Þjóðviljinn - 06.09.1991, Qupperneq 17
Helgarrúnturinn Matseljan
Me&
kínverskum
augum
Lu Hong opnar mynd-
listarsýningu a Hótel Sel-
fossi í dag. Þetta er önnur
einkasýning landslagsmál-
arans Lu Hong á Islandi
og margir muna eflaust
eftir sýningu hennar í
Hlaðvarpinum í Reykjavík
fyrir tæpu ár. Var sú sýn-
ing fyrsta alvarlega tilraun
kínverks málara til að
túlka íslenska náttúru með
aðferðum hefðbundinnar
kinverskrar málaralistar.
I sumar hefur listamað-
urinn ferðast um á Suður-
landi og þykir Sunnlending-
um eflaust spennandi að
Lu Hong við eitt verka sinna, en landslagsmyndir hennar hanga
nú uppi á Hótel Selfossi.
kynnast því hvemig kín-
verskur listamaður túlkar
fegurð sveita þeirra.
Lu Hong er fædd, í Pek-
ing, en hún kynntist íslandi
gegnum íslenska námsmenn
1 Tókyó í Japan, jjar sem
hún lagði stund a japönsku.
Lu Hong fékk mikinn áhuga
á hinni fjarlægju eyju og
kom hingað í mars á síðasta
ári.
Síðan þá hefur hún reynt
að kynnast landinu og túlka
það sem fyrir augu ber með
aðferðum kínverskrar lands-
lagsmálunar.
Sýning Lu Hong á Sel-
fossi stendur til loka þessa
mánaðar.
í kvöld þegar líður að miðnætti ætlar Húsið opnar einni smndu fyrir miðnætti
risarokksveitin Júpiters að leika fyrir dansi á og eru aðdáendur Júpiters hvattir til að mæta
Borginni. Lofar sveitin dansfiflum eldfimu snemma því síðast þegar sveitin tróð upp
kvöldi og skíðlogandi brímanótt. komust færri að en vildu.
Blús-
menn
og rithöf-
undar
Vinir Dóra leika á
sunnudagskvöidið und-
ir lestri þekktra skálda
og rithöfunda á Púlsin-
um.
Þeir sem troða upp
og lesa úr verkum sínum
eru piltarnir Einar Már
Guðmundsson og nafni
hans Kárason, auk Guð-
mundar Andra Thorsson-
ar. Skáldin Hrafn Jökuls-
son, Kristján Þórður
Hrafnsson og Jón Stef-
ánsson flytja ljóð sín og
Hilmar Om Hilmarsson
flytur tónlistar- eða orða-
gjörning. Þannig að
ljóðalaus verður borgin
ekki um helgina þótt
Besti vinur ljóðsins hafi
kvatt með virktum fyrir
skömmu.
Leirlist í
Ásmundar-
sal
Margrét Jónsdóttir
opnar á morgun sýn-
ingu í Asmundarsal.
Þeir sem rölt hafa um
Hafnarstrætið á Akureyri
kannast eflaust við verk-
stæði og verslun Mar-
grétar. Hún hefúr starfað
þar frá því að hún kom
heim frá námi árið 1984,
en Margrét nam leirlist í
Kunsthandværkerskolen í
Kolding í Danmörku.
Þetta er önnur einka-
sýning Margrétar og
stendur hún til 15. sept-
ember. Gestum er boðið
að skoða leirmuni Iista-
mannsins alla daga kl. 14
til 18.
Margrét Jónsdóttir
leirlistakona.
Kristján Steingrimur við verk sitt Tóm (olia á ál) i Galler-
ii einn einn.
Tóm í Galleríi einn einn
Akureyringurinn
Kristján Steingrímur
opnar á morgun sýningu
í litla galleríinu við
Skólavörðustíg 4a.
í Gallerii einn einn
sýnir Kristján Steingrímur
nokkur málverk til 19.
september.
Listamaðurinn stund-
aði nám hér heima og við
Listaháskólann í Hamborg
í Norður-Þýskalandi. Þótt
hann sé fæddur í höfúð-
borg Norðurlands býr hann
og starfar í Reykjavík.
Sýningin er opin dag-
legakl. 14-18.
Ljúfir
tónar í
Dillonshúsi
Hafliði Jónsson píanó-
leikari heldur tónleika í Ár-
bæjarsafni, nánar tiltekið í
Dillonshúsi, á sunnudag á
milli kl. 15 og 16.30.
Hafliði mun skemmta
gestum með stríðsáratónlist,
en í safninu stendur enn yfir
sýning sem gerir mannlifi
stríðsáranna á íslandi skil.
