Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1995, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
Fréttir
Efri hæð hússins eins og skæðadrífa:
Bækur og
leikföng
250 metra
frá grunn-
inum
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
„Ég er að finna hluti úr innbúi
okkar, svo sem bækur, barnaleik-
fong og fot, hérna um 250 metra frá
þeim stað þar sem húsið stóð. Það
hafði engum dottið í hug að í þessu
gæti falist slíkur ógnarkraftur," seg-
ir Steinar Guðmundsson, íbúi að Ól-
afstúni 2 á Flateyri, þar sem hann
var að leita að persónulegum eigum
sínum og annarra fjölskyldumeð-
lima við Tjamargötu, allt að þrjú
hundruð metra frá þeim stað þar
sem hús hans stóð við Ólafstún þeg-
ar snjóflóðið skall á því.
Hús Steinars og fjölskyldu var tví-
lyft einbýlishús þar sem efri hæðin
var úr timbri en neðri hæðin steypt.
Nú sést hvorgi tangur né tetur af efri
hæðinni en sú neðri stóðst eyðilegg-
ingarmáttinn. Steinar, sem er for-
maður almannavama staðarins á
neyðarstundu, og fjölskylda hans,
voru ekki á Flateyri þegar hörmung-
amar dundu yflr. Þegar DV ræddi
við Steinar var hann að leita eigna
sinna við harnaleikvöll staðarins.
Skammt frá fann hann leikfanga-
brúður átta ára dóttur sinnar, Ástu
Berglindar. Einnig nokkrar bækur
úr bókasafni sínu og brak úr húsinu.
„Ég fann hérna stuttermabol sem
var brotinn saman og eins og frá
homun var gengið inni í skáp. Þá em
bækurnar mínar hér vítt og breitt.
Þetta era ómetanlegir hlutir sem
ekki verða bættir,“ segir Steinar.
Það lýsir nokkuð þeim ógnar-
krafti sem var í snjóflóðinu og högg-
bylgjunni á undan því að búslóð
Steinars og efri hæð fóru langa leið.
Yfir tvær húsaraðir við Ólafstún og
Hjallaveg auk leiksvæðis sem þar er
á milli.
„Við fengum smjörþefinn af því
sl. vetur hversu mikill kraftur er í
höggbylgjunni þegar snjóflóð
skemmdi hús við Ölafstún og Goða-
tún. Hún virðist ná lengra en snjó-
flóðið sjálft sem leggst yfir á eftir,“
segir Steinar.
Steinar Guðmundsson með tvær brúður úr leikfangasafni dóttur sinnar sem hann fann um 250 metra frá þeim stað
sem hús hans stóð. Bækur hans og búslóð fóru undan snjóflóðinu sem skæðadrífa og meðal þess sem hann fann
var stuttermabolur sem enn var í sömu brotum og þegar hann var settur inn í skáp. DV-mynd Reynir
Dagfari
Hverjir kveiktu eldana?
Dagfari náði tali af einum mik-
ilsveröum og ábyrgum verkalýðs-
foringja á dögunum eða skömmu
eftir að Verkamannasambandið
hafði skorað á aðildarfélög sín að
segja upp samningum.
Dagfari spurði verkalýðsforingj-
ann hvort ekki væri tiltölulega ný-
búið að skrifa undir samninga til
eins og hálfs árs.
Jú, sagði verkalýðsforinginn. En
við skrifuðum undir á röngum for-
sendum. Við héldum að enginn
fengi meira en við. Það eru svik
við okkur þegar aðrir fá meira en
við. Um það sömdum við ekki.
En sömduð þið ekki um ykkar
eigin laun? Viljið þið semja fyrir
hönd annarra aö þeir fái aldrei
meira en þið fáið?
Við viljum fá sama og þeir.
En af hveiju látið þið þá ekki
hina semja fyrir ykkur ef þeir fá
meir en þið?
Af því að við erum að semja fyr-
ir okkur og semja um að aðrir
semji ekki um meira en við fáum,
sagði verkalýðsforinginn.
Viljið þið þá lækka launin hjá
öðrum?
Ég hef aldrei sagt að ég vilji
lækka launin hjá öðrum.
En hvað er það þá sem þú vilt ef
þú vilt að þitt fólk fái ekki hærri
laun en aðrir og aðrir mega þín
vegna fá hærri laun en þitt fólk?
Ég kveikti ekki þá elda sem nú
loga, sagði verkalýðsforinginn. Ég
hef ekki beðiö um þessa stöðu. En
það verður að gera eitthvað og til
að við getum gert eitthvað viljum
við segja upp samningum og semja
upp á nýtt. Mér er alveg sama hvað
samið verður um, svo framarlega
sem það er jafn hátt og launamenn
fá í Danmörku.
En afköstin í Danmörku eru
miklu meiri þar en hér, segi ég við
verkalýðsforingjann.
Hvort eru þið að tala um laun
þeirra hærra settu hér á landi eða
launamanna í Danmörku?
Það er eftir því hvemig á það er
litið. Ef við eram ekki að vinna í
Danmörku viljum við jafn há laun
og þeir fá sem hafa meira en við
hér á landi. Ef okkar fólk er að
vinna í Danmörku fær það meira
en við höfum samið um. Það geng-
ur ekki. Við viljum það sama og
okkar fólk í Danmörku enda þótt
það vinni ekki í Danmörku. Það er
réttlætismál.
En er þá ekki rétt að þið segið
upp samningum- gagnvart dönsk-
um vinnuveitendum?
Það er eftir því hvemig á það er
litið.
Hvað áttu við?
Ja, Danir era ekki í Vinnuveit-
endasambandinu.
En er islenskt verkafólk í Dan-
mörku í íslenskum verkalýðsfélög-
um?
Nei, það er meinið. Þess vegna
fær það meira en við. í því felst
óréttlætið. Þess vegna neyðumst
við til að segja upp samningum hér
heima að samningar í Danmörku
era miklu betri en samningar á ís-
landi. Það verður að koma í veg
fyrir að íslenskt verkafólk fái
meira en við hér heima. Þetta er
sama fólkið.
Er það ekki ólöglegt ef þiö segið
upp samningum sem búið er að
skrifa undir áður en þeir renna út?
Það kunna að vera ólög en það er
ekki okkur að kenna hvemig lögin
era. Við semjum ekki lögin. Það er
annarra að fara eftir lögum sem
þeir sjálfir setja. Við setjum ekki
lög og fóram ekki eftir lögum sem
brjóta gegn hagsmunum okkar.
Menn munu hafa verra af ef þeir
ætla að lög nái yfir þessa samn-
inga.
Er þá verkalýðshreyfingin tilbú-
in til að beita afli?
Það er hvers félags fyrir sig að
ákveða uppsögn samninga. Ég
skipti mér ekki af því. Menn ráða
hvort þeir fara að lögum eða ekki.
en það getur enginn kjaftað sig frá
þessum samningum. Það verður að
hækka launin hjá okkur eða lækka
þau hjá öðrum. Annars beitum við
afli.
Hvers konar afli?
Það kemur i Ijós.
Hvað kemur i ljós?
Það kemirr í ljós.
Ertu að hóta?
Það kemur í ljós.
Dagfari
Ooel. vinsælasti bíll Evrónu
OPEL wm- if Vr V y V R 1 1 VS: líPMP-' i IPl. VP i«. ■ if' ■: ■ ■ ■"■ W 1 w K# Vi Opel mest seldi bíll Evrópu 5 ár í röb ilMÉBfr