Þjóðviljinn - 31.08.1991, Síða 5
_________ FRÉTTIK.____________
Kjósendur eiga rétt á þjóðar-
atkvæðagreiðslu um EES
Stofnfundur samtakanna Samstöðu var haldinn á Hótel Borg í
fyrrakvöld. Tilgangur samtakanna er að vinna gegn aðild Is7
iands að Evrópsku efnahagssvæði og Evrópubandalaginu. í
því skyni beita samtökin sér m.a. fyrir því að kjósendur fái að
segja álit sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu áður en ríkisstjórn og Alþingi
taka afstöðu til aðildar að EES eða EB.
Formaður Samstöðu var kjör-
inn, Kristín Einarsdóttir, þingkona
Kvennalistans, og segir hún að
samökin muni leggja kapp á að
upplýsa þjóðina sem best um áhrif
aðildar íslands í þau bandalög sem
um ræðir. - Við teljum að ef við
gerðumst aðilar að slíkum banda-
lögum yrði um að ræða glötun á
stjómaifarslegu og efnahagslegu
sjálfstæði Islands. Við viljum því
reyna að spoma gegn því að er-
lendir aðilar nái tangarhaldi á is-
lensku landi og auðlindum lands
og sjávar, sagði Kristín.
Hins vegar segir Kristín að
samtökin muni stuðla að víðtækri
friverslun milli landa og góðum
samskiptum íslendinga við Evr-
ópubandalagið og sem flestar þjóð-
ir og heimshluta. Um leið viljum
við tryggja að íslendingar verði hér
eftir sem hingað til óháðir við-
skiptabandalögum og að þjóðin
haldi óskertu ftillveldi.
Kristín sagði að starfsemin
væri strax farin af stað og_ fyrstu
íundir samtakanna yrðu á ísafirði
nk. sunnudag og Patreksfirði á
mánudagskvöldið. - Það kemur sí-
fellt betur í ljós að fólk veit næsta
lítið hvað er þama á ferðinni. Rík-
isstjómin hefur lítið gert í því að
upplýsa almenning um hvað er að
ræða og ætlum við því að gera
okkar til að fólk verði upplýstara,
sagði Kristín.
Kristín sagði að undirskrifta-
listar, þar sem krafist væri þjóðar-
atkvæðagreiðslu um aðild Islands
að EES, hefðu eitthvað verið í
gangi í sumar.
- Þessir listar hafa aðallega
verið í gangi úti á landsbyggðinni
og hafa undirskriftir í sumum
hreppum verið yfir 90%. Nú er
ætlunin að gera gangskör að því að
safna undirskriftum á höfuðborgar-
svæðinu og erum við að vinna að
þeim málum nú, sagði Kristín.
Á stofnfundinum á fimmtudag-
inn var kosin fimmtán manna
stjóm sem strax að loknum fundi
skipti með sér verkum. Eins og áð-
ur er sagt var Kristín kjörin for-
maður, en auk hennar var Jóhannes
R. Snorrason kjörinn varaformað-
ur, Helgi S. Guðmundsson gjald-
keri og Auður Sveinsdóttir ritari.
-sþ
Iðnrekendur spá
óbreyttri
landsframleiðslu
Niðurstaðan í endurskoð-
aðri þjóðhagsspá Félags
íslenskra iðnrekenda er
að landsframleiðslan verður að
öllum líkindum nær óbreytt á
milli áranna 1991 og 1992. Ef
það gengur eftir er það mat iðn-
rekenda að Iandsframleiðslan
1992 verði 3% minni en hún var
í góðærinu árið 1987.
Þetta er nokkuð önnur niður-
staða en kom fram í spá þeirra frá
því í maí í vor en þá töldu iðnrek-
endur að landsframleiðslan gæti
vaxið um allt að 3,5% á milli ára.
Það sem breyst hefur í forsendun-
um er fyrst og fremst sú minnkun
sem fyrirsjáanleg er í fiskafla
landsmanna á því fiskveiðiári sem
hefst á morgun, sunnudag.,
í endurskoðaðri spá FÍI er gert
ráð fyrir að þjóðarútgjöld vaxi um
2 -2,5% á milli áranna 1990 og
1991, pg um 1,5% milli 1991 og
1992. Á sama tíma eru horfur á að
landsffamleiðslan vaxi mun hægar.
Á þessu ári er talið að landsfram-
leiðslan vaxi aðeins um 0,5% ffá
fyrra ári, en ekkert á næsta ári.
Þetta misvægi í þróun þjóðarút-
gjalda og landsframleiðslu felur í
sér að halli á viðskiptum við út-
lönd fari vaxandi. Þannig gæti
hallinn orðið 12 miljarðar, eða
3,5% af landsframleiðslu í ár og 20
miljarðar, eða 5,5% á því næsta.
Þá er það mat iðnrekenda að
verðbólgan í ár verði 7% og 6,5%
á næsta ári á mælikvarða ffam-
færsluvísitölu. Þessu til grundvall-
ar er að gengi krónunnar verði
áffam stöðugt, samið verði um
hóflegar kauphækkanir í haust og
dregið verði úr þensluáhrifum rík-
issjóðs. Hann verður þó rekinn
með halla í ár og næsta ár.
