Þjóðviljinn - 01.11.1991, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 01.11.1991, Blaðsíða 6
Bókmenntir „Taktvís útrauður flamingófugl77 Þórunn Valdimarsdóttir Fuglar Forlagið 1991 Það fer ekki miili mála að Þórunn Valdimarsdóttir er spennandi Ijóðskáld. Fuglar er fyrsta Ijóðabók hennar og tekur af allan vafa um það. Myndmál í þessari bók er verulega athyglisvert: Ugla flýgur úr tungli, ófiiglinn er skræpóttur, konan leikfim og brosið jafnaðar- geðslegt. í mörgum tilvikum leita myndir bókarinnar út úr öllu sam- ræmi við hefðbundið veruleika- skyn. Það er stundum á þeim „Undralandsbragur" ef svo mætti segja, án þess að höfundurinn hafi þó fengið nokkuð að láni hjá Lísu. Reyndar heitir eitt Ijóð- ið:“Dottið á eftir Lísu“ og leynir sér ekki tilvísunin til Lewis Car- roll, sem hét reyndar Charles L. Dodgson réttu nafni og skrifaði um ævintýri Lísu i Undralandi. Um fjarstæðumyndir er víða hægt að taka dæmi úr bókinni. Til dæmis mætti taka kvæðið: Hring- inn, þar sem: fuglanna. Eins er því látið ósvar- að hvort Þingeyingar og negra- höfðingjar eru sá tætari sem tím- inn notar til þess að hræra með eða hvort þeir eru sambærilegir við blóð fuglanna. Sé sú leið farin Kristján Jóh.Jónsson skrifar er að sjálfsögðu ekki hægt að ganga framhjá því að bókin heit- ir:“Fuglar“, sem væntanlega þýðir að ljóðunum sé hér líkt við fugla og tilviljanakennt flug þeirra sem tíminn ákvarðar að meira eða minna leyti. Að sjálfsögðu er hér ekki ver- ið að útiloka þá gömlu og góðu kennisetningu að ljóð eigi að skynja en ekki skilja. Það er ágæt speki út af fyrir sig en hún breytir því ekki að stór hluti mannkyns- ins er alltaf að reyna að skilja það sem fyrir augun ber og hættir því vonandi ekki í bráð. í sama ljóði er sérlega falleg mynd af smáfuglageri sem styggð kemur að: „ smáfuglasprengja yfir skóg inum “ Smáfuglamir hafa rokið upp úr tijánum með þessum dæma- lausu látum svo lengi sem menn muna en hér eru þeir tengdir við nýja mynd. Smáfuglasprengja lýsir fyrirbærinu glæsilega. Þórunn hefur greinilega afar gott vald yfir myndmáli en stund- um kýs hún að hundsa hinn myndræna þátt og þá tekst verr til. Ég læt vera þó að einhver sé:“ánægður eins og ostur“ þvi það er sniðugt vegna þess hve óvænt það er. Til dæmis má hins vegar taka 8. hluta í kvæðinu um hringinn: „ æ væri mjúkt grjót í fjalla skörðum og vatnsmiklir höggvarar streymdu úr grjótinu myndir mundu allir brátt sjá myndirnar í ótilhöggna grjót inu og þunga grjótið í grjótland inu mundi lyftast og speglast í jökli... “ Til þess mjúkt grjót geti virk- að í ljóði þarf hugur lesandans að tengjast mýkt þess á einhvem annan hátt en þann að það sé í fjallaskörðum. Til þess að snerta þarftu að vera til staðar og þó að ljóðskáldið hefði ekki nema sett einn fingur á einn stein hefði komið sú tenging sem hér vantar. Vatnsmiklir höggvarar em þar að auki eitthvað sem ég næ ekki taki á. í fljótu bragði séð hlýtur orðið höggvarar að vera höggvari í ein- tölu og þýða eitthvað sem ver fyr- ir höggi. Það passar sæmilega við að þeir séu vatnsmiklir. Sé miðað við næstu línu þar sem myndir eiga að streyma úr grjótinu virðist höggvari hins vegar vera einhver sem heggur eða eitthvað sem höggvið er