Þjóðviljinn - 14.09.1991, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 14.09.1991, Qupperneq 1
Sighvatur sker upp herör gegn landsbyggðinni Að sjálfsögðu mun ég vinna að því að ákvörðun heilbrigð- isráðherra um að loka skurðstofunni á Stykkishóimi verði breytt, og ég held að hann hljóti að endurskoða þetta mál, sagði Sturla Böðvarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins á Vesturlandi. Ákvörðun heilbrigðisráðherra að loka skurðstofum á sjúkrahús- unum á Patreksfirði, Blönduósi, Stykkishólmi og St. Jósefsspítalan- um í Hafnarfirði hefur mælst illa fyrir hjá forráðammönnum þessara sjúkrahúsa. Þeir eru sammála um að ákvörðun þessi sé illa ígrunduð og tekin án faglegrar og fjárhagslegrar athugunar. Læknaráð St. Jósefsspítala í Hafnarfirði kom saman í gær þar sem ályktað var um málið. „Læknaráð mótmælir harðlega þeirri hugmynd og tilraun heil- brigðisyfirvalda til að leggja niður núverandi starfsemi sjúkrahússins, sem augljóslega lýsir vanþekkingu á mikilvægu hlutverki stofnunar- innar í heilbrigðisþjónustu bæjar- ins. St. Jósefsspítalinn gegnir lyk- ilhlutverki sem heilbrigðisstofnun í Hafnarfirði og nágrannabyggðum og við það hefur markviss, fagleg uppbygging verið miðuð undanfar- in ár. Læknaráð telur að önnur sjúkrahús muni sýnilega ekki geta sinnt þeim verkefnum sem St. Jós- efsspítalinn hefur innt af hendi." Bolli Ólafsson, framkvæmda- stjóri Sjúkrahússins á Blönduósi, sagðist ekki vita til þess að ráð- herra hafi aflað sér þeirra upplýs- inga sem til þarf fyrir ákvörðun sem þessa. - Aðgerðir á Sjúkrahúsi Blönduóss hafa verið í lágmarki og kostnaður ekki mikill. Ef það þyrfti að flytja sjúklingana eitt- hvað annað til aðgerða býst ég við að kostnaðurinn myndi aukast um eina miljón króna, sagði Bolli Ól- afsson, framkvæmdastjóri Sjúkra- hússins á Blönduósi. Sturla Böðvarsson sagðist ekki sjá hvað ætti að spara með því að loka skurðstofunni í Sfykkishólmi. - Ef það verður hætt að skera sjúklingana upp héma þarf að flytja þá suður í biðraðimar þar. Reksturinn á spítalanum héma, sem er sjálfseignarstofnun, er mjög sérstakur. Héma vinna nunnur mörg störf og gera það meira og minna launalaust. Rekstur á sjúkrahúsi á sér sjálfsagt enga hlið- stæðu eins og hann er hér. Annars held ég að það verði minna úr þessu en af er látið. Ég trúi ekki öðm en þessi ákvörðun verði end- urskoðuð, sagði Sturla. Gagnrýni forráðamanna sjúkrahúsanna bein- ist líka að því að nefnd sem nýlega var skipuð af heilbrigðisráðherra, til að kanna áframhaldandi rekstur skurðstofa á þessum sjúkrahúsum hefúr varla tekið til starfa. Matthias Halldórsson, aðstoð- arlandlæknir og einn nefndar- manna, sagði að ákvörðun heil- brigðisráðherra hafi komið sér í opna skjöldu. Hann hafi eins og aðrir landsmenn frétt þetta f gegn- um fjölmiðla. - Nefndin var ekki bytjuð að starfa neitt að ráði. Við áttum t.d. að meta hvort biðlistar eftir að- gerðum mundu aukast ef,þessar skurðstofúr yrðu aflagðar. Á þess- ari stundu get ég ekkert sagt um það, þar sem vinnan var rétt að fara í gang, sagði Matthías. Róbert Jörgensen, fram- kvæmdastjóri St. Fransiskusspítal- ans á Stykkishólmi, sagðist ekki skilja þessa ákvörðun. - Við eigum að skera útgjöldin niður um 4 miljónir. En það sem liggur þama að baki er að það á að loka skurðstofúnni hvað sem tautar og raular. Upphæðin sem um ræðir er lítil miðað við sögur sem maður hefúr heyrt um að byggja eigi skurðstofiir á Borgarspítalanum fyrir 4-5 hundruð miljónir til að mæta niðurskurðinum úti á landi, sagði Róbert. -sþ Vilborg Davlðsdóttir blaðamaður á Þjóðviljanum afhendir Einari Thoroddsen lækni, 800. nýja áskrifandanum, blómvönd og bókina Blaðið okkar eftir Árna Berg- mann ritstjóra. Mynd: Jim Smart. Sá þúsundasti fær bókagjöf Það verður að reyna að halda gangandi blaðinu sem lang- afi stofnaði, annað væri nú lélegt til afspurnar,“ sagði Einar Thoroddsen, læknir og vín- smakkari, þegar honum var færður blómvöndur og bókin „Blaðið okkar" að gjöf en hann er sá áttahundraðasti sem gerist áskrifandi að Þjóðviljanum í söfnunarátakinu sem nú stendur yfir. Einar er einmitt sonarsonarson- ur Skúla Thoroddsen sem hóf að gefa út gamla Þjóðviljann á Isafirði árið 1886. Faðir Einars er Skúli Thoroddsen læknir, faðir hans Guðmundur Thoroddsen læknir og sonur Skúla sýslumanns. Jöfn stígandi hefur verið í áskriftarsöfnuninni. Einar gerðist áskrifandi á fimmtudag en nú eru nýir áskrifendur famir að nálgast níuhundmð. Þúsundasti nýi áskrif- andinn mun fá veglega bókagjö „Perlur í náttúm íslands“ eft Guðmund Ólafsson, sem Mál o menning gefúr út. Takmarkið í söfnunarátakinu < að fá 2000 nýja áskrifendur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.