Þjóðviljinn - 01.11.1991, Blaðsíða 17
H e I garrúnturinn
Kór Langholtskirkju við œfingar á siðasta ári. Mynd: Kristinn.
Kantötur
eftir
Bach
á allra
heilagra-
messu
Kór Langholtskirkju efnir til
tónleika í Langholtskirkju á
allraheilagramessu á
sunnudag kl. 17. Á allra-
heilagramessu er þeirra
minnst sem látnir eru.
Kórinn syngur tvær
kantötur eftir J.S. Bach,
Kantötu nr. 21 „Ich hatte
vile Bekúmmemis" og nr.
131 „Aus der Tiefen rufe
ich, Herr zu dir“. Flytjendur
ásamt kómum eru sópran-
söngkonumar Harpa Harðar-
dóttir og Þóra Einarsdóttir,
Björk Jónsdóttir alt og ten-
órinn Þorgeir Andrésson auk
bassasöngvarans Ragnars
Davíðssonar. Kammersveit
Langholtskirkju tekur þátt í
flutningnum, en stjómandi
er Jón Stefánsson.
Sú hefð hefur skapast
undanfarin ár að skátar í
Reykjavík koma saman og
skemmta sér ærlega í
eina dagstund á haustin.
Hefur þessi dagur verið
nefndur Skátadagurinn (
Reykjavik.
Að þessu sinni verður
dagurinn á morgun og hefst
Tónleikamir em haldnir
á vegum Minningarsjóðs
Guðlaugar Bjargar Pálsdótt-
ur, sem var stofnaður af for-
eldrnrn hennar, þeim Olöfu
Karvelsdóttur og Páli Páls-
syni, en Guðlaug lést af slys-
lonim í Bolungarvík 1986.
Kórinn mun einnig flytja
kantötu nr. 131 ásamt ein-
söngvurum og hljómsveit
við guðsþjónustu fyrr sama
með setningu á Lækjartorgi
kl. 11.30. Á hádegi hefst
póstaleikur sem er fólginn í
því að skátaflokkamir
glíma við fjölbreytt verk-
efni sem dreift verður um
miðbæinn. Hinir hraustu
skátar munu meðal annars
slá upp tjöldum, reisa
trönubyggingar, dansa og
fara í athyglisleik.
dag, kl. 14. Prestur er séra
Flóki Kristinsson.
í lok guðsþjónustunnar
og á tónleikunum verður
tekið við framlögum til
sjóðsins, en hlutverk hans er
að styrkja og efla tónleika-
hald kórsins og kosta tónlist-
arflutning við almenna guðs-
þjónustu einu sinni á ári.
Eflir puðið og glensið
verða sjálfsagt allir orðnir
glorsoltnir og kl. 15 verður
slegið upp grillveislu í
Hljómskálagarðinum.
Þegar allir hafa tekið
hraustlega til matar síns
verður ljölmennt í Laugar-
dalshöllina þar sem Vinátta
1991 býður upp á skemmti-
dagskrá.
Kátt í
Kolaporti
Nú um helgina verður sölu-
básum í Kolaportinu fjölgað
úr 120 í 150. Hvem laugar-
dag og sunnudag er lif og
fjör í bílageymslu Seðla-
bankans og þar selja menn
drasl úr bílskúmum, gömul
föt, gamla lagera, ávexti, há-
karl og lakkrís, svo fátt eitt
sé nefnt.
Þeir sem lagt hafa leið
sína í portið hafa eflaust tekið
eftir líflegum listaverkum á
veggjum þess. Nú heíur enn
ein veggmynd bæst við. Þau
Freydís Kristjánsdóttir og
Halldór Baldursson hafa unn-
ið 40 fermetra mynd í nýrri
kaffistofú Kolaportsins.
Kaup og sala á gömlum
munum og nýjum hefst kl. 10
á laugardögum og klukku-
stund síðar á sunnudögum.
Fyrri daginn er opið til fjögur
en þann seinni til 17. Það
margborgar sig að koma
snemma til að næla sér í
besta góssið.
Úr myndheimi
Muggs
Frá því snemma í septem-
ber hefur staðið yfir sýning á
verkum Muggs í Listasafni
(slands.
