allt raunvaxtastigið í land-
inu um þriðjung til þess að ná þess-
um yfirdrætti niður. Þeir sögðu að
það væri dæmi um óstjóm að yfir-
drátturinn væri rúmir átta miljarðar
og það átti að verða eitt fyrsta verk
þessarar ríkisstjómar að drága úr yf-
irdrættinum og minnka með því
þensluna i sumar.
Dómur reynslunnar um vaxta-
hækkunarstefnuna sem hagstjómar-
tæki er kominn í ljós. Eins og varað
var við í maí í sölum Alþingis þá eru
afleiðingar þessarar stefnu nákvæm-
lega þær sömu og á árunum 1987 og
‘88, þ.e. að vaxtahækkunarstefnan
eykur á vandann en leysir hann ekki.
Niðurstaðan blasir nú við eflir þijá
mánuði: ríkisstjómin hefur verið í
fararbroddi um að hækka allt raun-
vaxtarstigið í landinu, en yfirdráttur-
inn í Seðlabankanum hefúr aukist
um röskan miljarð. Vandamálið er
meira núna en það var í vor eftir að
þeir gripu til þeirra aðgcrða sem þeir
töldu að ætti að leysa málin. Þetta er
enn einn dómur reynslunnar yfir
þeirri hægri stefnu sem Sjálfstæðis-
fiokkurinn fylgdi er hann var siðast í
ríkistjóm og Alþýðuflokkurinn
skrifaði siðan upp á í vor. Deilan var
ekki um vandamál, deilan var um
lækningaraðferðir. Þeirra aðferð hef-
ur einungis gert sjúklinginn enn
veikari, segir Olafúr Ragnar.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-
ist ekki í Friðrik Sophusson, fjár-
málaráðherra, varðandi þetta mál.
-sþ
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. ágúst 1991