með. Svipað er að segja um það þegar þungt grjót lyftist og spegl- ast. Hér er blandað saman snert- ingu (sem er nauðsynleg til þess Þórunn Valdimarsdóttir að finna hvort grjótið er þungt) og sjónrænni skynjun. Auðvitað er enginn að segja að það sé bannað en það er ekki líklegt til að heppnast vel. Að vísu segir annars staðar í þessari ágætu ljóðabók: „skilningarvitin sex uxu að næturlagi með hjálp himinljósa “ Ekkert veit ég um þátt himin- Ijósa í vexti skilningarvitanna enda em mín skilningarvit ekki nema fimm og mig gmnar að fleiri búi við svo þröngan kost. „Lagarfljótsormurinn finnur sig knúinn til að reka augað langt upp úr fljótinu “ og stuttu seinna horfir skáldið svo stíft á veginn upp fjallið að það sér sjálft sig: „ riða upp eftir honum á stór um pelíkana “ Þá má í þessu sambandi einn- ig nefna ljóðið: Passía móður þar sem: „... einn af öðrum rísa upp kiwifuglar á skósvertudós með laskaða vængi kæla brjóstið og svipast um eftir œti" I kvæðinu: Fuglar og tré er myndmál nokkuð með öðrum hætti. Þar segir frá tímanum sem: „...kemur úr geimnum í voð agusum hellist grimmtyfir lönd hrærir i fuglum og þeirra innsta blóði með tætaranum Þingeyingum og negrahöfð ingjum “ p.s.frv. I þessu dæmi er allt óhlut- bundnara. Lesanda er gert að átta sig á því hvert er „innsta blóð“ Nú er kalfr i kiallaranum Steinar Sigurjónsson Kjallarinn Forlagið 1991. Davíð heitir sá sem sagan er um og við vitum fátt um hann, nema hann var í skemmtana- bransa, hann drakk, hann var einn, konur girnast hann enn (það finnst honum óþægilegt), einhver kunningi úti í löndum heldur að hann hafi höndlað hamingjuna. Sem er mesti mis- skilningur: Líf Davíðs er volaðs vera. Hann býr í húsi (í „kassa“ sem er eins og aðrir kassar eins og segir í frægum vísum frá mótmælaskeiði unglinganna) og þó einkum í kjallaranum. Kjallarinn geymir eitthvert drasl úr Ieikhúsi lífsins, en fyrst og síðast er hann heimil- isfang fyrir undirvitundina. Þar vill Davíð helst halda sig og hugsa um tilgang lífsins og þang- að sækir á hann kvenfólk úr sam- tíðinni og minningar allskonar sem taka hoid og verða illskeyttir draugar og pína hann og plaga. A einum stað er spurt að því hvort það sé nokkur munur „á manni sjálfum og þeim sem eru að þvæl- ast um í sálarfylgsnum manns statt og stöðugt“. Og á öðrum Steinar Sigurjónsson stað (og er þá mjög af Dabba dregið) segir sem svo: „Það mæðir alltaf á manni þetta eina og sama vandamál, kvað er maður sjálfur og kvað er hugur manns, hugsaði hann. Kvað er hugurinn í raun og veru og kvað er maður sjálfur? Hann var jafnan skelfingu lostinn þegar hann fór að velta því fyrir sér, en komst samt aldrei burt frá því. Hann velti því kvað eftir annað fyrir sér kvort hugsunum hans væri ætlað að sitja um hann og ef til vill koma honum fyrir kattar- nef.“ Þetta er það höfuðtema sem draugagangur í kjallara bókarinn- ar snýst um. Þar verða ýmisleg tíðindi fáránleg og skuggaleg sem ekki verða rakin hér. Sumpart er draugagangurinn í sálinni næsta hefðbundinn, efsvo má segja: rottur, pöddur,leðurblökur, lík- kistur, kirkjugarðar. Einhver mundi segja: séð hefur maður annað eins. I annan stað getur það taflð fyrir lesandanum, hve lítið hann hefur til að styðjast við úr hinu „opinbera“ lifi Davíðs, þegar hann er á flakki með honum um skúmaskotin í kjallamum. Og má þar um vitna til viðvörunarorða í sögunni sjálfri: „En þótt hugsunin sé að öllu jöfnu fleyg, þarf hún eittkvað til að styðjast við, því annars fer hún að snúast í kring- um sjálfa sig og verður um megn að standast.