Muggur er elskaður lista-
maður og því ekki að undra
að sýning á verkum hans hef-
ur hlotið góðar viðtökur og
um tuttugu þúsund manns
lagt leið sína í safhið. Nú fer
hver að verða síðastur að sjá
verk Muggs, því að sýning-
unni lýkur á sunnudag. I fyr-
irlestrarsal er jafhframt sýnd
litskyggnuröð um myndlist
Muggs sem gefur gott yfírlit
yfir listferil hans.
Listasafnið er opið alla
daga nema mánudaga ffá kl.
12-18.
Skótar dansa í miðbænum
Landslaq í olíu
í Hafnarborg
Katrin H. Agústsdóttir opn-
ar á morgun sýningu á olíu-
málverkum í Hafnarborg.
Við opnun sýningarinnar kl.
14 syngur kór Öldutúns-
skóla nokkur lög.
Katrin hefur fengist við
ffjálsa myndlist, sem og list-
hönnun ásamt eiginmanni
sínum Stefáni Halldórssyni.
Listakonan hóf feril sinn
með batíkvinnslu og hélt
sína fyrstu einkasýningu á
batíkmunum og verkum árið
1970.
Katrin hefur tekið þátt í
nokkrum samsýningum og
hlotið viðurkenningar fyrir
listhönnun. Á síðustu árum
hefur hún snúið sér að olíu-
málverkum og sýnir afrakst-
ur þeirrar vinnu.
Sýningin í Hafnarborg
stendur til 17. nóvember og
er opin alla daga nema
þriðjudaga frá kl. 12 til 18.
Stiklað á stóru
List í Gerðubergi
Menningarmiðstöðin Gerðuberg í Breiðholti eflist með
hverju árinu sem líður. Þangað er upplagt að fara og eyða
dágóðri stund við lestur listatímarita, kaffisötur eða ganga
um og njóta listaverka eftir þekkta og óþekkta listamenn.
Nú stendur yfir sýning á verkum barna sem tekið hafa þátt
í listasmiðjunni Gagn og gaman og senn fer að ijúka sýn-
ingu á grafíkverkum Sigurðar Guðmundssonar, sem eru í
eigu Reykjavíkurborgar. Flesta veggi Gerðubergs prýða
verk listamanna, m.a. verk Kjartans Ólasonar sem er
borgarlistamaður þessa árs. Þá má geta þess að á mánu-
dag koma heimspekingar í heimsókn í Breiöholtið og
ræða almenn hugtök sem alla varða og allir þekkja, en fáir
gefa sér tíma til að gaumgæfa.
Myndlistarrúnturinn
Halldóra Emilsdóttir sýnir verk sín í litla galleríinu við
Skólavöröustíg 4a, sem kallast Gallerí einn einn. Sýning
hennar stendur til miðvikudags og er opið daglega frá 14-
18. ( listmunasölunni Fold við Austurstræti stendur nú yfir
kynning á verkum Kjartans Guðjónssonar. Verk fleiri
þekktra myndlistarmanna eru þar einnig til sýnis. Natúra
Rómantíka Sigurðar Guðmundssonar stendur enn yfir á
Listasafni (slands. Eftir pistil Guðbergs Bergssonar í Litrófi
er upplagt að skella sér aftur og sjá öll verkin í nýju Ijósi. Á
Kjarvalsstöðum opna tveir listamenn sýningar á laugar-
dag, og eru þar engir aukvisar á ferð. ( austursal opnar
Gunnar Örn sýningu á málverkum, en í vestursainum opn-
ar fvar Valgarðsson höggmyndasýningu. Þá má ekki láta
hjá liða að minnnast á sýningu á Ijóðum Jóns úr Vör í
austurforsalnum, sem einnig opnar á morgun. Halldór Ás-
geirsson sýnir skúlptúra sem hann hefur unnið í rekavið í
öllum sölum Nýlistasafnsins, og stendur sú sýning til 10.
nóvember. ( Listasafni Sigurjóns Ólafssonar er farandsýn-
ingin rétt að hefjast, hún mun standa fram á vor. Safnið er
opið almenningi um helgarfrá kl. 14-17.
