Þjóðviljinn - 01.11.1991, Qupperneq 10
Arna Mer,
kennari oq
baráttukona
frá ísrael,
segir frá
starfi sínu
meðal
palestínskra
barna
Réttlæting almenn-
ings í ísrael á mis-
þyrmingu og mann-
réttindabrotum á
palestínskum börn-
um felst í þeirri rök-
semdafærslu að
arabískir foreldrar
séu annarrar gerðar
en venjulegir for-
eldrar, huglausir og
hirðulausir um böm
sín og skýli sér á
bak við þau. Börnin
séu því ekki fórnar-
lömb hersins held-
ur foreldranna.
Þessi skýring, sem
á sér djúpar rætur
jafnt meðal al-
mennings og
menntamanna í
ísrael, byggir á
þeirri grundvallar-
hugmynd að arab-
ar og sérstaklega
Palestínuarabar
séu af annarri og
óæðri gerð en
venjulegt fólk.
Þetta sagði Ama Mcr, ísraelskur
kennari og móðir þriggja bama og
baráttukona frá Haifa, í samtali við
Nýtt Helgarblað. Hún er hingað
komin í boði Kennarasambands ís-
lands, Fóstrufélagsins, samtakanna
Bamaheilj, Sálfræðingafélagsins og
félagsins Island Palestína.
Ama Mer er kona á miðjum
aldri og segist hafa starfað sem sér-
kennari og við listlækningar á
bamasjúkrahúsi í Haifa áður en hún
hóf að starfa með palestínskum
bömum á herteknu svæðunum á
Vesturbakkanum. í fyrstu var starfið
með palestínsku börnunum auka-
starf og framlag Ömu til ísraelsku
friðarhreyfingarinnar, en hún segir
að smám saman hafi þetta aukastarf
orðið svo umfangsmikið að hún hafi
orðið að fóma sínu fyrra starfi, þótt
hún haldi ennþá fyrirlestra við lista-
skólann í Haifa.
- í hverju er starf þitt fólgið og
hvers vegna er það svo nauðsyn-
legt að þú hafir fórnað þinu fyrra
starfi fyrir það?
- Bömin em meirihluti Palest-
ínumanna á herteknu svæðunum, og
þau em líka helstu fómarlömb her-
námsins. Þau hafa gífurlega þörf fyr-
ir stuðning, og þá á ég ekki við íjár-
hagslegan stuðning fyrst og fremst,
heldur tilfinningalegan stuðning og
stuðning við að endurheimta svolítið
af þeirri bemsku sem hefur verið
rænt frá þeim. Það þarf líka að
hjálpa þeim við að bæta þann skaða
sem lokun skólanna hefur haft í for
með sér. Það er ekki bara að palest-
ínsku bömin hafi verið rænd
bemsku sinni, þau hafa heldur ekki
nokkra von um að ráða fram úr
vandamálum sínum og skapa sér
ffamtíð á eigin spýtur - af því að þau
em böm og af því að það hefur kerf-
Arna Mer: Al7
menningur í ísra-
el hefur talið sér
trú um að arabísk
móðir sé annarr-
ar gerðar og hafi
aðrar tilfinningar
gagnvart barni
sínu en aðrar
mœður.
Mynd: Kristinn.
Palestínu
andspænis
ísraelska dekurbarninu
isbundið verið reynt að ræna þau því
þekkingarvopni sem dugar, því ein-
falda atriði að að kunna að lesa og
skrifa.
Lokun skólanna hefur aukið á
þann skaða sem ofbeldi hemáms-
liðsins hefur valdið með morðum,
barsmíðum, misþyrmingum og árás-
um á íjölskyldur og eyðileggingu
heimila.
Andspænis þessum vanda var
stofnaður sérstakur hópur innan ísra-
elsku friðarhreyfingarinnar til vamar
bömum undir hemámi. Síðustu 3-4
árin höfum við ákveðið að einbeita
okkur að þessu einá verkefni. Þetta
er margþætt, fjölbreytt og skapandi
starf, en um leið mjög krefjandi.
- Hafið þið fengið að ástunda
það óáreitt af ísraelskum stjórn-
völdum?
- Ef við berum okkur saman við
þann þrýsting og það daglega of-
beldi sem íbúar hersetnu svæðanna
búa við, þá erum við óáreitt í okkar
starfi. E_n það er heldur ekki rétt að
svo sé. Ég er nýkomin frá réttarhöld-
um í Jerúsalem, þar sem ég var
ákærð fyrir að taka þátt í mótmaíla-
göngu gegn hemáminu í Ramallah.