Auk tónleikanna verða á
sunnudagseftinniðdaginn bak-
aðar lummur í gamla Árbæn-
um, gullborinn verður ræstur,
krambúðin opnuð og Karl
Jónatansson mun þenja nikk-
una.
Stiklað á stóru
Gönguferöir
Á sunnudaginn býður Útivist morgunhönum upp á
spennandi göngutúra að vanda. Átjándi áfangi Póst-
göngunnar verður genginn í fylgd með staðfróðum
Rangæingum. Farin verður þjóðleiðin frá Votleifsholts-
hverfi um Bjólu, Odda og að Móeiðarhvoli. Ferjað verð-
ur yfir Rangárnar á gömlum ferjustöðum með aðstoð
björgunarsveitarinnar Dagrenningar. Ferðin hefst kl.
10.30 eins og kræklingaferðin sem farin verður í Hval-
fjörðinn og geta göngugarparnir þannig sparað sér inn-
kaupin á helgarmatnum.
Tónleikar
Tríó Reykjavíkur hefur tónleikaröð sína á þessu
hausti í kvöld kl. 20 í Hafnarborg. Á efnisskránni verða
verk fyrir tvær fiðlur og píanó eftir Matinu, flautukvartett
í D- dúr eftir Mozart og píanókvintett í A-dúr eftir
Brahms. Gestir á tónleikunum verða Leon Spierer
konsertmeistari Fllharmóníusveitar Berllnar og Julius
Baker fiautuleikari, sem fyrir nokkrum árum lét af störf-
um sem 1. flautuleikari Fíiharmóníusveitar New York
borgar.
Myndlist
I gær var opnuð í FlM-salnum athyglisverð sýning á
verkum farfuglsins Maríu Jósefsdóttur (Myriam Bat-Yo-
sef) og á morgun verður opnuð ekki síðri sýning á
verkum hins ástsæla listamanns Muggs i Listasafni Is-
lands. I tilefni af þeirri opnun verða til sýnis og sölu 16
myndir eftir Mugg í Gallerí Borg. Þá má geta þess að i
sýningarsölum Norræna hússins stendur nú yfir Nor-
rænt grafíkþríár á verkum fimm norrænna listamanna
og gestalistamanns frá Bandaríkjunum.
Leiklist
I Súrmjólkurþorpi nefnist bamaleikrit sem Leikfélag
Kópavogs sýndi við góðan orstír á síðasta leikári. Á
sunnudag hefur LK sýningar á Súrmjólkurþorpinu að
nýju. Segir þar frá Finni og vinum hans, Kisu Öldudal
og hundinum Kola, sem lenda i ýmsum ævintýrum.
Verkið er fullt af dansi, söng og óvæntum uppákomum.
Meb kínversku ívafi
Að fara efdr uppskriftum
er dáh'tíð sérstök lisL Það er
gott ráð þegar maður prófar
nýja uppskrift að fara vel eft-
ir fyrirmælunum og sjá svo
til hvernig rétturinn verður
og breyta þá því sem betur
má fara næst þegar viðkom-
andi réttur er búinn til.
Mér finnst reyndar rétt að
taka öllum uppskriftum með
fyrirvara því „3 tómatar" geta
verið mjög mismunandi. 3 stór-
ir tómatar eru allt annað en 3
litlir og svo eru jú til mismun-
andi gerðir af tómötum. Þama
kemur innsæi og reynsla inn í,
ekki síður en frumlegheit og
skapandi hugsun.
Eitt gott ráð til að „fmna
upp“ nýja rétti er að herma eftir
einhveiju sem maður hefúr
fengið á veitingastað. Þá giskar
maður á hráefnið sem í réttinn
er sett og eldar heima hjá sér.
Utkoman er ofl bráðskemmti-
leg, þó bragðið sé ekki kannski
nákvæmlega það sama og af
matnum sem fyrir mann var
borinn á veitingastaðnum.
Hér kemur réttur með ,Jdn-
versku ivafi“, hann bragðast
líkt og eitthvað sem maður
gæti fengið á kinverskum stað
en er algjörlega búinn til eftir
minni eigin hugmynd. Þetta er
auðvelt og fljótlegt og mjög
ódýrt allsstaðar annarsstaðar en
á íslandi þar sem kjúklingar
eru allt of dýrir og auk þess
óþolandi að geta bara keypt þá
frosna en út í þá sálma hætti ég
mér ekki núna.
Efhi:
ca. 200 gr hrátt Igúklingalgöt i
rœmum.
