Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1995, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1995
Kristján Ragnarsson hefur enn
ekki tekið leppinn frá auganu.
Leppurinn
hefur ekkert
hreyfst
„Ég bað hann Kristján fyrir
tveimur árum, þegar hann var
að ræða um vaktafyrirkomulag-
ið, að taka nú leppinn frá augan-
um. Ég vil endurtaka þá beiðni
nú vegna þess að leppurinn hef-
ur ekkert hreyfst."
Björn Grétar Sveinsson, í Tímanum.
Ég segi amen
„Þegar fólk vill lifa kristnu lífi
er því ekki alveg sama hvað það
meðtekur í sinn hugarheim. Ég
Ummæli
segi amen við því.“
Snorri Óskarsson safnaðarhlrðir,
í Alþýðublaðinu.
Einstakur leikur
„Þetta var einstakur leikur.
Við náðum okkur aldrei al-
mennilega á strik og settum ekki
einu sinni auðveld sniðskot nið-
ur.“
Páll Kolbelnsson þjálfari,
í Morgunblaðinu.
Auralaust þjóðfélag
„Ég tel að það sé framundan
hér á landi að hægt verði að
komast af án seðla og mynt-
ar...Ég tel að innan fimm ára
megi segja að þjóðfélagið verði
auralaust."
Einar S. Einarsson, í Tímanum.
Engin bókmenntaleg leik-
fimi
„Það er engin bókmenntaleg
leikfimi í verkinu. Sjálfum leið-
ast mér þannig bækur. Þannig
að það væri ólíkt mér að skrifa á
þanrj veg.“
Friðrik Erllngsson, í Alþýðublaðinu.
.......■i.niini miHBBfc.ri.li--:VV:" J......
Þorkell Sigurbjörnsson kynnir
leikhústónlist sína.
Lögin úr leikhúsinu
í kvöld verða fyrstu tónleikar í
tónleikaröð Kaffileikhússins sem
helguö er íslenskri leikhústón-
list. Mun Þorkell Sigubjörnsson
tónskáld kynna leikhústónlist
sína og félagar úr Caput-hópnum
flytja úrval hennar. Flutt verða
lög úr Atómstöðinni eftir Halldór
Laxness, Kaj Munk eftir Guð-
rúnu Ásmundsdóttur, Jóni Ara-
syni eftir Matthías Jochumsson,
Kaupmanninum í Feneyjum eftir
William Shakespeare og Ljóni í
síðbuxum eftir Bjöm Th. Bjöms-
son.
Tónleikar
Þorkell mun, auk þess að
kynna tónlistina, segja frá tilurð
hennar. Flytjendur úr Caput em
þeir Daníel Þorsteinsson, pianó,
Eggert Pálsson, slagverk og söng-
ur, Guðni Franzson, klarinett og
söngur, Kolbeinn Bjarnason,
flauta, Sigurður Halldórsson,
selló og söngur, og Sverrir Guð-
jónsson, söngur. Dagskráin hefst
kl. 21.00 en húsið verður opnað
kl. 20.00.
Skúrir eða slydduél
I dag verður vestlæg átt, víðast
kaldi eða stinningskaldi. Skúrir eða
slydduél, einkum vestanlands.
Gengur norðaustanlands í allhvassa
eða hvassa norðvestanátt með éljum
er líður á morguninn. Hitinn á land-
inu verður á bilinu 1 til 8 stig, hlýj-
Veðrið í dag
ast suðaustanlands. Á höfuðborgar-
svæðinu verður vestan og suðvest-
an kaldi en norðvestlægari er líður
á daginn. Skúrir eða haglél. Hiti
verður 1 til 5 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 16.50
Sólarupprás á morgun: 9.35
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.01
Árdegisflóð á morgun: 7.16
(Stórstreymi)
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaö 5
Akurnes léttskýjaö 4
Bergsstaðir úrkoma 1
Bolungarvík slydda 1
Egilsstaðir rigning 2
Keflavíkurflugvöllur úrkoma 3
Raufarhöfn alskýjað 3
Reykjavík haglél 2
Stórhöföi úrkoma 4
Bergen súld 7
Helsinki léttskýjaö -12
Kaupmannahöfn lágþokubl. -5
Ósló alskýjaö 0
Stokkhólmur þoka -8
Þórshöfn léttskýjaö 7
Amsterdam þokumóöa 9
Barcelona heiöskírt 9
Chicago hálfskýjaö -1
Feneyjar léttskýjað 4
Frankfurt þokumóóa 3
Glasgow skýjaö 12
Hamborg skýjað 1
London þoka 10
Los Angeles þokumóöa 17
Lúxemborg súld 4
Madríd léttskýjaö 3
Malaga léttskýjaö 11
Mallorca léttskýjaö 4
New York hálfskýjaö 9
Nice léttskýjað 8
Nuuk snjókoma 0
Orlando alskýjaö 23
París þokumóöa 3
Róm heiöskírt 5
Valencia mistur 8
Vín léttskýjaö 1
Winnipeg léttskýjaö -12
Auðunn Jónsson kraftlyftingamaður:
Byrjaði að æfa
lyftingar tólf ára gamall
„Ég náði á þessu móti þeim ár-
angri sem ég hef stefht að. Ég fann
strax að ég var í miklu stuði og ár-
angurinn lét ekki á sér standa og
allt gekk upp og það má segja að
þetta hafi verið draumamót mitt,“
segir Auðunn Jónsson kraftlyft-
ingakappi sem stal senunni í
íþróttum helgarinnar og setti hvert
metið á fætur öðru og endaði með
að lyfta meiri þyngd samanlagt en
heimsmet unglinga er. Auðunn fær
það þó ekki viðurkennt vegna þess
Maður dagsins
að enginn alþjóðlegur dómari var
til staðar. Auðunn, sem er tuttugu
og þriggja ára gamall, telst enn til
unglinga og verður það út þetta ár.
