Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1995, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
9
Flug SAS innan Skandinavíu
truflast vegna verkfalls
AFG311 203L Nettó H:140 B: 59,2 D: 60
AFG313 283L Nettó H:180 B: 59,2 D: 60
Whirlpool frystiskápar eru með læsingu á hurðum og aðvörunarbúnaði.
Verö: 59.900 kr
Verö; 64.900 kr
Verö: 68.900 kr
Hörð samkeppni er fram undan í erótiskum sjónvarpsútsendingum á Bret-
landi. Þessar stúlkur vinna við klámstööina Channel X og i gær mótmæltu
þær komu fimm „leikfanga“ til landsins að kynna Playboy-rásina sem hóf
útsendingar i gær. Símamynd Reuter “
Utlönd
Paula Barbieri
hætt með 0 J.
O.J. Simpson er búinn að glata
kærustunni. Tískusýningarstúlkan
Paula Barbieri, sem stóð við hlið
ruðningshetjunnar í gegnum þykkt
og þunnt við réttarhöldin undanfariö
ár, sagði í viðtah við ABC-sjónvarps-
stöðina bandarísku í gærkvöldi að
hún vildi taka það skýrt fram að nú
væri alit búið á milli hennar og Simp-
sons.
Barbieri sagði að Simpson hefði
hringt í sig svo til daglega á meðan
á réttarhöldunum stóð, beðist fyrir
með henni, grátið og lofað hátíðlega
að hann mundi láta af glyslífi sínu
ef hann yrði sýknaður af ákæru um
að hafa myrt fyrrum eiginkonu sína
og vin hennar.
„Þegar hann var í fangelsinu,
sagðst hann ekki mundu fara í sama
farveg aftur, að hann mundi lifa
kristilegra lífi," sagði Paula.
En loforðin fuku út í veður og vind
eftir að kviðdómurinn sýknaði Simp-
son. Barbieri sagðist hafa misst alla
trú á honum þegar hann fór sjálfur
að selja fiölmiðlum myndir af heim-
komu sinni.
„Þá áttaði ég mig á að hann mundi
aftur hverfa til fyrri lífshátta. Hann
ætlaði sér að lifa á sama hátt og hann
gerði," sagði Barbieri.
í viðtalinu kom fram að samband
Barbieri og Simpsons hefði valdið
miklu uppnámi í fiölskyldu hennar
og að hún talaði ekki lengur viö fóð-
ur sinn og bróður þar sem þeir hefðu
gert sér far um að auðgast á sam-
bandinu. „Pabbi minn, bróðir og
nokkrir nánir vinir... þeir voru
margir sem ollu mér vonbrigðum,"
sagði Paula Barbieri, fyrrum kær-
asta O.J. Simpsons.
Reuter
Nýtthneykslií
Noríegamálinu
Eitt af aðalvitnunum í máhnu
gegn Noriega hershöfðingja í Pan-
ama fékk yfir 80 milljónir króna
í mútur frá Cali-fíkniefnahringn-
um í Kólumbíu. Noriega var
dæmdur í 40 ára fangelsi í Miami
fyrir 3 árum fyrir að hafa leyft
Medellin-hringnum í Kólumbíu að
smygla fíkniefnum gegnum Pa-
nama til Bandaríkjanna.
Með dómnum yfir Noriega opn-
aðist leið fyrir Cali-hringinn inn á
bandaríska markaðinn.
Lögfræðingar Noriega eru ösku-
reiðir og telja að taka eigi málið
uppaðnýju. NTB
MEIRAPROF
Sigurðar Gíslasonar
kt\ij:iKii];<u!iMM»ii?iiiiiui
■ LEIGUBIFREIÐ <
• VÖRUBIFREIÐ •
• HÓPBIFREIÐ •
Skráning í símum:
581 1919 eða 852 4124
verðið í bænum!
Whirlpool gæða frystikistur
AFG015 130L Nettó H:88 B: 60 D: 66 Verð: 33.900 kr
AFG027 249L Nettó H:88 B: 95 D: 66 Verö: 38.900 kr
AFG033 307L Nettó H:88 B: 112 D: 66 Verö: 42.900 kr
AFG041 384L Nettó H:88 B: 134,5 D: 66 Verö: 47.900 kr
Whirlpool frystikistur eru með: læsingu á loki, Ijósi í loki, aðvörunarbúnaði.
Whirlpool gæða frystiskápar
AFG312 288L Nettó H:160 B: 59,2 D: 60 Verö: 64.900 kr
AFB410 130L Nettó H:85 B: 55 D: 60 Verö: 42.000 kr
Um 2.300 norskir og sænskir flug-
hðar hjá SAS hófu í morgun tveggja
daga verkfall eftir að samningavið-
ræður deiluaðila slitnuðu í nótt.
Verkfalhð hefur áhrif á ferðir SAS
milh Svíþjóðar, Noregs og Danmerk-
ur. FlUghðar hafa boðað til tveggja
daga verkfalla 9.-10. nóvember og
16.-17. nóvember hafi samningar
ekki náðst fyrir þann tíma.
Deilan snýst fyrst og fremst um
bætt vinnuskilyrði eins og hálftíma
matarhlé á hveijum degi og breyting-
ar á réttindum SAS til að færa til
starfsfólk. Segja flugliðar að tilfærsl-
umar leiði til að nú viti þeir ekki
hvenær þeir komi heim frá vinnu.
NTB
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboösmenn um land allt.
BESTU NAGLARNIR - EINGÖNGU HJÁ CONTINENTAL
Betra grip - minna veghljóð - minna malbiksslit.
Þetta er Continental - leiðandi í þróun léttari og vistvænni nagla. Úttektir
þekktra aðila, ss. norsku vegagerðarinnar, staðfesta að Continental
naglarnir draga úr sliti á malbiki um meira en 60%. Continental - einu
hjólbarðarnir sem eru sérhannaðir fyrir norrænar vetraraðstæður.
Nýjung