Þjóðviljinn - 19.10.1991, Qupperneq 7
EHLENBAR
▲ Umsjón Amar Guðmundsson
Börn ( Zagreb, höfuöborg Króatlu, flykkjast um króatískan hermann til aö
skoða riffilinn hans.
Friðarlíkur
í Júgóslavíu?
Carrington lávarður, sem stýrir tilraunum Evrópubandalagsins
til að stilla til friðar í Júgóslavíu, segir næsta verkefni vera að
ganga frá endanlegum texta friðaráætlunar bandalagsins, þrátt
fyrir fyrirvara Serba. Serbar segja samkomulagið ógna stöðu
Júgóslaviu sem einnar heildar og því sé það ekki ásættanlegt. Milosevic,
forseti Serbíu, segir þó að fyrirvara Serba megi alls ekki skilja sem al-
gera höfnun og að í samkomulagsdrögunum sé að finna jákvæða þætti.
Tudjman, forseti Króatíu, telur að með áætlun Evrópubandalagsins sé
lagður góður grundvöllur að friði í Júgóslavíu.
í samkomulagsdrögunum er gert
ráð fyrir að núverandi landamæri
verði óbreytt nema um annað verði
samið og þjóðemishópum, sem eru í
meirihluta á vissum svæðum, verður
tryggt sjálfstæði.
Snemma í gær undirrituðu for-
setaráð Júgóslavíu og forseti Króa-
tíu, að viðstöddum forseta Serbíu,
samþykkt þar sem striðandi fylking-
um er skipað að stöðva samstundis
og án skilyrða alla bardaga. Þetta
samkomulag var undirritað eftir
mikinn þrýsting ffá Evrópubanda-
laginu sem krafðist vopnahlés enn á
nÝ- ,
1 gær birtist einnig sameiginleg
yfirlýsing Evrópubandalagsins,
Bandarikjanna og Sovétrikjanna, þar
sem Júgóslavar em hvattir til að
standa algerlega við þá ffiðarsamn-
inga sem þeir hafa þegar gert.
Þrátt fyrir samþykkt forseta lýð-
veldanna í Júgóslavíu um tafarlaust
vopnahlé bámst um það óstaðfestar
fféttir að enn væri barist. Að sögn
króatískrar sjónvarpsstöðvar var
gerð sprengjuárás á borgina Karlo-
vac nærri Zagreb, höfuðborg Króa-
tíu. Einnig vom fluttar fféttir af eld-
flaugaárás á þorpið Vinkovci í norð-
austur Króatíu. Níu tilraunir til að
koma á haldbæm vopnahléi hafa
þegar runnið út í sandinn.
Gaf fjölskyldunni hasstertu
Kathleen Pollard, 24 ára
gömul kona í Wales, var í gær
dæmd til að greiða 1.100 punda
sekt fyrir að bera fram köku,
kryddaða með hassi, í fjölskyldu-
boði.
í réttinum í Swansea sagði
Margaret Jellico, 52 ára gömul
ffænka hinnar ákærðu, að eftir að
hún borðaði af kökunni hafi hún
farið „til vítis og til baka aftur“.
Jellico fékk slíkar ofskynjanir að
hún flúði húsið undan ímynduðum
hundum, taldi að lögreglumaður
sem hún mætti ætlaði að myrða sig
og endaði á því að borða gras áður
en hún var flutt á sjúkrahús.
Dómarinn taldi að Pollard
hefði leikið saklausa ættingja sína
grátt en sjálf sagðist hún aðeins
hafa viljað hjálpa þeim að slaka á
og skemmta sér.
Móðir mín
Sigurveig Guttormsdóttir
léstá Reykjalundi 18. október.
Fyrir hönd bama minna, tengdabarna og bamabarna,
Anna Sigríður Gunnarsdóttir
Viðskiptabanni á
Suður-Afríku
aflétt í áföngum
Leiðtogar bresku Samveldisríkjanna 50 samþykktu einróma áætl-
un um að aflétta viðskiptabanninu á Suður- Afríku í áföngum.