Slík réttarhöld hef ég upplifað þrisv-
ar, einnig fyrir þátttöku í mótmæla-
fundi í Tel Aviv. En þegar við erum
tekin á herteknu svæðunum þá eru
yftrheyrslumar lengri, og þá hafa
hemaðaryfirvöldin í hótunum við
okkur. Þeir segja að arabamir muni
drepa okkur því að þeir drepi gyð-
inga og þeir segjast vilja senda her-
inn með okkur til þess að kenna pal-
estínsku bömunum. Og þeir gera
þetta ekki bara undir yfirheyrslun-
um, heldur stöðva þeir okkur oft á
götum úti og halda slíka fyrirlestra
yfir okkur.
Þeir hafa líka aðrar aðferðir til
þess að hindra starf okkar: þeir lýsa
svæðið þar sem við störfum sem
hemaðarlegt svæði og þá er okkur
skipað að yftrgefa svæðið. Nýlega
opnuðum við nýja bamamiðstöð í
einum flóttamannabúðunum. Það
kom fjöldi foreldra og einnig blaða-
menn, en 5 mínútum eflir opnunina
kom herinn og sagði: þetta er lokað
svæði, allir útlendingar verða að fara
burt. Og þeir tóku 20 manns og
fluttu á næstu herstöð.
Engu að síður emm við Israelar
forréttindafólk í Israel, og þessi for-
réttindi gera okkur kleift að gera
hluti sem Palestínumennimir geta
ekki gert.
Til dæmis störfuðum við fýrst í
einu íbúðarhverfi með tugum bama.
Ef Palestínumaður er uppvís að því
að hafa tug bama i kringum sig fyrir
utan skólalóð á hann á hættu eins til
tveggja ára fangelsi og missi allra
réttinda. Og sjáist hann með pensil í
hendi á hann allt eins von á því að
verða ákærður fyrir vopnaburð.
Kennari sem lendir í fangelsi í 24
klst. missir sjálfkrafa öll starfsrétt-
indi. Og kennari má ekki koma með
önnur kennsiugögn í skólann en þau,
sem samþykkt hafa verið sérstaklega
af hemaðaryfirvöldum. Þessar að-
stæður urðu meðal annars til þess að
við fómm að einbeita okkur að starfi
með palestínskum bömum. Bömin
hafa óendanlega þörf fyrir hjálp, og
Palestínumönnum er fyrirmunað að
veita hana. Þelta starf okkar er bara
einn liður í starfi friðarhreyfingar-
innar sem miðar að því að aflétta
hernáminu, stöðva ofbeldið og
mannréttindabrotin. Starf okkar er
því liður í aimennri mannréttinda-
baráttu.
- Eru skólarnir starfandi nú á
hernumdu svæöunum?
- Já, í fyrsta skiptið frá því að
skólunum var lokað fyrir þrem og
hálfu ári síðan hafa skólamir á her-
numdu svæðunum starfað óslitið frá
september síðastliðnum. Það er sigur
sem við þökkum alþjóðlegum þrýst-
ingi. Skólamir voru formlega opnað-
ir í fyrra, en þá beitti herstjómin öðr-
um aðferðum til þess að hindra
skólastarfið. Einstökum skólum var
lokað í refsingarskyni í 3-5 daga í
einu, þannig að þegar upp var staðið
fengu böm á hemámssvæðinu ekki
nema tvo og hálfan mánuð í skóla-
göngu í fyrra. Það þýðir að ekkert
varð úr námi. Nú leggja Palestínu-
menn mikla áherslu á að fá að halda
skólunum opnum.
- Hversu margir ísraelar taka
þátt í starfi eins og þessu meðal
palestínskra barna?
— Ég veit það ekki nákvæmlega,
en þeir em því miður ekki margir.
Ég gæti trúað að við værum 15 tals-
ins. Þar sem ég starfa höfum við
bara 2-3 bamamiðstöðvar. Þær
þyrftu að skipta hundruðum. Okkur
vantar bæði fé og sérhæfl fólk. Við
vinnum hins vegar mikið með pal-
estínskum konum.
