Þjóðviljinn - 06.09.1991, Blaðsíða 3
Ósk sýnir
í Galleríi
Sævars
í dag opnar Ósk Vil-
hjálmsdóttir myndlistarsýn-
ingu í Galleríi Sævars Karls
við Bankastræti 9.
Ósk hefur áður haldið
sýningar á verkum sínum
bæði hér heima og í Berlín í
Þýskalandi þar sem hún
stundaði nám við Hoch-
schule der Kuenste.
Sýningin í bogasalnum
fyrir ofan verslun Sævars
Karls er opin á verslunar-
tíma frá kl. 9 árdegis til 18
síðdegis virka daga, en frá
kl. 10 til, 16 á laugardögum.
Sýning Óskar stendur til 4.
október.
Lítil flugvél með sex manns
innanborðs rakst á kengúru i þann
mund sem vélin kom inn til
lendingar í astralska bænum
Bourke sem er 600 km. norður af
Sydney. Þetta gerðist á sunnu-
dagskvöld, flugmaðurinn sá keng-
úruna og reyndi að lyfta sér yfir
hana en annað lendingarhjólið lenti
á dýrinu. Flugmaðurinn flaug þá
einn hring og lenti vélinni en þar
sem hann keyrði eftir flugbrautinn
gaf lendingarbúnaðurinn sig.
Enginn meiddist nema kengúran.
Lögreglan í Tokorosawa i
Japan hefur handtekið fjóra
unglingspilta og ákært þá fyrir að
hafa barið hinn 51 árs gamla
Seiichi Hoshino til bana en hann
hafði hrópað að þeim í biðröð fyrir
leigubíla. Hoshino sem beið eftir
leigubíl með konu sinni hrópaði á
hina hávaðasömu unglinga og bað
þá að halda sig í röðinni. Þeir
réðust þá á hann og lést Hoshino
síðar á sjúkrahúsi með brotna
höfuðkúpu.
-gpm/reuter
Tökum öll þátt í sjálfsagðri umhverfisvernd.
Hirðum um umhverfið - hendum ekki verðmætum!
Frá og með 1. september
byrjar Endurvinnslan að taka
á móti áfengisglerjum.
Skilagjald veröur 6 kr. á flösku.
AFENGISGLERIN
í ENDURVJMUSLU
J
ÆVINTÝEIN BÍÐA ÞÍN
m
D | KAUPMANNA
I HÖFN
Hafðu samband við þína ferðaskrifstofu, umboðsmenn
eða söluskrifstofur okkar og í síma 91-690300
(svarað alla 7 daga vikunnar).
FLUGLEIDIR
Allt verð miðað við gengi 28.8.91 og er án flugvallarskatts og forfallagjalds.
NÝTT HELGARBLAÐ
3 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1991