Með þessu vilja leiðtogarnir láta í ljós ánægju sína með þróun
mála í Suður-Afríku og hvetja til enn frekari umbóta án þess þó
að horfa framhjá þeirri staðreynd að misrétti aðskilnaðarstefnunnar
hefur enn ekki verið að fuliu afmáð.
Þessi ákvörðun var tekin á ráð-
stefnu leiðtoga Samveldisríkjanna í
Harare, höfúðborg Zimbabwe. Utan-
rikisráðherra Indlands, P.V. Naras-
hima Rao, kynnti þessa samþykkt
fyrir fféttamönnum í gær og sagði að
fyrsta skrefið yrði að aflétta nú þegar
banni við samskiptum við Suður-Aff-
íku. Það hefúr í for með sér að flug-
félög mega fljúga til landsins, sam-
skipti og tengsl á sviði menningar og
vísinda komast á að nýju og síðast en
ekki síst er opnað fyrir mannleg sam-
skipti í formi ferðamannaþjónustu í
kjölfar ferðaffelsis til og ffá Suður-
Afiriku.
Samþykktin um afnám viðskipta-
bannsins er í samræmi við hugmynd-
ir sem utanríkisráðherrar bresku
Samveldisríkjanna settu ffam á fúndi
sínum í Delhi í síðasta mánuði. Þar
var sagt að áfangamir í afnámi við-
skiptabannsins yrðu að haldast í
hendur við áfanga í afhámi aðskiln-
aðar hvítra og svartra.
Samkvæmt tillögum utanríkis-
ráðherranna verður næsta skref að af-
nema efnahagslega einangrun Suður-
Affiku með því að heimila viðskipti
og fjárfestingar en það verður ekki
stigið fyrr en fúndin hefúr verið leið
til að gera hreyfingum svartra kleift
að taka þátt í samningaviðræðum um
nýja stjómarskrá rikisins. Þegar end-
anleg gerð nýrrar stjómarskrár Iiggur
fyrir á loks að stíga lokaskrefið og af-
nema viðskiptabannið að fúllu með
því að heimila fjármagnsviðskipti á
borð við lán úr Alþjóða gjaldeyris-
sjóðnum.
Þegar Rao var spurður hvort eng-
ar efasemdir hefðu komið ffam á
leiðtogafúndinum fúllyrti hann að
fallist hefði verið einum rómi á til-
lögur Delhi-fúndarins. Þessi yfirlýs-
ing kom á óvart þar sem Bretar
studdu ekki tillögumar í Delhi, enda
hafa þeir sjálfir afnumið viðskipta-
bannið á Suður- Affíku að nær öllu
leyti og þrýsta mjög á Samveldisríkin
að heimila nú þegar fjárfestingar í
Suður- Affíku.
Sama dag og Rao tilkynnti sam-
þykkt leiðtoganna sagði John Major,
forsætisráðherra Bretlands, í útvarp-
sviðtali að Suður-Afríka þyrfti nú
þegar á fjárfestingum að halda til að
endurlífga efnahagskerfi þar sem 7
miljónir manna eru án atvinnu.
I Suður-Affíku hafa viðbrögðin
við samþykkt leiðtogafúndar Sam-
veldisríkjanna verið misjöfú. Nelson
Mandela, leiðtogi Afriska þjóðar-
ráðsins (ANC), fagnaði ákvörðuninni
og Gill Marcus, talsmaður ANC,
sagði hana vera í samræmi við þær
óskir sem baráttusamtökin gegn að-
skilnaði lögðu ffam við leiðtogana.
Marcus kvaðst vona að með þessu
væri ýtt undir pólitíska þróun en hún
sagði jafúffamt að mikilvægast væri
að allir meginþættir viðskiptabanns-
ins væm áffam virkir.
Ein af róttækari baráttusamtökum
blökkumanna gegn aðskilnaði, AZA-
PO, létu hins vegar í ljós óánægju
með samþykktina. Talsmaður þeirra,
Lybon Mabasa, sagði afúám við-
skiptabannsins vera mjög „óheppi-
legt“ þar sem engar verulegar breyt-
ingar hefðu í raun átt sér stað og af-
námið myndi einungis styrkja stjóm
hvíta minnihlutans í sessi.
