Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1995, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
Útlönd
Andaði köldu miUi forseta Bosníu, Króatíu og Serbíu á friðarfundi:
„Viö eigum aökallandi og mikil-
vægt verkefni fyrir höndum. Viö er-
um komnir hingað til aö gefa Bosníu
og Hersegóvínu tækifæri til að vera
friðsælt land en ekki blóövöllur,"
sagði Warren Christopher, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, við upp-
haf friðarviðræðna leiðtoga ríkja
fyrrum Júgóslavíu í gær. Viðræð-
umar fara fram í herstöð í Dayton í
Ohio.
Christopher útskýrði hvað væri í
húfi í þessari lokatilraun til að binda
enda á styrjaldarátökin sem hafa
orðið að minnsta kosti 200 þúsund
manns að bana í ríkjum fyrrum
Júgóslavíu og stökkt tveimur millj-
ónum manna á flótta frá heimilum
sínum.
Hann beindi orðum sínum til
þeirra Alijas Izetbegovics Bosníufor-
seta, Franjos Tudjmans Króatíufor-
seta og Slobodans Milosevics Serbíu-
forseta og sagði: „Það er á ykkar
valdi aö marka betri stefnu fyrir
framtíð þjóðanna í fyrmm Júgóslav-
íu.“
Andrúmsloftíð á fundarstað var
heldur kuldalegt þegar forsetamir
þrír og sendinefndir þeirra komu,
aðeins kinkað kolli í kurteisisskyni.
Það var ekki fyrr en Christopher
hafði eggjað forsetana að þeir tókust
Richard Holbrooke, aðalsamningamaður Bandaríkjanna í fyrrum Júgóslavíu, hvislar í eyra Warrens Christophers
utanríkisráðherra, enda ríkir fréttabann á samningafundunum. Simamynd Reuter
í hendur. ísinn var þó brotinn síðar
þegar forsetarnir fengu tækifæri til
að ræða óformlega saman.
Bandarískir embættismenn sögðu
að eftir viðræður við Christopher,
hefðu forsetar Króatíu og Serbíu fall-
ist á að koma á eðlilegum samskipt-
um milli ríkjanna til að leysa eina
deilumál þeirra, Austur-Slavóníu-
hérað í Króatíu sem er á valdi Serba.
Fréttabann er í gildi á samninga-
fundunumíOIÚO. Reuter
Tókust í hendur fyrir
áeggjan Christophers
Jeltsín heldur vlnnuíund:
Jabloko áfrýjar banni við framboði
Umbótaflokkurinn Jabloko í Rúss-
landi áfrýjaði í gær til hæstaréttar
úrskurði kjörstjómar um bann við
framboði. Allt þykir benda til þess
að hæstiréttur breyti úrskurðinum
og samþykki framboð flokksins til
þingkosninganna í desember.
Ákvörðun kjörstjómar sætti mikilli
gagnrýni og krafðist Jeltsín Rúss-
landsforseti skýringar.
Jabloko er stærsti fijálslyndi flokk-
urinn í Rússlandi með 27 þingsæti.
Flokksleiðtoginn, Grígorí Javlinskí,
sem vill verða næsti forseti Rúss-
lands, hefur gefið í skyn að íhaldsöfl
í Kreml hafi legið á bak viö ákvörðun
kjörstjómar.
í gær hélt Jeltsín fyrsta vinnufund
sinn eftir að hann lagðist inn á
sjúkrahús í síðustu viku. Ræddi
hann meðal annars utanríkismál við
einn helsta ráðgjafa sinn, Viktor Ilj-
úsjín.
TT, Reuter
Ekkieröllvon enn
útifyrir Uffe
Ekki er enn útilokað aö Ufie Elle-
mann-Jensen, fyrrum utanríkisráð-
herra Danmerkur, hreppi fram-
kvæmdastjórastólinn í Atlantshafs-
bandalaginu (NATO) þótt flestir hafi
verið búnir að afskrifa hann. Uffe
hefur verið boðaður til Bandaríkj-
anna til viðtals við Warren Christo-
pher utanríkisráðherra um framtíð
NATO.