“ En á móti kemur svo sérstæð- ur og undirfurðulegur stíll Stein- ars sem nær sér oftar en ekki vel á strik við að miðla þeirri kennd sem áðan var kölluð volaðs vera: þú ert einn og þýðingarlaus og lífið gekk fram hjá þér: „Það sem sárast er er það að þú skulir ekki fá að lifa. Að þú skulir aldrei hafa Árni Bergmann skrifar lifað! Og brátt fer yfir bein þín að gróa. Grasið vex. Það heldur sér bráðum ekki uppréttu. Þvilík er gróskan, slíkt er lífið. Það vex eins og takmarkalaus hugsun um ekki neitt.“ Þessi kennd er þama með ýmsum tilbrigðum og einnig ein- hver merkilegur ofsi sem beinist gegn henni og kviknar af þessu orðalíf sem verður undarlega áleitið þegar best lætur: „Nú byij- ar sálarstormurinn að brjótast gegnum mig svo ég linni ekki lát- um fyrr en ég flæmi storminn úr mér í einkvem annan...“ Brotunum raðað saman Brot (Shattered) sýnd í Laugarásbíó. Það eru stór nöfn sem standa að baki spennumynd- inni Brot. Hinn þýski Wolf- gang Pettersen leikstýrir, og hann hefur fengið í lið með sér einvalalið leikara. Það er skemmst frá því að segja að útkoman er mjög viðunandi, og myndin kemst í flokk betri spennumynda síðustu ára. Myndin segir frá arkitektin- um Dan Merrick, leiknum af Tom Berenger, sem lendir i al- varlegu umferðarslysi, og missir við það minnið. Eiginkona hans, sem Greta Scacchi leikur, hjálp- ar honum við það að ná sér eftir slysið, ogí sameiningu reyna þau að hressa upp á gloppótt minni Dan. Dan fer fljótt að gruna að ekki sé allt með felldu í sam- bandi við bílslysið og aðdrag- anda þess. Hann ræður til sín einkaspæjara, sem Bob Hoskins leikur með tilþrifum, til þess að raða saman brotunum. Að sjlfsögðu kemur ýmislegt mis- jafnt upp á yfirborðið, meðan gott handritið vindur sig áfram á rökréttan hátt. Það er fyrst og fremst mjög fagmannlegt handrit, og hand- bragð leikstjórans sem gera Brot að eftirminnilegri mynd. Stíl- brögð Pettersens minna að sumu leyti á Alfred Hitchcock, og myndin minnur um margt á Spellbound, eina af bestu mynd- um Hitchcock, þar sem minnis- leysi var eitt meginþemað svip- að og í Brotum. Urvalsleikarar eru í öllum aðalhlutverkunum. Tom Beren- ger fær líklega minnst bitastæða hlutverkið, og leikur hans er ekki tilþrifamikill, en hann er samt traustur. Greta Scacchi er mjög góð í hlutverki eiginkonu arkitektsins minnislausa, og er ég viss um að innan nokkura ára á hún eftir að teljast til stærstu stjamanna í Hollywood. Bob Hoskins fer létt með hlutverk gæludýrasalans sem stundar spæjarastörf í hjáverkum, en manni finnst að það sé tími til kominn að hann fari að leika stærri og viðameiri hlutverk heldur en hann hefur gert síðan hann sló í gegn í Monu Lisu um árið. Joanne Whalley- Kilmer og Corbin Bemsen standa sig ágæt- lega í litlum hlutverkum sínum sem vinafólk Merrick hjónanna. Árni Kristjánsson NÝTT HELGARBLAÐ 6 FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.