- Hvers vegna eruð þið ekki
fleiri en 15. Veit almenningur í
ísrael ekki um þörfina fyrir þetta
starf? Er það rétt sem heyrst hef-
ur að almenningur í Israel loki sig
frá þeim veruleika sem ríkir á
Vesturbakkanum og viti ekki af
því ofbeldi sem viðgengst í næsta
nágrenni?
- Þetta er erfið spuming, og
henni er ekki hægt að svara án þess
að líta á deiluna á rnilli araba og
ísraelsmanna í heild. En eitt get ég
sagt þér: almenningur í Israel veit
vel af þeim aðstæðum sem palest-
ínsk böm búa við. Því hann á beina
aðild að ofbeldinu. Það er hægt að
sýna fram á það tölfræðilega. Svo ég
takmarki mig við svæðið þar sem ég
vinn, þá hefur könnun leitt í ljós að
52% bama á skólaskyldualdri hefur
orðið fýrir ofbeldi hermanna. Af
þessum rúma helming allra bama á
svæðinu hefur 80% verið misþyrmt
með barsmíðum. Hin hafa fengið að
kenna á eiturgasi og byssukúlum.
Hér em ekki talin þau sem hafa ver-
ið drepin eða sitja í fangelsum. Ef
svo mörgum bömum hefúr verið
misþyrmt, þá hefur þurfi til þess
mikinn fjölda hermanna. Hverjir em
þessir hennenn? Þeir em unga kyn-
slóðin í Israel sem er að taka við
landinu. Það ríkir almenn herskylda
í landinu, og þar er enginn undan-
skilinn. Þetta unga fólk á sér sínar
fjölskyldur og ættingja, og það getur
enginn þaldið því fram að almenn-
ingur í ísrael viti ekki af því ofbeldi
og þeim mannréttindabrotum, sem
þar em framin daglega á paiestínsk-
um bömum. Fólk er kannski ekki til-
búið að lýsa ánægju sinni þegar 8-9
ára bam hefur verið limlest með bar-
smíð. En þegar gengið er á það er
stutt í réttlætinguna. Fólk segir sem
svo: Veist þú ekki að palestínskir
foreldrar fela sig á bak við böm sín
og senda þau út á götuna til þess að
kasta gijóti. Þessi böm em fómar-
lömb foreldra sinna. Hvað eiga her-
mennimir að gera?
Ég get sagt þér dæmi af þessu.
Ég var _stödd á stóm kennaranám-
skeiði í ísrael, þar sem þessi skoðun
var orðuð af kennurum, og ég spurð,
hvemig ég gæti áfellst hermennina,
þar sem bömin ættu upptökin og
köstuðu grjóti á meðan foreldramir
feli sig heima. Þessi hugsun felur í
sér þá gmndvailarhugsun, sem skot-
ið hefur djúpum rótum i vitund al-
mennings jafnt og menntamanna í
ísrael, að arabísk móðir sé í gmnd-
vallaratriðum öðruvísi en aðrar
mæður og beri annan hug til bama
sinna. Og sömuleiðis að arabískur
faðir sé öðmvisi en aðrir feður. Þessi
grundvallarhugsun verður að réttlæt-
ingu fýrir þeim mannréttindabrotum
og þeirri ómennsku sem ástunduð er
af hemámsliðinu með vitund og
vilja þorra ísraelsku þjóðarinnar.
- Þú minntist áðan á fangelsuð
börn. Hefur þú upplýsingar um
hversu mörg börn sitji í ísraelsk-
um fangelsum?
- Nei, ég get ekki nefnt neina
heildartölu. En í könnun sem við
gerðum í tveim gagnfræðaskólum
kom í ljós að í 11. og 12. bekk vom
57 nemendur í fangelsi, sumir
dæmdir í Iífstíðarfangelsi fyrir að
kasta eldsprengjum eða drepa þá
sem vinna með hemaðaryfirvöldun-
um. Sum þessara bama sitja í her-
fangelsum. Þar gildir sú regla að
þeim er bannað að lesa bækur. Þau
vom þó ekki dæmd til ólæsis. Heim-
ili þeirra hafa líka verið lögð í rúst
án þess að dómur þar að lútandi hafi
verið felldur. Það er meðal annars
krafa okkar að fangelsuð böm hafi
rétt til náms.
- En hversu útbreidd er and-
staðan gegn þessum mannrétt-
indábrotum í ísrael? Ekki eruð
þið bara 15 talsins?