1 laukur i sneiðum
1 grœn paprika í strimlum
3 gulrœtur i strimlum
1/4 haus snöggsoðið blómkál i
bitum (eða frosið forsoðið)
eða brokkoli
2-3 marin hvitlauksrif
1 msk. rifinn ferskur engifer
slatti af soyasósu
slatti afþurru sherry (eða kín-
versku hrisgrjónavíni)
nýmalaður pipar
ein tekskeið maizenamjöl
hrærð út i örlitlu vatni
olia til steikingar
Kjúklingurinn er snögg-
steiktur i góðri olíu, helst í
Wok potti, annars á góðri,
djúpri pönnu. Tekinn af og
settur til hliðar. Laukur, papr-
ika, gulrætur og marinn eða
saxaður hvítlaukur látið
krauma í smáolíu þar til það er
glært. Ferskum engifer bætt í
og blómkál eða brokkoli sett út
í. Svo er kjúklingurinn settur
aftur á pönnuna og hellt yfir ca.
2-3 msk. soyasósu og sama
magni af sherry. Þetta er aðeins
látið sjóða, kryddað með pipar
og smakkað á soðinu. Svo er
maizenasblöndunni hellt yfir
og aðeins látið sjóða. Ef ein-
hveijum finnst þetta of þykkt
eða bragðmikið má bæta smá
vatni í. Þá er þetta tilbúið og
borðað með hrísgijónum.
Önnur útfærsla er að hafa
þetta aðeins sætsúrara og setja
ananassafa út á pönnuna og
karmski ananasbita. Fyrst ég er
komin út í þessa sálma má líka
nefna að hægt er að nota nauta-
kjöt í þunnum ræmum í stað
kjúklings. Fyrir þá sem eru lítið
í sherryinu má benda á að
stundum hefúr verið til í mat-
vöruverslunum einhverskonar
„eldhússherry" sem er sherry
sem búið er að setja rotvamar-
efni og salt í og er þ.a.l.
ódrekkandi en gráupplagt að
notað í mat (og til þess gert).
Auðveldara getur það varla
verið!
Hér kemur sú síðasta af
Klettafjallaflugunum sem ég
ætla að sýna ykkur. Áður en
að því kemur þarf ég að
benda ykkur á flugu sem ég
sýndi í vor og sagði hana
góða í Blöndu og víðar. Hún
heitir Stóri-Slangi og er
svona í lengra lagi, 10-15 cm.
Þetta á laxinn þágt með að
þola nærri sér. Hann ræðst því
að ófognuðinum og þá er nú
ekki að sökum að spyrja. Sá
tvífætti á bakkanum hefur
slægðina ffamyfir hinn, sem í
ánni býr, og sigrar oftast í
slagnum. Rétt er að sýna veiði-
dýrinu þá virðingu að hafa
stríðið stutt, því að aðstöðu-
munur er mikill. Einstaka
veiðimaður þykist heyja þetta
strið á einhverskonar jafhréttis-
grundvelli, en það held ég að
sé blekking. I allri veiði er
grimmd, og óþarfi að gera sér
aðrar hugmyndir. Þetta er önn-
ur af frumhvötunum, hin er ut-
an við svið þessa þáttar. Báðar
eiga að lúta skynsamlegum
siðareglum.
Nú skulum við líta á flugu
vikunnar. Hún heitir Big Hole
Demon.
Uppskriftin er svona:
1. Ongull: Ég notaði einkrækju
með lítið eitt lengdum legg,
nr. 8.
2. Skott: Nokkur hár af ikoma-
skotti Fox squirrel.
3. Búkur: Aftari helmingur
flatt silfur. Fremri hlutinn er
vafinn með svörtu chenille.
4. Skegg: Badgerjjöður, vafin
þétt yfir fremrihlutann. Þetta
myndar þéttan bursta sem
best er að tryggja með silf-
urvír.
Þessi fluga er ágæt líka ef
hún er alveg svört, þ.e.a.s.
nema silfrið. Þannig var hún f
upphafi hnýtt af Peter Naranc-
ich 1965 og veiddi vel fyrstu 5
árin. Síðan hefúr allt verið ró-
legra, og þó. Ýmsir ffægir gæj-
ar hafa hnýtt þetta og fara
gjaman ffjálslega með útfærsl-
una. Hún er t.d. í bókinni hjá
Ogtesby og hvað viljið þið þá
meira?
Næst kemur alíslensk sjó-
birtingsfluga.
22 £
*o O
i- (/)
22 (/)
COQ.
NÝTT HELGARBLAÐ
1 7 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1991