Þjóðviljinn - 06.09.1991, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 06.09.1991, Qupperneq 7
Vinur minn Klinger Eg tók fríið snemma þetta ár. Veturinn hafði verið langur og kaldur, með snjó- mokstri og lífshættulegum akstri á hálum brautum. Er fyrstu frjóhnapparnir birtust á grisjulegum trjágreinunum og moldin hristi af sér hrímið í fyrstu geislum vorsólarinnar, ókum við hjónakornin í áttina að öldum úthafsins við sand- stendurnar í Ocean City. Við ókum sem leið liggur í gegnum löng neðansjávargöngin (tunnel) sem stytta ferðafólki leið- ina í gegnum Baltimore. Umferð var í léttara lagi, enda höfðum við tekið daginn snemma, eins og við vorum vön, er engum skyldum var að sinna. Miklir grænir grasbalar kljúfa þjóðveg númer 50 í tvær ak- reinar til austurs og vesturs. Við brunuðum í austurátt að Flóa- brúnni (Baybridge) sem tengir austur- og vestur-strönd Chesape- ake flóa rétt suðaustan við Balti- more. Menn í rauðum vestum voru dreifðir um grasbalana, eins og fé í Qallshlíð. Er betur var að gáð sást, að menn þessir voru vopnaðir sting í annarri hendinni og plastpoka í hinni. Tíndu þeir í óðaönn allskon- ar rusl úr grasinu og stungu í plast- pokann. Tveir bílar fylgdu í humátt á eftir mönnunum, annar gulur bæjarvinnubíll og hinn tólf manna farartæki með merki ríkisfangelsis- ins á hliðinni. Ég hægði á ferðinni, því að maður sér ekki fanga á veg- um úti á hveijum degi. Ég kannað- ist strax við þung augnlokin og sorgarsvipinn á einum mannanna. Hárið var sítt á herðar niður og brúnt skegg huldi næstum allt and- litið nema brún augun, en ég þekkti strax vin minn Klinger. Fangelsisbíllinn flautaði á okkur, er ég hægði á mér á kantinum. Ég hundsaði flautið í bílnum fyrir aft- an mig og öskraði af öllum sálar- kröftum KLINGER. Maðurinn raunamæddi leit upp frá ruslatínsl- unni, vandræðasvipur eins og hann ætlaði að fara að afsaka eitthvað birtist augnablik í andlitinu á hon- um. Hann rétti út höndina í áttina að okkur. Allt í einu var eins og ský drægi frá sólu, breitt bros færðist yfir sterklegt, sólbrúnt and- litið og hann öskraði OLI. Maður í einkennisbúningi með stærðar haglabyssu í fanginu, sem hvíldi á öðrum handlegg hans eins og lítið bam, stóð allt í einu við bílglugg- ann mín megin og tilkynnti okkur hæversklega að við yrðum að halda áfram. Fangamir mættu ekki hafa nein skipti við almenning á vegum úti. Ég veifaði til vinar míns Klingers og hélt af stað. Konan vildi auðvitað vita hver þessi Róbinson Knisó, eins og hún orðaði það, væri. Á meðan við rúll- uðum í angurværri vorgolunni yfir flóatenginn romsaði ég út úr mér eftirfarandi, og reyndi að yfirgnæfa sinfóníuna, sem hún var að hlusta á í útvarpinu: „Eins og þú manst,“... byijaði ég. Og meðan Fordinn þræddi mal- bikaðan þjóðveg fimmtíu um kom- akrana og kartöflu- og tóbaksekr- umar á sendnu flóalandi austur- strandar Marylands ríkis, um bæ- ina Cambridge, Salisbury og Berl- ín í áttina að hótelströndinni og sjávarloftinu i Ocean City hlustaði frúin með öðm eyranu á mig segja frá vini mínum Klinger, og með hinu á sinfóníumar í útvarpinu. „Fyrst eftir komu mína til Bandaríkjanna var ég eins og kálf- ur út úr fjósi á vorin. Ég hélt að ég gæti gert hvað sem væri, vafstrað í öllu. Eg sendi inn fjölda umsókna um ólíkustu störf, allt frá forstjór- um upp í háskólakennarastörf, and- stætt öllum þjóðfélagsvenjum. Mér fannst ég sem sé fær i allan sjó og betur menntaður en allir Banda- ríkjamenn. Smám saman datt ég á rétta hillu í mannfélagsstiganum. Vildi ég nú verða ríkur á auðveld- an hátt, án mikillar fyrirhaftiar. Lét ég tvær auglýsingar í víðlesið blað. í annarri kvaðst ég taka að mér út- vegun hverskonar hljómleika- manna og skemmtikrafta. í hinni auglýsti ég eftir músiköntum, körl- um og konum. Tók ég á leigu litla kompu í Austurstræti (Eastem Av- enue) með síma, skrifborði og pí- anói. Hefði ég aldrei trúað, fyrr en ég þreifaði á, hve mikið er af at- vinnulausum hljóðfæraleikurum. Brátt voru stærðar doðrantar á skrifborðinu hjá mér með nöfnum og símanúmerum. Ég