- Nei, sem betur fer er líka til
fólk í Israel sem berst fýrir mann-
réttindum. Ég minntist á að við vær-
um 15 sem ynnum með palestínsk-
um bömum. En það er bara hluti af
mannréttindabaráttunni í Israel. Aðr-
ir starfa í kvennahópum, meðal
menntamanna, í friðarhreyfingunni
o.s.frv. En það er engu að síður stað-
reynd, að þessi hópur er hlutfallslega
mjög fámennur.
- Nýlegur fjöldafundur í ísrael
til stuðnings friði sýndi þó tals-
verða þátttöku, er ekki svo?
- Það er ekki hægt að halda því
fram að þessi fúndur hafi verið íjöl-
mennur miðað við tilefnið. Hann var
auðvitað mikilvægur, en hann var
tiltölulega fámennur vegna þess að
andrúmsloftið í Israel er allt til
hægri. Israelar vita vel að friður er
ekki mögulegur nema með því að
yfirgefa herteknu svæðin, og þegar
minnst er á að skila landi er allur
stuðningur við frið fljótur að gufa
upp í Israel. Til dæmis sýndi nýleg
skoðanakönnun að 80% íbúa ísraels
væri hlynntur sjálfsstjóm Palestínu-
manna, en aðeins 30% af sama úr-
taki vildi gefa eftir þumlung af her-
teknu landi. Þetta er það sem Sharon
sagði þegar hann talaði um að hann
styddi það að Palestínumenn mynd-
uðu sjálfstætt ríki - í Jórdaníu!
Það getur verið dásamlegt að
tala um frelsið og hið mannlega gildi
þess, en að það eigi að gilda fýrir
aðra nær ekki inn fyrir höfuðskeljar
þessara manna. Þetta er dapurleg
staðreynd sem við verðum að horf-
ast i augu við.
Það verður enginn friður á með-
an fólk lærir ekki að lifa saman, og
það verður enginn friður fýrr en ísra-
elska þjóðin lærir að skilja að hún á
ekki annarra kosta völ en að lifa
með Palestínumönnum. Þetta er
staðreynd sem við þurfum ekki að
kenna Palestínumönnum, þvi þeir
hafa þegar fengið að upplifa það á
eigin skinni. Því er meginverkefnið
sem vinna þarf á hinu pólitíska sviði
innan ísraels.
- Hefur þú trú á að ráðstefnan
Madrid muni hafa áhrif á al-
nningsálitið í Israel?
- Hið jákvæða við ráðstefnuna í
Madrid felst í því að þar verða mál-
L
skotin eða bar
var Rasha Hs
nu Jenin á Vesturbakkanum. Þc
stóð hún uppi f sófa heima hjá sér ásamt
um bróður slnum og horfði á hermenn eitast við
endur úti á götunni. Mótmælendurnir sluppu og herr
ir stöðvuðu leikinn um 45 m frá heimili þeirra. Ibrahim,
ir stúlkunnar, sá hermann beina byssu að húsi þeirra og
þau flýttu sér að loka gluggahlerunum. Rasha hélt áfram að
horfa út á milli rifanna á hlerunum þrátt fyrir aðvörunarorð
bróður síns. Ibrahim gekk þá að glugganum og horfði út og
sá að hermaður miöaði að glugganum og síðan reið skotið
af. Systir hans féll afturfyrir sig. Hún hafði fengiö skot í enn-
ið, höfuðskelin hafði sundrast og heilasletturnar voru út um
allt. Það náðist ekki f sjúkrabíl. Læknarnir á sjúkrahúsinu
gerðu ekki annað en að staðfesta lát stúlkunnar. Foreldrarn-
ir þurftu að smygla líki dóttur sinnar út af sjúkrahúsinu til
þess að það lenti ekki f höndum hersins. Herinn kastaði
táragasi að syrgjendum sem safnast höfðu saman á heimili
stúlkunnar. Hún var grafin með leynd í kirkjugarðinum.
Ein af 159 börnum á fýrstu 30 mánuðum intifödunnar.
efnin lögð á borðið og þar munu hin
andstæðu sjónarmið skýrast.
Stundum getur það hleypt hrær-
ingum af stað að skýra sjónarmið.
Fólk mun skiptast í hópa og sá
þrýstingur sem er í gangi verður
augljósari. Þetta mun hleypa af stað
opinni umræðu í ísrael, og það er
bæði mikilvægt og jákvætt. En ég er
ekki trúuð á að ráðstefnan ein og sér
muni hafa í for með sér róttækar
breytingar i ísrael.