„Ég byrjaði að æfa tólf ára og er
því búinn að vera ellefu ár sam-
fleytt í lyftingunum. Ástæöa fyrir
því að unglingaflokkurinn nær
upp í tuttugu og þriggja ára er að
bannað er fyrir yngri en fjórtán
ára að keppa í kraftlyftingum."
Auðunn Jónsson.
Auðunn sagðist ekki hafa haft
neinn sérstakan þjálfara í gegnum
tíðina heldur hafi hann fengið leið-
beiningar frá sér eldri mönnum.
„Þegar ég fór að æfa var strax tek-
ið á móti mér sem einum af hópn-
um og þeir sem stóðu fremst tóku
strax að leiðbeina mér. Nú erum
við nokkrir búnir að stofna kraft-
lyftingadeild innan HK og erum
með góða aðstöðu á Digranesinu.“
Auðunn sagði að hann hefði æft
og keppt mikið að undanfómu og
nú væri kominn tími til að taka
sér hvíld frá keppni en hann setur
stefnuna á heimsmeistaramótið í
Austurríki á næsta ári: „Það er
komin ákveðin þreyta og svo er
kominn tími að sinna fjölskyld-
unni. Við eigum von á okkar öðru
bami fljótlega, ég og kærasta mín,
Ragnheiður Edda Viðarsdóttir, og
eigum fyrir eins árs gamla dóttur,
Ragnheiði Emilíu, þannig að það
verður í nógu að snúast með fjöl-
skyldunni á næstunni."
Auðunn er í námi í pípulögnum
og vinnur hjá Vatnsveitu Kópa-
vogs. Hann stefnir að því að klára
námið fljótlega. Hann sagði að all-
ur aukatími hans færi í lyftingam-
ar og því lítill tími til annarra
áhugamála.
Myndgátan
Dulmál
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
Þrír leikir í 1.
deild kvenna
Einn leikur var í 1. deild
kvenna í handboltanum i gær-
kvöld og í kvöld verða þrír leikir
í sömu umferð. í Árbænum leika
Fylkir og Haukar og hefst sá
leikur kl. 18.15. Síðar um kvöldið
eða kl. 20.00 leika FH og ÍBV í
Kaplakrika og Valur-Fram í
Valsheimilinu. Síðasti leikurinn
í umferðinni á milli ÍBV og Vík-
íþróttir
ings fer síðan fram annað kvöld.
Þá verða leiknir í kvöld þrír leik-
ir í 2. deild karla.
Leikmenn úrvalsdeildarinnar
hafa ekki leikið síðan á sunnu-
daginn en þá höfðu verið leiknar
fjórar umferðir á átta dögum.
Þráðurinn verður tekinn upp
annað kvöld og fer þá fram heil
umferð.
Skák
Á alþjóðlegu móti í Búdapest fyr-
ir skömmu kom þessi staða upp í
skák Þjóðverjanna Enders, sem
hafði hvítt og átti leik, og Reschke.
Hvítur fann fallega vinningsleið:
28. Dxh5+! og svartur kaus að
leggja niður vopn. Eftir 28. - gxh5
29. Rxf6+ Kh6 (ef 29. - Kh8 30. Hg8
mát) 30. Bxc4! og 30. - bxc4 er svar-
að með 31. f5+ og mát í næsta leik.
Jón L. Árnason
Bridge
Pakistaninn Zia Mahmood og
Bandaríkjamaðurinn Peter Weich-
sel voru hinir öruggu sigurvegarar
á Poltitiken-stórmótinu sem lauk í
Danmörku um síðustu helgi. Þeir
voru með 43 impa forystu á parið í
öðru sæti (Buratti-Lanzarotti) þegar
upp var staðið og því vel að sigrin-
um komnir. Til þess að vinna mót
sem þetta í jafnsterkum hópi spilara
er nauðsynlegt að lenda ekki í mikl-
um mótbyr. Óhætt er að segja að
meðbyr hafi verið með þeim Zia og
Weichsel í þessu spili í viðureign-
inni við Danina Jens Auken og
Dennis Koch-Palmund. Þeir fengu
aðstoð frá andstæðingunum í sögn-
um og fullnýttu sér það. Sagnir
gengu þannig, norður gjafari og NS
á hættu:
4 G9
* ÁK10
1 ÁKG10985
* Á762
973
Á8732
* 6
* 10854
* 6542
* K96
* D2
4 KD3
«f DG8
-f D1054
* 743
Norður Austur Suður Vestur
Weichsel Palmund Mahmood Auken
1* pass pass Dobl
Redobl 1-f 1G pass
24 2* Dobl 34
3G p/h
Jens Auken var ekki heppinn
með opnunardobl sitt að þessu
sinni. Hann bauð ekki aðeins and-
stæðingum sínum upp á annað
tækifæri í sögnum heldur tókst NS
að koma höndunum til skila og
komast í rétta samninginn. Útspilið
var tígull á ás og meiri tíguli og Zia
tók sína upplögðu 10 slagi. Zia og
Weichsel voru eina parið á mótinu í
NS sem komst í 3 grönd í þessu spili
og verðlaunin því rífleg fyrir það.
ísak Örn Sigurösson