Þjóðviljinn - 19.10.1991, Qupperneq 4
SMÁFRÉTTIR
Verium
velferðarkerfið
Launamálaráð Bandalags
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna, BHMR, skorar á sam-
tök launafólks að snúast sam-
eiginlega til vamar gegn árás
ríkisstjómarinnar á velferðar-
kerfið.
í ályktun launamálaráðsins
kemur fram að samkvæmt
frumvarpi til fjárlaga er gert ráð
fyrir að sérstök þjónustugjöld
auki skattheimtu ríkisins um 2,5
miljarða króna og þessar auknu
álögur munu bitna fyrst og
fremst á sjúkum og nemendum.
Launamálaráð BHMR telur
því ástæðu til að benda á að hér
sé verið að gera grundvallar-
breytingar á íslenska velferðar-
kerfinu sem felur í sér aukna
mismunun þegnanna. -grh
Breytingar
á sjónvarpsrásum
Notendur sjónvarpsins
(RÚV) geta átt von á að verða
varir við breytingar á dreifikerf-
inu á næstunni. Þetta á að
minnsta kosti við um Mosfells-
bæ, Sandgerði, Grundarfjörð og
Mýrar.
Samgönguráðherra hefúr út-
hlutað sjónvarpsrás 6 (VHF) til
Sýnar h/f og RÚV og Sýn hafa
því gert með sér samning um
breytingar á dreifikerfinu.
Sjónvarpssendir Sýnar verð-
ur staðsettur á Vatnsendahæð
og mun senda út á VHF-rás nr.
6. A nokkrum stöðum á landinu
getiu- það valdið truflunum á
sjónvarpssendingum RÚV og
þar verður komið fyrir nýjum
sendi eða útsendingartíðni RÚV
breytt.
Sýn h/f ábyrgist að þjónusta
við notendur R0V spillist ekki
af þessum sökum og hagsmuna
þeirra verður gætt af sérstökum
fulltrúa sem fylgist með ffam-
kvæmdum í þessu sambandi.
Það er Eiríkur Gíslason hjá
EICO sf. í Mosfellsbæ.
Fyrirséðar breytingar eru
þær að af rás 6 (VHF) verða
færðir eftirtaldir: Sendirinn í
Víðinesi sem þjónar Mosfells-
bæ verður á rás 47 (UHF).
Sendirinn í Mosfellsdal verður
á rás 39 (UHF). Sendirinn í
Sandgerði verður á rás 45
(UHF). Sendirinn í Grundarfirði
verður á rás 5 (VHF) og sendir-
inn að Gröf á Mýrum verður á
rás 43 (UHF). - kj
Ráðstefna um
mengun hafsins
Fjórir íslenskir þingmenn
sitja nú ráðstefhu um mengun
hafsins í L.ubeck í Þýskalandi.
Þingmennimir eru Ami Mathie-
sen, Ámi R. Ámason, Hjörleif-
ur Guttormsson og Kristín Ein-
arsdóttir.
Að sögn Hjörleifs þá er það
þýska þingið sem heldur ráð-
stefnuna og er boðið til hennar
þingmönnum allra Norðurlanda
og þeirra landa sem eiga land
að Eystrasalti, en ráðsfefnan
mun einkum fjalla um Eystra-
saltið. Ráðstefnan hófst í gær
og henni lýkur á sunnudag.
Þrír umhverfisráðherrar
munu flytja erindi á ráðstefn-
unni, umhverfisráðherra Þýska-
lands, Svíþjóðar og Finnlands.
Hjörleifur sagði að í drög-
um að ályktun ráðstefnunnar
væri ákvæði um að óvissa verði
metin umhverfmu í hag.
„Þetta er ný stefna. Fram til
þessa hefur verið farið ffam á
vísindalegar sannanir, en með
þessu verður óvissan metin til
vemdar umhverfinu," sagði
Hjörleifur. -Sáf
^Twenning
Kristinn Reyr sendir frá sér glaðbeittar Ijóðlfnur. Mynd: Einar.
„signandi þig mitt sálarkrútt“
Glaðbeittar línur
Höf: Kristinn Reyr
Glaðbeittar línur er fallega út-
gefin 90 bls. ljóðabók. Höfundur-
inn er heldur ekki reynslulaus í
sambandi við útgáfustarfsemi því
samkvæmt skrá afiast í bókinni er
þetta þrítugasti titillinn sem hann
stendur fyrir. Ljóð, leikrit og tón-
list hefur hann valið sér sem tján-
ingarform og þessi kvæði sem hér
eru bera stíl hans ágætt vitni.