Ruud Lubbers, fyrrum forsætis-
ráðherra Hollands og sá sem flestir
telja líklegastan eftirmann Willys
Claes, hefur einnig verið boðaður
vestur um haf. Frakkar, Bretar og
Þjóðveijar hafa lýst yfir stuöningi
sínum við Lubbers.
Uffe íhugaði að draga framboð sitt
til baka en hætti við. „Ruud Lubbers
hefur ekki formlega gefiö kost á sér
og að auki hefur utanríkisráðherra
Bandaríkjanna óskað eftir að ræða
við mig og hugsanlega aðra fram-
bjóðendur," sagði í fréttatilkynningu
fráUffe. Ritzau
Samhugur
Leggðu þitt al mörkuin
inn á bankarcikning nr.
1183-26'800
í Sparisjóði Önundaríjarðar
á Flateyri.
Hægl cr að lcggja inn á rcikningiim í öllum
bönkum, sparisjóöum og póstliúsum á laudinu.
Allir fjölniiðlar landsins. I'óstur op sími.
Hjálparstofnun kirkjunnar oj> Kauði kross íslands
LANDSSÖFNUN
VEGNA
NÁTTÚRUHAMFARA
Á FLATEYRI
Stuttarfréttir
Sprengja á internetmu
Kanadískur táningur smíðaði
sprengju, sem hugsanlega var
mannskæð, samkvæmt leiðbein-
ingum álntemetínu. Sérfræöing-
ar gerðu sprengjuna óvirka.
Sótt að Jaffna
Stjómarherinn á Sri Lanka var
í morgun rétt utan við Jaffna,
eitt helsta vigi skæruliða Tamíla.
Óttast herinn fyrirsát og efna-
vopn.
Maf iumorð á ítaiiu
Fimm menn voru skotnir til
bana í gærkvöldi á bar í bænum
Montebello Jonico á Suður-ítaliu.
Þykir líklegt aö um hafi verið að
ræöa uppgjör núlli mafíuhópa.
Öryggiábótavant
Tveir menn
komust fram
hjá öryggis-
kerfi við opin-
bera bústað
Johns Majors,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, og gátu
þeir valsað um húsiö. Annar
mannanna er blaöamaður hjá
Daily Mirror og komst hann inn
með byggingaverkamanni sem
ekki hafði skilað öryggispassa
sínum.
Rannsaka Nikuiás II.
Pinnskir réttarlæknar fá að
fara til Rússlands til að rannsaka
líkamsleifar Nikulásar II. Rúss-
landskeisara og fjöiskyldu hans
sem fundust fyrir fiórum árum.
Bandaríkingöbbuð
Njósnaskýrslur þær sem
bandaríska leyniþjónustan af-
henti bandarískum yfirvöldum
síðustu sjö ár kalda stríösins voru
unnar af sovéskum gagnnjósnur-
um.
Andvígir Bretadrottningu
Við fyrstu op-
inberu athöfn
Elísabetar
Bretadrottn-
ingar á Nýja-
Sjálandi í gær
kölluðu nokkr-
ir tugir frum-
byggja hana
blóðsugu og
sögðu henni að fara heim til Eng-
lands.
Hundruð Hútúa drepin
Borgarastríðið í Búrúndí hefur
brotist út að nýju. Saka stjóm-
völd Tútsa um að hafa drepið
hátt á þriðja hundrað Hútúa í
noröurhluta landsins.
Sprengjutiiræði á Gaza
Að minnsta kosti niu manns
særðust í þremur sprengjutilræð-
um á Gazasvæðinu í morgun.
Einn maður lést og hafði hann
verið með sprengju í bil sínum.
Ftýja fellibyl
Þúsundir Filippseyinga flúðu
heimili sín í morgun eftir að við-
vörun hafði verið gefin út um
fellibyl, þann öflugasta í áratug.
Samgöngur hafa þegar víða lam-
astvegnaílóða. Reuter.Ritzau
NAGLARNIF