Þjóðviljinn - 19.10.1991, Page 5
FlRÉmR
Húsnæðisnefnd í útburðarmálum
Verið er að herða aðgerðir hjá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
vegna ólöglegrar leigu á félagslegum íbúðum sem hún hefur
úthlutað og eru a.m.k. tvö utburðarmál komin fyrir dóm-
stóla og fleiri á leiðinni. Lög um Húsnæðisstofnun ríkisins
kveða á um að eigendum félagslegra íbúða sé óheimilt að leigja þær
án samþykkis husnæðisnefndar. Framkvæmdastjóri nefndarinnar,
Ríkarður Steinbergsson, segir að talsvert hafi verið farið fram hjá
lögunum til þess að fá hærri leigu en nefndin samþykkir.
I lögunum, sem eru nr.70 frá
1990, er jafnftBmt kveðið á um að
leigutaki, sem verður fyrir tjóni
vegna útburðar, hafi bótakröfu á
leigusala sem leigir án heimildar.
Ef leigusali, þ.e. þinglýstur eigandi
íbúðarinnar, leigir nana án sam-
þykkis húsnæðisnefndar er leigu-
samningurinn ógildur samkvæmt
lögunum. Húsnæðisnefnd þarf að
árita leigusamning og samþykkjg
bæði leiguverð og leigutíma. „I
sumum tilvikum myndum við ekki
leyfa viðkomandi aðila að leigja
ynrleitt, vegna þess að við teljum
að hann hafi ekki frambærilegar
ástæður til þess,“ segir Rikarður
Steinbergsson.
Ef lög þessi eru brotin er
Byggingasjóði verkamanna heimilt
að breyta vöxtum á láni íbúðareig-
enda frá þeim tíma, sem íbúðin var
leigð út án heimildar, þannig að
vextir frá þeim tíma verða þeir
sömu og gilda um lán til almennra
kaupleiguibúða.
Ríkarður segir að útburðar-
ákvæðinu hafi ekki verið beitt enn-
þá, en tvö mál séu í gangi fyrir
dómstólum og fleiri á leiðinni. Það
er bvggingarsjóðs að ákveða, út frá
uppíýsingum nefndarinnar, hvort
ákvæði um vaxtahækkun er beitt.
„Við getum ekki innleyst íbúðina,
en við getum borið út leigjandann
og séð um að hún verði ekki notuð
af öðrum en kaupandanum,“ segir
Rikarður.
Jón Kjartansson, formaður
Leigjendasamtakanna, segist telja
þessi lög ranglát því framkvæmd
þeirra bitni a leigjendum sem í
góðri trú taki íbuðina á leigu,
stundum án þess að vita að um fé-
lagslega íbúð sé að ræða og mjirgir
þekki ekki ákvæði laganna. „I til-
vikum sem þessum er það leigj-
andinn sem þarf á húsnæði að
halda og því finnst mér að Hús-
næðisnefnd ætti að yfirtaka leigu-
samninginn og leigja hana sjálf
viðkomandi leigutaka í stað þess
að standa að þvi að bera út fólks
sem er húsnæðislaust,“ segir Jón.
„Sé það ekki hægt verður að
breyta lögum, og Húsnæðisnefnd
ætti að beita sér fyrir því. Það leys-
ir ekki vanda þessa fólks þó það
fái bætur seint og um síðir. Auk
þess er það vafaatriði hvort þessi
lög stangast á við lög um eignarétt.
Málið snýst um hvort hægt sé að
banna þinglýstum eiganda að ráð-
stafa eign sinni.“
Ríkarður segir engan vafa leika
á lögmæti aðgerða Húsnæðis-
nefndar. Aðspurður sagði hann að
nefndin hefoi athugað lagalegan
grundvöll þess að taka á Ieigu og
endurleigja íbúðir, en sá grundvöll-
ur væri ekki fyrir hendi. „Við get-
um alveg tekið undir það með Jóni
að refsiákvæði laganna ættu að
bitna meira á leigusalanum en
leigutakanum, en þetta er það eina
sem við höfum til að fara eftir,“
segir Rikarður. -vd.