Þar þarf annað og meira að koma
til. Það þarf víðtækan alþjóðlegan
þrýsting, sem er ekki hemaðarlegs
eðlis, heldur siðferðilegs. Það þarf
að afhjúpa raunverulega stefnu og
afstöðu Israelsríkis með öðrum hætti
en verið hefúr. Til skamms tíma hef-
ur Israel verið meðhöndlað eins og
ofdekrað bam í samfélagi þjóðanna.
Allt framferði þess hefur verið af-
sakað, ekki af vanþekkingu, heldur í
krafli þess valdajafnvægis sem ríkti í
heiminum.
Nú upplifum við nýja tíma, bæði
sögulega og persónulega séð. Og ég
geri mér vonir um að þessu dekur-
bami verði ekki lengur látið líðast að
halda uppteknum hætti, því það er
ekki bam lengur og það er kominn
tími til þess að það taki ábyrgð á
gerðum sínum og glæpaverkum. Ef
því verður fyrirgefið enn sem fyrr
mun framtíðin bera í skauti sér mik-
ið blóðbað.
Astæða þess að ég lagði á mig
langt ferðalag hingað til Islands er
sú að ég hef þá trú að einr.ig lítið
land eins og Island geti lagt mikil-
vægt lóð á vogarskálamar i krafti
þeirra lýðræðislegu hefða sem hér
ríkja. Það lóð þarf að afhjúpa stefnu
ísraelskra stjómvalda og þá mann-
réttindaskerðingu sem í henni er
fólgin, og það lóð þarf að virka sem
stuðningur fyrir þá sem hefur verið
brotið á, sem er palestínska þjóðin
og palestínsk böm sérstaklega. Það
hvílir mikil ábyrgð á samfélagi þjóð-
anna við lausn þessa vanda. Það var
það sem skapaði vandann, og það
ber einnig ábyrgð á Iausn hans.
-ólg.
Friðarákall
Palestínumanna
Eftirfarandi texti er hluti
af tilfinningaþrungnu 30 mín-
útna ávarpi Haidar Abdel-
Shafi, talsmanns samninga-
nefndar Palestínumanna við
samningaborðið í Madrid í
gær. Abdel-Shafi er 72 ára
læknir frá Caza-svæðinu og
hefur tvisvar mátt þola að
vera gerð brottræk af svæðinu
fyrir andóf gegn hernáminu.
Við emm komin hingað frá
þrautpíndu landi og stoltri þjóð í
fjötrum, beðin að semja við þá
sem hafa hemumið okkur. Við
skildum eftir heima böm inti-
fodunnar og þjóð undir hemámi
og útgöngubanni, sem ákallar
okkur að gefast hvorki upp né
gleyma. A meðan við tölum
taka þúsundir bræðra okkar og
systra út þjáningar sínar í fang-
elsum ísraels og fangabúðum.
Flestir fangaðir án ákæru eða
dóms, margir sárir af misþyrm-
ingum og pyntingum undir yfir-
heyrslum, sekir fyrir það eitt að
tala máli frelsisins eða storka
hernámsliðinu. Við tölum í
nafni þeirra og segjum: veitið
þeim frelsi.
A meðan við tölum líða tug-
þúsundir þeirra sem hafa hlotið
sár eða varanleg örkuml kvalir:
megj friður lækna sár þeirra.
A meðan við tölum fylgja
okkur augu þúsunda flótta-
manna og landrækra frá stríðinu
1967, því útlegðardómur er
þungur dómur: látið þá koma
heim. Þeir eiga rétt á að snúa
heim.
A meðan við tölum berg-
málar þögn rústaðra heimila um
þessa sali og í huga okkar: við
verðum að endurreisa hús okkar
i okkar frjálsa ríki.
Og hvað segjum við ástvin-
um þeirra sem féllu fyrir byssu-
kúlum hersins? Hvemig svörum
við óttafullum spurningum í
augum bama okkar? Því eitt af
hverjum þrem bömum undir
hemámi hefur beðið bana, verið
sært eða haldið í fangelsi á síð-
ustu fjómm ámm. Hvemig skýr-
um við það fyrir bömum okkar
að þau hafa verið svipt réttinum
til menntunar og skólum okkar
lokað af herstjórninni? Eða
hvers vegna líf þeirra sé í hættu
fýrir það eitt að reisa fána í
landi þar sem böm em drepin
og fangelsuð?
