Þjóðviljinn - 06.09.1991, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 06.09.1991, Blaðsíða 13
r é t t i r Þingflokkur Alþýðuflokksins þingaði um Jjárlögin eina ferðina enn í gœr. Þar samþykktu menn skólagjöld i nýjum búningi, sumir þó með fyrirvara. Hér sjást Valgerður Gunnarsdóttir og Össur Skarphéðinsson að hvísla einhverju i eyrað á Jóhönnu Sigurðardóttur. Mynd: Jim Smart. Kratar kyngja skólagjöldunum Samkomulag náðist í gær milli stjórnarflokkanna um fjárlagafrumvarpið, m.a. skólagjöld sem mikil andstaða hafði verið við innan þingflokks Alþýðuflokksins. Stjórnarliðarnir tala um að þak verði sett á þau gjöld sem framhaldsskólarnir og Háskóli ls- lands innheimta nú. Þak framhaldsskólanna verður átta þúsund krónurog þak Hl verður 17 þúsund krónur, sagði Ólafur G. Einars- son menntamálaráðherra við Þjóðviljann í gær. Kapp- hlaup vib dauðann Það eru 60 manns á biðlista hjartaskurðdeildar Landspítal- ans. Af þeim eru 17 sem þurfa bráðaaðgerð og 37 aðilar sem þurfa að komast að sem fyrst. Þessi biðlisti er alvarlegt mál, því komið hefur fyrir að fólk hefur látist meðan það beið aðgerðar. Þessar upplýsingar komu fram á blaðamannafundi er landlæknir boðaði til í gær um biðlista á deildaskiptum sjúkrahúsum og þau vandræði sem sjúklingar verða fyrir vegna þeirra. Ólafur Ólafsson landlæknir segir að auka þurfi fjárlög til heilbrigðismála um allt að 10% eða um 4 miljarða til að útrýma biðlistunum. Ýmsar ástæður voru nefndar fyrir biðlistum sjúkrahúsanna. Helstu ástæðurnar eru að sögn sérfræðinga, yfirlækna og hjúkr- unarforstjóra sjúkrahúsanna, skortur á fjármagni. 1 því sam- bandi beinast augu manna að lé- legum launakjörum sérmenntaðra hjúkrunarfræðinga. Á fundinum upplýstist að laun hjúkrunarfræð- inga eru mun hærri í nágranna- löndum okkar, jafnframt því að vinnuálagið er til muna minna. Reynt hefur verið að ráða erlent fólk til starfa, en vegna launanna staldrar það stutt við. Einnig hafa knappar Qárveitingar til spítal- anna orðið til þess að loka þarf deildum sem aftur verður til þess að biðlistar lengjast sem því nemur. Landlæknir segir að til að leysa biðlistavandamálið endan- lega þyrfti að auka framlag til heilbrigðismála um allt að 10%. Á síðustu fjárlögum var veitt 40 miljörðum til heilbrigðismála, svo að 10% aukning til heilbrigð- ismála mundi þýða 4 miljarða út- gjaldaaukningu ríkissjóðs til þessa málaflokks. Aðspurður um hvort niður- skurður innan heilbrigðisráðu- neytisins ylli ekki enn meiri vanda innan sjúkrahúsanna, sagði landlæknir að ábendingar frá embættinu og yfirmönnum sjúkrahúsa hefðu sjálfsagt komið í veg fyrir enn meiri niðurskurð. - Ef rétt er haldið á málunum og hagrætt á ýmsum sviðum þarf ekki mikið fjármagn til að leysa bráðasta vandann. En til að leysa þennan vanda fullkomlega þurfa að koma til miklar breytingar á allri stefnumörkun hjá heilbrigð- iskerfinu, sagði Ólafur. -sþ Össur Skarphéðinsson, þing- flokksformaður Alþýðuflokksins, Rannveig Guðmundsdóttir og Sig- bjöm Gunnarsson hafa sett fyrir- vara við skólagjöldin. Fari svo að þau komi inn á fjárlög í formi sér- tekna ríkisins munu þau þrjú ekki greiða þeim lið íjárlagafrumvarp- sins atkvæði sitt. Ólafur G., Davíð Oddsson forsætisráðherra og Frið- rik Sophusson fjármálaráðherra sögðu allir í gær við Þjóðviljann að ekki væri búið að taka þá ákvörðun að skólagjöldin kæmu ekki inn í ljárlagafrumvarpið sem sértekjur. Össur er enn mjög mótfallinn skólagjöldum og boðar lagafrum- varp sem bannar skólagjöld eða viðlíka innheimtu. Jóhanna Sigurðardóttir, vara- formaður Alþýðuflokksins, sagði í gær að hún styddi fjárlagafrum- varpið án fyrirvara um til dæmis skólagjöld. Hún telur sig hafa fengið vilyrði fyrir því að um ein- hveija tekjujöfnun verði að ræða á móti aukinni gjaldtöku ríkisins. Hún nefndi hækkun skattleysis- marka og húsaleigubætur og taldi hún að svigrúm væri til þessa inn- an núverandi fjárlagaramma. Ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins minntu hinsvegar á að ríkisstjómin ætlaði ekki að auka skattheimtuna meira en nú er sem hlutfall af þjóðar- framleiðslu til dæmis. Þar að auki styttist sá tími sem hægt er aað nýta til að vinna að fjárlagagerð- inni því þing kemur saman 1. októ- ber og fjárlögin eru alltaf fyrsta mál þingsins. Davíð sagði þó i gær að nægur tími væri til að kanna þær leiðir sem félagsmálaráðherra hefði rætt um. Fram kom að þau mál eru enn órædd. Þökin á skólagjöldunum þýða, miðað við að 16 þúsund nemar séu í framhaldsskólunum, að skóla- gjöld nema 128 miljónum króna og í Háskólanum er talan í kringum 100 miljónir, séu heimildir full- nýttar. Þá eru eftir nokkrir aðrir skólar þannig að um er að ræða þak við 250 miljónir. Ólafur G. sagði að 128 miljónimar væru ná- kvæmlega sama tala og innheimt væri nú. En hann sagði líka að inni i þessari tölu, sem verið væri að ræða núna, væru ekki gjöld til nemendafélaga skólanna. Þannig að skóli sem áður innheimti 6.000 krónur, einsog til dæmis MS, gæti nú innheimt 12.500 krónur af hverjum nemanda vegna þess að 4.500 krónur renna til nemendafé- lagsins en aðeins 1.500 til skólans af þessum 6.000 sem nú era inn- heimtar. Sama á við um flesta aðra skóla því að hlutur nemendafélaga í innritunargjaldinu er á bilinu 60 til 90 prósent. Háskólinn innheimt- ir nú 7.700 krónur í innritunargjöld og þar af renna 5.700 til nemenda beint og 2.000 krónur fara til út- gáfu kennsluskrár og annars slíks. Þannig getur Háskólinn aukið inn- heimtu sína af nemendum úr 2.000 krónum í 17.000 krónur eða um 15.000 krónur. Á fjárlögum fyrir næsta ár fá skólamir sömu upphæð til rekst- ursins og árið áður en skólanefndir hvers skóla verða látnar taka ákvörðun um hvort eða hve mikið verður innheimt af þessum átta þúsundum sem þakið leyfir. Þeim verður uppálagt að gera þetta innan ramma laganna sem nú gilda en samkvæmt þeim á ríkið að borga allan reksturskostnað. Ekki hefur verið útfært hvemig þetta yrði bók- fært í ríkisbókhaldinu en ekki er loku fyrir það skotið að þetta teljist sem sértekjur. Niðurstaðan er sú að skólanefndirnar verða að axla ábyrgðina, ekki ríkisstjómin. Gunnar Rafn Sigurbjömsson, formaður skólanefndar Flensborg- arskóla, á einnig sæti í skólanefhd Iðnskólans í Hafnarfirði. Hann sagði að það síðasta sem skóla- nefndirnar færa útí væri að auka álögur á nemendurna, sem hann benti á að væra nægar fyrir þar sem nemendur þyrftu til dæmis að greiða þúsundir króna við kaup á skólabókum. En hann taldi að ekki væri svigrúm fyrir skólana að hag- ræða meira en gert er, því í fyrsta lagi væri vel með öllum málum fylgst og því væri hagræðingin eins mikil og hægt væri. I öðru lagi væri launakostnaðurinn langstærsti liður rekstrarkostnaðar skólanna og þannig væri svigrúmið til hagræð- ingar takmarkað. Og að varla færu framhaldsskólakennarar að gefa eftir þau laun sem ekki væra of mikil. Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, hélt því enn fram í gær að innheimtar væra 350 miljónir í innritunargjöld og annað. En öðrum reiknimeisturum, þar á meðal menntamálaráðherra, er ómögulegt að koma þessari tölu mikið yfir 200 miljónir, í mesta lagi uppí 250 miljónir króna. Þak við 250 miljónir króna er þvi ekki lækkun, einsog Jón Baldvin hefur haldið fram, og þar sem nemenda- félagsgjöldum hefúr verið hent út úr dæminu er um hækkun á þessari innheimtu að ræða - en það fer þó eflir ákvörðunum skólanefndanna í hverjum skóla. Ekki verður_ þó sett þak á Verslunarskóla íslands, sem nú innheimtir 34 þúsund krónur á ári í skólagjöld, en ríkið greiðir jafn- mikið á hvem nemandaVerslunar- skólans og rekstrarkostnaður MS og MR segir til um. -gpm Skorað á ráðherra áb heimila loánuveiáar Hagsmunaaðilar hafa skorað á Þorstein Pálsson sjávarútvegsráð- herra að leyfa hið fyrsta veiðar á allt að 400 þúsund tonnum af loðnu. Þeir fullyrða að geysilegt magn af loðnu sé í sjónum og þvi sé þjóðhagslega hagkvæmt að hefja veiðar hið fyrsta. Hjálmar Vil- hjálmsson fiskifræðingur segir hinsvegar að samkvæmt