Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1995, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1995, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 Viðskipti Fjölmenn við- skiptanefnd á ráðstefnu í Múrmansk Þriggja daga fjárfestinga- og viðskiptaráðstefna hófst í Múr- mánsk í Rússlandi í gær. Þar eru staddir hátt 130 fulltrúar ís- lands úr röðum fyrirtækja, hags- munaaðila, Útflutningsráðs og sendiráðs íslands í Moskvu. Helgi Ágústsson ráðuneytis- stjóri, og Jón Ásbergsson, Út- flutningsráöi, fara fyrir íslensku viðskiptanefndinni. Þátttaka íslendinga á þessari ráðstefnu er til komin vegna boðs Andrei Kozyrevs, utanrík- isráðherra Rússlands, til Hall- dórs Ásgrímssonar og íslenskra viðskiptaaðila. Á ráðstefnunni gefst fulltrúum fyrirtækja kost- ur á að stofna til viðskiptasam- banda í sjávarútvegi, matvæla- framleiðslu og flutningum. Þetta er fjölmennasta viðskiptasendi- nefnd sem send hefur verið frá íslandi á ráðstefnu af þessu tagi erlendis. Finnur Ingólfsson kynnir sér nýsköpunarverkefni í skipa- iðnaði hjá Héðni hf. DV-mynd BG Nýsköpun í mjöl- og málmiðnaði Iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytið kynnti nýlega verkefni í nýsköpun í mjöl- og málmiðn- aði. Verkefnið er með svipuðu sniöi og „Skipaiðnaður ’94“ sem er u.þ.b. að ljúka. Tilgangur verkefnisins er að auka sam- keppnishæfni fiskimjölsiðnaðar og tækniþróun í málmiðnaði. Fyrirtækjum verður veitt fag- leg og fjárhagsleg aðstoð við vöruþróun og markaössókn. Iön- tæknistofnun mun veita faglegu aðstoðina en fjárhagsaðstoð verður í formi styrkja frá Iðn- þróunarsjóði og ráðuneytinu, þó ekki hærri en 1 milljón króna í hvert skipti. -bjb Litlar vaxtalækkanir hjá bönkum og sparisjóðum í dag: Verðbólgan er hærri en reiknað var með - segir aðstoðarbankastjóri í Landsbankanum Vaxtabreytingadagur er i dag, 1. nóvember, hjá bönkum og sparisjóð- um. Vegna vaxtalækkunar á hús- bréfum og öðrum ríkispappírum undanfarnar vikur áttu menn von á að bankamir lækkuðu vexti sína í dag. Um óverulegar breytingar er hins vegar að ræða sem lítil sem engin áhrif hafa á meðalvexti. Þann- ig breyttu sparisjóðirnir engu hjá sér. Búnaðarbankinn er með mestu sjáanlegu lækkunina. Hann lækkaði kjörvexti og hæstu vexti verð- tryggðra útlána um 0,25 prósentu- stig og verðtryggðra innlána um 0,10 prósentustig. Á útlánahliðinni hækkaði Lands- bankinn vexti afurðalána í dollur- um og pundum og hækkaði vexti nokkurra gjaldeyrisreikninga. Aðr- ar eru breytingarnar ekki i þeim banka. Brynjólfur Helgason aðstoðarbankastjóri sagði að vextir verðtryggðra útlána hefðu ekki ver- ið lækkaðir vegna þess að verðbólg- an væri hærri en reiknað var með. Það eina sem íslandsbanki gerir er að lækka vexti afurðalána í SDR- myntinni um 0,10 prósentustig og hækka innlánsvexti þriggja gjald- eyrisreikninga lítillega. Stefán Pálsson, bankastjóri í Bún- aðarbankanum, sagði við DV að vaxtalækkunin væri tilkomin vegna þróunar á fjármagnsmarkaði að undanfórnu, einkum á spariskír- teinum og húsbréfum. „Við breyttum okkar vöxtum eins fljótt og markaður sýndi okkur,“ sagði Stefán. -bjb Íslenskt-kínverskt viðskiptaráð var stofnað í Húsi verslunarinnar sl. föstudag. Ráðið var stofnað að tilhlutan Félags íslenskra stórkaupmanna og stofnfélagar eru þegar orðnir hátt í 90 talsins. Sigtryggur R. Eyþórsson í XCO hf. var kosinn formaöur ráðsins. Á myndinni spjalla Jón Ásbjörnsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, og Helgi Ágústsson, ráöuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, við Guo Haibin, fulltrúa frá Alheimsviðskiptaráði Kína, sem kom gagngert frá London til Islands vegna stofnunar viðskiptaráðsins. -bjb/DV-mynd S Hlutabréfaviðskipti hrundu Miðaö við undanfamar vikur má segja að hlutabréfaviðskipti í síð- ustu viku hafi hrunið. Viðskiptin námu aðeins 16,6 