Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995 Fréttir Fyrrum leigubílstjóri ákærður fyrir skipulagðar blekkingar og 15,4 milljóna fjársvik: Svik gegn fjölda fólks, sumu með skerta heilsu Rúmlega fimmtugur maöur, sem löngum hefur stundaö leigubílaakst- ur í Reykjavík, hefur verið ákæröur fyrir ítrekuö fjársvik með því að hafa kerfisbundið blekkt níu manns, flest konur, sem fæstar þekktust innbyrð- is, til að taka á sig samtals 15,4 millj- óna króna fjárskuldbindingar með ýmsum hætti á rúmlega þriggja ára tímabili. Sumar konumar bjuggu við skerta andlega heilsu. Manninum er gefið að sök að hafa tekist að telja fólkinu trú um að hann myndi greiða þessar skuldbindingar - konumar og aðrir sem í hlut áttu þyrftu engar áhyggjur aö hafa þar sem maðurinn hefði svo góðar tekj- ur. Hann hefði sagt fólkinu að hann ætti von á vaxta- og tryggingabótum. Maðurinn er jafnframt ákærður fyr- ir að hafa aldrei ætlað sér að standa í skilum með skuldabréf, víxla og veð þár sem hann fékk fólkið til að gang- ast í ábyrgðir fyrir sig - enda var fjár- hagur hans með þeim hætti aö hann átti enga möguleika á að standa við skuldbindingamar sem hann kom sér í. Stöðugt fjármálasukk Ákæran á hendur manninum er í 29 hðum og lýsir umfangsmiklu fjár- málasukki á tímabilinu frá júlí 1991 til október 1994. í flestum mánuðum tímabilsins vora hundruð þúsunda króna ýmist fengin aö láni hjá kon- imum eða hann fékk þær til að gefa út skuldabréf, víxla eða skuldabréf- alán og aUt með fjárskuldbindingum viðkomandi þó svo að maðurinn hafi ráðstafað fénu í eigin þágu. Ein kvennanna átti við alvarleg geðræn vandamál að stríða. Hana fékk maðurinn til að vera útgefandi á skuldabréfaláni hjá Glitni hf. að upphæð 1,7 milljónir króna og lét hana síðan kaupa nýjan bíl á hennar nafni sem hann notaði síöan í leigu- bílaakstur. Hann fékk konuna síðan til að samþykkja og gefa út víxla fyr- ir sig upp á 600 þúsund krónur sem hann seldi og notaði flesta í eigin þágu. Önnur kona var á lokaðri geðdeild Landspítalans þegar maðurinn fékk hana tíl að veðsetja fasteign sína fyr- ir veðskuldabréfaláni upp á 1,5 millj- ónir. Til aö fá veöleyfið sagði hann konunni að hann ætti von á trygg- ingabótum upp á 4 milljónir sem hann fékk aldrei. Ein konan lenti í 5 milljóna „flækju“ Þriðju konuna fékk maðurinn til að lána sér peninga eða skrifa upp á skuldabréf eða skuldabréfalán fyrir samtals hátt í 5 milljónir króna. í þeirri upphæð felast sjö peningalán konunnar á örfáum mánuðum síð- asta árs upp á samtals tæpar 1,8 milljónir auk sjálfskuldarábyrgðar hennar og reyndar einnig þeirrar sem var á lokuðu geðdeildinni upp á 2,3 milljónir. Fjórðu konuna fékk maöurinn til að taka fyrir sig lán, oftast skulda- bréfalán, upp á samtals rúmar 2,8 milljónir króna. í eitt skiptið tók kon- an slíkt lán upp á eina milljón. Mað- urinn lét konuna skrifa upp á og seldi síðan sjálfur bréfið og lagði andvirðið inn á tékkareikning sinn en 738 þús- und krónum var varið af upphæðinni til greiðslu Visaskuldar. Aðrir aðilar í málinu, fimm manns, skrifuðu upp á lægri fjárhæðir en framandgreindarkonur. -Ótt Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra bætir í kaffibolla Theodors M. Tschopp, forstjóra Alusuisse-Lonza, á blaða- mannafundi í gær. DV-mynd GVA Theodor M. Tschopp, forstjóri Alusuisse-Lonza: Stór stund fyrir okkur - ekkert í þessum heimi er áhættulaust, segir Jóhannes Nordal Stækkun álversins: Formleg undirritun um miðjan mánuðinn Niðurstöður viðræöna um stækkun álversins í Straum- svík vora kynntar í Reykjavík í gær. í kíölfarið sendu Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra og Theodor M. Tschopp, forstjóri Alusuisse-Lonza, frá sér sam- eiginlega yfirlýsingu um efnis- atnði samkomulagsins. í yfirlýsingunni segir aö stækkun álversíns feli í sér byggjngu nýs kerskála með 62 þúsund árstonna framleiðslu- getu, stækkun steypuskála og betrambótum á annarri að- stöðu. Stefnt er aö þvi að nýi kerskálinn og önnur