Þjóðviljinn - 06.09.1991, Page 12

Þjóðviljinn - 06.09.1991, Page 12
S k á k Aukakeppni þarf um Islandsmeistaratitilinn Skákþingi íslands, því sterkasta frá upphafi, lauk án niðurstöðu sl. mánudagskvöld. Fyrir síðustu umferð var höfundur þessara lína einn í efsta sæti, en þar sem skákinni við Sigurð Daða Sigfússon lauk með jafntefli og næstu menn, Margeir Pétursson og Karl Þor- steins unnu báðir, komust þeir upp við hlið mér. Það þarf því auka- keppni um Islandsmeistaratitilinn og er enn óráðið hvenær hún fer fram. Vonandi dregst það ekki mjög á langinn, en geta má þess að þegar Margeir og Jón L. urðu efstir á þinginu dróst það heilt ár að þe.rtefldu einvígi um titilinn. Lokaniðurstaðan varð þessi: 1.-3. Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson og Karl Þorsteins 8 v. 4. Jó- hann Hjartarson 7 1/2 v. 5. Jón L. Árnason 7 v. 6.-7. Róbert Harð- arson og Þröstur Þórhallsson 5 1/2 v. 8. Helgi Áss Grétarsson 5 v. 9. Héðinn Steingrímsson 10. Sigurður Daði Sigfússon 11. Halldór G. Einarsson 2 1/2 v. 12. Snorri Bergsson 2 v. Helgi Ólafsson skrifar Mörgum lék forvitni á að vita hvemig ungu meistararnir stæðu sig í baráttunni við stórmeistarana, en mótið virðist staðfesta að all- mikill sjtyrkleikamunur er enn fyrir hendi. íslandsmeistarinn frá því i fyrra Héðinn Steingrímsson átti aldrei möguleika á að verja titil sinn, en nú féllu andstæðingar hans ekki í þá gryfju að vanmeta hann. Héðinn virkaði þreyttur og getur mun betur. Einn baráttuglaðasti keppandinn var tyímælaust hinn kornungi Helgi Áss Grétarsson. Hann á margt ólært, en það er spá mín að hann eigi efiir að ná langt. Þröstur Þórhallsson náði áfanga að stórmeistaratitli nýlega, en að þessu sinni náði hann sér ekki á strik. Hinsvegar má Róbert Harð- arson vel við sinn hlut una, en hann var afar yfírvegaður og stað- fastur i þessu móti. Bolvíkingurinn Halldór G. Einarsson virtist missa móðinn og tapaði fjórum síðustu skákunum. Hann getur unnið nán- ast hvern sem er, lagði Jóhann Hjartarson að velli í mikilli bar- áttuskák. Neðsti maður Snorri Bergsson átti góða spretti og var oft uppátækjasamur við skákborðið þó ekki yrðu vinningamir margir. Garðbæingar héldu mótið með miklum ágætum í Garðaskóla. Áhorfendur vom fáir í fyrstu um- ferðunum, en aðsókn jókst eftir því sem leið á. Skákstjóri var Ólafur Ásgrímsson og fórst honum það vel úr hendi. Þegar á heildina er lit- ið var mótið skemmtilegt og mikil barátta einkenndi það. Stutt jafnt- efli sáust varla, enda var jafnteflis- prósentan afar lág. Efstu menn tefldu margar ágætar skákir, og sennilega er sigur undirritaðs yfír Þresti Þórhallssyni i íjórðu umferð með betri skákum mótsins. Helgi Ólafsson - Þröstur Þór- hallsson Drottningarbragð 1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 Rf6 4. cxd5 exd5 5. Bg5 c6 6. e3 Be7 7. Dc2 0-0 8. Bd3 Rbd7 9. RO He8 10. 0-0 Rf8 (Þröstur gerþekkir þetta af- brigði. Næsti leikur hvíts er mnn- inn undan rifjum Karpovs. Hvítur byggir upp stöðu sína í rólegheit- um, því bein atlaga að kóngsstöð- unni er dæmd til að mistakast.) 11. h3 g6 12. Bxf6 Bxf6 13. b4 Be7 (Oftast er leikið 13. .. Re6. Hér kemur sterklega til greina að leika 14. b5, en af einhverri ástæðu lét ég þann möguleika fram hjá mér fara.) 14. Habl a6 15. Hfdl Bd6 16. e4!? (Tvíeggjaður leikur. Hvítur opnar taflið á kostnað staks peðs á d4. Hinsvegar fá riddararnir all- mikið rými til athalha og ætti það að vega ókostina upp.) 16.. . dxe4 17. Rxe4 Bf5 18. Rc5 Bxd3 19. Dxd3 Dc7 (Sennilega er þetta ónákvæmur leikur.) 