Hvaða sálumessu á að
syngja yfir þeim trjám sem upp-
rætt hafa verið með jarðýtum
hersins?
Og síðast en ekki síst, hver
getur skýrt fyrir þeim sem hefur
verið sviptur landi sínu og lind-
arvatni skilmála friðarins?
Fjarlægið gaddavírinn, skil-
ið landinu og Iifandi vatni þess.
Landnáminu verður að linna
nú. Það er ekki hægt að tala um
frið á meðan palestínskt land er
tekið eignamámi með ólíkum
ráðum og staða herteknu svæð-
anna ákveðin frá degi til dags
samkvæmt fyrirmælum ísra-
elskra gaddavírsgirðinga og
jarðýtna. Þetta er ekki bara
skoðun, þetta er óvefengjanleg-
ur vemleiki. Það er blekking að
tala um land íýrir frið þegar hin
opinbera stefna Israelsríkis i
framkvæmd er land fýrir ólög-
legt landnám. Landnámið verð-
ur að stöðva strax.
I nafni palestínsku þjóðar-
innar viljum við ávarpa ísra-
elsku þjóðina, sem við höfum
þjáðst með svo lengi: Við skul-
um heldur sameinast í voninni.
Við emm reiðubúin að lifa hlið
við hlið á landinu og loforðum
framtíðarinnar. En það að eiga
eitthvað sameiginlega krefst
þess að viðkomandi séu reiðu-
búnir að deila sem jafningjar.
Gagnkvæmni verður að koma í
stað yfirdrottnunar og ofbeldis
svo raunvemlegar sættir og
sambýli geti átt sér stað í sam-
ræmi við alþjóðalög. Öryggi
ykkar og okkar er jafn sam-
tvinnað og ótti og martraðir
bama okkar.
Við höfum séð sum ykkar í
sínu besta ljósi, og sum ykkar í
því versta, því sá sem hememur
þjóð getur ekkert falið fyrir hin-
um undirsetta. Við getum vimað
um þann toll sem hemámið hef-
ur kostað ykkur. Við höfum séð
ykkur örvænta vegna þeirrar
umbreytingar sem hefur breytt
sonum ykkar og dætmm í tæki
blinds og ofstopafulls hemáms -
og við emm þess fullviss að
aldrei var það ásetningur ykkar
að sjá böm ykkar í slíku hlut-
verki í stað þess að ryðja fram-
tíðinni braut. Við höfum séð
ykkur horfa aftur í djúpri sorg
yfir harmleik hins liðna og horfa
með hryllingi í afmyndað andlit
kúgarans sem breytist í fómar-
lamb. Það var ekki þetta sem
draumar ykkar og afkvæmi
stóðu til.
Þetta er ástæða þess að við
höfum tekið þeim ykkar opnum
örmum, sem komu til að hugga
þau okkar sem áttu um sárt að
binda, til þess að veita þeim
stuðning sem sáu heimili sín
lögð í rúsí, og til þess að veita
þeim hvatningu og hollráð sem
sitja innilokuð á bak við gadda-
vír og jámrimla. Við höfum
gengið saman, við höfum tekið
andköf saman undir táragasskýj-
um hemámsliðsins og öskrað
saman af sársauka undan kylf-
um hermannanna sem þyrma
hvorki Palestínumönnum né
Israelum. Því sársaukinn á sér
engin landamæri og enginn get-
ur krafist einokunarréttar á þján-
ingunni.
Einu sinni mynduðum við
keðju handabanda umhverfis
Jerúsalem með ákalli um frið.
Við skulum í dag mynda sið-
ferðilega keðju umhverfis
Madrid og halda áfram þeirri
göfugu leit að friði til handa
sonum okkar og dætmm. Við
skulum brjótast í gegnum hindr-
anir tortryggni og tilskipuðaðs
ótta. Við skulum horfa fram á
við af stórhug og með vonina að
leiðarljósi.
-ólg.
Haidar Abdel-Shafi talsmaður palestinsku sendinefndarinnar i Madrid
ásamt með Saeb Erekat nefndarmanni sem Israelar reyndu án árangurs
að útiloka úr nefndinni.
NÝTT HELGARBLAÐ 10 FÖSTUDAGUR l. NÓVEMBER 199J
NÝTT HELGARBLAÐ
1 1 FÖSTUDAGUR l. NÓVEMBER 1991