Hitt og þetta
Grænlendingar eru ekki af baki dottnir og um helgina
verður (slendingum boðið upp á grænlenskt rokk, meira
um það hjá doktor Gunna. Á sunnudag heldur Karsten
Sommer fyrirlestur um grænlenska samtímatónlist í fund-
arsal Norræna hússins, og hefst hann kl. 16. Kvikmynda-
sýningar fyrir börn eru fastur liður í Norræna húsinu. Á
sunnudag kl. 14 verða sýndar dönsku myndirnar Gullhjart-
að og Gull og grænir skógar. Guldhjertet er leikstýrt af
Bille August og segir myndin frá telpu sem fer í níræðisaf-
mæli langömmu sinnar. Guld og grönne skove er leikstýrt
af Anette Pilmark og segir þar af stúlku sem býr í regn-
skógum Costa Rica. Aðgangur að kvikmyndasýningunum
er ókeypis og öllum heimill.
Vart þarf lengur að minna á hressandi laugardags-
göngur Göngu- Hrólfa í Reykjavík og Hana-nú í Kópavogi.
Borgarbúarnir leggja af stað frá Risinu við Hverfisgötu, en
Kópavogshópurinn frá Fannborg 4. Báðir leggja þeir af
stað kl. 10 og væri án efa skemmtilegt ef þeir hittust einn
morguninn og örkuðu saman. Félag eldri borgara í
Reykjavík heldur dansleiki hvert einasta föstudagskvöld kl.
20 í Risinu og á sunnudagskvöldum í Goðheimum. Þá er
spiluð félagsvist í Risinu á laugardögum, og hefst spila-
mennskan kl. 14. Þá má ekki gleyma tilsögninni í dansin-
um sem fer fram sömu daga á sama stað, bæði kl. 14 og
15.30. Eldri borgarar í Kópavogi eru ekki síður dansglaðir,
og þeir dansa á föstudagskvöldum að Auðbrekku 25. Þá
dansa Strandamenn annað kvöld, en þá efnir átthagafélag
þeirra til danssamkomu í Domus Medica. Vanir menn
leika fyrir dansi og opnar húsið kl. 22.
Sonny Stitt
Sonny Stitt sits in with
the Oscar Peterson trio /
Verve 1991
Lög: 1 can 't give you anything
hut love / Au Privave / The
Gypsy /1 ’ll remember april /
Scrapple from the apple / Moten
Swing / Blues for Pres, Sweets,
Ben & all the other funky ones /
Easy does it /1 didn 't know
what time it was/1 remember
you /1 know that you know.
Flytjendur: Sonny Stitt altó og
tenórsaxófónn / Oscar Peterson
pianó / Ray Brown kontrabassi /
Herb Ellis gitar (9-11), Ed Thig-
pen trommur (1-8), Stan Levey
trommur (9-11).
Hljóðritað 18. maí 1959
(1-8) og 10. október 1957
(9-11)
Sonny Stitt fæddist
1924 og lést 1982. Saxófón-
still hans mótaðist mest af
þeim Lester Young og
Charlie Parker, ekki síst
hinum síðamefnda. Reynd-
ar var það mjög tíðkað um
miðja öldina að kalla hann
hinn nýja Parker og bera
hann saman við þennan
ffumherja bíboppsins. Stitt
þreyttist á þessum eilífa
samanburði og sagðist ekki
hafa sínar hugmyndir frá
Parker, þótt áþekkar væm,
hann hefði sjálfur komist að
þessum niðurstöðum. Sumir
djassfræðingar tóku þetta
gott og gilt, aðrir ekki, en
Kenny Clarke mun hafa lát-
ið svo um mælt að Stitt
hefði spilað sinn stíl þótt
Parker hefði aldrei fæðst.
Kenny Clarke var trommu-
leikari fýrstu kynslóðar bí-
boppsins, svo þetta er von-
andi rétt. Hitt er þó augljóst
að risið á bíboppbyltingunni
hefði orðið lægra en raun
bar vitni ef Sonny Stitt
hefði átt að veita henni for-
ystu í stað Parkers og oft
vitnar Stitt í hinn síðar-
nefhda.