treysti á óvit- laus eyru mín, er ég hlustaði á vind-, málm- og strengjahljóðfæri ásamt munnhörpum, píanóum og nikkum. Ég vissi ekki um öll þau afbrigði svokallaðra lyklaborða (keyboard). Brátt skýrðust línum- ar. Ég hefði aldrei trúað að svona mikið væri um allskonar partý um allar trissur, að ógleymdum öllum bömnum og búllunum, sem ósk- uðu eftir svokallaðri lifandi hljóm- list um lengri og skemmri tíma. Peningamir tóku að streyma inn. Til þess var leikurinn gerður. Eina, sem ég þurfti að gera, var að sann- færa viðskiptavinina um að varan væri góð. I flestum tilfellum gerði ég það með hreinni samvisku. I mínum eyrum vom þetta allt snill- ingar. Áreiðanlega tónlistamenn á heimsmælikvarða. Einkasam- kvæmin báðu helst um fiðlur og nikkur. Einstaka unglingasam- kvæmi vildi rokkara. Píanó og top fjörtíu, efstu lögin á vinsældaíist- anum, var efst á lista hjá börunum og búllunum. Einstaka bar bað um Country tónlist. Flestir tónlistar- mennimir komu vopnaðir einu hljóðfæri. Stöku sinnum lagði ég leið mína í bílskúr eða kjallara til að leggja blessun mína yfir ein- hveija hljómsveit. Ég neitaði að hlusta á söngvara. Lét hljómlista- mennina eina um það, ef beðið var um söngvara. Hún kom inn íyrst, ákaflega gerðarlegur kvenmaður. Kyn- bomba, eins og sumir mundu segja. Ég var óvanur kvennaheim- sóknum ffarn að þessu, og var að því kominn að tjá þessari föngu- legu konu, að ég réði ekki söngv- ara, er maðurinn birtist. Hann var einn afþessum hreinræktuðu amer- isku manntegundum. Slétt andlit, stuttklipptur, um sex fet og sam- svaraði sér vel, Robert Redford tegundin. Hann hélt á gítarkassa. Blessaður, sagði hann brosandi og benti á konuna. Konan min. Klinger heiti ég, hélt hann áfram. Ég er með hljóðfæri úti i bílnum, bætti hann við. Ert þú forstjórinn? spurði konan og rétti mér höndina. Maðurinn minn leikur á mörg hljóðfæri, gítar, píanó, saxofón. Hann getur leikið á næstum hvaða hljóðfæri sem er. Hálfgerður galdramaður, hló hún svo að skein í hvítar tennumar. Hún horfði spumaraugum á mig. Hún tyllti sér á skrifborðsröndina því að ég sat í eina stólnum á skrifstofunni. Hún var í ljósbláum gallabuxum og víðri bleikri skyrtu, berfætt í san- döium, allt sennilega eflir nýjustu tísku. Maður hennar í Klein galla- fotum burðaðist inn með fleiri hljóðfæri. Ég geri ráð fýrir, að þú viljir heyra hvort ég kann eitthvað með þetta skrapatól að fara. Já, það er víst venjan, sagði ég. Þeir myndu senda kerlingamar á þig ef þú sendir þeim skemmda vöm, kvað frúin við og horfði á mig brosandi. Já, flestir leika nokkur lög, og til þess að hafa allt á hreinu sýna þeir mér lagasafnið sitt og prófskírteini, ef þeir hafa það, sagði ég. Flestir hafa ein- hveija skólapappíra, bætti ég við. Klinger fór eldsnöggum fingmm yfir gripin á gítamum og framkall- aði spánskt andrúmsloft. Á meðan hann settist við píanóið og fyllti herbergið af dúndrandi Rachman- inoff og hreinum og tæmm Bach, svo að rykug skrifstofan fylltist tærum lækjamið og höfgri blóma- angan, beygði frúin sig að mér og trúði mér fýrir því, að maður henn- ar hefði útskrifast frá Peabody Ins- titute tónlistaskóla í Baltimore, og hefði stundað tónkennslu með meiru. Máli sínu til sönnunar dró hún skjal frá skólanum úr pússi sínu. Á meðan Klinger festi á sig saxófóninn og blés allskonar amer- isk þjóðlög og kúrekalög ásamt hugarflugi og fingraleik á skalan- um vildi ffúin vita hvers konar vinna væri i boði. Mikil eftirspum væri eflir fjölhæfum hljóðfæraleik- umm hjá litlum danshljómsveitum, en það var einkum þannig vinna, sem ég útvegaði. Hún kvaðst vilja forðast hljómsveitir. Oft slæmur félagsskapur og flakk. Maðurinn sinn væri áhrifagjam. Hún kvaðst helst kjósa þægilegan stað þar sem Klinger væri einn. Ég kvað það engan vanda. Fullt af allskonar stöðum sem þóttust spara með ein- um hljóðfæraleikara. Klinger stóð nú yfir okkur báðum brosandi og seiddi fram seiðandi tóna úr fiðl- unni. Konan dansaði yfir gólfið og hlammaði sér beint í fangið á mér, heit og brosandi. Sígauninn kom allt í einu upp í mér og