Þjóðviljinn - 19.10.1991, Side 12
f
1
I>TÓÐVILTINN
Laugardagur 19. október 1991 ^ -
lslenskur togarafiskur
er þriðja flokks vara
Nær allur íslenskur tog-
arafiskur lendir í þriðja
gæðafiokki samkvæmt
nýrri gæðastöðlun Evr-
ópubandalagsins. Sem dæmi þá
Ienti allur Tslenskur fiskur sem
landað var í Hull á þriggja vikna
tímabili í sumar í 3. gæðaflokki.
Þessar upplýsingar komu fram í
ræðu Johanns Arsælssonar al-
þingismanns í umræðum utan
dagskrár um sjávarútvegsmál sl.
fimmtudag. Samkvæmt þessum
upplýsingum virðist því langt í
land að íslenskur fiskur sé besti
fiskur i heimi, eins og gjarnan er
státað af i skálaræðum.
Jóhann er ásamt með Steingrími
J. Sigfússyni flutningsmaður þings-
ályktunartillögu sem lögð hefur ver-
ið fyrir þingið um gæðamál og sölu-
meðferð á ierskum fiski. I tillögunni
er m.a. hvatt til að settar verði
strangar reglur um meðferð og
ferskleika afla þar sem m.a. verði
tilgreindur veiðitími aflans.
I ræðu sinni á Alþingi sagði Jó-
hann að ferskfiskur sem landað væri
erlendis vasri yfirleitt 5-12 daga
gamall, en fiskur sem væri eldri en
6 daga kæmist ekki í 2. gæðaflokk,
hvað þá í fyrsta flokk. Samkvæmt
gæðastöðlum EB, sem samþykktir
voru í mars 1990, er fiskur ffokkað-
ur í fjóra flokka: E, A og B. E-
flokkur er gæðaflokkur og miðast
við fisk sem er yngri en Qögurra
daga, A-flokkur miðast við sjö daga
og yngri og B-fiokkur er sjö daga
fiskur og eldri. Fjórði flokkurinn er
svo úldinn fiskur, sem er óhæfur til
manpeldis.
I ræðu Jóhanns á Alþingi kom
fram að ástandið á togarafiskinum
sem fer til vinnslu innanlands væri
engu betra, og ekki væri óalgengt að
togarar lönduðu allt að 12 daga
gamlan fisk.
Sagði Jóhann að íslenskir út-
gerðarmenn og fiskverkendur ættu
að taka upp kjörorð Alþýðufiokks-
ins, „íslana í A-flokk“, og slefna að
því að allur fiskur af Islandsmiðum
færi í þennan gæðaflokk. 1 því skyni
ætti að setja þá reglu að ekki yrði
leyft að koma með eldri fisk en 6
daga gamlan að landi. Benti Jóhann
á að nýir og hertir staðlar EB um
gæðaenirlit á fiski eigi að taka gildi
1. janúar 1993 og þurfi að búa ís-
lensjca fiskútflytjendur undir það.
1 nýlegu viðtali við Þórð Árel-
íusson veiðieftirlitsmann, sem vitn-
að er til í þingsályktunartillögu Jó-
hanns og Steingríms, kemur fram sú
skoðun, að tilkoma fiskmarkaða hér
á landi hafi ekki bætt meðferð og
gæði fisks eins og menn hcfðu
vænst. Gæðamat íslenskra kaupenda
væri heldur ekki eins virkt og hjá er-
lendum kaupendum sem séu með-
vitaðri um tengsl gæða og arðsemi.
Þórður telur að athuga þurfi hvort
ekki eigi að setja sambærilegar regl-
ur um gæðamat á fiskmörkuðum
hér á landi og gilda innan EB.
Þórður Friðgeirsson forstöðu-
maður eftirlitssviðs Rikismats sjáv-
arafúrða staðfesti það í samtali við
Þjóðviljann, að borri íslenska tog-
arafisksins fari í 3. gæðaflokk sam-
kvæmt gæðaflokkun EB. Sagði
Þórður að ástæða væri til að líta sér-
staklega til íslensku fiskmarkaðanna
í þessu samhengi, en nú stæði til að
endurskoða lög og reglur um fisk-
vinnslu, þar sem einnig yrðu settar
starfsreglur um fiskmarkaðina, en
eir hefðu ekki verið til hér á landi
:gar núgildandi lög voru sett.