20. Re4 Be7 21. Re5 Rd7 22. Dg3! (Mikilvægt augnablik. Hvítur hótar nú 23. Rxgó og býður svarti uppá afskaplega óyndislega stöðu: 22. .. Rxe5 23. dxe5 Had8 24. Rd6 Bxd6 25. cxd6. Þó er hugsanlegt að svartur geti varið þessa stöðu, en Þröstur vill ekki treysta á það.) 22.. . Hac8 23. f4 Kg7 24. Db3 Hf8 25. Rc5! Rf6? Margeir Pétursson (Þresti sást yfir 27. leik hvíts, en staða hans er afar erfið hvemig sem hann bregst við. Tvöföld upp- skipti leiða til algerra yfirráða hvíts eftir f - og b - línunni.) ( sjá stöðumynd) 26. Rxf7! Bxc5 27. Rg5! Bxd4+ 28. Hxd4 Kh8 (Þröstur hittir á bestu vömina, en veik kóngsstaða gerir aðstöðu hans afar erfiða.) 29. Hbdl De7 30. Dc3! (Hvítur hótaði 31. Hel með a b c d e f g h liðsvinningi, en með næsta leik reynir svartur að ná mótspili.) 30... c5 31. Hd6 cxb4 32. De5! Dxe5 (Það er engan betri leik að finna t.d. 32. .. Hce8 33. Re6 Hf7 34. Hd7! o.s.frv eða 33. .. Hg8 34. g4! og vinnur.) 33. fxe5 Re8 34. Hd7 Hc7 35. Hxc7 Rxc7 36. Hd7 Rb5 37. Rxh7 Hf5 - og svartur gafst upp um leið. Hvítur getur leikið 38. Rf6 eða styrkt stöðu sína enn frekar með 38. g4 og síðan 39. Rf6. í báðum tilvikum er öll mótspyma svarts vonlaus. B r i d g e Bikarúrslit nálgast Einum leik er lokið í 8 sveita úrslitum i bikarkeppni Bridgesam- bandsins. Sveit Eiríks Hjaltasonar Kópavogi sigraði sveit Sigmundar Stefánssonar Reykjavík, nokkuð örugglcga. Aðrir leikir í 3. umferð eru: Ásgrímur Sigurbjörnsson Siglufirði mætir Roche Reykjavík, Svavar Bjömsson (Lúsifer) mætir Landsbréfum og Myndbandalagið mætir Tryggingamiðstöðinni. 444 Sumarbridge BSÍ lauk í gær- kvöldi (fimmtudág). Góð aðsókn hefur verið í sumar, sérstaklega á þriðjudögum og fimmtudögum. Er þetta er skrifað, er útlit fyrir að stigakóngur sumarsins vcrði Sig- urður B. Þorsteinsson. Gylfi Bald- ursson, félagi hans verði svo í 2. sæti. 444 Og félögin á Reykjavíkursvæð- inu hefja flest starfsemi sína í næstu viku. Bridgefélag Reykja- víkur raunar þjófstartaði, hóf spila- mennsku sl. miðvikudag. Næsta miðvikudag verður eins kvölds tví- menningskeppni hjá félaginu, en svo hefst 6 kvölda „baromon", þar- sem spilaður verður barometer, þannig að efstu pörin mætast hvert kvöld. Skagfirðingar hefja starfsemi á þriðjudaginn með eins kvölds tví- menningskeppni. Breiðfirðingar einnig, á fimmtudaginn. Hafnfirð- ingar einnig, á mánudaginn. Bridgefélag Kónavogs byrjar á fimmtudag, og ciðhyltingar á þriðjudaginn, með eins kvölds tví- menningskeppni. Byrjendur heíja starfsemi á þriðjudaginn, í Sigtúni, en þeir munu spila annan hvern þriðjudag, á móti Hjónaklúbbnum. Og Húnvetningar hefja starfsemi sína á miðvikudaginn. Bridgeskólinn í Reykjavík er þessa dagana að bjóða upp á ný námskeið, sem hefjast 16. og 17. september. Hvert námskeið stendur yfir í 11 kvöld, einu sinni í viku. Skólastjóri er Guðmundur Páll Arnarson, sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 27316, milli kl. 15 og 18. 444 Og nýtt bridgeblað er komið út, merkt 2/1991. Meðal efnis er grein um EM á írlandi, mótaskrá, grein um Þangbrand-Jón og fastir liðir. 