þá svífst ég einskis, sagði hún og hló. Þú verð- ur að vara þig á henni þessari, var- aði Klinger mig við í gamansöm- um tón, er hann lét fiðluna í kass- ann., Ég samdi um tvöfold laun fýrir Klinger á einum af þessum svo- kölluðu effi stéttar píanóbörum með litlu dansgólfi rétt við BWI flugvöllinn. Klinger átti að vera mættur klukkan fjögur og leika með tveggja tima hléi til tvö eftir miðnætti. Frúin kom næsta dag, er hún hafði ekið Klinger í vinnuna, og bauðst til að þurrka af rykið og koma hlutunum í röð og reglu í þakklætisskyni fýrir velborgaða vinnuna, sem ég hafði útvegað manni hennar. Síðan ókum við saman út á flugvöll til að hlusta á Klinger. Sá ég ekki betur en hann gerði mikla lukku. Hvatti hann mig til að snúa konu sinni nokkra hringi á dansgólfinu. Við kvöddum Klinger um tíuleytið. Kvaðst frúin myndu sækja hann um tvö- leytið. Síðan ók hún mér heim.“ „Hvað svo?“ spurði frúin. „Af hverju er Krúsó í fangelsi?" Við sátum inn á Dunkin Donut, kaffistofa með allskonar kleinu- hringi. Við áttum um klukkustund- ar akstur effir í sæluna og sandinn i Ocean City. „Eins og þú vafalaust tókst eftir í frásögn minni, var eig- inkona Klingers mjög aðlaðandi og gimilegur kvenmaður." „Hvað, heldurðu að ég hafi tek- ið eftir lýsingu þinni á einhverjum kvenmanni? Þér finnst allt fallegt sem er í pilsi,“ hreytti frúin út úr sér. „Jæja, hvað um það,“ hélt ég áfram. „KJinger kom oft á stofuna til mín og þau bæði hjónin. Klinger leysti mig oft af eftir hádegi, er ég hafði öðrum erindum að sinna. Frúin ók mér um allt í bílnum þeirra. Brátt vorum við þrjú orðin hálf óaðskiljanleg. Klinger var mér til leiðbeiningar og stuðnings í vali og ráðningu hljóðfæraleikaranna, sem gat oft verið mjög vandasamt fyrir venjulegan leikmann. Hann hafði Iika allskonar sambönd, sem ég hafði ekki. Hann gat soðið sam- an heila hljómsveit á augabragði. Vissi hvar var hægt að fá allar nótnabækur á heildsöluverði og annað sem við kom þessum við- skiptum. Hann hvatti konu sína til þess að aka mér hvert sem þurfti. Þau voru bamlaus, og hún ekki i neinu öðm starfi en að sinna manni sínum og vemda hann frá víxl- spomm. Brátt kom að því að ég vildi breyta til. Var reyndar byijað- ur í matsölu. Klinger og kona hans vildu ólm kaupa fyrirtækið og var ég mjög rausnarlegur við þau, þvi að þau áttu það bæði sannarlega skilið. Ég varð aldrei var við að Klinger van- treysti konu sinni, þó að hann hefði getað haft æma ástæðu til þess. Hún var eins og áður er sagt mjög gimileg kona og með bein í nefinu. Það kom mér því algjörlega á óvart, ég var reyndar felmtri sleg- inn, er ég ffétti hjá kunningja okk- ar beggja og las nokkm siðar um í blöðum að Klinger hefði skotið konu sína til bana í afbrýðisemis- kasti. Tjáði þessi kunningi okkar mér, að kona KLingers hefði við- urkennt fýrir manni sínum, að hún hefði lengi verið ástkona kunningja þeirra beggja. Lofaði hún manni sínum bót og betmn, kvað allt búið milli sín og mannsins sem líka væri giftur. Klinger vildi vita nafn þessa kunningja þeirra, sem næst- um hafði stolið eiginkonu hans. Frúin kvað það engu máli skipta þar eð allt væri búið milli sín og mannsins. Klinger dró þá fram byssu, og áður en nokkur viðstadd- ur gat hindrað hann skaut hann konu sína til bana.“ „Þú hefur þó ekki verið að fifl- ast við stúlkuaumingjann?“ spurði frúin og horfði á mig útundan sér. „Þér hefði svosem verið trúandi til þess,“ bætti hún við, „dirty old man eins og þú ert.“ „Biddu fyrir þér. Ég hefði get- að verið pabbi hennar.“ Er við ókum í þögn í lognværu rökkrinu siðasta spölinn á þjóðveg fimmtíu að ólgandi bylgjum Atl- antshafsins, fór hrollur um mig, er ég hugsaði til þess, hvað gerst hefði, ef eiginkona Klingers vinar míns hefði ekki verið svona þögul. Sigurður Ingvi Ólafsson sendi Nýju Helgarblaði þessa frásögn sem hann segir vera að nokkru leyti sanna. Sigurður hefur verið búsettur í Bandaríkjunum um árabil og starfað sem kennari og skrifað greinar fyrir blöð og tímarit. NÝTT HELGARBLAÐ 7 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.