Aðspurður um hvort taka ætti
upp gæðastaðla EB hér á landi sagði
Þórður að okkur væri sem útflytj-
endum á EB-markað í sjálfsvald
sett hvemig við uppfylltum gæða-
kröfúr EB. Hins vegar þyrftum við
eftir gildistöku nýju reglnanna 1. jan
1993 að uppfylla kröfur um skran-
ingu, sýnatöku og fleira, ef við vild-
um fá hindrunarlausan útflutning.
Spumingin væri m.a. hvort við ætl-
uðum að sjá um þetta sjálfir, eða
hvort kaupa ætti þessa þjónustu af
EB.
Þórður sagði að veikasti hlekk-
urinn í meðferð fisks hér á landi
væri enn að ekki væri nægilega vel
staðið að slægingu og ísingu strax
eftir að fiskurinn er veiddur. Því
gæðin fæm ekki síður eftir þvi hvort
fiskurinn væri vel slægður og ísaður
en eftir tímalengd ffá veiðum til
sölu.
Aðspurður um það hvort hægt
væri að koma íslenskum togarjifi.ski
í A- gæðaflokk sagði Þórður: Eg tel
að við ættum að setja okkur það
mark, en hvort það er framkvæman-
legt þori ég ekki að segja. -ólg.
Mynd: Jim Smart.
Sjö heimsmet í sumar
Einstaklingar úr röðum hreyfi-
hamlaðra, sjónskertra og
þroskaheftra hafa nýlega feng-
ið staðfest sjö heimsmet frá mótum
sumarsins.
Þar með hafa 12 fatlaðir Islend-
ingar náð þessum glæsilega árangri.
Frá Álþjóðasamtökum þroska-
heftra kemur einnig fram í yfirliti um
sundárangur að Island á átta heims-
met af ellefú í kvennaflokki.
Af tilefni þess ama heiðraði
stjóm Iþróttasambands fatlaðra alla
heimsmethafa sína í Perlunni í gær.
-kj.
Hættuleg umræða um þyrlukaup
Mér finnst þetta vera mjög hættuleg umræða,“ segir Kristján Guð-
mundsson formaður Nemendafélags Stýrimannaskólans um þær
tillögur þyrlunefndar Alþingis að fyrst beri að ræða um samstarf
við herinn um rekstur björgunarþyrlna, áður en afstaða sé tekin til kaupa
á þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Stýrimannaskólinn og nemendur
hans hafa safnað og tekið við fram-
lögum í sjóð til þyrlukaupa. Kristján
segir að í fyrsta lagi hafi menn ekki
hugmynd um hversu lengi herinn
verði hér á landi. í álitsgerð nefhdar-
innar segir að auk þyrlna Landhelgis-
gæslunnar séu á landinu þijár þyrlur
Bandarikjahers og fjórar væntanlegar
og því sé með engu móti hægt að
segja að hættuástand riki hér vegna
skorts á björgunarþyrlum. Kristján
segir ályktanir nefndarinnar bera vott
um algert þekkingarleysi. „Þessir am-
erisku flugmenn hafa ekki reynslu af
íslensku landi. Islenskir þyrluflug-
menn hafa mun betri þekkingu á að-
stæðum hérlendis og eru margfalt
reyndari í þyrluflugi yfir sjó. ísland
telst eitt erfiðasta landið fyrir þyrlu-
flug, og þessir bandarísku flugmenn
hafa margir hveijir aldrei flogið yfir
sjó. Viðvera þeirra er stutt, þannig að
þetta eru aldrei vanir menn,“ segir
hann. „Það er hins vcgar kannski
ekki vitlaust að kaupa sams konar
þyrlur og Kaninn er með, þannig að
hægt væri að sækja þekkingu og vara-
hluti til þeirra. Landhelgisgæslan hef-
ur átt ágætis samstarf til þessa við
vamarliðið og það er engin ástæða til
annars en halda því áfram, en að
ganga í þessa átt fmnst mér persónu-
lega vera út í hött.“
Kristján kvaðst einnig vilja benda
á, vegna orða Ólafs Ragnars Grims-
sonar um björgun af sjó, að sífellt hafi
hækkað hlutfall björgunaraðgerða
með þyrlum af landi.