tengd aö- staða veröi fullbyggð innan næstu 24 mánaða og aö rekstur kerskálans hefjist á síðasta árs- fjórðungi ársins 1997. Fram kemur í yfirlýsingunni að umhverfisráöherra hafi gef- ið út starfsleyfi fyrir stækkun og aö ríkisstjóm íslands hafi samþykkt að staöfesta viðauka við gildandi aðalsaming viö Alusuisse-Lonza. Stefht er að því að gengið verði formlega frá samkomulaginu á sérstökum undirskriftarfundi í Reykjavík um miðjan nóvember. Sam- kvæmt yfirlýsingunni á stað- festing Alþingis að liggja fyrir eigi síðar en um miöjan des- ember næstkomandL -kaa „Þetta er stór stund fyrir okkur í Alusuisse-Lonza og trúlega einnig fyrir íslensku þjóðina,“ sagði Theo- dor M. Tschopp, forstjóri Alusuisse- Lonza, eftir að samkomulag félagsins við íslensk stjórnvöld um stækkun álversins í Straumsvík hafði verið kynnt í Reykjavík í gær. Theodor kom til landsins í gær ásamt Kurt Wolfensberger, forstjóra áldeildar Alusuisse-Lonza. Á blaða- mannafundi sem þeir sátu ásamt Finni Ingólfssyni iðnaðarráðherra og samninganefnd íslands síödegis í gær sagði Theodoer AIusuisse-Lonza vera að hugsa til framtíðar þegar það ákvað að ráðast í stækkun. Stækkun- in fæh meðal annars í sér aö félagið framleiddi sjálft um helming þess áls sem það þyrfti til úrvinnslu. Á fundinum geröi Kurt grein fyrir helstu ástæðum þess að ákveðið var að stækka álverið á íslandi. í því sambandi nefndi hann sérstaklega hagstætt orkuverð, vinsamlegt skattaumhverfi og bætt innra skipu- lag í álverinu. A fundinum var upplýst að nýr orkusölusamningur mundi taka gildi með stækkun álversins. í stað gólfs og þaks á raforkuverði mun það al- farið stjórnast af álverði. i núverandi samkomulagi ráðast hins vegar um 60 prósent af raforkuveröinu af þaki og gólfi á álverði. Þá munu skattar álversins lækka til samræmis yið það sem íslensk fyrirtæki búa við’. Aðspurður um orkuverðið vildi Jóhannes Nordal, formaður samn- inganefndar íslands, ekki kannast við að orkuverðiö yrði óeðlilega lágt. Það að htið væri til íslands sem kosts í stóriðjumálum væri lágt orkuverð. Til langs tíma mætti búast við aö ávinningur Landsvirkjunar væri viðunandi. „Ekkert í þessum heimi er áhættulaust," sagði Jóhannes hins vegar um hugsanlegar verðsveiflur. -kaa NIÐURSTAÐA Á að veita rúmensku rní ifcmQ konunni hæli hérlendis? rJrJf yU4-16U Stuttar fréttir Varnartiðið mikilvægt Gjaldeyristekjur íslendinga af varnarhðinu nema 92 mihjöröum króna á undanfómum 10 árum. Skv. Viðskiptablaðinu er vam- arhöið álíka mikilvægt fyrir þjóð- ina og eitt álver. Loðnubræðslabætt Unnið er að miklum endurbót- um á síldar- og fiskimjölsbræðslu HB hf. á Akranesi. Kostnaðurinn er um 100 mihjónir. Skv. Viö- skiptablaöinu eykst afkastageta verksmiöjunnar úr 430 tonnum á sólarhring í 750 tonn. Frá árinu 1988 hefur rekstrar- kostnaður félagsmálaráðuneytis- ins aukist um 50% aö raungildi. Að sama skapi hefur starfsmönn- um ráðuneytisins fjölgaö veru- lega. Viðskiptablaðiö greindi frá. Bóndifærbætur Gerðardómur hefur dæmt land- búnaðarráðuneytið til að greiöa Óðni Sigþórssyni, bónda i Einars- nesi í Borgarfirði, 37,5 milijónir í bætur fyrir skerðingu á laxveiði- hlunnindum jarðarinnar. Dýrari skíðakort Skíðakort í lyftumar i Bláfjöll- um hækka að meðaltali um 7% þegar svæðiö verður opnað í vet- ur. Tíminn greindi írá þessu. Hlutabréf tóku kipp Viðskipti með hlutabréf tóku kipp í gær. Skv. Morgunblaðinu er ástæðan rakin til þeirrar ákvörðunar Alusuisse-Lonza að stækka álverið í Straumsvík. Valdameirifulltrúi Til stendur að byggingafulltrú- inn í Reykjavík taki aö sér að af- greiða ýmis verkefni sem til þessa hafa fariö fyrir bygginganefhd. Verkefnin era m.a. teikningar vegna brunamála, minni háttar úthtsbreytingar, umsóknir um uppsetningu girðinga og óskir um tijáfehingar. RÚV greindi frá. Nlðdleftvspum Eftirspurn eftir fiskimjöh og lýsi er mikil um þessar mundir. Skv. Morgunblaðinu nemur veröhækkunin allt að 30%. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.