upplýsing- um Hafrannsóknastofnunar standi loðnustofninn ekkert alltof vel og jafnvel illa. Aftur á móti sé ekki hægt að útiloka að annað komi í Ijós þegar rannsóknir á stofninum hefjast I lok þessa mánaðar. I vikubyrjun komu saman til fúndar á Akureyri fúlltrúar heima- manna, Bolungarvíkur, Siglufjarð- ar, Ólafsíjarðar, Húsavíkur, Rauf- arhafnar og Þórshafnar til að ræða ástand og horfúr í loðnuveiðum. Á fúndinum vora einnig fúlltrúar frá verksmiðjum viðkomandi staða og útgerðarmenn. Til að fýlgja málinu eftir við ráðherra voru kjömir þrír menn, þeir Jónatan Einarsson frá Bolungarvík fyrir verksmiðjueig- endur, Kristján Möller, bæjarfull- trúi á Siglufirði, og Sverrir Leós- son, útgerðarmaður Súlunnar EA 400 frá Akureyri. Þeir munu þó ekki hitta sjávarútvegsráðherra að máli fyrr en í fyrsta lagi fóstudag- inn 13. september nk. þegar hann mætir aftur til vinnu eftir fri. I dag munu hagsmunaaðilar hinsvegar funda um loðnuna með fiskifræð- ingum. Kristján Mölier, bæjarfúlltrúi á Siglufirði, segir að samkvæmt þeirra upplýsingum sé geysilegt magn af loðnu í sjónum og þeir séu afar óánægðir með að loðnuveiðar skuli vera bannaðar. Að þeirra mati á ráðuneytið að gefa út loðnu- kvóta eins og gert er vegna annarra fisktegunda. Sé veiðanlega loðnu að finna á miðunum eigi að gefa skipunum leyfi til að veiða vegna þjóðhagslegrar hagkvæmni þeirra fyrir alla aðila. Þar fyrir utan sé loðnan á haustin mun verðmætari og afurðameiri en þegar hún er veidd á göngu sinni austur fyrir og suður með landinu. Þar getur mun- að allt að 6-7% í nýtingu. Kristján segir að röksemdir þeirra fyrir loðnuveiðunum séu af þrennum toga: I fyrsta Iagi séu skilyrðin í sjónum mun betri en oft áður, fregnir hafi borist af loðnu í afla togara fyrir Norðurlandi og í þriðja lagi hafi norsk rannsóknar- skip orðið vör við veiðanlega loðnu á miðunum. Þessu til viðbót- ar hafi skipstjóri með 20 ára reynslu orðið var við mikið mágn að loðnu út af Vestfjörðum í vor sem ekki hafi verið mæld af fiski- fræðingum. Enn fremur hafi rækju- sjómenn nyrðra orðið varir við mikla loðnugengd á Strandagrunni í júlí og ágúst. I fimm tonna afla eins bátsins var aðeins eitt tonn af rækju en fjögur tonn af loðnu. Jón Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra fiskimjöls- framleiðenda, segir að þar á bæ þori enginn að semja um fyrirfram- sölur, hvorki á loðnumjöli né lýsi, meðan slík óvissa ríkti um loðnu- veiðamar. Þar fyrir utan sé verðlag á þessum afurðum ekki burðugt eins og er. Það getur hinsvegar breyst ef E1 Nino bregður á leik og raskar hitastigi sjávar úti fyrir strönd Chile og Perú. Þá sé soja- mjölið sem fyrr gildur keppinautur á markaðnum. Eins og flestum á að vera enn í fersku minni brást síðasta loðnu- vertíð nær alveg og var heildarafl- inn aðeins rúm 286 þúsund tonn. Þar af veiddust tæp 84 þúsund tonn á haustvertíðinni áður en þáverandi sjávarútvegsráðherra fór þess á leit við veiðiskipin í byijun desember að þau hættu veiðum, tímabundið. í lok mánaðarins afturkallaði sjáv- arútvegsráðuneytið svo öll leyfi til loðnuveiða um óákveðinn tíma. Veiðar hófust ekki aftur fyrr en um miðjan febrúar og var mokveiði næstum til loka vertíðar þann 22. mars. Framleiðsluverðmæti vertíð- arinnar í mjöli og lýsi var eitthvað um 2 miljarðar króna en með fryst- ingu og hrognatöku eitthvað á þriðja miljarð króna. -grh Héra&s- skólanum í Reykjanesi lokaó Menntamálaráðherra hefur endanlega ákveðið að Héraðskólinn í Reykjanesi verði ekki starfræktur í vet- ur. Ólafur G. Einarsson sagði í gær að þrátt fyrir að eitthvað fleiri hefðu sótt um skólavist en fyrst var talið hefðu forsendur mennta- málaráðuneytisins ekki breyst og því yrði ekki um neitt skólahald að ræða í vet- ur. Ólafúr sagði að á milli 20 og 30 nemendur hefðu sótt um, sem væru lítillega fleiri nemendur en ráðuneytið hafði upplýsingar um í sum- ar. Hann vi'j .li ekki gefa upp nákvæma tölu nemenda. -gpm NÝTT HELGARBLAÐ t 3 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.