Bjöm Hermannsson ffam-
kvæmdastjóri Landsbjargar kvaðst
ekki geta tjáð sig um tillögur þyrlu-
nefndar Alþingis fyrr en hann og
stjóm samtakanna hefðu kynnt sér
þær betur. Stjóm Landsbjargar kemur
saman til fúndar á fimmtudag og mun
þá væntanlega ræða þessar hugmynd-
ir, sagði hann. -vd.
rtaö slær
Guðmundur J*
hættir sem for-
maður VMSÍ
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Þjóðviljans mun
Guðmundur J. Guðmundsson
ekki gefa kost á sér til endur-
kjörs sem formaður r Verka-
mannasambands íslands.
Sömu heimildir segja að arf-
taki hans verði Björn Grétar
Sveinsson, formaður Verka-
lýðsfélagsins Jökuls á Höfn í
Hornarfirði. Varaformaður
verði Jón Karlsson, formaður
Verkamannafélagsins Fram á
Sauðárkróki.
Guðmundur J. Guðmunds-
son hefúr löngum látið að því
liggja að hann rnuni hætta sem
formaður VMSI á þingi þess nú
á haustmánuðum. Sjálfúr nefnir
hann þetta í viðtalsbók er Ómar
Valdimarsson .lcráði eftir honum
og gefin var út fyrir síðustu jól.
Þjóðviljinn hefur fengið það
staðfest hjá áhrifamönnum innan
VMSI að Guðmundur muni ekki
gefa kost á sér í embættið að
þessu sinni. Varaformaður
VMSÍ, Karl Steinar Guðnason,
hefúr og upplýst að hann hafi
ekki áhuga á því starfi áfram.
Það er og ljóst að Karl Steinar
muni ekki gefa kost á sér þegar
nýr formaður verður kjörinn.
Þeir Bjöm Grétar Sveinsson,
Snær Karlsson og Jón Karlsson
hafa undanfarið verið nefhdir í
sambandi við formannsembættið
í VMSI. Snær Karlsson, formað-
ur fiskvinnsludeildar Verka-
mannasambandsins, sagði þegar
hann var spurður hvort hann
gæfi kost á sér sem formaður, að
það myndi hann ekki gera. I
sama streng tók Jón Karlsson er
hann var spurður sömu spum-
ingar. Aftur á móti sagði Jón,
þegar hann var spurður hvort
það sama ætti við um varafor-
mannsembættið, að stjómarseta
hans í VMSI næði nú yfir tíu ár.
Ef þinginu fyndist það hafa þörf
fyrir krafta hans áfram væri
hann tilbúinn að taka þau verk
að sér sem hann væri valinn f.
Bjöm Grétar sagði Þjóðvilj-
anum að ef Guðmundur J. gæft
ekki kost á sér í formannskjör-
inu myndi hann gera það. Hann
sagði að fjöldi manns hefði haft
samband við sig og óskað eftir
því að hann gæfi kost á sér sem
formaður í Verkamannasam-
bandinu og sæi hann ekki
ástæðu til að bregðast þeim ósk-
um.
Þing Verkamannasambands-
ins, sem hefst þriðjudaginn 22.
október, stendur yfir i fjóra
daga. Helstu málin sem fjallað
verður um á þinginu verða um
atvinnu- og kjaramál. Ávinning-
ur Verkamannasambandsins af
því að vera með þingið nú þegar
samningar em lausir er ótvíræð-
ir. Þeir Snær, Bjöm Grétar og
Jón vom t.d. allir sammála um
að samninganefnd Verkamanna-
sambandsins yrði í lok þess vel
nestuð í þær kjaraviðræður er
ffamundan em við Vinnuveit-
endasambandið.
-sþ
2000
I*
I •
Nýir áskrifendur Þjóðviljans
eru nú komnir á 15. hundrað.
\
1000
ikrifendur
Tökum öll á
og tryggjum
trausta stööu
Þjóöviljans
•7*