Framtíð
garðyrkjubænda
óljós
Það vantar verulega mikið uppá að fyrir liggi nægar uj:
um það hver markaðsstaða ykkar er, sagði Halldor Blöndal
landbúnaðarráðherra við garðyrkjubændur á haustfundi Sam-
bands garðyrkjubænda i gær. Það getur enginn íslenskur matvæla-
framleiðandi gert áætlanir á þeim grundvelli að við búum framvegis
við sömu innflutningstakmarkanir og verið hefur. Framundan er
undirbúningstími að því, að til frekari innflutnings kunni að koma.
Það kom einnig fram að Mark-
ús Möller hagfræðingur vinnur á
vegum landbúnaðarráðuneytisins
að athugunum á markaðsstöðu
garðyrkjubænda. Hann talaði á
nmdinum og kvað athuganir sínar
skemmra á yeg komnar en hann
hefði kosið. í ræðu Halldórs Blön-
dals kom það fram að forsætisráð-
herra hefur beitt sér fyrir sérstök-
um fúndi garðyrkjubænda og utan-
rikisj-áðherra.
A haustfúndi Sambands garð-
yrkjubænda talaði Kjartan Olafs-
son, formaður sambandsins, og var
á þeirri skoðun að ef grænmetis-
bændur stæðu ekki saman á næsta
ári gæti orðið algert hrun í þessari
grein. Stjómleysi yrði i skipulagn-
íngu ræktunar sem myndi leiða af
sér stjómleysi í innfiutningsmál-
um. Hann bauð landbúnaðarráð-
herra velkominn á fúndinn og
kvaðst vilja koma því á framfæri
fyrir hönd félags garðyrkjubænda
að þeir teldu sig geta aðstoðað ráð-
herra og ráðuneyti við að nýta bet-
ur þá fjármuni sem ríkisvaldið
veitir til skógræktar. Þar átti hann
við uppeldi á trjáplöntum. Hann
óskaði eftir viðræðum um útboð á
essari framleiðslu og sagði að
að myndi þýða mikið lægra verð
á plöntum en gengur og gerist hjá
rikisreknu stofnununum.
Kjartan fór að lokum með eft-
irfarandi vísubrot sem hann sagði
til þess ætlað að ylja ráðherra um
hjartarætumar:
Effrelsi vorí ferst og lendir
tilfjandans i gróðabransa,
EB þá eflaust sendir
afskorin blóm og kransa.
- Ki
Samband garðyrkjubænda á fundi með landbúnaðarráöherra. Mynd: Jim
Smart.
Herinn bregst
Imerkri ræðu Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra á
flokksráðsfundi Sjálfstæðis-
flokksins í gær var dregin upp
dökk mynd af efnahagsástand-
inu í landinu. Hvert áfallið á
fætur öðru ríður nú yfir þjóðar-
skútuna að sögn forsætisráð-
herra. Þannig hefur þorskurinn
ekki bara brugðist, heldur Iíka
sú stoð sem átti að vera öðrum
traustari: bandaríska mjólkur-
kýrjn á Miðnesheiði.
I ræðu sinni sagði forsætisráð-
herra orðrétt:
„Við megum búast við því að
nokkuð dragi úr umsvifúm vamar-
liðsins á Keflavíkurfiugvelli á
næstu árum. Þrátt fyrir að það sé
sameiginleg skoðun okkar, Banda-
ríkjamanna og forráðamanna Atl-
antshafsbandalagsins að mikilvægi
Islands frá hemaðarlegu sjónar-
miði eigi eftir að aukast á næstu
ámm en ekki minnka. Við Sjálf-
stæðismenn höfum aldrei viljað að
Vamarliðið væri hér til frambúðar
af efnahagslegum ástæðum einum.
Sú skoðun okkar er óbreytt. Það
breytir ekki hinu að minnkandi
tekjur sem tengjast starfsemi þess
munu koma á sama tíma og afii
hjá okkur dregst saman og þar
með auka á okkar erfiðleika...“
Forsætisráðherra getur þá tekið
undir það sem forðum var sagt:
„Islands óhamingju verður allt að
vopni“.
-ólg.
Ásdfs Jenna Ástráðsdóttir og Hanna Margrét Kristleifsdóttir, nemendur f Menntaskólanum við Hamrahlfð, héldu
erindi á málþingi Þroskahjálpar f gær. Ræddu þær stöllur um það hvemig menntaskólar taka á móti fötluöum
nemendum. Mynd: Jim Smart.