Iðnrekendur spá því að iðnað-
arffamleiðslan muni vaxa um 1,5-
2% i ár miðað við fyrra ár og að-
eins um 1,0-1,5% á því næsta.
Þessir hressu krakkar búa uppi ( Breiðhoiti. Þau heita Sigfús Steingrímsson, Heiðar Sigtryggsson, Kari
Kristjánsson og Harpa Ólafsdóttir. Krökkunum datt í hug að halda tombólu til að styrkja krabbameinssjúk
börn. Með þessum hætti tókst þeim að safna 2.600 krónum sem þau hafa komið til réttra aðila. Mynd:
Kristinn.
Hagnaður hefur aukist Stórleikur í boltanum á simnudag
Bókfærður hagnaður af
reglulegri starfsemi fyrir-
tækja, sem hlutfall af tekj-
um, hefur aukist um 4% frá ár-
inu 1989, eða úr 1,2% í 5,2% ár-
ið 1990. Þannig hefur afkoman
batnað í öllum atvinnugreinum
nema í byggingariðnaði, innláns-
stofnun og tryggingafélögum.
Þetta eru helstu niðurstöður
Þjóðhagsstofnunar sem fengnar
eru úr ársreikningum 794 íyrir-
tækja úr flestum atvinnugreinum
fyrir árið 1990. Hinn bókfærði
hagnaður er fýrir greiðslu tekju- og
eignaskatta og jafnframt er ekki
tekið tillit til óreglulegra tekna og
gjalda. Eiginfjárhlutfall fyrirtækj-
anna var 19% í árslok 1989 en hef-
ur hækkað í 22% í árslok í fyrra.
Án banka- og tryggingastarfsemi
var eiginfjárhlutfallið hinsvegar
36% við síðustu áramót borið sam-
an við 33% í árslok 1989.
Þegar afkoma siðasta árs er
skoðuð, telur Þjóðhagsstofnun að
hafa verði í huga að bókfærður
vaxtakostnaður fyrirtækja á því ári
verður afar lágur þrátt fyrir hækk-
un raunvaxta af innlendum lánum
milli áranna. Þannig lækka vextir
og verðbreytingarfærsla, sem hlut-
fall af tekjum úr 4% árið 1989 í
0,2% í fyrra og fyrir því eru tví-
þættar ástæður. Annars vegar að
almennar verðbreytingar eru lægri
í fyrra, þannig að verðleiðrétting
vegna birgða, sem þama em færð
til gjalda, er lægri. Hins vegar hef-
ur verðlag innan síðasta árs hækk-
að meira en gengisbreytingar að
viðbættri erlendri verðbólgu. Jafn-
framt em reglur skattalaga, sem
mörg fyrirtæki gera upp eftir, mið-
aðar við verðbreytingar milli ára
sem er mun hærri en verðbreyting
innan ársins.
Þanni að eftir endurmat á vöxt-
um og verðbreytingarfærslu jókst
hreiiui hagnaður fyrirtækjanna af
reglulegri starfsemi, sem hlutfall af
tekjum úr 2% árið 1989 í 3,5% í
fyrra. -grh
Amorgun, sunnudag, mæt-
ast tvö efstu lið 1. deiidar
íslandsmótsins í knatt-
spyrnu, Fram og Víkingur, á
Laugardalsvellinum og hefst við-
ureign þeirra klukkan 16.
Knattspyrnuáhugamenn hafa
beðið lengi eftir þessum leik því
hann gæti orðið hreinn úrslitaleik-
ur í deildinni. Lykti leiknum með
sigri Fram er liðið svo gott sem bú-
ið að tryggja sér Islandsmeistaratit-
ilinn annað árið í röð því þá þarf
það ekki nema eitt stig úr síðustu
tveimur umferðunum. Ef Víkingar
fara hinsvegar með sigur af hólmi,
tróna þeir á toppi deildarinnar, með
33 stig eins og Fram, en með betri
markatölu.
Meðal gárunganna er aftur á
móti talað um að þessi leikur sé á
milli A og B liðs Fram, því eins og
kunnugt er þá leika með Víkingum
margir fyrrum leikmenn Fram.
Þeirra þekktastur er án efa marka-
hæsti leikmaður deildarinnar, Guð-
mundur Steinsson, sem hefur skor-
að 12 mörk.
-grh
MYNDVERKASYNING
FÉLAGSMANNA V.R.
í LISTASAFNIALÞÝÐU, GRENSÁSVEGI 16A, 3 1. ÁGÚST TIL 15. SEPTEMBER 1991
I tiiefni 100 ára afmælis Verzlunarmannafélags Reykjavíkur sýna 30 félagar V.R.
verk sín, en þeir vinna allir ab myndlist i tómstundum sínum.
Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 14-22 og um helgar kl. 10-22
ALLIR VELKOMNIR - ÓKEYPIS AÐGANGUR
18 9 1-19 9 1
Veizlunarmamiafélag Reykjavikui
Síöa 5
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. ágúst 1991