milljónum króna. Núna á mánudaginn hættust við viðskipti upp á rúmar 4 milljónir. Hlutabréfaverð fór þó hækkandi og náði þingvísitalan sögulegu há- marki sl. mánudag þegar hún fór í 1284 stig. Mest var keypt af bréfum Ár- mannsfells í síðustu viku, eða fyrir 6,5 milljónir. Næst á eftir komu við- skipti meö bréf íslandsbanka upp á 2,9 milljónir og Flugleiða upp á 2,5 milijónir. íslenski hlutabréfasjóður- inn var næstur meö 1,6 milljóna viö- skipti og eru þá upptalin þau hluta- félög sem voru með viðskipti upp á meira en 1 milljón í síðustu viku. Álverð á heimsmarkaði hefur sveiflast upp og niður undanfama daga. Staðgreiðsluverðið var 1647 dollarar tonnið i gærmorgun. Kop- arverð er veikt um þessar mundir og hefur það mikil áhrif á ál og aðr- ar hrávörur í stóriðju. Enn hækkar gámaþorskur Einn togari landaði í Bremer- haven í síðustu viku. Viðey RE seldi 148 tonn fyrir 17,1 milljón króna mánudaginn 23. október. í gámasölu í Englandi seldust 156 tonn fyrir 26 milljónir. Verð fyrir þorsk í gáma- sölu hefur á þremur vikum hækkaö um nær 20 prósent. Meðalverðið í síðustu viku var 174 krónur kílóið. Dollar og pund hækkuðu í verði í síðustu viku en markið og jenið fóra niður á við. Sölugengi dollars var 64,69 í gærmorgun, pundið var 101,95 krónur, markið 45,87 krónur og jenið 0,6348 krónur. -bjb 3 milljarða vöruskipta- afgangur í september Útflutningur í septembermán- uði nam 10 milljörðum króna en verðmæti innflutnings nam 7 milljörðum. Þetta gerir 3 millj- arða króna vöruskiptaafgang sem er mjög svipuð niðurstaða og í sama mánuði í fyrra. Fyrstu níu mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 85,6 milljarða en inn fyrir 72,7 millj- arða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því hagstæður um 12,9 millj- arða. Eftir fyrstu níu mánuðina 1994 var afgangur af vöruskipt- um við útlönd 16,4 milljarðar. Fyrstu níu mánuði þessa árs jókst verðmæti vöruútflutnings um 5%. Munar þar öllu um auk- ið verðmæti kísiljáms um 32% og áls um 13% þar sem verð- mæti sjávarafurða, sem eru 74% alls útflutnings, minnkuðu um 1% á tímabilinu. Mannabreyt- ingar hjá IKEA Jóhannes Rúnar Jóhannesson hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Miklatorgs, rekstraraðila IKEA á íslandi, frá og með áramótum. Jóhannes tekur við af Gesti Hjaltasyni sem ráðinn hefur verið fram- kvæmdastjóri Hafnar-Þríhyrn- ings hf. frá sama tíma. Jóhannes hefur síöustu tvö ár veitt forstöðu innkaupa- og vörudreifingarfyrirtæki Hag- kaups og Bónuss, Baugi hf. Þar áður var hann innkaupastjóri matvörudeildar Hagkaups. Gest- ur hefur verið framkvæmda- stjóri IKEA frá árinu 1984. Áður starfaði hann hjá Hagkaupi frá árinu 1976. -bjb Hlutabréfí Suðurflugi til sölu Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum: Enn eru eftir hlutabréf í Suð urflugi hf. á Keflavíkurflugvelli að verðmæti 5,8 milljónir króna Á hluthafafundi í fyrra var sam þykkt að auka hlutafé um 8 milljónir og voru jafnframt keypt strax bréf fyrir 2,2 milljón- ir. Allir hluthafar hafa þegar af- salað sér afganginum og verða bréfin því seld almenningi. Verðmæti hvers bréfs er 125 þúsund krónur. Suðurflug á þrjár flugvélar og i smíðum er þjónustumiðstöð á Keflavíkur- flugvelli. Stærstu hluthafar eru Olíufélagið og Sandgerðisbær. Emil G. Einarsson og Kristinn Geirsson. Samskip kaupa tölvu af Nýherja Nýlega gerðu Samskip hf. samning við Nýherja um kaup á nýrri IBM AS/400 stórtölvu. Þessi kaup era einn liður í end- urskipulagningu á tölvuvæð- ingu Samskipa. Tölvan mun leysa af hólmi eldri vél- og hug- búnað fyrirtækisins. Meðfýlgj- andi mynd var tekin þegar geng- ið var frá kaupsamningi. Fyrir hönd Nýheija undirritaði Emil G. Einarsson deildarstjóri samn- inginn og fulltrúi Samskipa var Kristinn Geirsson, deildarstjóri hagdeildar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.