Einn skóla
fyrir öll böm
Amálþinginu var fjallað um nýju grunnskólalögin sem kveða
á um að einn skóli skuli vera fyrir öll börn, fötluð og ófötl-
uð, sagði Lára Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Þroska-
hjálpar, um þær umræður sem fram fóru á málþingi um
náms- og menntunarmöguleika fatlaðra á Holiday Inn í gær.
- Fötluð böm, eins og önnur
böm, eiga rétt á kennslu við sitt
hæfi, en það kostar að sjálfsögðu
peninga, og það er eitt af þeim
vandamálum sem við stöndum
frammi fyrir svo að hægt sé að gera
grunnskólalögin að veruleika,
sagði Lára. - Þá þarf einnig að
breyta viðhorfum fólks, bæði úti í
þjóðfélaginu og innan skólakerfis-
ms, svo að vinna megi að því að
fötluð þöm geti sótt sína neima-
skóla. Á höfuðborgarsvæðinu hefur
verið tilhneiging til að senda fötluð
böm í þá sérskóla sem þar eru, og
jafnvel fjölskyldur úti á landi hafa
neyðst til að taka sig upp og flytja í
bæinn til þess að fötluð böm þeirra
gætu notið menntunar í sérskólun-
um. Hins vegar væri farsælla að
jjálfa kcnnara úti á landi til þess að
jeta sinnt sérkennslu og komast
>annig hjá því að fiytja böm suður.
Vísir að þessu er kominn, t.d. á
Norðurlandi. Þar er verið að þjálfa
kennara á staðnum svo að þeir geti
tekið að sér að kenna fotluðum
bömum.
Stefna okkar í Þroskahjálp er
sú að í framtíðinni verði sérskól-
amir lagðir niður, sagði Lára.
Málþingið var tvískipt; for-
skólabamið og gmnnskólinn og
framhaldsskólinn. Rætt var um
reynslu foreldra, stefnu sérkennslu
innan grunnskóla, blöndun fatlaðra
í almenna bekki, þá spumingu
hvort framhaldsskólar séu reiðu-
búnir að taka á móti fötiuðum nem-
endum, væntingar foreldra þroska-
heftra unglinga til menntunar og
fleira sem lýtur að menntunar-
möguleikum fatlaðra. Á þingið
vom mættir kennarar, foreldrar
fatlaðra, fræðslustjórar og fólk úr
ýmsum sérfræðingastéttum. Eftir
nádegi fluttu tveir fatlaðir nemend-
ur, sem stunda nám við Mennta-
skólann við Hamrahlið, erindi sem
hópur MH-inga hafði samið og
fjallaði um það hvemig mennta-
skólinn tekur á móti fötluðum
nemendum.
Lára sagði aðstandendur fatl-
aðra bama litlar áhyggur hafa af
því hvemig ófötluð böm taka á
móti fötluðum í skólum landins,
heldur hefðu þeir fremur áhyggjur
af því að kennarar, skólastjómend-
ur og foreldrar annarra bama væm
ekki nægilega jákvæðir. Að vísu
væri rétt að kennarar heföu oft
áhyggjur af því að geta ekki sinnt
fötluðum bömum sem skyldi í fjöl-
mennum bekkjum. Til þess að
fækka mætti í bekkjum þyrfti að
sjálfsögðu aukið fjármagn.
Aðstandendur fatlaðra vona að
í framtíðinni verði mögulegt að i
stað sérskóla verði komið á sér-
deildum innan skólanna, þar sem
þörfúm fatlaðra bama væri sinnt,
en þau væm einnig í almennum
bekkjum. Tilraunir með svokallaða
blöndun í bekki hefúr verið reynd,
bæði í Hlíðaskóla, Æfingadeild
Kennaraháskólans og fleiri stöðum.
Til þess að beijast gegn einangmn
fatlaðra þykir vænlegasta leiðin að
þau byrji ung í almennum skólum,
pannig verði best komið í veg fyrir
fordóma í þeirra garð og sérgrein-
ingu þegar þau ná fúllorðinsámn-
um.
í dag fer síðan ffam árlegt
landsþing Þroskahjálpar, sem sett
var í gærkvöldi.
BE
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. október 1991