4 4 4 BSÍ hefur dreift drögum að mótaskrá fyrir 1991-1992 í að- gengilegu formi. Eru keppnismenn hvattir til að verða sér úti um ein- tak. 444 Bridgeskóiinn í Reykjavík, í samvinnu við Bridgesambandið og Samvinnuferðir/Landsýn, stóð fyr- ir athyglisverðri nýjung i síðustu viku. Unglingum var boðið til brigdekennslu í húsakynnum BSÍ. Færri komust að en vildu, en 40 unglingar tóku þátt í námskeiðinu. Umsjón annaðist Guðmundur Páll Amarson, skólastjóri Bridgeskól- ans og liðsmaður í íslenska karla- landsliðinu, sem er á förum til Jap- ans til þátttöku í heimsmeistara- mótinu í sveitakeppni. Framtak sem þetta er virðingar- vert, en að kostnaðinum stóðu Samvinnuferðir. Væri ekki lag fyr- ir fleiri stórfyrirtæki hér á Iandi að styðja við bakið á félagsstarfmu í landinu á þennan máta? Eg er viss um að Friðrik Sóphusson er til við- ræðu um skattaafslátt í þessu sam- bandi. Eða er eitthvert vit í því að fyrirtæki geti nýtt sér tap gjald- þrota fyrirtækja, til þess eins að losna við að greiða lögbundin gjöld til ríkissjóðs? Upp á hvaða svindl er boðið í því sambandi? Hugleiðum málið. 444 Og eins og fram hefur komið, er íslenska karlalandsliðið á fömm til Japans. Mótið hefst í Iok sept- ember. 16 lið taka þátt í heims- meistaramótinu að þessu sinni og hafa aldrei fyrr verið eins mörg. Þátttökuliðum er skipt í 2 riðla og 8 lið í hvomm. Spiluð verður tvö- föld umferð, allir við alla, alls 14 leikir og 20 spil úr leik. Að lokinni þessari spilamennsku komast 4 efstu Iiðin úr hvomm riðli í 8 liða úrslit. Möguleikar okkar verða að teljast allgóðir, en helstu keppi- nautar okkar um 3.-4. sætið verða trúlega Argentínumenn og Ástralir. Lið USA og Bretlands verða að teljast sigurstranglegust í okkar riðli, þó raunar allt geti gerst í bridge, eins og dæmin sasnna. Lið okkar er skipað mjög reyndum spilumm, sem um árarað- ir hafa unnið flest þau mót sem í boði hafa verið hér á landi. Þeir eru: Örn Arnþórson (sem fékk bestan tíma í skokkinu á dögun- um), Guðlaugur R. Jóhannsson (fékk einnig ágætan tíma), Jón Baldursson (á svipuðu róli og Guð- laugur), Aðalsteinn Jörgensen (góður tími í hlaupinu), Þorlákur Jónsson (næstbestur í hlaupinu) og Guðmundur Páll Amarsön (hæfi- leikar Guðmundar eru greinilega ekki á hlaupasviðinu. Guðmundur og Stefán Jasonarson voru sam- ferða í mark.) Fyrirliðinn Bjöm Eysteinsson er greinilega í góðri æfingu. Ég hef trú á að fjöldjöflaopnan- ir paranna t landsliðinu muni skila mörgum stigum til íslands á HM í Japan. Lítum á dæmi frá bandaríska úrtökumótinu fyrir HM, þarsem 4 sveitir spiluðu um réttinn. Þessar sveitir vom sigurvegarar úr Spin- gold, Landsmótinu, Vanderbilt og Reisinger, helstu sveitakeppnis- mótum USA: Vestur: 4: KD104 ¥: K7653 ♦ : ÁK5 ♦: 5L: Austur: 4: Á86 ¥: DG942 ♦: D7 ♦:ÁK2 Spiluð voru sömu spil í leikj- unum. Á þremur borðum var opn- að í 2. hendi á Vesturspilin á 1 hjarta, Norður kom inn á 3 laufum NYTT HELGARBLAÐ 12 FÖSTUDAGUR 6.SEPTEMBER 1991 (eða 2 laufum, eftir smekk) og engin bönd héldu Austur, sem allir óðu í hjartaslemmuna. 1430 til A/V. Einhver saga við þetta? Nei. En á síðasta borðinu hélt Suður á þess- ari hendi og átti að hefja sagnir: Suður: 4: G9752 ▼: ÁIO ♦: G104 ♦: 987 Og Suður, í þesu tilviki Bemie Miller (félagi Alan Sontag) vakti á 2 tíglum (Multi-opnun, sem hefur fjölþætta merkingu). Vestur (Mart- el) dobblaði til úttektar, Norður (Sontag) stakk inn 3 laufum og Áustur (Stansby) dobblaði. Martel hefúr greinilega tekið dobblið sem refsingu, því hann passaði. 3 lauf fóm aðeins 2 niður, 300, sem var lítið upp í 1430 á hinu borðinu. Ótrúlegt, að pa. eins og Martel og Stansby, fyrrum heimsmeistarar í tvímenning og sveitakeppni, skuli lenda í öðm eins. Eins gott að þeir kynni sér fjöldjöfulinn frá íslandi (sem er ættaður úr Hafnarfirði) áð- ur en skrattkollurinn gerir það af sjálfsdáðum. Ólafur Lárusson skrifar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.