Sá geisladiskur sem hér
er til umfjöllunar heitir
Sonny Stitt sits in with the
Oscar Peterson trio. „Sits
in“ þýðir á djassmáli að
koma upp á svið og djamma
með þeim sem þar em og
segir þetta hvers eðlis tón-
listin er, fátt um flóknar út-
setningar en sameiginlegrar
viðmiðunar leitað í fjársjóði
djassklassíkurinnar, jafnt
gamalla dægurlaga sem
Parkerstefja. Einkennis-
merki Stitt og Petersons em
hraðar hendur og skýr hugs-
un, en hvorugur telst til
brautryðjenda eða frumlegri
spilara djassins. Þeir bulla
sumsé ekki stjómlaust þótt
þeim sé laus höndin, en
stundum hlaðast klisjubúnt-
in svo hratt upp að mann
svimar. Fyrir kemur að hin
þindarlausa spilamennska
Stitts bitni á svingi heildar-
innar; ryþminn fær sjaldan
að anda eins og kallað er og
þagnir í saxófónspilinu eins
fáar og framast mátti kom-
ast af með. Meira að segja
Peterson virkar fremur fá-
orður í þessu kompaníi og
er þá nokkuð sagt. Triói
Óskars Peterson með þeim
Ed Thigpen og Ray Brown
lét best sú músík sem kalla
mátti nútímalegt sving, fá
bönd svínguðu klassískum
djasslögum af eldri gerð
jafn fágað og þétt og þetta
tríó. Og þegar það lék með
swingstjömum á borð við
Ben Webster eða söngvur-
um eins og Louis Arm-
strong og Ellu Fitzgerald,
þá var ekki völ á mikið
betra undirspili. En bíbopp-
ið var aldrei sterkasta hlið
þessa tríós. Ray Brown var
vissulega af þeirri kynslóð
og spilaði alls staðar rétt
hver sem stefnan var, en Ed
Thigpen var ekki jaxlinn til
að lemja áffarn mann eins
og Sonny Stitt sem sigldi á
sjálfstýringunni ef enginn
bankaði í hann. Og þótt
stundum komi laglegar
bopplínur hjá Peterson, þá
gat hans hljómræna hugsun
ekki ögrað blásara á borð
við Sonny Stitt sem kunni
alla orðabók bíboppsins ut-
anað. Engu að síður koma
þau augnablik að maður
hlustar gáttaður á þessa fyr-
irhafnarlausu mælskulist al-
tósaxófónsins, þó að músík-
lega séð bræðist kvartettinn
best saman í nokkmm með-
alhröðum svinglögum; Mo-
ten’s swing, Blues for Pres
og Easy does it. Þar er ten-
órsaxinn á ferðinni og
hljómar þægilega.
Þó að áhrif Parkers á
Sonny Stitt séu augljós á
þessum diski, þá verður
hann engan veginn ásakað-
ur um að vera einhver eftir-
hermulumma. Fingrafimin,
skýr hljómræn hugsun,
ryþmi og tónn gerðu hann
að einum af ffemstu blásur-
um boppsins að ffátöldum
Parker. Stitt var líka at-
vinnumaður
fram í fingur-
góma og spilaði
aldrei illa. Meðal
annars vegna
þess er þessi
geisladiskur
prýðilega áheyri-
legur hvað sem
ölíum aðfinnsl-
um líður. Og það
er lúmskt gaman
að hlusta á línur
Petersons á ung-
um aldri, stund-
um minnir hann
meira að segja
ótrúlega mikið á
einn fremsta pí-
anóleikara bí-
boppsins, Hamp-
ton Hawes, sem
stundum var
kallaður Parker
píanósins. En
það besta á þessu
diski er bassa-
leikur _ Ray
Brown. Óbilandi
svínghundur
mætti hann heita
í orðsins jákvæð-
ustu merkingu,
ffábær undirleik-
ari og ffjór sól-
isti sem í einum
punkti skákar al-
veg höfuðsólist-
unum tveimur;
þegar hann spilar
lokafrasana í
sólóum sínum þá
langar mann allt-
af i meira. Þessi
geisladiskur,
ásamt ýmsum
öðrum endurút-
gáfúm ffá Verve,
fæst í Japis,
Brautarholti 4.
'0
E
cö
O)
=3
JZ
c
0
0
>
C/D
NÝTT HELGARBLAÐ
17 FÖSTUDAGUR l.NÓVEMBER 1991