Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1995, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995
11
Hringiðan
Hoppkastalinn, sem DV-fólk á leið um landið hefur haft með sér og sett upp
á þeim stöðum þar sem afmælishátíðir blaðsins hafa verið haldnar, hefur
gert mikla lukku meðal yngstu kynslóðarinnar. Á Sauðárkróki, þar sem
þessi mynd var tekin, var mikill atgangur við hoppkastalann og krakkarn-
ir biðu í röð eftir að komast að. DV-myndir gk
Mikill fjöldi fólks mætti til afmælis-
hátíðar Dagblaðsins á Sauðárkróki
og þáði veitingar sem konur úr
Sambandi skagfirskra kvenna buðu
upp á af rausnarskap.
Þessi litla hnáta heiðraði Dagblaðs-
afmælið með nærveru sinni er af-
mælishátíð blaðsins var haldin á
Sauðárkróki og hún var alsæl með
pokann sem hún fékk frá blaðinu en
hann innihélt ýmislegt skemmtilegt
og gómsætt.
Það var ekki meira en svo að Alþýðuhúsið á Siglufirði rúmaði alla þá bæj-
arbúa sem mættu til 20 ára afmælisveislu Dagblaðsins þar í bænum og ein-
hver hafði á orði að hann hefði ekki gert sér grein fyrir því að svo margir
krakkar væru þar í bænum.
Siglfirsku krakkarnir voru leystir út með gjöfúm þegar haldið var upp á 20
ára afmæli Dagblaðsins þar í bænum og var oft mikill atgangur við borðið
þar sem DV-konumar afhentu krökkunum pokana sína sem innihéldu ýms-
an glaðning.
Leikur nr. 21 í Lengjunni: ísland - Rússiand
Þú velur hvaða úrsHtum þú spáir í þessum leik.
Stuðlamir sýna möguleikann á hverjum
úrshtum (1, X eða 2) á tölfræðilegan hátt.
Lægsti stuðullinn 1,60 táknar líklegustu úrslitin. En þú
getur valið að tippa á ólíklegri úrslit (ísland vinnur! Eða
jafntefli) og hækkað þannig upphæð vinningsins sem þú
færð ef spá þín reynist rétt!
STUÐLAR
Mið. 1/11 19:00
Mið. 1/11 20:00
Fim. 2/11 18:30
Ferencvaros - Real Madrid
ísland - Rússland
Club Brugge - Real Zarag'
4,25
3,10
1,45
1,60
2,90
Knatt
Hand
natt