Kristinn Reyr Iokar sig ekki
inni í neinum sérstökum yrkisefn-
um, heldur fer víða og beitir marg-
vislegum aðferðum. Hann er skáld
hinnar líðandi stundar ef svo mætti
segja, yrkir um þær tilfmningar
sem til hans koma - tekur þær og
„blúsar" svolítið um þær áður en
kemur að þeirri næstu. I kvæði
sem heitir „GriIIur" signir hann yf-
ir sálarkrúttið (sjá fyr>rsögn) af
jafn mikilli einlægni og hann segir
í kvæðinu „Vinamót", að meðan
vináttan sé einhvers virt verði
„.. .friöar og frelsisvon
um úíhöf og álfur".
A þessum slóðum er einmitt að
finna styrkleika og veikleika hinna
glaðbeittu Ijóðlína Kristins. Það er
sjarmerandi að grípa gerólík and-
artök þar sem þau verða á vegi
manns og gera úr þeim ljóð. Krist-
inn er hins vegar stundum of fljót-
ur að sleppa takinu. Orðalag eins
°g:
„...þótt suma geri bœði
sárt og klceja þegar... “
er varia brúklegt. „Að gera sárt“
finnst mér fara yfir strikið og vera
óvandvirkni.
Þó er alls ekki verið að krefjast
neins skólabókamálfars. Þetta er
og verður smekksatriði. Kristinn
hefur alltaf leyft sér nokkurt fráls-
ræði í skiptum sínum við tungu-
málið og verið meiri heimsborgari
að því leyti en gengur og gerist
meðal íslenskra ljóðskálda. Ensku-
mælandi þjóðir eiga sér langa
ljóðahefð af því tagi sem stundum
má finna hjá Kristni og einkennist
af grinagtugu rími sem byggir á
líkingum í framburði, en tekur
e_kkert tillit til ritmyndar orðanna.
Úr „Glaðbeittum Iínum“ má taka
til dæmis um þetta kvæði sem heit-
ir:
Hörpuútgáfan hefur gefið út
nýja ljóðabók „Kór stundaglas-
anna“, sem er fimmta Ijóðabók
Friðríks Guðna Þórleifssonar. A
bókarkápu segir útgefandi:
„Friðrik Guðni er rímsnillingur.
Fátt mun honum auðveldara en
kveða með hefðbundnum hætti.
Ýmis kvæði hans, einkum stuttar
svipmyndir úr íslenskri náttúru,
hafa náð eyrum fólks betur en
margt sem hærra hefur verið hoss-
að.
í þessari ljóðabók skiptir hann
um tón. Hann slær strenginn með
öðrum hætti en fyrr, leikur nánast á
tungumálið eins og hljómborð.
Ljóð - í ætt við draumastef, dular-
HERRANN BROWN
Hann hét herra Brown
og hafði siglt á Spán
en rölti inn á Rán
rykaður og down
einsog gengur án
öls og bað um lán.
En kvinnan sem var kjút
með kyssilegan stút
reiddist drykkjurút
er rumdi: Púta-pút.
Svo hér fór allt í hnút
og honum kastað i'it.
Það ber reyndar mikið meira á
léttúð en alvöru í ljóðum Kristins.
Jafnvel þegar hann yrkir um graf-
alvarleg viðfangsefni eins og
fullar raddir úr steini og hóli eða
niðinn eilífa við fallvötn og fjöru -
bregða sérkennilegum blæ yfir
þessa bók. Og þó er hún umfrarn
allt dvergsmíð úr íslenskum afli,
efniviðurinn tunga vor fom og
samt ætíð ný.
Þó að minningar og draumar
séu kveikjan að mörgum kvæðanna
stendur skáldið traustum fótum í
samtímanum og spyr: „Hvers eru
þeir að krefja okkur, hverju eru
þeir að svipta okkur?"
KÓR STUNDAGLASANNA
er 75 bls. Kápumynd CARSTEN.
Setning, prentun og bókband:
ODDI hf.
dauðann á hann það til að sussa á
alvöruna með hversdagslegum lík-
ingum eins og í kvæði sem heitir:
SKULD
Lif er fengið
að láni
í leyndum forlagabanka
gegn víxli
með veði
í viðkomanda
samþykktum
sýningarvíxli
er greiðist að fullu
á gjalddaga
„Glaðbeittar línur“ er vinaleg
og læsileg ljóðabók.
-kj
Kór stundaglasanna
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. október 1991
Síða 4