Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1995, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1995
11
Fréttir
Kr. 9.475 stBr.
Kr. 19.900 siRr.
Kr. 17.500 stf>r.
Kr. 15.845 st«r.
Kr. 3.700
Stóllinn ehf.
Smiðjuvegi 6d, Kópavogi
sími 554 4544
(M
RAÐGREIÐSLUR
TIL. Slj MAIVAPA |
Árni M. Mathiesen:
Hætt viö
að þjóðin
missi þol-
inmæðina
„Skýrsla Ríkisendurskoðunar er
ítarleg og í henni er að frnna veiga-
miklar tillögur um breytingar. Það
eitt segir heilmikla sögu um stöðu
og starfshætti Ríkisútvarpsins. Þar
er mjög brýnt að taka verulega til
hendinni á næstu misserum. Aðlagi
stofnunin sig ekki breyttum aðstæð-
um er hætt við að þjóðin missi þol-
inmæðina," segir Árni M.
Mathiesen, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um
Ríkisútvarpið var unnin fyrir fjár-
laganefnd Alþingis sem tók málið
upp að frumkvæði Árna. Árni segist
vænta þess að menntamálaráðherra,
útvarpsráð og útvarpsstjóri notfæri
sér skýrsluna og leggi hana til
grundvallar þegar ráðist verði í
nauðsynlegar breytingar á skipulagi
og starfsháttum Ríkisútvarpsins.
Ella segist Árni verða fyrir verulega
miklum vonbrigðum.
Að sögn Áma er það álitamál
hvort rétt sé að auka samvinnu rás-
ar eitt og tvö eins og lagt er til í
skýrslunni. Þó nú ríki einhver sam-
keppni um hlustendur milli rásanna
er ekki þar með sagt að leiðin til úr-
búta sé aukin samvinna. Eins mætti
hugsa sér að ríkið hætti að útvarpa
á tveimur rásum.
„I loftinu eru fjölmargar aðrar
hljóðvarpsrásir. Sú spuming er því
áleitin hvort það eigi að vera bund-
ið í lög að ríkið sé að vasast í hlut-
um sem aðrir geta séð um. Við lifum
á þeim tímum að sífellt þarf að end-
urskoða svona hluti.“ -kaa
Til að Ríkisútvarpið geti sinnt
lögbundnu hlutverki sinu þyrfti
stofnunin að fjárfesta fyrir allt að
4,7 milljarða króna en samkvæmt
lögum á hún að senda út tvær hljóð-
varpsdagskrár og eina sjónvarps-
dagskrá og eiga útsendingamar að
ná til alls landsins og næstu miða.
Árlegur viðbótarkostnaður stofnun-
arinnar yrði um 830 milljónir og
hækka þyrfti afnotagjöldin um 760
krónur á mánuði eða i 2.900 krónur
ef ná ætti þessum markmiðum.
Þetta kemur meðal annars fram í
skýrslu Ríkisendurskoðunar um
stjórnsýsluskoðun hjá Ríkisútvarp-
inu. í skýrslunni er lagt til að ráðist
verði í róttækar breytingar á stjóm-
og starfsskipulagi stofhunarinnar.
Meðal annars er lagt til að í stöðu
útvarpsstjóra verði ráðið tímabund-
ið og að útvarpsráð verði gert ábyrg-
ara gagnvart stjórnvöldum varðandi
fjárreiður stofnunarinnar og dag-
skrárgerð.
í skýrslunni er mælt með því að
fréttastofur hljóðvarps, sjónvarps og
íþróttadeildar verði sameinaðar.
Þannig megi ná fram sparnaði en
jafnframt auka gæði fréttanna og
styrkja stöðu Ríkisútvarpsins í sam-
keppni við aðra fjölmiðla.
Varðandi fjármál Ríkisútvarpsins
er bent á að árlega verði stofnunin
af um 200 milljónum króna vegna
undanþága elli- og örorkulífeyris-
þega frá afnotagjaldi. Ríkisendur-
skoðun leggur til að ríkissjóður beri
þennan kostnað eins og önnur út-
gjöld almannatrygginga.
í skýrslunni er innheimtukerfi af-
nogagjalda sagt seinvirkt og erfítt í
framkvæmd. Lagt er til að sá kostur
verði kannaður gaumgæfilega að
tengja afnotagjöld einstaklinga við
íbúðir í stað viðtækja og að þau
verði innheimt með opinberum
gjöldum. Þannig megi auka tekjurn-
ar um 150 milljónir á ári. Komi að
auki til rekstrarsparnaður upp á 60
milljónir megi bæta afkomu Ríkis-
útvarpsins um 210 milljónir króna á
ári.
Auk þessa er í skýrslu Ríkisend-
urskoðunar mælst til þess að starf-
semi sjónvarpsins verði flutt frá
Laugavegi í Efstaleiti. Kostnaðurinn
við flutninginn er áætlaður um 1
milljarður. Þá er á það bent að á
næstu árum þurfi að endurnýja 25
ára gamalt örbylgjukerfi stofnunar-
inar. í því sambandi komi tveir
kostir til greina; að Ríkisútvarpið
komi sér upp eigin kerfi fyrir um
400 milljónir eða semji um afnot af
ljósleiðarakerfi Pósts og síma -kaa
EB0
húsgögn
Stjórnsýsluendurskoðim hjá Ríkisútvarpinu:
Sameina a frettastofur
og breyta innheimtunni