Svipuð sjónarmið hafa komið
ffam hjá talsmönnum Alkirkjuráðs-
ins. Aðalritari þess, Emilio Castro,
sem nú er á ferðalagi um hverfi
svartra, segir að aðskilnaður sé enn
við lýði og svartir þjáist vegna stjóm-
málalegs ofbejdis. í blaðaviðtali
sagði Castro: „Eg hef ekki séð neina
ástæðu til að álíta að viðskiptabann-
inu skuli aflétt að svo komnu máli.“
Sögulegar samn-
ingaviðræður
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Boris
Pankin, sovéskur starfsbróðir
hans, bjóða i sameiningu ísrael-
um og nágrannaríkjum þeirra til
sögulegra samningaviðræðna i
Madrid i lok þessa mánaðar. Ætl-
unin er að saman komi á eina
ráðstefnu ísraelar, Sýrlendingar,
Líbýumenn, Jórdanir, Egyptar
og fulltrúar Palestínumanna.
I yfirlýsingu sem Baker og
Pankin sendu frá sér í gær segja
þeir að um sögulegt tækifæri sé að
ræða til að binda enda á 43 ára stríð
milli Israela og araba.
Ætlað er að ráðstefnan standi í
þrjá daga. Til að undirstrika mikil-
vægi ráðstefnunnar munu forsetar
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna
báðir verða viðstaddir setningu
hennar.
Ýmislegt getur þó enn komið í
veg fyrir ráðstefnuna. Til dæmis er
ekki loku fyrir það skotið að ísra-
elska þingið hafni þátttöku í við-
ræðunum. Texti sjálfs boðsbréfsins
hefur einnig verið deilumál. Að
sögn háttsetts bandarísks embættis-
manns verður sjálfsstjóm Palest-
ínumanna á herteknu svæðunum
eitt af markmiðunum sem sett
verða fram í bréfinu. Palestinu-
menn kröfðust þess að slíkt ákvæði
yrði sett f boðsbréfið og ísraels-
menn féllust á það að lokum. ísra-
elsmenn hafa sjálfir gert miklar at-
hugasemdir við texta bréfsins og
embættismenn segja að Baker hafi
samþykkt 33 breytingar að þeirra
ósk en hafnað 7 öðrum.
HANDBRAGÐ MEISTARANS
Bakarí
Brauðbergs
Ávallt nýbökuð brauð
-heilnæm og ódýr-
Aðrir útsölustaðir:
Hagkaujp-Skeifunni
-Kringiunni
Verslunin Vogar,
Kópavogi.
Brauðbera
Lóuhóter 2-6 slml 71S39
Umunbcrg 4 ómi 77272
NATO fækkar
kjamavopnum
sínum um 80%
Sú fækkun kjamavopna sem
vamarmálaráðherrar NATO sam-
þykktu á fúndi sínum á Sikiley er
mesta fækkun kjamavopna í sögu
bandalagsins. Að sögn vamarmála-
ráðherra Bretlands, Tom Kings,
svarar þessi fækkun til þess að 80%
af kjamavopnum Atlantshafsbanda-
lagsins verði eytt. Kjamaoddum í
sprengjuflugvélum verður fækkað
um helming og auk þess samþykkti
fúndurinn þá ákvörðun Bandaríkja-
stjómar að eyða öllum vígvallar-
vopnum Atlantshafsbandalagsins í
Evrópu. Eyðilegging vopnanna mun
fara fram á næstu tveimur til þremur
ámm.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39-108 Reykjavík - Síml 678 500
Forstöðufólk
- fjölskylduheimili
Hjón eða einstakling með háskólamenntun á sviði
uppeldis-, félags- eða sálarfræði vantar til að veita
forstöðu Ijölskylduheimili fyrir börn á vegum Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Helga Þórðardóttir, for-
stöðumaður vistunarsviðs, í síma 678500.
Umsóknarfrestur ertil 1. nóvember n.k.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu-
blöðum sem þar fást.
Síða 7
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. október 1991